Morgunblaðið - 07.01.1996, Side 50
50 SUNNUDÁGtíR‘7. JANÚAR18Í96'
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
ÚRSLIT
KORFUKNATTLEIKUR
San Antonio
á hælunum
San Antonio Spurs lék mjög illa
ogtapaði 105:92 fyrir Indiana
Pacers í NBA-deiidinni í körfu-
knattleik aðfaranótt laugardags.
„Ég veit ekki hvað ég á að segja,“
sagði David Robinson, miðheiji
Spurs, sem gerði aðeins 14 stig og
hitti úr fimm af 17 skotum. „Þetta
var eitt af þessum kvöldum og ég
held að ég hafi ekki leikið eins illa
síðan í gagnfræðaskóla.
Reggie Miller gerði öll 19 stigin
sín fyrir Indiana í fyrsta leikhluta
en Pacers var með 26 stiga forystu
í hálfleik. Spurs gerði aðeins 12
stig í öðrum fjórðungi leiksins og
alls 34 stig í fyrri hálfleik en það
er lægsta skor liðsins í hálfleik á
tímabilinu.
„Við réðum ferðinni," sagði Mill-
er. „Við vorum hungraðir í sigur
og sýndum það frá byrjun.“ Eddie
Johnson skoraði 26 stig fyrir Indi-
ana en Sean Elliott var stigahæstur
hjá Spurs með 28 stig. Avery John-
son var með 18 stig og átti sex
stoðsendingar. „Fyrri hálfleikur er
sá besti sem við höfum leikið á tíma-
bilinu," sagði Larry Brown, þjálfari
Indiana. „Eg hef fylgst með Spurs
í langan tíma og þetta er lakasta
frammistaða sem ég hef séð til liðs-
ins en það sótti í sig veðrið þegar
líða tók á leikinn."
Nýliðamir í Vancouver sigruðu
Philadelphiu 103:102 í framlengd-
um leik. Þetta var annar sigur liðs-
ins í röð og hefur liðið ekki unnið
tvo leiki í röð í deildinni síðan það
vann tvo fyrstu leiki tímabilsins.
Greg Anthony var stigahæstur með
32 stig og Blue Edwards kom næst-
ur með 19. Trever Ruffin var með
27 stig fyrir Philadelphiu og Clar-
ence Weatherspoon 20 og tók auk
þess 20 fráköst. Þetta var sjöundi
tapleikur liðsins í síðustu átta leikj-
um.
Önnur framlenging
Joe Smith setti niður tvö vítaskot
fyrir Golden State þegar 7,2 sek-
úndur voru eftir af framlengingu
og tryggði sigur liðsins gegn Minne-
sota, 122:119. Rony Seikaly gerði
31 stig og Smith 24 fyrir Golden
State. Tom Gugliotta var með 36
stig og Christian Laettner 22 fyrir
Minnesota.
Pooh Richardson gerði 20 stig
og þar af tvö síðustu stig leiksins
úr vítaskotum er lið hans Los Ang-
ele Clippers sigraði Phoenix 94:88.
Brian Williams var með 18 stig og
tók 14 fráköst og Loy Vaught gerði
17. Charles Barkley var með 26
stig og tók auk þess 12 fráköst
fyrir Phoenix.
Reuter
DERRICK Alston hjá Phlladelphia nœr frákastinu en Chrls
King hjá Vancouver er aðeins of selnn.
NBA-deildin
Leikir aðfaranótt laugardags:
Boston - Cleveland...............93:77
New Jersey - Dallas.............107:99
Orlando - Seattle...............115:93
San Antonio - Indiana...........92:105
Milwaukee - Portland............113:96
Vancouver - Philadelphia.......103:102
■Eftir framlengingu.
Golden State - Minnesota.......122:119
■Eftir framlengingu.
LA Clippers - Phoenix............94:88
LA Lakers - Utah...............116:100
ÚRVALSDEILD
A-RIÐILL
Fj. leikja U T Stlg Stig
UMFN 21 17 4 1913: 1654 34
HAUKAR 21 17 4 1858: 1625 34
UMFG 21 15 6 2012: 1732 30
KEFLAVÍK 21 14 7 1933: 1722 28
ÍR 21 9 12 1699: 1730 18
BREIÐABLIK 21 5 16 1666: 1971 10
B-RIÐIL L
Fj. leikja u T Stig Stig
UMFG 21 15 6 2012: 1732 30
SKALLAGR. 21 12 9 1642: 1646 24
KR 21 11 10 1779: 1785 22
ÞÓR 21 7 14 1775: 1761 14
ÍA 21 7 14 1823: 1978 14
VALUR 21 2 19 1594: 2043 4
KR - Haukar kl. 16.00
LEIKUR KR og Hauka í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í dag, sunnudag, hefst kl.
