Morgunblaðið - 19.01.1996, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
KOSNINGAR í DAGSBRÚN
„Abyrg* forystau gegn „reynslu
og róttækri endurnýjun“
Snörp orðaskipti urðu á sameiginlegum fundi
A-lista og B-lista í gær um stjómarkjör, sem
hefst í Dagsbrún í dag. Karl Blöndal fylgd-
ist með á fundinum.
SAMEIGINLEGUR framboðsfund-
ur vegna stjórnarkjörs í Dagsbrún
var haldinn í Bíóborginni við
Snorrabraut í gær. A-listinn lagði
áherslu á að á framboðslistanum
væri að fmna „reynslu og róttæka
endurnýjun", en B-listinn hélt því
meðal annars fram að ekki dygði
að fá ný andlit, gera yrði „foryst-
una ábyrga gagnvart félagsmönn-
um“.
Aðalsalur Bíóborgarinnar var
ekki þéttsetinn í snjókomunni í
Reykjavík í gær, en þeir, sem sóttu
kosningafundinn, klöppuðu ákaft
og oft mátti heyra félagsmenn
tuldra svör við ræðum framboðs-
manna og jafnvel kalla fram í.
Fyrirkomulag fundarins var
þannig að frambjóðendur listanna
töluðu til skiptis. Kristján Árnason,
formannsefni B-listans, tók fyrst til
máls og sagði að kosningafyrir-
komulag hjá Dagsbrún hefði
„tryggt stjórninni setu eins lengi
og menn hafa nennt að sitja“ og
það væri í „hrópandi ósamræmi við
þá lýðræðishætti, sem við á B-list-
anum teljum að eigi að vera í gildi
nú á tuttugustu öldinni".
Kristján sagði að B-listinn myndi
leggja megináherslu á að allir hópar
Dagsbrúnarmanna færu gaum-
gæfilega yfir samninga þannig að
hægt yrði að ganga til samningavið-
ræðna ekki seinna en í nóvember
1996 með fullkomna tillögu að nýj-
um samningum.
Fylgt eftir af þunga og styrk
„Við B-listamenn höfum hugsað
okkur að fylgja kröfunum eftir með
fullum þunga og styrk samkvæmt
því umboði, sem félagsmenn munu
gefa okkur,“ sagði Kristján. „Við
munum ekki hvika frá því.
Hann sagði að B-listinn væri
hópur hugsjónamanna með raun-
hæfa þekkingu á kjörum og lífi
verkafólks. „Því treysti ég því félag-
ar að þið nýtið atkvæðisrétt ykk-
ar ... til að söðla yfir í forystu, sem
verður ykkur í hag og getur aldrei
orðið neitt annað en ykkar vopn
gegn kúgun og ranglæti," sagði
Kristján.
Næstur talaði Halldór Björnsson,
formannsefni A-listamanna, og
sagði að komið væri að lokum kosn-
ingabaráttu, sem því miður hefði
snúist um ýmislegt annað en kjör
verkamanna.
Mun reyna á hvern félagsmann
Halldór spurði um hvað þessi
barátta snerist og svaraði: „Hjá
okkur á A-listanum snýst hún um
eitt, um kjör félagsmanna og hvern-
ig hægt er að bijóta þann kyrr-
stöðuís, sem launamál félagsmanna
eru komin í.“
Halldór sagði að nú væri svo
komið að Dagsbrún þyrfti að standa
ein í baráttunni og þá myndi reyna
á hvem og einn félagsmann. Einnig
væri hugarfarsbreytingar þörf á
íslandi.
„Við segjum að það sé kominn
tími til að íslenskt verkafólk búi við
sömu kjör og verkafólk í grannlönd-
um okkar,“ sagði Halldór. „Hér á
landi virðist vera skortur á þeim
skilningi, sem er almennt í grann-
löndunum, að fólk þurfi að lifa, en
ekki að skrimta."
