Morgunblaðið - 19.01.1996, Síða 1
72 SIÐUR B/C
traittilpIðMfe
STOFNAÐ 1913
15.TBL. 84.ARG.
FOSTUDAGUR 19. JANUAR 1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Jeltsín segir að uppreisnarmenn í Pervomaískoje hafi verið gjörs^graðir
Gíslar segja
tsjetsjenana
hafa sloppið
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti
sagði í gær, að Rússar hefðu ver-
ið neyddir til að beita afli gegn
tsjetsjenskum uppreisnarmönnum
í þorpinu Pervomaískoje. Hann
sagði 82 af um 100 gíslum hefði
verið bjargað úr klóm uppreisnar-
mannanna og að leit stæði yfir
að hinum. Gíslar, sem bjargað
var, sögðu að allt að 200 gíslatöku-
menn hefðu komist undan í skjóli
náttmyrkurs í fyrrinótt og flúið til
Tsjetsjníju með nokkra gísla.
Stangast það á við yfirlýsingar
rússneskra ráðamanna. Engar
fregnir fóru af því hvar Salman
Radujev uppreisnarleiðtogi er nið-
ur kominn.
Umsátrinu um Pervomaískoje
lauk í gær, og sagði Jeltsín, að
„þorpararnir" hefðu verið gjörsigr-
aðir.
Hafði /nteríax-fréttastofan eft-
ir heimildarmönnum í innanríkis-
ráðuneytinu, að lík 153 tsjetsj-
enskra uppreisnarmanna hefðu
fundist í eða við þorpið og 28 skær-
uliðar hefðu verið teknir til fanga.
Jeltsín bað rússnesku þjóðina
að sýna aðgerðunum skilning.
Tuttugu ög sex hermenn hefðu
Reuter
TSJETSJENSKIR gíslatakar með brugðin vopn um borð í Svarta-
hafsferjunni Avrasíu í gær. Tyrkir sögðust í gær myndu beita
afli til að koma í veg fyrir að ferjan sigldi inn á Hellusund.
RÚSSNESKUR hermaður kannar skilríki fallins tsjetsjensks upp-
reisnarmanns í þorpinu Pervomajskí í gær.
fallið og nokkrir óbreyttir þorpsbú-
ar týnt lífi. „Við vorum neyddir út
í þessar aðgerðir," sagði hann og
skellti skuldinni á Dzhokhar
Dúdajev, leiðtoga tsjetsjenskra
aðskilnaðarsinna. „Glæpamenn-
irnir sviku ítrekað loforð sín,“
sagði forsetinn.
Stöðva ferju með afli
Jeltsín bauð Tyrkjum aðstoð
rússneskra sérsveita í gær við að
ná Svartahafsfeijunni Avrasíu
sem tsjetsjenskir aðskilnaðarsinn-
ar tóku á þriðjudag.
Tyrkir afþökkuðu boðið og
sögðust myndu freista þess að fá
gíslatökumenn til að sleppa 200
gíslum af skipinu með friðsamleg-
um hætti.
Feijan sigldi í átt til Istanbúl
og var búist við henni að Hellu-
sundi um klukkan fjögur í nótt
að staðartíma, tvö að íslenskum
tima. Fylgdu tvær fregátur og eitt
beitiskip henni eftir. Mehmet Sev-
igen siglingamálaráðherra sagði í
gærkvöldi, að afli yrði beitt til
þess að koma í veg fyrir að Avras-
ía sigldi inn á Hellusund.
■ Rússlandsforseti boðar/24
■ Meinað að fara um/24
Vísar mót-
framboði
ábug
London. Reuter.
JOHN Major forsætisráðherra
Bretlands sagði í gær, að fregnir
um að gerð yrði ný atlaga að for-
ystuhlutverki hans væru þvætt-
ingur.
Major var spurður út í fréttir
Times og Financial Times um að
ónefndir frammámenn í flokknum
væru reiðubúnir að láta til skarar
skríða og steypa Major bíði íhalds-
flokkurinn mikinn ósigur í sveitar-
stjórnarkosningum í maí næst-
komandi.
Þingmaður Verkamannaflokks-
ins spurði Major um tíðindin í
fyrirspurnatíma á þingi í gær.
Major sagði að „kjánalegar vanga-
veltur“ af þessu tagi ættu sér stað
nær vikulega og kæmu yfirleitt
upp á fimmtudögum, en þá situr
hann fyrir svörum á þingi.
