Morgunblaðið - 05.01.1996, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996 41
þurfti. Það var ekki auðvelt verk því
báðir vorum við hvumpnir við þessar
aðstæður. Æ síðan hefur heimili
þeirra hjóna staðið mér opið og síðar
konu minni og fjölskyldu. Aldrei
duldist okkur hversu samrýnd
Hrefna og Þórður voru.
Hrefna var grönn kona, í meðal-
lagi há og bar sig vel. Hún hafði
bjartan og hreinan svip, var sérstak-
lega fríð sýnum. Hún var vel stillt
og af fasi hennar stafaði rósemd.
Afstaða hennar til fólks var öll á eina
lund; menn skyldu njóta sanngirni og
sannmælis.
Hrefna var uppalin á Húsavík eins
og ég og kona mín. Erum við ekki
grunlaus um að henni hafí fundist
hún bera nokkra ábyrgð á þessu unga
fólki úr heimabyggð sinni sem var
að reyna að fóta sig í þéttunni fyrir
sunnan.
Eins og að líkum lætur voru oft
sagðar sögur að norðan af fólki sem
Hrefna og Þórður þekktu bæði og þá
var dátt hlegið í stofunni á Hring-
braut, enda kunnu þau bæði að meta
góðar sögur, og af þeim var líka nóg,
því fáir kunna þá list betur en Húsvík-
ingar að klæða atvik í búning sögunn-
ar.
Ekki þarf á að minnast að slík
manneskja sem Hrefna reyndist af-
komendum sínum vel, enda bar ekki
á öðru en þeim þætti gott að leita
hjá henni skjóls.
Hrefna hafði í nokkur ár tekist af
þolgæði á við óvæginn sjúkdóm, en
á síðustu vikum þótti sýnt að hann
hefði um síðir vinninginn. Henni var
náttúrlega fullkunnugt um að hveiju
stefndi og tók því ókvíðin sem að
höndum bar. Þegar við kvöddum hana
eftir heimsókn á döpmum sagðist
hún, með bros á vör, hitta okkur
næst hinum megin.
Elsku Þórður, mikill harmur er að
þér kveðinn, en þú ert sá gæfumaður
að eiga góða að. Við vottum þér okk-
ar innilegustu samúð svo og bömum
þínum öllum og tengdabömum.
Ásm. Sverrir og Ásthildur.
• Fleiri minningargreinar um
Hrefnu Hallgrímsdóttur bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu
næstu daga.
t
Hjartkær eiginmaður minn,
SIGURPÁLL MARINÓ ÞORKELSSON,
Aflagranda 40,
Reykjavík,
lést á heimili sínu 3. janúar.
Svava Aradóttir.
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUNNAR GUÐMUNDSSON,
Engjavegi 32,
Selfossi,
er lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheim-
um, Selfossi, 1. janúar, verður jarðsung-
inn frá Selfosskirkju laugardaginn
6. janúar kl. 13.30.
Aðalheiður Jóna Gunnarsdóttir,
Kristín Bára Gunnarsdóttir,
Svanhvít Björk Gunnarsdóttir,
Guðrún Lilja Gunnarsdóttir,
Friðbert Guðmundur Gunnarsson, Eydís Dögg Eiríksdóttir
og barnabörn.
Okkar bestu þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
SIGURGEIRS STEFÁNSSONAR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
4. hæðar Sólvangs, Hafnarfirði.
Þorbjörg Þórarinsdóttir,
Þórarinn E. Sigurgeirsson, Anna Rögnvaldsdóttir,
Arnfríður A. Sigurgeirsdóttir, Ellert M. Ólafsson,
Ragnar Þórarinsson,
Þorgeir Ómar og Arnar M. Ellertssynir.
Jón Pálsson,
Guðjón Sveinsson,
Sigurður Magnússon,
Örn Arason,
t
Elsku amma mín,
GUÐRÚN HELGADÓTTIR,
er látin.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Guðrún Hrefna Gunnarsdóttir.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
auðsýndu okkur samúð og hlýju við
andlát og útför
PÉTURS FRIÐRIKS
BALDVINSSONAR
frá Siglufirði.
Guð blessi ykkur öll.
Mundfna Sigurðardóttir,
Ásbjörn Þór Pétursson,
Hanna Guðrún Pétursdóttir, Bjarni Þorgeirsson,
Halldóra Ragna Pétursdóttir, Björgvin Jónsson,
Sigrfður Hermannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, er auð-
sýndu okkur hlýhug og samúð við and-
lát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÓSKARGUÐRÚNARARADÓTTUR
frá Móbergi, Langadal,
A-Húnavatnssýslu,
síðast til heimilis (Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum.
