Morgunblaðið - 05.01.1996, Síða 52
52 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
r(!!^
Sýnd í A-sal kl. 5, 9 og 11. Verð kr. 750. B.i. 16 ára.
JOLAMYND 1995
★★★
ÖRUG1S.1GA
UM ÁSTIR,
MMYÐIOG
BLÓÐUCAR HEFNDIR
MARIA I II JNCSI A
RU.WS4R KORMAKUR
FCIU ÓI.AF5S0N
Nýtt í kvikmyndahúsunum
FOLK
Ace Ventura — Kall
náttúrunnar
^ SAMBÍÓIN og Borgarbíó á Akureyri
hafa tekið til sýninga nýjustu kvik-
mynd Jim Carrey, „Ace Ventura:
Kall náttúrunnar". Jim Carrey sló
eftirminnilega í gegn í fyrstu mynd-
inni, „Gæludýraspæjarinn Ace Vent-
ura“, sem sagði frá ævintýrum þessa
skoplega gæludýraspæjara, en þessi
mynd er sjálfstætt framhald hennar.
Núna er hann kominn til Afríku þar
sem hann leitar að nánast útrýmdu
dýri fyrir félaga sína í þjóðflokki
nokkrum. Hann lendir auðvitað í hin-
um ýmsu hremmingum við leitina,
en ef hann finnur ekki dýrið skellur
á mikið stríð sem getur haft fyrirsjá-
anlegar afleiðingar í för með sér.
Ace Ventura er kallaður til þessa
verks frá Tíbet, en þar hefur hann
^ haldið sig í andlegri endurhæfingu
eftir að honum mistókst að bjarga
lífí þvottabjarnar. Jim Carrey er einn
vinsælasti kvikmyndaleikari heims-
ins í dag. í kjölfar fyrstu myndarinn-
ar um gæludýraspæjarann fylgdu
„Gríman“, „Heimskur heimskari" og
„Batman að eilífu“ sem allar urðu
feikivinsælar og sönnuðu að skop-
hæfíieikar Carreys eru magnaðir.
Það virðist eins og fólk fái ekki nóg
af Carrey því væntanlegar eru tvær
myndir frá kappanum, framhald Grí-
munnar og kvikmyndin „Cable Guy“
þar sem Matthew Broderick leikur
með honum. „Ace Ventura: Kall nátt-
úrunnar" er leikstýrt af Steve Oeder-
kerk sem einnig skrifaði handritið.
Með önnur stór hlutverk fara Ian
McNeice, breskur leikari sem leikið
hefur í yfír áttatíu kvikmyndum og
fór með stórt hlutverk í „Englending-
urinn sem fór upp hæð en kom niður
flall“, og Simon Callow sem sló í
gegn í „Fjórum brúðkaupum og jarð-
arför“ en hann er virtur leikari og
leikstjóri í heimalandi sínu, Englandi.
SÉRtUBOO
Þú kemur í SAMBÍÓIN
og sérð myndina
ACE VENTURA-
WHEN NATURE CALLS
og færð afsláttarmiða
á myndbandsspóluna
ACE VENTURA-
PET DETECTIVE
hjá EYMUNDSSON
Hanks á ekki
von á Ósk-
arsverð-
launum
þetta árið
TOM HANKS hefur gengið flest
í haginn síðustu ár. Hann hefur
leikið í hverri metsölumyndinni
á fætur annarri; „ A League of
Their Own“ (sem halaði inn 107
m.$ í Bandaríkjunum), „Sleepless
in Seattle" (127 m.$), „Philadelp-
hia“ (77 m.$, Óskarsverðlaun),
„Forrest Gump“ (330 m.$, Ósk-
arsverðlaun) og á árinu sem leið
lék hann í „Apollo 13“ (172 m.$),
auk þess sem hann ljáði Disney-
myndinni „Toy Story“ rödd sína
(150 m.$ og enn sýnd).
Sjálfur er hann á þeirri skoðun
að hann ejgi ekki möguleika á
að vinna Óskarsverðlaunin þriðja
árið í röð. „Apollo-myndin á skil-
ið að fá verðlaun, en ekki ég.
Fólk er búið að fá nóg af mér.
Það myndi fremja sjálfsmorð í
stórum stíl í Hollywood, ef ég
ynni,“ segir hann og brosir. Aðr-
ir eru á því að Hanks ætti skilið
að verða fyrstur manna til að
hljóta Óskarinn þrjú ár í röð.
Hvort sú verður raunin kemur í _
ljós í marsmánuði.
SNORRABRAUT 37, SÍMI 552 5211 OG 551 1384
-DIGITAL!
Sýnd kl 1, 3, 5 og 7 með íslensku tali
Þessi mynd er ein mest sótta
myndin í Bandaríkjtim í vetur
Hann hefur aldrei ve'rið betri".
★★★ A.l.
★★★ G. I
Hann er mættur aftur
betri en nokkru sinni fyrrl #
PJerjpe Brosnan er James Bond.^V
Mynd enginn Islendingur má missá afl
vm
* 4 , '
M íij ■'©V- / , ( .j
Éfk' JJ
1
1 1»