Morgunblaðið - 05.01.1996, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 05.01.1996, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996 43 FRÉTTIR MOOD Swing. F.v. John He- bert, Sunna Gunnlaugsdóttir og Scott McLemore. Jazztríóið Mood Swing TRÍÓIÐ Mood Swing leikur á Café Óperu föstudaginn 5. janúar og á veitingahúsinu Astro næstkomandi sunnudag. Fyrir tríóinu fer Sunna Gunniaugsdóttir píanisti en meðspii- arar hennar eru Bandaríkjamennirn- ir John Hebert, sem leikur á bassa, og Scott McLemore á trommur. Sunna hefur verið við nám í jazz- píanóleik í William Paterson College í New Jersey undanfarin þijú ár. Jazzdeildin þar er viðurkennd sem ein sú besta í heiminum og er henni stjórnað af hinum kunna bassaleik- ara Rufus Reid. Sunna kom með kvartettinn Mood Swing til íslands fyrir ári og léku þau við góðar undir- tektir á veitingahúsum borgarinnar. í framhaldi af því hlaut hún styrk úr minningarsjóði Karls J. Sighvats- sonar 1995 og birtist stutt grein um hana í júníhefti tímaritsins Down Beat. Tríóið leikur „standarda" og „bebop“ á tónleikunum í kvöld sem hefjast kl. 23. Tónleikarnir á sunnu- dag hefjast einnig kl. 23. Þrettándabrenna Yals ÁRLEG þrettándabrenna Vals verð- ur að Hlíðarenda laugardaginn 6. janúar og hefst kl. 17.45. Blysför og fjölskylduganga verður frá Perl- unni að brennunni og flugeldasýning í lok dagskrárinnar. Þátttaka er ókeypis en göngublys verða seld við upphaf göngunnar og veitingar og flugeldar að Hlíðarenda. Valur á samstarf við Ferðafélag íslands og Hjálparsveit'skáta í Reykjavík um framkvæmdina. Seld verða göngublys við Perluna frá kl, 16.30, á 300 kr. Síðan er gengið að bálkestinum að Hlíðar- enda sem kveikt er á kl. 17.45. Fjöldasöngur tekur þá við með þátt- töku félaga úr Valskórnum. Sungin verða þekkt lög og nýju ári fagnað og jólin kvödd. Þrettándabrennunni lýkur með flugeldasýningu kl. 18.30. Veitingar eru seldar í stóra íþrótta- húsinu frá kl. 17. ■ Ný jógastöð verður opnuð í Hátúni 6a kl. 14 á morgun, laug- ardag, í nýinnréttuðu húsnæði. Boð- ið er upp á fullkomna aðstöðu til jógaiðkunar og alhliða nudd. Eigendur leggja áherslu á jóga- iðkun sem heilsubætandi líkams- rækt og hugrækt fyrir alla aldurs- hópa, fyrir þá sem vilja efla vilja- styrk sinn, ná tökum á streitu og koma jafnvægi á mataræði og lík- amsþyngd. Um er að ræða grunnn- ámskeið þar sem • kennd verða grundvallaratriði í jóga, jógastöður, hugleiðsla og öndunaræfingar. Einnig verða opnir jógatímar sem hver og einn getur sótt eftir hentug- leikum. Vélsleðasýning NÆSTKOMANDI helgi, 6. og 7. janúar, verður haldin sýningin „Vetrarlíf 96“ á vegum Landssam- bands íslenskra vélsleðamanna. Sýn- ingin verður haldin í sýningarsal Ingvars Helgasonar hf. við Sævar- höfða. Á sýningunni munu allir inn- flutningsaðilar vélsleða sýna árgerð- ir 1996 af vélsleðum og fjölbreyttan útbúnað sem þeim tengist, s.s. fatn- að og aukahluti. Einnig sýna 18 fyrirtæki á sýningunni fjölbreyttan búnað og tæki sem tengjast vetrar- sporti. Ingvar Helgason