Halldór sagði að á A-listanum
væri að finna „reynslu og hins veg-
ar róttæka endurnýjun" og lauk
ræðu sinni með orðunum: „B-listinn
býður ... fram reynslulítið fólk. Því
hlýt ég að hvetja alla Dagsbrúnar-
menn til að krossa við A á kjörstað.“
Guðmundur Rúnar Guðbjarnar-
son, ritaraefni B-listans, var næstur
ræðumanna og sagði hann að lengi
hefði verið „beðið eftir breytingu
til batnaðar" í stjórn Dagsbrúnar.
„A-Iistamenn reyna á skoplegan
hátt að höfða til tveggja hópa,“
sagði Guðmundur. „Þeir höfða til
þeirra, sem vilja breytingar og nýj-
ungar, með stefnuskrá sinni, sem
er svo ótrúlega lík stefnuskrá B-list-
ans í meginatriðum. Síðan höfða
þeir til þeirra, sem engar breytingar
vilja sjá, og benda með vandlætingu
á atriði, sem eru á stefnuskrá B-
lista og „nota bene“ eru einnig á
stefnuskrá A-listans, en með þeim
fyrirvörum að það má hverjum
manni vera ljóst að það á ekki að
standa við nein stefnuskráratriði
A-Iistans á þessu kjörtímabili."
Gagnrýni B-lista svarað
Á eftir honum talaði Sigríður
Ólafsdóttir, varaformannsefni A-
lista, byijaði á að svara gagnrýni
B-listans á það, að hún hygðist
halda áfram í vinnu sinni þótt hún
næði kjöri og kvaðst myndu hafa
nægan tíma til að gegna skyldum
sínum. Hún væri ekki haldin „sömu
þrá og Sigurður Rúnar Magnússon
[varaformannsefnis B-listans] að
verma þessa leðurstóla [í höfuð-
stöðvum Dagsbrúnar] á Lindargötu
9, semjhonum er svo tíðrætt um.“
Anna Sjöfn Jónasdóttir, sem býð-
ur fram fram í embætti meðstjórn-
anda B-lista, vitnaði í orð Alberts
Ingasonar, B-lista, í blaði Dags-
HALLDÓR Björnsson, formanns-
efni A-lista: Hjá okkur á A-listan-
um snýst [þessi barátta] um eitt,
um kjör félagsmanna og hvernig
hægt er að brjóta þann kyrr-
stöðuís, sem launamál félags-
manna eru komin í.
SIGURÐUR Bessason, A-lista:
Er það líklegft að hópur, sem
þarf að byrja á því að selja sig
inn í öll samningssvið Dagsbrún-
ar, [sæki] gull í greipar Þórarins
Viðars og hans félaga?
brúnar um Halldór Björnsson að
hann væri „greindasti og slyngasti
samningamaður, sem verkalýðs-
hreyfingin á um þessar mundir" og
bætti við: „Sú reynsla og sióttuga
samningatækni, sem Halldór hefur
yfir að ráða, hefur skilað sér í 31%
lækkun á raungildi taxta síðan
1980.“
„Annars boða Halldór og félagar
róttækar breytingar,“ sagði Anna
Sjöfn. „Ekki veit ég hvort Halldór
hefur verið svo bældur hjá félögum
sinum í fyrri stjórn að hann hafi
ekki haft möguleika á að koma
neinum af fyrri hugðarefnum sínum
á framfæri eða hvort hann á af
KRISTJÁN Árnason, formanns-
efni B-lista: Við B-listamenn höf-
um hugsað okkur að fylgja kröf-
unum eftir með fullum þunga og
styrk samkvæmt því umboði, sem
félagsmenn munu gefa okkur.
ANNA Sjöfn Jónasdóttir, B-lista:
Sú reynsla og slóttuga samninga-
tækni, sem Halldór hefur yfir að
ráða, hefur skilað sér í 31% lækk-
un á raungildi taxta síðan 1980.
óskiljanlegum ástæðum stökkbreyt-
ist á 40 ára fresti.“
Albert Ingason, frambjóðandi
A-lista í varastjórn, lagði áherslu á
að sex nýir menn væru í framboði
A-lista í tíu manna stjórn Dags-
brúnar og hefði áhersla verið
lögð á reynslu og endurnýjun.