Ari Birgir Pálsson,
Árni Ásgrímur Pálsson,
Hildar Jóhann Pálsson,
Guðrún S.E. Moore,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
RAÐAUGi YSINGAR
„Au pair“ í Noregi
Óska eftir stúlku til að gséta níu mánaða
drengs á skíðasvæði í Noregi.
Má ekki reykja.
Upplýsingar gefnar í síma 568 7656 eða
00 47 64943314 eftir 7. janúar.
Vélstjóri
Vélstjóri með full réttindi óskast á millilanda-
skip í reglubundnum siglingum.
Umsóknum skal skila inn á afgreiðslu Mbl.
fyrir 10. janúar nk., merktar:
„Vélstjóri - 1198“
íþróttakennari
Vegna forfalla vantar Grunnskólann á Hellis-
sandi nú þegar íþróttakennara í fullt starf.
Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 436 6766
og aðstoðarskólastjóri í síma 436 6771.
Heimilishjálp
Óska eftir „ömmu“ á heimili í Hafnarfirði
eftir hádegi til að þess að gæta þriggja barna
og vinna létt heimilisstörf.
Umsóknir sendist til afgreiðslu Mbl., merktar:
„Heimilishjálp - 31 “.
Auglýst er laust til umsóknar starf
yfirmanns
framkvæmda- og tæknisviðs
Akranesveitu
Æskileg menntun: (Bygginga) verk- eða
tæknifræðingur.
Æskileg starfsreynsla á sviði hönnunar og
stjórnunar.
Aðalstarfssvið: Rekstur og hönnun veitu-
kerfa og gatna, umsjón með verklegum fram-
kvæmdum.
Æskilegt að starf geti hafist sem fyrst.
Umsóknum skal skilað fyrir 12. janúar til
veitustjóra Akranesveitu, sem einnig veitir
nánari upplýsingar um starfið.
Akranesveita,
Dalbraut 8, Akranesi.
Sími 431 3011.
BESSASTAÐAHREPPUR
Hlið - ferðaþjónusta
Hreppsnefnd Bessastaðahrepps auglýsir eftir
áhugaaðilum um uppbyggingu ferðaþjónustu
á jörðinni Hliði í Bessastaðahreppi.
Ein meginforsenda uppbyggingar á jörðinni
er sá straumur ferðamanna sem þegar legg-
ur leið sína til Bessastaða á ári hverju.
Merkir þættir í sögu Álftaness tengjast m.a.
Bessastöðum, en saga staðarins er samofin
sögu þjóðarinnar allt fram til vorra tíma.
Einnig er sjósókn á opnum bátum frá Álfta-
nesi og búskapur þess fólks, sem þar bjó
fyrr á tímum, dæmigert fyrir sjávar- og bú-
skaparhætti fyrri alda og þar með samofin
sögu þjóðarinnar allrar.
Þeim, sem hafa áhuga á að kynna sér nánar
hugmyndir atvinnumálanefndar Bessastaða-
hrepps um uppbyggingu ferðaþjónustu á
Álftanesi með þátttöku í huga, er bent á að
umsóknarfrestur er til föstudagsins
26. janúar nk.
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri Bessa-
staðahrepps á almennum skrifstofutíma
í síma 565 3130.
Sveitarstjórinn í Bessastaðahreppi.
C
Landsvirkj
Útboð
un Brú yfír árlokur
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í
niðurrif og brottflutning brúar yfir árlokur við
Búrfellsstöð og byggingu nýrrar brúar á
sama stað. Um er að ræða 105 m langa brú
á fimm brúarhöfum.
neistu mayruuiur eru sem ner segir:
Niðurrif og brottflutningur brúar:
Brot á steinsteypu og brottflutningur270 rúmm.
Bygging nýrrar brúar:
Stálsmíði 88tonn
Steinsteypa 220 rúmm
Mótafletir 730 fm
Steypustyrktarjám 33 tonn
Hluta verksins skal Ijúka á árinu 1996, en
því skal að fullu lokið 1. nóvember 1997.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Lands-
virkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík,
frá og með föstudeginum 5. janúar 1996
gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 6.000
m. vsk. fyrir hvert eintak.
Tilboðum skal skila á sama stað fyrir kl.
12:00 þriðjudaginn 30. janúar 1996 og verða
þau opnuð þar sama dag kl. 13:30. Erfulltrú-
um bjóðenda heimilt að vera viðstaddir opn-
unina.