Morgunblaðið - 05.01.1996, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 05.01.1996, Blaðsíða 40
40 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Ástkær sambýlismaður, sonur og bróð- ir okkar, HARALDUR TÓMASSON, Hvammsgerði 13, Reykjavík, lést á heimili sínu 2. janúar. Kristján Ingi Jónsson, Sóley Sveinsdóttir, Guðrún Tómasdóttir, Sigursveinn Tómasson, Sigríður Tómasdóttir, Anna Tómasdóttir. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, LAUFEY STEFÁNSDÓTTIR frá Framtfð, Vestmannaeyjum, til heimilis á Hofsvallagötu 61, Reykjavík, sem lést í Borgarspítalanum 30. desem- ber, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju mánudaginn 8. janúar kl. 13.30. Ingimundur Þorsteinsson, Garðar Pétursson, Ragnheiður Víglundsdóttir, Ómar Orn Ingimundarson, Mai Irene Austgulen, Unnur Ingimundardóttir, Agnes Ingimundardóttir . og barnabörn. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFURÞÓRÐARSON, Suðurgarði, lést í Sjúkrahúsi Vestmannaeyja að kvöldi nýársdags. Útförin fer fram frá Landakirkju laugar- daginn 6. janúar kl. 11.00 f.h. Þuríður Ólafsdóttir, Jón Svan Sigurðsson, Ásta Ólafsdóttir, Eyjólfur Pálsson, Árni Óli Ólafsson, Hanna Birna Jóhannsdóttir, Jóna Ólafsdóttir, Már Jónsson, Margrét Marta Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, SVANBORG ÞÓRMUNDSDÓTTIR, Borgargerði 9, áður Mávahlíð 3, Reykjavík, lést í Landspítalanum 22. desember sl. Bálförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir eru færðar læknum og hjúkrunarfólki á deild 11B í Landspítalanum fyrir góða hjúkrun. Ólöf Erla Hjaltadóttir, Magnús Einarsson, Svanborg Ánna Magnúsdóttir, Guðmundur Davíðsson, Hjalti Magnússon, Anna Sigri'ður Magnúsdóttir, Atli Kárason og barnabarnabörn. t Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BORGHILDUR SIGRÚN EGGERTSDÓTTIR, Leirutanga 41 a, Mosfellsbæ, andaðist á Reykjalundi þann 26. desem- ber 1995. Jarðarförin fór fram í kyrrþey, að ósk hinnar látnu, þann 4. janúar 1996. Karl Jónsson, Þóra Kristín Vilhjálmsdóttir, Ásta Katrfn Vilhjálmsdóttir, Guðmundur Guðjónsson, Borghildur Vilhjálmsdóttir, Herbert Hjelm, Vilhjálmur Vilhjálmsson, Sigrún Haraldsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. HREFNA HALL- GRÍMSDÓTTIR + Hrefna Hall- grímsdóttir fæddist 10. janúar 1917 að Þengilbakka á Grenivík og lést á heimili sínu, Hring- braut 37, Hafnar- firði, 28. desember 1995. Foreldrar hennar voru Dýrleif Sigurbjörg Guð- laugsdóttir, f. 2.10. 1899, d. 11.3. 1993, og Hallgrimur Jó- hannsson, f. 18.8. 1873, d. 6.5. 1930. Hálfsystkini Hrefnu, sammæðra (börn Sigur- bjargar og eiginmanns hennar, Jóhannesar Kristinssonar, 1898-1957) voru: María Hólm- fríður, f. 13.7. 1920; Jóhannes Guðni, f. 22.12. 1921; Jóninna Gunnlaug, f. 17.8.1923, d. 12.11. 1946; Stefanía Tómasína, f. 8.11. 1926; Nanna Hólmdís, f. 2.12. 1928; Sólveig, f. 26.11. 1929; Gunnar, f. 12.9. 1931; Sig- urður Sigmar, f. 30.9. 1932, d. 17.11.1968; Steingrímur Hallur, f. 13.4. 1935; Kristinn Guðlaug- ur, f. 24.10. 1938, og Sigurbjörg Hallfríður Hafdís, f. 9.7. 1942. HREFNA Hallgrímsdóttir lést að heimili sínu að kvöldi fimmtudagsins 28. desember sl. eftir langvarandi og erfíð veikindi. Hún fæddist á Grenivík 10. janúar 1917 og vantaði því aðeins 13 daga í 79 ára aldur. Foreldrar hennar voru Dýrleif Sigur- björg Guðlaugsdóttir þá heimasæta á Tindriðastöðum í Fjörðum og Hall- grímur Jóhannsson. Sigurbjörg móð- ir Hrefnu giftist síðar Jóhannesi Kristinssyni frá Geirhildargörðum í Öxnadal og áttu þau hjón 11 börn. Að Hrefnu stóðu styrkir stofnar í móðurætt. Móðir hennar var meðal síðustu ábúenda i Fjörðum og allt er það fólk þekkt fyrir framúrskar- andi dugnað. Þá er og við brugðið lagni margs þess fólks og vandvirkni og sér þess víða