Albert kvaðst oft hafa verið
spurður hvað hann hygðist gera til
að bæta hag félaga sinna og hann
spyrði á móti: „Hvað getur þú gert
fyrir sjálfan þig og félaga þína?“
Það væri Dagsbrúnarmanna að
sýna stuðning og A-listinn myndi
ekki víkja undan þeim skyldum, sem
lagðar yrðu á herðar hans.
Ólafur Björn Baldursson, sem er
í framboði á B-Iista til ijármálarit-
ara, sagði að Dagsbrún þýddi nýr
dagur. Sól hennar hefði þó farið
lækkandi frá því hún skein skært
á myrkum himni um miðja öldina.
Hann fór hörðum orðum um núver-
andi forystu Dagsbrúnar og sagði
B-listi breiðfylkingar verkamanna
hefði verið stofnaður af nauðsyn til
að bijótast „undan því oki og fargi,
sem er að skapast í kjara- og rétt-
indamálum félagsmanna í Dags-
brún“.
Treystir ekki B-lista
Árni H. Kristjánsson, kosninga-
stjóri og fjármálastjóraefni A-Iista,
sagði með því að kjósa A-lista veldu
menn „róttæka endurnýjun án þess
að kasta reynslunni út í hafsauga“.
Árni sagði að hann hefði hafnað
sæti á B-lista þar sem hann treysti
mönnum á honum ekki til að beij-
ast fyrir hagsmunum Dagsbrúnar,
en eftir að róttækar tillögur A-lista
um breytingar, sem ætlunin væri
að gera, hefði hann séð að einstakt
tækifæri hefði skapast til að ná
fram stefnubreytingu í mikilvæg-
ustu málaflokkunum. „Öllum öðrum
en B-listamönnum er það ljóst að
A-listinn er róttækasta endurnýjun
á stjórn Dagsbrúnar fyrr og síðar,“
sagði Árni.
Síðasti ræðumaður B-lista var
Sigurður Rúnar Magnússon, vara-
formannsefni, og sagði hann að
framboð B-lista byggðist á „hinum
harða og miskunnarlausa veruleika
hins vinnandi verkamanns, baslinu
og áhyggjum hvunndagsins". Hann
hafnaði gagnrýni um að B-lista-
menn væru reynslulausir og þekk-
ingarlausir á málefnum félagsins
og sagði slíkt málflutning rökþrota
manna.
Uppgjör við hugmyndafræði
Hann sagði að komið væri að
..uPPgjöri við þá hugmyndafræði,
sem gerir þá ríku ríkari og fátæku
fátækari", en til þess að sigra í
þeirri baráttu yrði að styrkja Dags-
brún. „Við B-listafólk teljum að enn
sé hægt að bjarga Dagsbrún frá
hægfara tæringu og dauða,“ sagði
Sigurður Rúnar. „Við höfum fundið
það á vinnustaðafundum að enn
logar glóð undir yfirborðinu. Við
þurfum að blása í þær glæður og
endurvekja þá elda, sem fyrr loguðu
í bijóstum Dagsbrúnarmanna."
Síðastur talaði Sigurður Bessa-
son, ritaraefni A-lista, og sagði að
B-listinn hefði „sáralitla reynslu".
Þar er „hópur Dagsbrúnarmanna,
sem er sannfærður um það að at-
vinnurekendavaldið muni falla í
stafi þegar þeir birtist, opna alla
sína sjóði og segja: „Gjörið þið svo
vel,“ sagði Sigurður. „Það er ekki
svona. Þeir fulltrúar atvinnurek-
endavaldsins, sem sitja í Garða-
stræti, eru reynslumikið og
harðsnúið lið, sem gjörþekkir hvern
krók og kima á kjarasamningssvið-
inu, og ég spyr: Er það líklegt að
hópur, sem þarf að byija á því að
setja sig inn í öll samningssvið
Dagsbrúnar, [sæki] gull í greipar
Þórarins Viðars og hans félaga?“
Sigurður skoraði á fundarmenn
að gefa Dagsbrún það í 90 ára af-
mælisgjöf að kjósa A-listann.