Ýmsir áhrifamenn í íhalds-
flokknum og ráðherrar vísuðu
fregnum blaðanna tveggja sömu-
leiðis á bug.
■ Vilja bola Major/22
Vill skilnað
frá Michael
Jackson
Los Angeles. Reuter.
LISA Marie Presley sótti í gær
um skilnað frá poppstjörnunni
Michael Jackson, að sögn tals-
manns hennar, Pauls Blochs.
Bloch sagði ástæðuna fyrir
skilnaðarumsókninni vera
„óbrúanlegan ágreining" þeirra
hjóna en vildi ekki útskýra nán-
ar í hverju það lægi.
Lisa Marie er 28 ára og eina
barn Elvis Presleys, konungs
rokksins. Þau Jackson gengu í
hjónaband i Dóminikanska lýð-
veldinu 26. maí 1994 og entist
hjónabandið því aðeins í 20
mánuði.
Simitis arftaki
Papandreou
Aþenu. Reuter.
COSTAS Simitis, tæknikrati og
umbótasinni, var kjörinn forsætis-
ráðherraefni gríska sósíalista-
flokksins (PASOK) í gærkvöldi í
stað Andreas Papandreou sem
sagði af sér í vikunni.
Þingflokkur PASOK kaus á
endanum milli Simitis og Akis
Tsohatzopoulos innanríkisráð-
herra. Sá síðarnefndi hlaut 75 at-
kvæði en Simitis 86.
Costis Stephanopoulos forseti
mun veita Simitis þriggja daga
frest til þess mynda ríkisstjórn.
Gert er ráð fyrir að hann muni
stokka stjórn Papandreou talsvert
upp.
Heitir endurreisn
Costas Simitis hét því í gær,
að Grikkir myndu nú heija göngu
inn í nýtt skeið efnahagslegra og
pólitískra umbóta. „Við munum
ganga í endurnýjun lífdaga," sagði
hann.
Simitis er 59 ára og hefur lengi
verið hvað vinsælastur grískra
Costas Simitis
stjórnmála-
manna sam-
kvæmt skoð-
anakönnunum.
Hann er kunnur
fyrir baráttu
sína fyrir um-
bótum innan
PASOK.
Kosningar á
næsta ári
Kosning hans þykir endurspegla
þá skoðun meirihluta þingflokks
PASOK að hann sé færastur um
að leiða flokkinn til sigurs í þing-
kosningum, sem fram eiga að fara
á næsta ári í síðasta lagi.
Simitis hefur verið ráðherra í
öllum ríkisstjómum sem PASOK
hefur myndað frá 1981 og gegnt
starfi landbúnaðar, efnahags- og
nú síðast iðnaðarráðherra. Undan-
farið ár hefur hann tekist á við
Papandreou og hvatt til aukins
lýðræðis bæði í flokknum og
stjóminni.
Stj ór narmyndun-
arviðræður í
Tyrklandi
Tilraun
heittrúar-
manna
mistókst
Ankara. Reuter.
FLEST bendir nú til þess að
tilraun heittrúarmanna til að
mynda stjórn í Tyrklandi sé
farin út um þúfur og eykur
það líkurnar á því að mið-
og hægrimönnum takist að
mynda stjórn.
ígær neitaði Mesut Yilmaz,
formaður Föðurlandsflokks-
ins sem er á hægri væng
stjórnmálanna, tilboði ísl-
amska velferðarflokksins um
að mynda samsteypustjórn.
Aður hafði Tansu Ciller,
fráfarandi forsætisráðherra,
neitað samstarfi við heittrú-
armenn en flokkur hennar er
einnig til hægri í tyrkneskum
stjórnmálum.
Neitun Yilmaz eykur aftur
líkurnar á því að flokkur hans
gangi til stjórnarmyndunar-
viðræðna við flokk Ciller.
Andar köldu
Andað hefur köldu á milli
Cillers og Yilmaz og tilraun
Cillers til að mynda stjórn
með Yilmaz mistókst fyrir
nokkrum vikum.
íslamski velferðarflokkur-
inn vann sigur í þingkosning-
um í Tyrklandi í desember
en þingstyrkur þeirra nægir
ekki til að mynda ríkisstjórn
einir.
Kaupsýslumenn á
móti heittrúarmönnum
Hafa tyrkneskir kaup-
sýslu- og ljármálamenn hvatt
hægrimenn til að mynda
stjórn án þátttöku íslamska
velferðarflokksins en til að
ná þingmeirihluta verður að
koma til stuðningur vinstri-
manna.