Morgunblaðið - 05.01.1996, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGIAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
V erkalýðsfélagið Eining, Félag byggingarmanna og Iðja
Viðræður hafnar um
sanieiningri félaganna
ÁHUGI er á sameiningu eða nánu
samstarfi þriggja verkalýðsfélaga
í Eyjafirði, Verkalýðsfélagsins
Einingar, Félags byggingarmanna
í Eyjafirði og Iðju, félags verk-
smiðjufólks. Viðræður eru að hefj-
ast um þessar mundir.
Formenn félaganna hittust í
fyrradag og sagði Guðmundur
Omar Guðmundsson formaður Fé-
lags byggingarmanna að viðræður
væru á byrjunarstigi. „Við erum
að fara yfir þessi mál, taka saman
ýmis gögn og annað því um líkt
áður en umræður hefjast fyrir al-
vöru í félögunum," sagði hann, en
m.a. þarf að fara yfir lög allra
félaganna og sjóði áður en það
verður kynnt í hveiju einstöku fé-
lagi.
„Undirbúningurinn er að fara
af stað núna, en það er nokkur
vinna eftir áður en hægt er að
leggja málið fram,“ sagði Guð-
mundur. Miklar umræður urðu um
skipulagsmál verkalýðsfélaganna
á þingi Alþýðusambands Norður-
lands síðasta haust, en fyrir þing-
inu lá tillaga um víðtæka samein-
ingu verkalýðsfélaga á Norður-
landi sem ekki náði fram að ganga.
Guðmundur sagði áhuga á sam-
einingu eða samstarfi meðal þess-
ara þriggja verkalýðsfélaga, en
önnur félög á svæðinu hefðu ekki
lýst yfir áhuga á að vera með í
þeim viðræðum sem framundan
eru.
Starfssvæði félaganna allra er
Eyjafjarðarsvæðið og til að mynda
starfar Eining í nokkrum deildum
sem skiptast niður eftir svæðum.
Guðmundur sagði að eitt af því
sem þyrfti að skoða væri hvernig
best væri að skipta hugsanlegu
nýju félagi upp í deildir, en vænt-
anlega yrði um starfsgreinaskipt-
ingu að ræða.
Ná fram betri nýtingu
á fjármunum
Samstarf á ýmsum sviðum hefur
á síðustu árum verið milii Einingar
og Iðju. „Það sem fyrir okkur vak-
ir er að gera hlutina einfaldari og
ná fram betri nýtingu á fjármun-
um,“ sagði Guðmundur.
Félagsmenn í verkalýðsfélögun-
um þremur eru um 5.000 talsins,
þar af um 4.000 í Einingu.
Byr undir
báða
vængi
JÓN Arnar Magnússon,
frjálsíþróttamaður úr
Tindastóli á Sauðár-
króki, var útnefndur
Iþróttamaður ársins
1995 í gærkvöldi af Sam-
tökum íþróttafrétta-
manna. „Jólin gerast alls
ekki ánægjulegri en
núna,“ sagði hann við
Morgunblaðið. Fyrst
fæddist þeim Huldu Ingi-
björgu Skúladóttur son-
ur 1. desember og svo
hlaut hann þennan eftir-
sótta titil í gær. Jón Arn-
ar sagði að liðið ár hefði
verið ævintýri líkast en
vonaðist til að titillinn
gæfi sér byr undir báða
vængi.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Gerist/Bl
Loðna veiðist austan
við Hvalbak
Fengii
loðnu og
síld í sama
kasti
JÚPÍTER og Börkur fengu loðnu og
síld í sama kasti austur af Hvalbaks-
grunn í fyrrinótt. Þetta er mjög
óvenjulegt. Lárus Grímsson, skip-
stjóri á Júpíter, segist ekki vita til
þess að loðna hafi fundist í veiðan-
legu ástandi svo sunnarlega áður.
Loðnuskipin Þorsteinn og Hólma-
borgin fóru út í gær til að leita að
loðnu austan við Hvalbak.
„Ég er búinn að stunda loðnuveið-
ar í yfír 20 ár og það hefur aldrei
gerst áður að loðna hafi veiðst þarna
3. janúar. Hennar staður ætti að
vera núna á svæðinu milli Kolbeins-
eyjar og Langaness. Nú verðum við
varir við hana mun sunnar. Þetta var
stór og falleg loðna og vel framgeng-
in. Það verður spennandi að fylgjast
með henni. Þetta var reyndar voða-
lega takmarkaður blettur. Það er
ekki víst að það verði meira þarna
næsta mánuðinn,“ sagði Lárus.
Fengu 500 tonn
Júpíter fékk 300 tonn og fór með
farminn til Þórshafnar. Börkur frá
Neskaupstað fékk 200 tonn. Bæði
skipin voru á síldveiðum, en fengu
síld og loðnu til helminga.