hf. sýnir sérútbúna jeppa. í fyrra var sýningin haldin eftir nokkurra ára hlé og var mjög vel sótt. Nú er sýningin haldin í tvöfalt stærri sýningarsal. Aðgangur er ókeypis. Útsölur við Laugaveg á löng- um laugardegi VERSLUNAREIGENDUR við Laugaveg og nágrenni hafa undan- farið verið að undirbúa janúarversl- unina og nú eru útsölur að hefjast. ‘Afsláttur á vörum hefur verið að síaukast hér á landi og það er mál manna að útsölurnar hafí aldrei ver- ið betri, segir í frétt frá Laugavegs- samtökunum. Það er því ágætlega við hæfi að sameina langan laugar- dag og hápunkt útsölutímabilsins. Eins og venja er þá er opið frá kl. 10-17 á löngum laugardegi. ■ Hljómsveitin XIII heldur sína árlegu þrettándatónleika í Rósen- bergkjallaranum laugardaginn 6. janúar nk. Auk XIII kemur hljóm- sveitin Dead Sea Apple fram og hefjast tónleikarnir laust eftir mið- nættið. Eins og kunnugt er kom fyrri plata hljómsveitarinnar XIII, Salt, út í nokkrum löndum á meginlandi Evrópu nú í haust og er að koma út í Bretlandi um þessar mundir. Á þrettándatónleikunum verður þó aðallega leikið efni af nýútkominni hljómplötu sveitarinnar, Serpent- yne, sem út kom 13. október sl. Einnig verður viðrað nýtt efni sem verið er að taka upp um þessar mundir. Sem fyrr er það Hallur Ingólfsson sem er forsprakki hljómsveitarinnar XIII en hann leikur á gítar og syng- ur. Jón Ingi Þorvaldsson spilar á bassa, Gísli Már Sigurjónsson á gítar og nýlega bættist trommuleik- arinn Birgir Jónsson í hópinn. ■ Ætiarmót ÆNSEK. Niðjar Sig- arlaugar Þorkelsdóttur og Einars Jónssonar eru með árlegt jólaball á morgun, laugardaginn 6. janúar, í Kópavogi á sama stað og í fyrra. Jólaball barnanna hefst kl. 15 en fullorðnir hittast kl. 22. Nefndin. ■ Hljómsveitin Boney M áritar plötur sínar í verslun Skífunnar í Kringlunni í dag, föstudag, kl. 16.30. -leikur að leera! Vinningstölur 4. jan. 1996 4*8 •15* 20*21 »27*28 Eldri úrslit á símsvara 568 1511 R AÐ AUGL YSINGAR Jólatrésskemmtun VR Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jólatrésskemmtun fyrir börn félagsmanna á Hótel íslandi sunnudaginn 7. janúar nk. kl. 16.00. Miðaverð er kr. 600 fyrir börn og kr. 200 fyrir fullorðna. Miðar eru seldir á skrifstofu VR í Húsi verslunarinnar, 8. hæð. Nánari upplýsingar gefnar í síma félagsins 568 7100. I/erzlunarmannafélag Reykjavíkur. RANNSÓKNAÞJÓNUSTA HÁSKÓLANS Ár símenntunar 1996 Kynningarf undur í dag kl. 15-17 íBorgartúni 6 Evrópusambandið hefur ákveðið að helga árið 1996 símenntun og er ísland aðili að þessu átaksverkefni. Boðað ertil kynningarfundar um Ár símennt- unar í dag, föstudaginn 5. janúar, í Borgar- túni 6, kl. 15-17. Dagskrá: • Almenn kynning á Ári símenntunar: Guðný Helgadóttir, menntamálaráðuneyti. • Drög að verkefnaáætlun Árs símenntunar: Ingibjörg Gísladóttir, Rannsóknaþjónustu Háskólans. • Styrkir ESB vegna Árs símenntunar: Ágúst H. Ingþórsson, Rannsóknaþjónustu Háskólans. • Kynning á handbók um starfsframa- og menntunarmarkmið einstaklinga: Margrét S. Björnsdóttir, Endurmenntunar- stofnun