16.00 en ekki klukkan 20.00 eins og misrit-
aðist í blaðinu í gær.
Mynd speglaðist
Myndin af íþróttamönnum ársins hjá sér-
samböndum ÍSÍ, sem birtist ( blaðinu í
gær, speglaðist í vinnslu og því eru nöfnin
frá hægri en ekki vinstri eins og stendur í
myndatexta.
Sigur í fyrstu þremur leikjum íslands undir stjórn Jóns Kr. Gíslasonar landsliðsþjálfara
Mikilvægt að komast
áfram í Evrópukeppninni
ÍSLENSKA karlalandsliðið í körfuknattleik sigraði það eistneska
í þremur vináttulandsleikjum á milli hátfðanna. Þetta voru fyrstu
landsleikir íslands undir stjórn Jóns Kr. Gíslasonar nýráðins
landsliðsþjálfara og er hann að vonum ánægður með niðurstöð-
una úr frumraun sinni sem landsliðsþjálfari.
Morgunblaðið/Björn Blöndai
JÓN KR. Gíslason hefur lelklð 158 landsleiki en er nú tekinn
vlð sem landsliðsþjálfari. Hér afhendir Guðmundur Bjarni
Kristinsson, formaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur,
honum mynd í tilefni 500. deildarleiks hans í meistaraflokki.
etta voru tvímælalaust mikil-
vægir leikir fyrir okkur og ég
reyndi að dreifa leiktímanum á sem
flesta leikmenn og til dæmis held ég
að það hafi aldrei verið sama bytjun-
arliðið í hálfleikjunum sex,“ sagði
Jón Kr. í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Margir fengu að reyna sig
Jón valdi fjórtán manna hóp fyrir
leikina og var ánægður með frammi-
stöðu allra. „Ég ákvað að nota eins
marga og hægt var. Bæði er að leik-
menn eru á fullu með sínum liðum
og því ekki réttlætanlegt að nota þá
of mikið og eins hitt að það er mik-
ill kostur að geta notað sem flesta.
Ég tel mig vera með mjög jafna leik-
menn þannig að það á ekki að breyta
miklu hveijir spila hveiju sinni, enda
kom það í ljós í þessum leikjum.
Guðmundur Bragason og Teitur Ör-
lygsson léku mest, eða um 30 mínút-
ur hvor og svo komu átta til níu leik-
menn sem léku í kringum 17 mínút-
ur. Þrír leikmenn fengu ekki langan
leiktíma að þessu sinni.“
Komu einhverjir leikmenn, eða
samvinna einhverra, þér á óvart?
„í rauninni kom frammistaða leik-
manna mér ekki á óvart en samt var
ánægjulegt að sjá hversu vel strákar
stóðu sig sem hafa ekki fengið mörg
tækifæri hingað til með landsliðinu.
Þar má til dæmis nefna Albert Ósk-
arsson og Sigfús Gizurarson, þeir
léku báðir mjög vel og í raun var
frammistaða þeirra eðlilegt framhald
af því sem þeir hafa verið að gera í
deildinni í vetur. Miðað við hvernig
leikimir spiluðust virðist ekki skipta
verulega miklu máli hveijir voru inná
hveiju sinni. Falur Harðarson og Jón
Amar Ingvarsson skiptu með sér
hlutverki leikstjómanda og tókst
báðum vel upp.“
Þú hafðir ekki langan tíma til
undirbúnings. Gastu verið með mörg
leikkerfi í sókninni og mismunandi
varnarleik?
„Það er rétt ég hafði aðeins sjö
æfingar fyrir leikina og það er ekki
nóg. Á fyrstu æfingunni fórum við
bara í hraðaupphlaup og ég lét strák-
ana hafa möppur með upplýsingum
um leikkerfi sem ég ætlaði að nota.
