Morgunblaðið - 05.01.1996, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Ft
Háskóli íslands hefur gert úttekt á vatnsnotkun ísfélags Vestmannaeyja
*
Urbætur gætu
minnkað notk-
un verulega
Sparnaður vegna þessa nemur
um tveim milljónum á ári
Með sparnaði og betri nýtingu á vatni gætu fyrirtæki og
Vestmannaeyjabær sameiginlega sparað tugi milljóna á
næstu árum. Þetta er álit Víglundar Þórs Víglundssonar
vélaverkfræðings, sem gerði könnun á vatnsnotkun ísfélags
Vestmannaeyja og lagði fram tillögur til sparnaðar. Grímur
Gíslason fréttaritari Morgunblaðsins í Vestmannaeyjum
kynnti sér rannsóknir Víglundar.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
VIGLUNDUR Þór Víglundsson véjaverkfræðingur ásamt Jóhannesi
Óskarssyni rafvirkja og Ólafi Óskarssyni vélvirkja að athuga
vatnsnotkun fiskvinnsluvéla í Isfélaginu.
Framkvæmd tillagna Víglundar hef-
ur leitt til verulegs árangur í sparn-
aði vatns hjá ísfélaginu; í október
og nóvember síðastliðnum nam
sparnaðurinn um 12.000 tonnum og var
vatnsnotkun helmingi minni í þessum mán-
uðum en á sama tíma árið 1994. Talið er
að úttektin og breytingar sem gerðar voru
í framhaldi af henni minnki vatnsnotkun
ísfélagsins um 50.000 tonn á ári.
Verkefni Víglundar var unnið
síðastliðið sumar og var það
styrkt af Nýsköpunarsjóði náms-
manna við Háskóla Islands,
Rannsóknarsetri Háskólans í
Vestmannaeyjum og ísfélagi Vestmanna-
eyja en Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor
við Háskóla íslands, hafði umsjón með verk-
efninu. Marmiðið með verkefninu var að
komast að hvar og hversu mikið væri hægt
að spara notkun vatns í fiskvinnslu ísfé-
lagsins og í frystihúsum almennt, án þess
að sparnaðurinn bitnaði á hreinlætiskröf-
um, en vatnsnotkun hefur talsverðan kostn-
að í för með sér í Vestmannaeyjum þar sem
vatn er um fjórum sinnum dýrara en á
höfuðborgarsvæðinu, m.a. vegna þess að
dæla þarf vatninu um 40 kílómetra leið
ofan af landi til Eyja.
Úttekt Víglundar leiddi til að hann lagði
fram tillögur til sparnaðar á vatnsnotkun.
Helstu tillögur hans voru að leiðbeina og
fræða starfsfólk um rétta notkun
á ferskvatni, að nota borholusjó
í stað ferskvatns hvar sem unnt
væri, að setja upp tímarofa og
sjálfvirka stjórnun á vatnsnotkun
véla og eimsvala, að koma á
reglulegu lekaeftirliti með notkun gátlista
og að gera einn starfsmanna ábyrgan fyrir
vatnsnotkun.
Varanlegur sparnaður
Þegar tillögur Víglundar lágu fyrir réðst
ísfélagið í lagfæringar og breytingar hjá
sér sem byggðu á tillögunum og í samtali
við Morgunblaðið sagði Sigurður Einarsson,
framkvæmdastjóri Isfélagsins, að greini-
legt væri að þær hafi skilað sér með minnk-
andi vatnsnotkun og teldi hann að þar
væri ekki um tímabundinn sparnað að ræða
heldur sé þetta varanlégur sparnaður til
frambúðar. Sigurður sagði að mesti sparn-
aðurinn lægi í breytingum á eimsvölum sem
leiddu til minni vatnsnotkunar en einnig
hefði almenn notkun minnkað í
framhaldi af úttekt Víglundar.
Reiknað er með að þær breyt-
ingar sem framkvæmdar voru
minnki vatnsnotkun Isfélagsins
um 50.000 tonn á ári sem lækkar
kostnað við vatnskaup um tæpar tvær millj-
ónir á ári. Árið 1994 var heildarferskvatn-
snotkun í Vestmannaeyjum 660.000 tonn
og miðað við 50.000 tonna minnkun á
vatnsnotkun ísfélagsins minnkar það heild-
arvatnsnotkun i Eyjum um 8%.
Samkvæmt úttekt Víglundar mun Vest-
mannaeyjabær spara tugi milljóna á minnk-
andi vatnsnotkun ísfélagsins, þrátt fyrir
minni tekjur af vatnssölu, þar sem það
seinkar þörf á lagningu nýrrar vatnsleiðslu,
en núverandi leiðsla er nánast fullnýtt, en
talið er að lagning nýrrar leiðslu muni kosta
um 100 milljónir króna. Víglundur leiðir
líkur að því að fyrir hvert ár sem fresta
má byggingu nýrrar vatnsleiðslu muni
Vestmannaeyjabær því spara um 5 milljón-
ir á ári. Ef enn fleiri fyrirtæki í
Eyjum færu að dæmi ísfélagsins
myndi þörf fyrir nýja vatns-
leiðslu seinka enn frekar auk
þess sem vaxtarmöguleikar bæj-
arfélagsins myndu aukast þar
sem meiri vinnsla sjávarafurða á næstu
árum kallar á aukna vatnsnotkun og meira
vatn yrði því á lausu vegna sparnaðarins.