stað. Hrefna var alin upp á Húsavík hjá Vilfríði Hjálm- arsdóttur, sem tók hana að sér sem sína eigin dóttur og þar var hún til 18 ára aldurs. Eins og margt annað ungt fólk á þessum tíma, lá leið Hrefnu „suður“ og þar kynntist hún eftirlifandi eigin- manni sínúm, Þórði Þórðarsyni skrif- stofumanni, en hann starfaði hjá Mjólkurstöðinni í Reykjavík, og stofnuðu þau heimili Hafnarfírði og áttu lengst af heima á Hringbraut 37, þar sem þau bjuggu sér mjög fagurt og einstaklega hlýlegt heim- ili. Heimili þeirra Hrefnu og Þórðar á Hringbrautinni í Hafnarfirði var einstaklega fallegt og þar var gest- risni í þeim mæli sem best þekkist og þekkst hefur, enda oftast ærið gestkvæmt og þar kom enginn að dyrum utan að þiggja veitingar sem ætíð voru fram bornar af þeirri reisn og hlýhug sem bestur verður. Þeir eru áreiðanlega margir sem nú við fráfall húsmóðurinnar minnast ógleymanlegra stunda yfír kaffí eða súkkulaði og öðru góðgæti og hrædd- ur er ég um að mörgum muni nú þykja vera skarð fyrir skildi. Hrefna var í meðallagi há og grannvaxin. Líktist hún að því leyti móður sinni, og bar öllum, sem til þekktu saman um, að af öllum 12 bömum Sigurbjargar Guðlaugsdótt- ur væri Hrefna líkust henni. FVam- Hálfsystkini Hrefnu samfeðra voru: Val- gerður Elísabet, Hallgrímur og Þór- hildur. Þau eru öll látin. Hrefna giftist 8. janúar 1938 eftirlif- andi eiginmanni sín- um, Þórði Þórðar- syni, f. 29. júlí 1910, skrifstofumanni. Þau áttu alian sinn búskap heima í Hafnarfirði, lengst af á Hringbraut 37. Börn Hrefnu og Þórðar eru: Þórður, f. 17.12. 1938, maki Guðrún Friðjóns- dóttir, þau eiga 4 börn; Vilfríð- ur, f. 18.8.1945, maki Guðmund- ur Pálsson, þau eiga 4 börn og 5 barnaböm; Steingrímur, f. 2.6. 1951, maki Þorgerður Jóns- dóttir, þau eiga 3 börn; Hrafn, f. 20.6. 1953, maki Ingibjörg Ólafsdóttir, þau eiga 6 börn. Afkomendur Hrefnu og Þórðar er nú 26. Hrefna verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. ganga var öll tíguleg en um leið ákaflega hlýleg og enginn velktist í vafa um að hvar sem Hrefna fór, að þar var höfðingskona á ferð, kven- skörungur svo sem bókmenntir kunna frá að segja. Sá sem þessar fáu línur ritar og kvæntur er Maríu elstu hálfsystur Hrefnu, minnist mágkonu sinnar og raunar þeirra hjóna beggja fyrir einstaka og órofa vináttu, gestrisni og höfðingsskap. Á Hringbrautina var gott að koma, þaðan fóru gestir ævinlega ríkari en þeir komu, ekki ríkari af þeim auði sem mölur og ryð fá grandað, heldur ríkari af ómetanlegum minningum og þeirri lífsvisku og lífssannindum sem veita lífinu gildi og gera það þess vert að lifa því. Ég og við hjónin sendum eftirlif- andi eiginmanni Hrefnu, bömum, tengdabömum og öðrum ættingjum og vinum þeirra okkar dýpstu og innilegustu samúðarkveðjur. Sér- staklega viljum við senda Þórði, setn nú má í hárri elli sjá á bak elskuðum og mikilsvirtum lífsförunaut, okkar hjartanlegustu samúðarkveðjur. Vertu sæl, kæra mágkona, og hafðu ástarþakkir fyrir alla vinátt- una og góðvildina. Þórir Daníelsson. Nú ertu frá okkur farin, elsku amma. Mikið söknum við þín. En við vitum að þú ert hjá góðum guði umvafín kærleika hans og mildi. Þú varst okkur alltaf svo góð. Til þín máttum við alltaf koma. Heilsað- ir okkur með hlýjum kossum og heit- um faðmlögum. Sagðir okkur sögur, falleg ævintýri og fórst með margar yndislegar bænir, sem ylja okkur um hjartarætur. Löngum var hjá þér mikill gesta- gangur af ungu kynslóðinni og hún var alltaf jafn velkomin. Þá skorti og ekki hjá þér veislu- föng og enginn fékk frá þér að fara nema vel nærður til sálar og líkama. Þú bakaðir líka heimsins bestu pönnukökur, algjört gómsæti, og því skiljanlegt að þegar yngsta langömmubamið heimsótti þig undir t Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ÖNNU