Morgunblaðið - 05.01.1996, Side 1
92 SÍÐUR B/C/D
3. TBL. 84. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Sextán múslimar látnir lausir úr serbnesku fangelsi í Sarajevo
Kvarta yfir barsmíðum
og gagnrýna NATO-lið
Sarajevo. Reuter.
Reuter
BOSNÍSKIR múslimar fagna í herbúðum NATO í Sarajevo eftir að serbnesk yfirvöld
höfðu látið þá lausa í gær. Þrír þeirra sögðust hafa sætt barsmíðum Serba.
SERBNESK yfirvöld slepptu í gær
16 múslimum, sem voru teknir hönd-
um á serbnesku yfirráðasvæði í
Sarajevo. Þrír múslimanna, sem voru
í haldi Serba í tíu daga, sögðust
hafa sætt barsmíðum og illri með-
ferð serbneskra fangavarða og
gagnrýndu frammistöðu friðar-
gæsluliða Atlantshafsbandalagsins
(NATO) í málinu.
Hinir múslimarnir 13, tólf karlar
og öldruð kona, virtust miður sín
eftir fangelsisdvölina' en sögðu að
ekki hefði verið ráðist á þá. Engin
merki voru um tvö börn, sem Bosníu-
stjórn hafði sagt að væru á meðal
fanganna, og bosnískir embættis-
menn sögðu að um misskilning hefði
verið að ræða.
Serbneskir lögreglumenn tóku
múslimana höndum þegar þeir óku
inn á serbneskt yfirráðasvæði á vegi
sem franskir friðargæsluliðar höfðu
opnað og sagt að óhætt væri að
fara um. Nokkrir múslimanna fóru
hörðum orðum um þátt friðargæslu-
liðanna. „Frönsku hermennirnir
sögðu við okkur „allt í lagi, haldið
bara áfram“,“ sagði einn múslim-
anna, fertugur vörubílstjóri.
Annar vörubílstjóri kvaðst hafa
ekið ásamt tveimur starfsbræðrum
sínum á eftir bílalest franskra her-
manna og serbneskir lögreglumenn
hefðu stöðvað þá. Frönsku hermenn-
irnir hefðu skilið þá eftir og ekið í
burtu meðan lögregiumennirnir
hefðu barið og sparkað í bílstjórana.
Allir múslimarnir kvörtuðu yfir
því að lögreglumennirnir hefðu stol-
ið skilríkjum þeirra, erlendum gjald-
eyri og bílum.
Handtaka múslimanna var brot á
Dayton-samkomulaginu, sem á að
tryggja ferðafrelsi í Bosníu. Emb-
ættismenn NATO boðuðu í gær hert
eftirlit á serbneska yfirráðasvæðinú
en þeir áréttuðu að friðargæsluliðið
hefði hvorki mannafla né umboð til
að gegna hlutverki lögreglu í land-
inu.
Lausn málsins gæti greitt fyrir
því að Bill Clinton Bandaríkjaforseti
færi til Bosníu til að heilsa upp á
bandaríska hermenn. Talsmaður for-
setans sagði hann ætla að fara þang-
að áður en hann flytti stefnuræðu
sína 23. janúar en þó ekki um helg-
ina.
Útvörp
mótmæla
lagakvóta
París. Reuter.
FRANSKAR útvarpsstöðvar
mótmæla nú nýjum lögum sem
kveða á um að a.m.k. 40%
dægurlaga, sem leikin eru frá
klukkan 6.30 á morgnana til
10.30 á kvöldin, skuli vera
frönsk.
Lögin tóku gildi 1. janúar og
markmið þeirra er að bæta
stöðu franskra tónlistarmanna
í samkeppninni við bandaríska
og breska tónlistarmenn.
„Þetta er mjög sorgleg laga-
setning," sagði Caroline Dav-
igny, útvarpsstjóri Fun Radio,
sem einkum hefur leikið banda-
rísk og bresk lög sem höfða til
ungra hlustenda. Davigny sagði
að vinsældir stöðvarinnar hefðu
snarminnkað frá því hún tók
að fjölga frönsku lögunum.
Skyrock, önnur útvarpsstöð fyr.
ir unga fólkið, lýsir löggjöfinni
sem tilræði við frelsi hlustenda
til að hlýða á það sem þeir vilja.
„Óhjákvæmileg" lög
Samband útvarpsstöðva hef-
ur gagnrýnt nýju lögin og kraf-
ist þess að þau verði felld úr
gildi meðan ræddar verði hugs-
anlegar breytingar á þeim. Ut-
vörp, sem hafa einkum leikið
frönsk dægurlög, segja laga-
setninguna geta minnkað flöl-
breytnina, þannig að allar
stöðvarnar verði nánast eins.