Lárus sagði að þetta hefði allt
verið mjög skrítið. Þeir hefðu í fyrstu
lóðað á torfu og síðan hefði lóðning-
in orðið tvöföld. Undir síldartorfunni
hefði verði loðnutorfa. „Við köstuð-
um í það og upp kom síld og loðna.
Þetta kom okkur merkilega fyrir
sjónir."
Að sögn Jóns Más Jónssonar,
verksmiðjustjóra hjá Síldarvinnsl-
unni á Neskaupstað, verður síldin
úr Berki söltuð á Rússlandsmarkað.
í gær var verið að setja farminn í
gengum flokkara, sem flokkar loðn-
una og smásíld frá síldinni sem fer
í salt. Hann sagði að bæði síldin og
loðnan væri gott hráefni.
Lárus sagði að stefnt væri að því
að frysta allan farminn sem Júpíter
kom með til Þórshafnar, bæði síldina
og loðnuna.
Sjúkrabíll valt á Miklubraut
Morgunblaðið/Július
SJÚRABÍLL lenti í árekstri við
fólksbíl undir miðnætti í gær-
kvöldi á gatnamótum Miklu-
brautar og Grensásvegar.
Sjúkrabíllinn valt við árekstur-
inn,'en í honum voru sjúklingur
og læknir auk bílsljóra. Sjúk-
lingurinn fékk högg og marðist
við veltuna, en aðrir sluppu lítið
meiddir.
Sjúkrabíllinn var að koma
með sjúkling frá Vík í Mýrdal
og ók með blikkandi ljós. Til-
drög slyssins voru ekki full-
könnuð í gærkvöldi, en flest
bendir til að sjúkrabíllinn hafi
ekið yfir gatnamótin á rauðu
ljósi og ökumaður fólksbílsins
hafi ekki orðið hans var í tíma.
Eftir að hafa lent á fólksbílnum,
kastaðir sjúkrabíllinn á um-
ferðarvita og valt. Hann endaði
um 30 metra frá gatnamótun-
um.
Skattafrádráttur vegna hlutabréfakaiipa
Fjármálaráðherra vill setja
reglur um hlutabréfasjóði
FJÁRMÁLARÁÐHERRA telur
tímabært að endurskoða þær regl-
ur sem gilda um frádrátt hluta-
bréfakaupa frá tekjum til skatts,
ekki síst hlutabréfasjóðina. Friðrik
Sophusson bendir á að skattaaf-
slátturinn sé til þess ætlaður að
hvetja fólk til að leggja áhættufé
í atvinnufyrirtæki. Þróunin hafi
síðan orðið sú að stór hluti kaup-
anna fari fram í hlutabréfasjóðum
sem ávaxti fé sitt að stórum hluta
í skuldabréfum, jafnvel öruggum
ríkisskuldabréfum, og í erlendum
verðbréfum.
Friðrik segir að svo virðist sem
hlutabréfakaupin séu að mestu í
hlutabréfasjóðunum og það hljóti
að vekja ýmsar spurningar. Þróun-
in hafi orðið sú að hlutabréfasjóð-
imir hafi selt hluti án þess að hafa
hlutabréf á bak við. Ríkisstjórnin
vilji hins vegar beita skattalögun-
um til að hvetja almenning til að
leggja áhættufé í atvinnulífið.
Reglur um
eftirlit
Ráðherra segist ekki vera að
boða stórkostlegar breytingar á
núverandi fyrirkomulagi, fremur
lagfæringar. Bendir hann á reglur
um fjárfestingarsjóði. Þar sé kveð-
ið á um eftirlit Bankaeftirlits
Seðlabanka íslands og skiptingu
eigna sjóðanna. Hlutabréfasjóðirn-
ir falli ekki undir þessar reglur en
hugsanlega megi setja um þá sam-
bærilegar reglur. Hins vegar sé
eðlilegt að þeir hafi ákveðið svig-
rúm og séu ekki bundnir af því
að kaupa eingöngu hlutafé í fyrir-
tækjum, spurningin sé um það
hvað svigrúmið eigi að vera mikið.
„Það er enginn vafi á því að
skattafrádráttur vegna hlutabréfa-
kaupa hefur skilað sér vel. Það
hefur orðið bylting á hlutabréfa-
markaðnum á undanförnum árum
og hún er forsenda þess að hér
geti orðið framfarir í efnahags- og
atvinnulífinu á borð við það sem
gerist í nálægum löndum. Eg vil
ekki að þetta gangi til baka heldur
vil ég að þessi skattafríðindi nýtist
með beinskeyttari hætti,“ segir
fjármálaráðherra.
Reglur um ráðstöfun fjár/6.