Morgunblaðið - 19.01.1996, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
ÞIÐ VERÐIÐ þá að lofa að gleypa mig ekki líka ...
Krafa um rannsókn hafnarframkvæmda í Kópavogi
Pólitískur rógur
og alvarlegt mál
Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs, kveðst ekkert hafa að fela
GUNNAR Birgisson, formaður bæj-
arráðs í Kópavogi, sagði í samtali
við Morgunblaðið að „annarleg sjón-
armið“ lægju að baki kröfu Helgu
Siguijónsdóttur bæjarfulltrúa um að
viðskipti fyrirtækis, sem hann rekur,
Klæðningar hf., við bæjarsjóð vegna
framkvæmda í Kópavogshöfn á síð-
asta ári verði rannsökuð og kvaðst
ekkert hafa að fela.
„Þetta er pólitískur rógur og al-
varlegt mál, þar sem verið er með
persónulegar ávirðingar á menn,“
sagði Gunnar. „Þetta er svipað og
að maður sé skotinn fyrst og spurð-
ur svo. Það er mjög alvarlegt ef á
að taka æru af pólitískum andstæð-
ingum af pólitískum ástæðum ein-
um. Hvað segir fólk svo þegar í ljós
kemur að ekkert var við viðskiptin
að athuga: „Afsakið við vorum bara
að athuga málið“?“
Framkvæmdir í fyrra
Gunnar sagði að hér væri um að
ræða framkvæmdir, sem unnar voru
í febrúar, mars og apríl á síðasta
ári, við hafnargarðinn. Verkið hefði
verið boðið út og tilboð Klæðningar
verið lægst. Komið hefði í ljós mikið
sig í garðinum og því verið ákveðið
að „fara með garðinn út í fulla
lengd“ og hlaða um leið grjóti til
að veija hann.
„Hún samþykkti þetta sjálf á sín-
um tíma,“ sagði Gunnar um Helgu.
„Nú er þetta allt í einu gott mál til
að beija á meirihlutanum með.“
Helga Siguijónsdóttir sagði í
fréttatilkynningu á þriðjudag að hún
teldi stutt í að félagsmálaráðuneyti
þyrfti að hafa afskipti af fjármáía-
stjórn Kópavogs. Staðan hefði verið
ljós fyrir einu ári og þá hefði meiri-
hlutinn lofað að hægja á fram-
kvæmdum til að greiða niður skuld-
ir, en þetta hefði snúist við, „líklega
um það bil sem var tekin ákvörðun
um tugmilljónaframkvæmdir við
höfnina utan við fjárhagsáætlun".
Bara hennar skoðun
„Þetta er bara hennar skoðun og
hennar fullyrðing og ég gef ekkert
fyrir slíkt,“ sagði Gunnar Birgisson.
„Helga þyrfti að kynna sér betur
rekstur bæjarins og ijármál áður en
hún fer að deila á aðra.“
Að sögn Gunnars hyggst bæjar-
stjórnin halda sig við þá stefnu að
ljúka ýmsum framkvæmdum, sem
þegar eru hafnar, og tók hann gömlu
göturnar í Kópavogi, skóla, mat-
vælagreinaskóla, opin svæði og
stíga, nýbyggingar og íþróttahús
sem dæmi um verkefni. Hann sagði
FLUTNINGABÍLL fór út af Reykja-
nesbraut og valt í fyrrakvöld.
Biliinn var á suðurleið á móts við
Bæjargil í Garðabæ þegar óhappið
varð. Ökumaðurinn, sem slapp
ómeiddur að sögn lögreglu, ætlaði
að hafa yrði í huga að stóru sveit-
arfélögin hefðu öll átt við vanda í
rekstri að glíma undanfarið vegna
aukinna verkefna frá ríki án þess
að fá tekjustofna á móti. í Hafnar-
firði og Reykjavík hefðu rekstrar-
tekjur ekki dugað fyrir rekstrar-
gjöldum árið 1994 og ástandið hefði
lítið batnað í fyrra. í kreppunni hefði
þurft miklar framkvæmdir til að
draga úr atvinnuleysi, en nú þegar
hún væri á enda, mætti fara að
draga úr þeim.
Gunnar sagði að hafnarfram-
kvæmdirnar væru hins vegar greidd-
ar úr hafnarsjóði, sem hefði sjálf-
stæðan fjárhag og hann myndi fagna
rannsókn því að í þeim viðskiptum
hefði ekkert verið að fela.
að forðast aftanákeyrslu og sveigði
til hliðar. Þá var staur framundan
sem ökumaðurinn reyndi einnig að
sveigja hjá með þeim afleiðingum
að bíllinn fór út af og valt niður
kantinn og út á hægri hliðina.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Valt á Reykjanesbraut
íslenskur golfvallaarkitekt
Fáum mjög góða
velli á næstunni
HANNES Þorsteins-
son frá Akranesi
varð í desember
fyrsti ísjenski golfvalla-
arkitektinn, en hann út-
skrifaðist í desember eftir
fjögurra ára fjarnám við
The Brítish Institute of
Golf Course Architecture.
Hannes hefur unnið við
hötinun fjölmargra golf-
valla hér á landi undanfar-
in ár og það varð til þess
að hann sótti um námið og
hefur nú uppáskrifað að
hann geti teiknað og hann-
að golfvelli. „Ég veit ekki
hverju þetta breytir svo
sem fyrir mig, nema að nú
hef ég það skjalfest að ég
geti þetta,“ sagði Hannes
í samtali við Morgunblaðið.
Námið fór þannig fram
að hann þurfti að dvelja í
Bretlandi tvær vikur á ári hveiju
en annars var ritgerðavinna og
teiknivinna unnin hér heima.
