Morgunblaðið - 07.01.1996, Page 42
MORGUNBLAÐIÐ
42 SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1996
ÚTSALAN
HEFST
Á MORGUN
30-60%
AFSLÁTTUR
’IÆXItíMS
BORGARKRINGLUNNI
AUKIN ÖKURETTINDI
IS/I
i r?
r?
Námskelð til aukinna ökuréttinda
eru að hefjast. Enn er hœgt að
skrá nemendur á námskelð sem
hefst þann 8. janúar. Nœsta
námskelð hefst þann 16. janúar.
Ökuskóli
íslands
7 ^TÍlTVtfö^
Hagstœtt verð og góð greiðslukjör.
Hafðu samband og við sendum þér allar frekari
upplýsingar um hœl.
Aukin Ökuréttindi, Aukin Þekking, Örugg Umferð
ÞEKKING
ÖKURÉTTINDI
ATVINNUTÆKIFÆRI
^ötublfre/jj
(AUKIN
^e^ubWe''0
Ökuskóli íslands hf. - Dugguvogur 2 • 104 Reykjavík
r 568 38 41
Frá Vogue búdunum
Nú er t ækifærið til að
skapa sinn eigin stíl
ÓDÝRT!
Nú er 15% afsJáttur
af ölJum vörum og 5Ö% afsiattur
af jóiaefnum óg vörum.
Sparið og saumið sjálf.
búðirnar
BETRI HEILSA; BÆTT LÍF
Á BREYTINGARSKEIÐÍNU
„Vöxum inn í viskuna,
tökum tímabilinu jákvætt"
Námskeiöiö stendur dagana 15. t>g 16. jan.
Skránínj' og upplýsingar í símum.
j' ■
Sjálf-
styrking
Jákvæðni
\ Slökun
Fannýjónmundsdóttir, Kolbrón B]örnsdótdr,
sími 552 7755. S«552TO
Tilfininga-
þátturinn
Yoga
Blóma-
dropar
Krístb)firg feistmundsdóttir,
sfrui 47! 1747
CHOOL OF NATURAL
MeDICINE Á ÍSLANDf
IDAG
Hlutavelta
ÞESSAR duglegu stúlkur héldu hlutaveltu á dögunum
og söfnuðu 1.277 krónum sem þær gáfu til styrkt-
ar Hjálparsjóði Rauða kross íslands. Stúlkurnar
heita Valdís Guðrún Vilhjálmsdóttir og
Ester Aldís Friðriksdóttir.
HLUTAVELTU héldu nýverið þessar þrjár duglegu
stúlkur. Þær söfnuðu 4.000 krónum sem þær gáfu í
söfnun fyrir Hafstein Hinriksson á Eskifirði.
Stúlkurnar heita Unnur Guðmundsdótt-
ir, Arna og Þórunn Ólafsdóttir.
HÖGNIHREKKVÍSI
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Hanne leitar að
Elíasi
Dönsk kona að nafni
Hanne hringdi í Velvak-
anda og bað hann að
aðstoða sig við að hafa
uppi á manni að nafni
Elías. Hún hitti hann í
Kaupmannahöfn 30. des-
ember sl. á milli kl. 4 og
5 að morgni á stað sem
heitir Rosie McGee ná-
lægt Tívolíinu í Kaup-
mannahöfn. Elías var í
Kaupmannahöfn {
nokkra daga. Ef hann les
þessar línur er hann beð-
inn að skrifa henni á eft-
irfarandi heimilisfang:
Hanne Mielsen
0sterdalen 5260
Odense
Danmark
Tapað/fundið
Reiðhjól í óskilum
hjá Vara
í tengslum við ókeypis
skráningu Öryggisþjón-
ustunnar VARA á reið-
hjólum er fyrirtækinu
stundum falið að hafa
upp á eiganda reiðhjóls
sem fundist hefur í
reiðileysi. Svona er
ástatt með vínrautt
DBS Classic kvenreið-
hjól með vírkörfu að
framan sem fannst efst
í Skógarhlíðinni í lok
desember og var þá búið
að vera þar í reiðileysi
í heilan mánuð. VARA
var falið að finna eig-
andann í gegnum skrán-
ingarnúmer reiðhjólsins
en því miður finnst það
hvorki á tölvuskrá
VARA né í bókum inn-
flytjanda. Eigandi hjóls-
ins er nú beðinn að gefa
sig fram við móttöku
VARA í síma 552-9399
og sækja reiðhjól sitt
eftir að hafa sannað
eignarrétt sinn.
Viðar Agústsson,
framkvæmdastj óri
VARA.
Víkveiji skrifar...
STEINN á fjölskyldu! Þessi var
yfirskrift ávarps til íbúa í Graf-
arvogi, sem Víkverji las í LOGA-
FOLD, safnaðarblaði Grafarvogs-
sóknar.