Víglundur segir að með sparnaði og betri
nýtingu á vatni gætu fyrirtæki og Vest-
mannaeyjabær því sameiginlega sparað
tugi milljóna á næstu árum.
Mestur
sparnaður
í eimsvölun
Seinkar þörf
fyrir nýja
vatnsleiðslu
:
oso
hitakútar
úr ryðfríu stáli
Eini hitakúturínn á
\ markaðnum úr ryðfríu stáli! J
30 ára frábær reynsla á
þúsundum íslenskra heimila
• 30/50/100/120/200 eða 300 lítra
• Blöndunar- og öryggisloki fylgja
• 20% orkusparnaður
• Hagstætt verð
Einar
Farestveit&Co.iif.
Borgartúni 28 “BT 562 2901
PtoriQptmMðltifr
Jólahald og 100 ára afmæli
Seyðisfirði - Á Seyðisfirði hefur
jólahald verið með hefðbundnu
móti þótt ýmislegt hafi verið svolít-
ið glæsilegra en oft áður í tilefni
100 ára afmælis kaupstaðarins.
Um jólin undanfarin fjögur ár hef-
ur Opna jólamótið í bocchia verið
haldið á vegum Viljans sem er
íþróttafélag fatlaðra á staðnum.
Mótið að þessu sinni fór fram á
fimmtudaginn og föstudaginn milli
jóla og nýárs. Greinilegt er að
bocchia á vaxandi vinsældum að
fagna því þátttakendur hafa aldrei
verið fleiri og voru 12 þriggja
manna lið sem kepptu að þessu
sinni. Að þessu sinni sigraði b-lið
Lions sem í voru Snorri Jónsson,
Gunnar Sverrisson og Þráinn Sig-
valdason. Maður mótsins, sem kos-
inn var af áhorfendum sem og leik-
mönnum, var Snorri Jónsson. Að
sögn mótstjórans, Sólveigar Svav-
arsdóttur, hafði Snorri ekki áður
leikið bocchia en lék frábærlega
vel og var vel að heiðrinum kom-
inn. Á síðasta föstudegi ársins í
fyrra var svo hið árlega Opna
gullversmót í kotru. Mótið var nú
haldið sjöunda árið í röð. Spilaðar
voru 17 umferðir fyrir úrslit. Það
voru þau Sigrún Sigtryggsdóttir,
Björn Ásgeirsson og Rúnar Gunn-
arsson serh spiluðu síðan um þrjú
efstu sætin. Þar reyndist Rúnar
hlutskarpastur, en Sigrún hafnaði
í öðru sæti og Björn í því þriðja.
Á laugardaginn eftir jól var
haldið dálítið sérstakt jólaball, þar
sem ungir og aldnir skemmtu sér
saman. Ballið sem var á vegum
Sjúkrahúss Seyðisfjarðar var hald-
ið í borðsal sjúkrahússins og gafst
sjúklingum, sem margir hverjir eru
meðal elstu íbúa bæjarins, og
mörgum af yngstu íbúunum þann-
ig kostur á samveru sem augsýni-
lega gladdi alla.
Gamla árið var kvatt með
brennu eins og verið hefur. Stillt
veður og tunglskin var og nokkuð
kalt. Að þessu sinni var verið að
kveðja hundraðasta ár kaupstað-
arins og hélt bæjarstjórinn ræðu
þar sem hann minntist hátíðahald-
anna sem stóðu allt fyrra árið og
hvatti bæjarbúa til dáða á kom-
andi ári. Að því loknu stóð björg-
unarsveitin ísólfur fyrir flugelda-
sýningu sem talin er vera sú glæsi-
legasta sem nokkru sinni hefur
verið í Seyðisfirði. Sérstök tilfinn-
'ng fylgdi upphrópunum mann-
fjöldans þegar stærstu hvellirnir
bergmáluðu mörgum sinnum í ljósi
böðuðum fjöllunum bröttu sem
umkringja kaupstaðinn. Um mið-
nættið var kirkjuklukkum hringt
og þau Sigrún Jóhannsdóttir og
Gunnar Axel Davíðsson léku á
trompet lagið „Nú árið er liðið“
út um glugga kirkjuturnsins við
undirtektir bæjarbúa og flugeld-
anna allt í kring. Ártalið í Bjólfin-
um breyttist svo í „1996 101 árs“
og lýsir enn.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson.
FRÁ kotrumóti.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson.
ÞORVALDUR Jóhannsson, bæjarsljóri Seyðis-
fjarðar, heldur ræðu úr bíl.
«