Umsjónarkennari hans var Don-
ald Steel, mjög virtur golfvalla-
arkitekt sem hefur meðal annars
unnið við breytingar á St.
Andrews vellinum í Skotlandi. En
hvað kom til að líffræðingurinn
og kylfíngurinn fór að læra golf-
vallaarkitektúr?
„Þegar ég var 16 ára gerði ég
tillögu að vellinum hér á Akra-
nesi og hún var samþykkt. Það
næsta sem ég gerði í þessu var
árið 1975 en þá teiknaði ég völl-
inn á Eskifirði og síðan spurðist
þetta út og ég var beðinn að líta
á hina og þessa velli. Ég tók
landafræði og jarðfræði sem
aukagreinar með líffræðinni og
svo hafði ég mikinn áhuga á golfi
og þetta varð til þess að ég taldi
mig kunna ýmislegt til verka í
sambandi við golfvelli.“
Þannig að þú ákvaðst að fara
í skóla á ný?
„Ég ákvað að fara og læra
golfvallaarkitektúr, en þar kom
maður heldur betur að tómum
kofunum því það var hvergi hægt
að komast í svona nám. Golfvalla-
arkitektúr er ekki skilgreindur
sem sérstakt nám og því var það
eiginlega heppni að ég rakst á
grein um að samtökin í Bretlandi
ætluðu að taka tólf erlenda nem-
éndur inn, en það eru um 40 til
50 meðlimir í samtökunum. Ég
sótti um og komst að. Samtökin
voru að breiða þetta út vegna
þeirrar gríðarlegu aukningar sem
orðið hafði í golfíþróttinni og það
voru komnir alls konar menn í
að hanna velli. Það má líkja þessu
við að teikna hús. Það hafa allir
hugmynd um hvernig þeir vilja
hafa hús, en það geta ekki allir
teiknað þau.“
Hafa þessi mál ver-
ið í ólestrí hér á landi?
„Ástandið hefur
breyst mjög mikið
undanfarin ár, sér-
staklega eftir að menntaðir vall-
arstarfsmenn komu til starfa hér
á landi. Það verður að segjast
eins og er að stundum var eins
og verið væri að finna upp hjólið
í hvert sinn sem golfvöllur var
gerður.“
Verður þetta fuilt starf hjá þér
í framtíðinni?
„Nei, þetta verður seint fullt
starf hér á landi, en hins vegar
er það mikið að gera að ég get
ekki sinnt öllu sem ég er beðinn
um, enda í fullu starfi við annað.
Þetta starf fer líka að breytast
held ég því í framtíðinni verður
meira um að laga eldri velli breyta
þeim frekar en byggja alveg frá
grunni eins og verið hefur.“
►Hannes Þorsteinsson er
fæddur í Reykjavík 17. júlí
1952 og útskrifaðist úr Mennta-
skólanum við Hamrahlíð árið
1972. Hann lauk BS-prófi i líf-
fræði frá Háskóla íslands árið
1976 og fluttist þá um haustið
til Akraness þar sem hann
gerðist kennari og kennir nú
við Fjöibrautaskólann. Hannes
spilaði mikið golf en hefur gert
„allt of lítið af því undanfarin
ár“ að eigin sögn. Það stendur
til bóta og yngri sonur hans
hefur sett á hann þrýsting því
pabbinn vill vinna hann eins
lengi og kostur er. Hannes er
kvæntur Þórdísi G. Arthurs-
dóttur ferðamálafulltrúa á
Akranesi og eiga þau tvo syni,
Þorstein, 17 ára, og Bjarna Þór
sem er á 15. aldursári.
Munum við einhvern tíma
eignast „alvöru “ golfvöll hér á
landi, svona eins og þeir eru í
útlöndum?
„Já, ég er alveg harður á því.
Vaxtartímabilið er að vísu stutt
hér á landi og þess vegna getum
við ekki haft vellina eins lengi í
toppstandi, en i ágúst ættum við
að geta haft velli sem eru eins
góðir og gerist erlendis. Og þetta
er að gerast því bæði völlurinn í
hrauninu í Hafnarfirði hjá Keili
og á Korpúlfsstöðum hjá GR
verða svona. Þar erum við með
sérblandað efni í flötunum og
sérstakt flatargras eins og notað
er erlendis og ég er viss um að
þegar þessir vellir verða orðnir
grónir þá verða þeir eins og golf-
vellir gerast bestir.“
Ætlar þú að færa út kvíarnar
og teikna velli erlendis?
„Ég er búinn að teikna völl
fyrir Færeyinga og
hef þegar hælað út
sex brautir fyrir þá
og nú bíð ég bara eft-
ir því að þeir gefi
grænt ljós á að fram-
kvæmdir megi hefjast. Völlurinn
mun verða fyrir ofan Þórshöfn í
óunnu landi þannig að það þarf
að vinna hann alveg frá A til Ö
eins og völl Oddfellowa í Hafnar-
firði. Annars er mismunandi
hvernig þetta gengur fyrir sig.
Stundum teiknar maður bara
völlinn og klúbbarnir taka síðan
við og það tel ég ekki rétta að-
ferð. Það er draumur manns að
fá að fylgja verkinu eftir, alveg
þar til völlurinn er opnaður. Ef
við höldum okkur við húsið sem
við ræddum um áðan þá lætur
maður ekki rissa upp hús fyrir
sig og réttir síðan smiðnum
teikningarnar þannig að hann
geti gert það sem hann vill.“
Hannaði
fyrsta golf-
völlinn 16 ára