Tilefni ávarpsins er söfnunarátak
vegna klæðningar á kirkjuna. „Tak-
markið er að hver fjölskylda gefí
einn stein,“ segir þar, en kirkjan
verður klædd að utan með hvítum
granítsteinum.
Það er ljúft að vita hvern veg
sóknarprestur og safnaðarstjórn í
þessu nýja borgarhverfi leitast við
að virkja söfnuðinn til samátaks í
þágu kirkjunnar.
Grafarvogssókn er ung að árum,
stofnuð 1989. Þar hafa mál þróast
hratt til góðs. Þar er aldeilis ekki
slegið á hendur þeirra, sem starfa
vilja innan safnaðarkirkjunnar eða
leggja henni lið. Þvert á móti.
XXX
ARSSKÝRSLA ríkisspítala
[Landspítalaj 1994 rak á fjör-
ur Víkveija. Þar er mikinn fróðleik
að finna. Þar segir að legur þetta
ár hafí verið tæplega 32 þúsund
talsins og legudagar nálægt 320
þúsund. Komur á bráðamóttöku
voru rúmlega 3.100.
Sjúklingar koma hvarvetna af
landinu. Hlutfallsleg skipting legu
eftir kjördæmum er þessi: Reykja-
vík 56,2%, Reykjanes 26,8%, Vest-
urland 2,4%, Vestfirðir 2,2%, Norð-
urland vestra 1,4%, Norðurland
eystra 2%, Austurland 2,7%, Suður-
land 5,1%, aðrir 1,1%. Fjöldi legu
og legudaga pr. 1.000 íbúa er 192
í Reykjavík en 83 á Suðurlandi.
Athyglisvert er að hlutfall sjúkl-
inga utan höfuðborgarsvæðisins er
mun hærra þegar erfiðari og dýrari
tilfelli eiga í hlut. Það byggist trú-
lega fyrst og fremst á því að Land-
spítali er hátæknisjúkrahús með
mjög sérhæft starfslið. Það þýðir
hins vegar að hlutfallslegur kostn-
aður á legu verður hærri en ella.
Svo dæmi sé tekið var hlutfall legu
sjúklinga úr einu landsbyggðarkjör-
dæmi á almennri kvensjúkdóma-
deild Landspítala 1,4% en 3,6%
vegna illkynja kvensjúkdóma.
XXX
RJÁTÍU OG SEX milljarðar
króna hverfa úr landi á ný-
byijuðu ári í afborganir og vexti
af erlendum skuldum, að því er
fram kemur í áramótagrein Jóns
Baldvins Hannibalssonar í Alþýðu-
blaðinu. Slík er skuldasúpan!
Ef þjóðin væri skuldlaus erlendis
hefði hún, samkvæmt þessu, þrátíu
til fjörutíu milljörðum króna meira
til skiptanna á þessu ári. Það er
ekki sízt þessi umframeyðslu- og
skuldastefna sem veldur þröngum
kosti landsmanna. Sjálfskaparvíti
hét það í gamla daga.
Erlend lán, nýtt til að skapa fleiri
störf og meiri verðmæti, skila sér
til baka - á mislöngum tíma að vísu.
Svo er til dæmis um lán venga stór-
iðjuframkvæmda. Eyðslulánin eru á
hinn bóginn óráðsía! Það er og mikil-
vægt að efla alla hvata til innlends
peningaspamaðar, sem hefur verið
verulega minni hérlendis en erlendis.
xxx
IBÚATALA landsins hefur ekki
vaxið jafnt og þétt frá land-
námi. Oft lækkaði hún feiknamikið
á harðindaskeiðum fyrri alda. Það
var raunar ekki fyrr en á 20. öld-
inni, tækniöldinni, sem þjóðinni óx
fiskur um hrygg að þessu leyti.
í dag erum við nálægt 267 þús-
und talsins. Fæst vorum við um 40
þúsund 1785. íslendingabók Ara
fróða segir að Gissur biskup ísólfs-
son hafí látið telja þingfararkaups-
bændur um 1100. Taldir voru 4.560
skattbændur (Austfírðingafjórð-
ungur 840, Sunnlendingafjórðung-
ur 1.200, Vestfírðingafjórðungur
1.080 og Norðlendingafjórðungur
1.440). Fræðimenn hafa áætlað
fjölda landsmanna, út frá skatt-
bændatalningu biskups, á bilinu 50
til 70 þúsund.
Allsheijarmanntal hér á landi,
1-703, telur 50.358 íslendinga. Þeir
eru þá jafnmargir eða færri en í lok
landnámsaldar. Enn lá leiðin niður,
40.623 einstaklingar 1785. 1890
eru þeir orðnir 70.972. En það er
fyrst með nýrri öld og nýjum at-
vinnuháttum að þjóðin réttir úr
kútnum, hvað mannfjölda varðar.