Kosið milli hundrað
og tuttugu manna lista
STJÓRNARKJÖR í Verkamannafé-
laginu Dagsbrún hefst í dag og lýk-
ur annaðkvöld. Kosið er milli
tveggja 120 manna lista, A-lista
stjórnar og mótframboðs B-lista.
Erfítt er að segja fyrir um úrslit,
en hjá báðum listum ríkir bjartsýni.
Um 3.600 manns eru á kjörskrá
Dagbrúnar, að sögn Kristjönu Val-
geirsdóttur, starfsmanns Dags-
brúnar. Kjörskrá var lokað síðdegis
á miðvikudag, en fullgildir félagar
geta þó komist inn á hana allt þar
til kosningu lýkur á morgun.
240 manns á kjörseðli
Kosið verður í höfuðstöðvum
Dagsbrúnar, Lindargötu 9. Á kjör-
seðii er hægt að merkja við A- eða
B-lista og er Halldór Björnsson for-
mannsefni þess fyrrnefnda, en
Kristján Árnason þess síðamefnda.
Um er að ræða sjö frambjóðendur
í stjórn og þijá í varastjórn. Að
auki er kosið í stjórn vinnudeilu-
sjóðs og styrktarsjóðs, um endur-
skoðendur félagsins og í trúnaðar-
ráð. Alls eru 120 manns á hvorum
lista og nöfn þeirra allra eru á at-
kvæðaseðlinum.
Má strika út af listum
Guðmundur J. Guðmundsson,
fráfarandi formaður Dagsbrúnar,
sagði á miðvikudag að félagsmenn
væru ekki rígbundnir af listunum.
Hægt væri að strika út af einum
lista og krossa við á hinum. „Þann-
ig að vilji einhver Kristján Árnason
sem formann í stað Halldórs er
hægt að strika út og krossa við,“
sagði Guðmundur J.
Að sögn Snæs Karlssonar, for-
manns kjörstjórnar, sjá starfsmenn
kjörstjórnar um talningu og reikn-
aði hann með að átta manns myndu
telja atkvæði. Þegar kjörklefum
yrði lokað í kvöld yrðu kjörgögn
innsigluð og læst inni í klefa hjá
Sjómannafélagi Reykjavíkur, sem
gengi undir nafninu íslandsbanki í
höfuðstöðvum Dagsbrúnar sakir
þess hve hann væri rammger.
Kosningasmölun
ekki úr sögunni
Snær sagði að tölur gætu legið
fyrir seint á laugardagskvöld, en
það færi eftir því hver kosninga-
þátttaka yrði hve langan tíma tæki
að telja atkvæði.
Kosningasmölun er ekki úr sög-
unni þótt bein afskipti stjórnmála-
flokka séu það. Sigurður Rúnar
Magnússon, varaformannsefni B-
listans, sagði að B-listinn myndi
láta reyna á það hve mikið yrði
hægt að hringja úr þeim tveimur
símum, sem væru á kosningaskrif-
stofu listans. Einnigyrði fólki hjálp-
að að komast á kjörstað.
Sex símanúmer eru skráð á kosn-
ingaskrifstofu A-listans.- Að sögn
Halldórs Bjömssonar, formannsefn-
is A-Iistans og núverandi varaform-
anns Dagsbrúnar, verður hafist
handa við að hringja eftir hádegi á
laugardag þegar búið verður að bera
kjörskrá saman við það hveijir hafa
greitt atkvæði til að tryggja að fé-
lagsmenn neyti réttar síns.
Ný stjórn tekur við á næsta aðal-
fundi Dagsbrúnar, sem Guðmundur
J. Guðmundsson, sagði að sennilega
yrði haldinn seinnihlutann í mars.
»
l
í
I
I
I
|
í
I
L
f
1
I
l
(
[
I
I
I
I
-
\
f
f
I
I