Hí. • Umræður um Ár símenntunar. Fundurinn er opinn öllum fræðsluaðilum og þeim, sem láta sig símenntunarmál varða. Rannsóknaþjónusta Háskólans. Konur - Grafarvogi Fitubrennsla, vaxtamótun, stöðvaþjálfun Nýtt námskeið hefst þriðjudaginn 9. janúar í Fjönishúsinu. Kennari Ásta Sigurðardóttir. Skráning í síma 587-7375. Hirðing jólatrjáa Hirðing jólatrjáa hefst eftir hádegi sunnudag- inn 8. janúar næstkomandi. Húsráðendur eru beðnir að setja trén út fyr- ir lóðamörk og verða þau þá fjarlægð. Gatnamálastjórinn í Reykjavík. Hreinsunardeild. Breytingar á lögum um fjöleignarhús Alþingi hefur samþykkt breytingar á lögum um fjöleignarhús nr. 26/1994, sbr. lög nr. 136/1995. Um er að ræða breytingar á 16.-18. grein, um eignaskiptayfirlýsingar o.fl. og 22.-23. gr. um bílskúra í eigu utanað- komandi. Sérstök athygli er vakin á breytingum á ákvæði í 16. gr. laganna, um að þinglýst eignaskiptayfirlýsing sé skilyrði fyrir þinglýs- ingu á eignayfirfærslum (þ.e. kaupsamning- um og afsölum) ífjöleignarhúsum. Breytingin felur í sér, að þetta skilyrði kemur ekki að fullu til framkvæmda fyrr en 1. janúar 1997. íbúðareigendur eru hvattirtil að nota þennan tíma vel og kanna hvort fyrir liggi fullnægj- andi eignaskiptayfirlýsing eða undirbúa gerð hennar, ef hún er ekki fyrir hendi. Sérprentun laganna og fekari upplýsing- ar fást hjá Húsnæðisstofnun ríkisins, Suð- urlandsbraut 24, sími 569 6900, símbréf 568 9422. Reykjavík, 4. janúar 1996. [&l HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS Fimleikadeild Gerplu Innirtun er hafin. Upplýsingar í síma 557 4925. ~~7I 7 K I P U L A G R í K I S I N S Urðunarstaðir á jörðunum Berunesi og Þernunesi við Reyðarfjörð og flokkunarmiðstöð á Reyðarfirði Förgun úrgangs á vegum Sorpsamlags Mið-Austurlands Mat á umhverfisáhrifum - frumathugun. Skipulag ríkisins kynnir fyrirhugaða urðun úrgangs í landi Beruness og Þernuness við Reyðarfjörð og flokkunarmiðstöð fyrir úrgang á Reyðarfirði. I tillögunni felst að Sorpsamlag Mið-Austurlands hyggst urða úrgang á jörð- unum Berunesi og Þernunesi við Reyðarfjörð og setja upp flokkunarmiðstöð á Reyðarfirði þar sem m.a. verður tekið við eiturefnum, brotajárni og fleiru frá samlagssvæðinu. Gámastöðvar verða í hverju sveitarfélagi. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 5. janúar 1996 til 12. febrúar 1996 á eftirtöldum stöðum: Á afgreiðslutíma hjá Skipulagi ríkisins, Laugavegi 166, Reykjavík, bæjarskrifstofum Neskaupstaðar og Eskifjarðar, skrifstofum Reyðarfjarðarhrepps, Búðahrepps og Stöðv- arhrepps og hjá oddvita Fáskrúðsfjarðar- hrepps, Tungu 2, eftir samkomulagi. Auk þess liggur matsskýrslan frammi á bóka- söfnum Eskifjarðar og Neskaupstaðar. Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og gera athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skrifiegar og berast eigi síðar en 12. febrúar til Skipulags ríkisins, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 63/1993. Skipulagsstjóri ríkisins. /
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.