En eftir tvær til þrjár æfingar sá ég
að við kæmumst aldrei yfir þetta
allt þannig að ég skar niður. Ég
held að það sé mesta furða hvað
strákarnir komust yfir á svona stutt-
um tíma. Við létum menn keyra dálít-
ið inní vörnina og draga þannig að
sér fleiri en einn vamarmann og
senda síðan út á skytturnar. Þetta
gekk vel í tveimur fyrstu leikjunum
en í þeim þriðja fóru mótherjarnir
að passa sig betur og þá losnaði um
Guðmund Bragason.“
Notum pressuvörnina
meira síðar
„í vörninni lékum við langmest
maður á mann en ég prófaði þó
bæði svæðis- og pressuvöm. Það
verður gaman að pressa meira síðar
því þegar maður hefur svona marga
stráka þá er gott að nota pressuna
því menn eru óþreyttir. Ég er líka
mjög ánægður með hvemig strák-
arnir börðust í fráköstunum. Ég lagði
áherslu á að stöðva miðheijana hjá
þeim með því að fara fram fyrir þá
undir körfunni og hafa síðan alltaf
einhvern fyrir aftan til að hjálpa.
Þetta gekk vel og stóru mennirnir
hjá þeim skoruðu ekki mikið. í sókn-
inni tókum við líka talsvert af frá-
köstum og tókum til dæmis fleiri
sóknarfráköst en Eistar í einum
leiknum og það er nokkuð sem er
nýtt hjá íslensku landsliði."
Jón Kr. sagði mjög gott að vinna
með strákunum. „Það er virkilega
gaman að vera utan vallar og stjórna
og ég fann það í Lúxemborg í vor
að minn tími var kominn. Strákamir
hafa tekið mér vel og það er gaman
að vinna með þeim og þeir sem ég
hef leikið með í gegnum tíðina skilja
að nú er ég kominn hinum megin
við borðið,“ sagði Jón.
Aðalverkefni landsliðsins verður
upp úr miðjum maí þegar Evrópu-
keppnin verður hér á landi, keppni
þar sem sex lið munu beijast um tvö
laus sæti í aðalkeppni Evrópukeppn-
innar. „Það er mikilvægt að komast
áfram í þá keppni því þá gætum við
lent í riðli með þjóðum þar sem ósk-
að er eftir beinum sjónvarpsútsend-
ingum, og þá erum við komnir með
allt aðra vídd í körfuna hér heima.
Mér sýnist að við höfum um það bil
einn mánuð til að undirbúa okkur í
vor og ég ætla að nýta þann tíma
eins vel og ég get. Eg er að vona
að við getum komið því þannig fyrir
að leikmenn fái frí frá vinnu í svo
sem eina viku þannig að hægt sé að
undirbúa liðið betur en gert hefur
verið. Þá væri hægt að æfa tvisvar
á dag og það væri mikil framför.
Við eigum góða möguleika á að kom-
ast áfram og ég tel að við eigum að
kosta einhveiju til,“ sagði Jón Kr.
Gíslason landsliðsþjálfari.
Karafe ®
Karatedeild
Allírflokkarerufyrirbasði kynin. Fylkis
Yfírþjálfari 5ankudo er 5ensei
Jean Frenette, 6. DAN,
fimmfalriur heimsmeistari.
Aðalþjálfari Fylkis:
Vicente Carrasco
2. DAN, 17 ára reynslaj
Innri-tun
á staðnum
Allar nánari upplýsingar má
fá í eftirfarandi símum:
Fylkishöllin: 567-6467
Vicente Carrasco: 567-3593
Garðar Þ. Guðgeirsson: 5Ö7-Ö217
Sankudo International Karate-do Organisation
Karatenámskeið eru að hefjast í nýrrí 03 stórgiassilegri
aðstöðu í Fylkishöllinni við Sundlaug Árbasjar:
Flokkur
mánud.
miðvikud.
föstud.
laugard.
6-12 ára - Byrjendur
17:30-18:30
17:30-18.30
17:30-18:30
6-12 ára - Framhald
18:30-19:30
18:30-19:30
18:30-19:30
16:00-17:00
Fullorðnir - Framhald
19:30-21:00
19:30-21:00
19:30-21:00
17:00-19:00
Fullorðnir - Byrjendur
21:00-22:00
21:00-22:00
21:00-22:00