SIGRÍÐAR MAGNÚSDÓTTUR frá Höskuldsstöðum. Bestu nýárskveðjur til ykkar allra. Kristján Einarsson, Kristín Kristjánsdóttir, Þórður Guðmundsson, Hlff Kristjánsdóttir, Ólafur Magnússon, Einar Kristjánsson, Dóra Guðmundsdóttir, Magnús Kristjánsson, Erla Guðbjartsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. það síðasta og þú þá rúmliggjandi heima, að það bæði þig um að baka pönnukökur. Við berum þér sérstaka kveðju frá Amari og Álfliildi, en þau dvelja nú erlendis. Hjá þér áttum við alltaf hald og traust og hlutum örugga vörslu. Fyrir alla þína ást og umönnun sendum við þér okkar hjartans þakk- ir. Drottinn blessi þig og varðveiti. Við látum svo hér með fylgja Vögguljóð í þýðingu Jóns Sigurðs- sonar frá Kaldaðarnesi, sem þér þótti svo fallegt og söngst fyrir okkur. Sofðu rótt, sofðu rótt, nú er svartasta nótt. Sjáðu sóleyjarvönd, geymdu hann sofandi í hönd. Þú munt vakna með sól, guð mun vitja um þitt ból. Góða nótt, góða nótt! Vertu gott barn og hljótt. Meðan yfir er húm situr engill við rúm. Sofðu vært, sofðu rótt, eigðu sælustu nótt. Við biðjum góðan guð um að styrkja afa Þórð sem, eins og við, hefur misst svo mikið. Ömmubörnin þín öll. Við andlát vinkonu minnar, Hrefnu Hallgrímsdóttur frá Húsavík, vakna endurminningar frá löngu liðn- um hamingjustundum. Frá þeim árum er ég bjó með fyrri manni mínum á Selvogsgötu 12 í Hafnarfírði. Bjarni maður minn og jafnaldri hans Þórður Þórðarson voru æskuvin- ir og nábúar. Það var því nærtækt fyrir Þórð að leita húsaskjóls hjá okk- ur Bjama, er Þórður hafði heillast af stúlkunni að norðan, sem hann kvæntist brátt og lifði í ástríku hjóna- bandi æ síðar. Okkar hús var á nútíma mæli- kvarða mjög lítið. Við leigðum þeim lítið forstofuherbergi og aðgang að eldhúsi með mér. Sjálfsagt var það góð skapgerð okkar allra er gerði þetta þrönga sambýli mögulegt. Enda kom það brátt í ljós að Hrefna hafði aðlögun til að búa við þessar aðstæð- ur. Við þetta sambýli tengdumst við Hrefna vináttuböndum, sem entust alla tíð. Hún reyndist fyrirmyndar húsmóðir, fróð og skemmtileg og átt- um við mörg sameiginleg hugðarefni. í þessu litla húsrými eignuðust þau sitt fyrst bam og var því farið að huga að stærra húsrými, enda stækk- aði fjölskyldan ört og í nokkram áföngum stækkuðu þau einnig hús- rými sitt og að lokum eignuðust þau úrvalsíbúð á Hringbraut 37 í Hafnar- fírði. Það var sama hvort Hrefna bjó í smáu eða stóra húsnæði, heimili hennar var alltaf fallegt, vinalegt og aðlaðandi - eins og húsbændumir. Þangað var ævinlega gott að koma og nutu þess margir vinir og vanda- menn. Ég þakka henni vináttu frá fyrstu kynnum og flölmargar ánægjustundir og bið henni Guðs blessunar. Þórði og bömum þeirra votta ég innilega samúð. Ragnheiður Eiriksdóttir. í dag er Hrefna Hallgrímsdóttir borin til hinstu hvílu. Hún fæddist norður í Þingeyjarsýslu og ólst þar upp. Átján ára gömul réð Hrefna sig fyrst hjá Þorvaldi Árnasyni og konu hans í Þórsmörk í Hafnarfirði þar sem hún kynntist Þórði Þórðarsyni, eftirlifandi manni sínum. Þau stofn- uðu heimili í litlu húsi við Suðurgötu í Hafnarfirði en lengst af bjuggu þau við Hringbraut þar í bæ. Þegar ég kom suður í skóla litlu fyrir 1970 lágu Ieiðir okkar Stein- gríms sonar þeirra saman. Upp úr því tókust kynni með okkur Hrefnu og Þórði sem fljótt urðu að sérlega góðri vináttu. Ég var tíður gestur á heimili þeirra hjóna þar sem ég naut mikillar umhyggju, hlýju og meiri innileiks en gengur og gerist, en það viðmót var einkennandi fyrir Hrefnu og þau hjón bæði. Oft lásum við Steingrímur saman undir próf á Ilringbrautinni undir vemdarvæng Hrefnu sem sá til þess að við þrif- umst og fengjum það næði sem til
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.