„Mér finnst sorglegt að
svona sé komið fyrir okkur,“
sagði franski söngvarinn Charl-
es Aznavour um nýja kvótann.
„Þetta er þó orðið óhjákvæmi-
legt, spurning um hvort frönsk
menning haldi velli.“
Rússland
Gætu fall-
ið frá af-
vopnun
Kiev. Reuter.
PAVEL Gratsjov, varnarmálaráð-
herra Rússlands, sagði í gær að
Rússar kynnu að neyðast til að falla
frá fækkun skammdrægra kjarn-
orkueldflauga og rifta afvopnunar-
samningum ef fyrrverandi kommún-
istaríki í Mið- og A-Evrópu gengju
í Atlantshafsbandalagið (NATO).
Gratsjov áréttaði andstöðu rúss-
nesku stjórnarinnar við hugmyndir
um stækkun NATO til austurs í
ræðu sem hann flutti í Kiev, þar sem
hann hyggst meðal annars ræða við
varnarmálaráðherra Bandaríkjanna
og Úkraínu, William Perry og Valery
Shmarov, um afvopnunarmál.
„Við munum neyðast til að endur-
skoða stefnu okkar varðandi hlutverk
og stöðu skammdrægra kjarnorku-
eldflauga og endurskoða samninga
okkar á hernaðarsviðinu," sagði
Gratsjov. Þetta er í fyrsta sinn sem
hann tjáir sig um hugsanlega stækk-
un NATO frá sigri kommúnista í
þingkosningunum i desember.
Fjárlagadeila Bills Clintons Bandaríkjaforseta og leiðtoga repúblikana
London. Reuter.
SENDIRÁÐ Bandaríkjanna í Evr-
ópu sögðust í gær hafa þurft að
draga úr þjónustunni og segja
starfsfólki upp um stundarsakir
vegna fjárlagadeilu repúblikana
og Bills Clintons Bandaríkjafor-
seta.
Stjórnarerindrekar og aðrir
starfsmenn hafa verið sendir í
launalaus leyfi í mörgum sendiráð-
um, m.a. í Brussel, Dublin, Bonn,
Helsinki og Róm. Hætt hefur ver-
ið að veita áritanir í flestum sendi-
ráðanna og bandarískir borgarar
hafa ekki getað endurnýjað vega-
bréf sín.
Talsmaður sendiráðsins í Lond-
on, sem er með 700 starfsmenn,
sagði að launagreiðslurnar yrðu
helmingi lægri en venjulega þessa
vikuna.
Vaxtalaus
lán í Moskvu
Talsmaður sendiráðsins í
Moskvu sagði að vegabréfsáritanir
væru nú aðeins veittar í „neyðartil-
vikum“, t.a.m. þegar rússneskir
embættismenn þyrftu nauðsyn-
lega að fara til Bandaríkjanna eða
vegna ættleiðinga munaðarlausra
barna. Félag starfsmanna sendi-
ráðsins hefur samið við rússnesk-
Starfsemi sendi-
ráða að lamast
an banka um að þeir geti fengið
vaxtalaus lán þar til fjárlagadeilan
leysist.
Um 20% stjórnarerindrekanna
í Bonn hefur verið sagt upp um
stundarsakir og fimmtungur
starfsmanna sendiráðsins í Róm
er í launalausu leyfi.
S£ COfísuL4s
«1RE dicks,en
Reuter
ÖRYGGISVÖRÐUR stendur við læstar dyr bandaríska sendi-
ráðsins í Brussel sem hefur hætt að veita vegabréfsáritanir.
Helmingur launanna
greiddur í Reykjavík
Starfsmenn sendiráðsins í
Reykjavík áttu að fá gi'eidd laun
fyrir tvær vikur í gær en fengu
aðeins greitt fyrir aðra vikuna.
Leysist deilan ekki á næstunni
gæti farið svo að engin laun yrðu
greidd næsta útborgunardag. ís-
lendingar sem ætla að dvelja leng-
ur í Bandaríkjunum en 90 daga
hafa ekki fengið vegabréfsáritan-
ir, en þeir sem dvelja skemur þurfa
ekki áritanir.
Boðuðum samningafundi Clint-
ons og leiðtoga repúblikana var
aflýst í gærkvöldi. Talsmaður for-
setans sagði að það merkti ekki
að samningaviðræðurnar hefðu
farið út um þúfur og að hugsan-
lega yrði efnt til fundar í dag.
■ Deilur Dole og Gingrich/20