Morgunblaðið - 19.01.1996, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Samstarfssamningar Kringlu og Borgarkringlu
lagðir fyrir fund eigenda
Nýtt hlutafélag yfir-
tekur Borgarkringlu
Flugleiðir semja
við Toyota
Kaupa 114
bifreiðar
BÍLALEIGA Flugleiða hefur
gengið frá samningum við P.
Samúelsson um kaup á 114
nýjum Toyota bifreiðum og
er þessi samningur einn sá
stærsti sem nokkru sinni hef-
ur verið gerður við bílaleigu
hér á landi. Bifreiðarnar eru
langflestar af gerðinni Toyota
Corrolla, eða 105 talsins, en
hinar 9 eru jeppabifreiðar.
Kaupverð þeirra nemur 152
milljónum króna.
Afhentir í vor
Einar Sigurðsson, upplýs-
ingafulltrúi Flugleiða, segir
að meginstefna Bílaleigu
Flugleiða sé að endurnýja
stóran hluta bílaflotans á
hverju ári þannig bílamir
verði aldrei eldri en 18 mán-
aða. „Þessi kaup fara að jafn-
aði fram með útboði og við
höfum verið með nokkrar teg-
undir bíla í gegnum árin. Við
höfum verið með bifreiðar frá
Toyota áður og þeir hafa
reynst okkur afar vel og verð-
ið á þeim hefur reynst hag-
stætt.“
Einar segir að bílamir komi
til afhendingar í vor, áður en
helsti annatími bílaleigunnar
hefst. Hann segir að bílaleig-
an verði í sumar með um 300
bíla og sé það um 10% fjölgun
frá síðasta ári.
Gæðakerfi
VKS vottað
FINNUR Ingólfsson, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, afhenti
Ara Arnalds, framkvæmda-
sljóra, Verk- og kerfisfræðistof-
unnar hf. vottun Vottunar hf. á
gæðakerfi fyrirtækisins sam-
kvæmt hinum alþjóðlega gæða-
staðli ÍSTISO 9001, við athöfn
á Grand Hótel í gær. VSK er
fyrsta íslenska hugbúnaðarfyr-
irtækið sem hlýtur vottun á
gæðakerfi sínu samkvæmt þess-
um staðli.
HÆSTIRÉTTUR sýknaði Búnaðar-
banka íslands af kröfu dansks fyrir-
tækis, sem hafði selt hjólaskóflu
hingað til lands. Samskip voru hins
vegar dæmd til að greiða fyrirtæk-
inu 9,5 milljónir króna, þar sem
skipafélagið hefði afhent skófluna
án þess að fá í hendur frumrit farm-
skírteinis, sem átti að liggja fyrir
þegar skóflan væri greidd. Hins
vegar hafði skipafélagið tekið við
afriti farmskírteinis, með stimpli
bankans. Fyrirtækið, sem keypti
skófluna, varð gjaldþrota sex mán-
uðum eftir kaupin á skóflunni, en
hún hafði verið selt fljótlega eftir
að fyrirtækið fékk hana afhenta.
HÚSFÉLAG Kringlunnar og hús-
eigendur í Borgarkringlunni hafa
nú náð samkomulagi um samstarf
húsanna og sameiginlega yfir-
stjórn. Þar er m.a. gert ráð fyrir
að stofna sérstakt félag um versl-
unarrými á fyrstu og annarri hæð
Borgarkringlunnar og fær Kringl-
an 15% hlut í því gegn því að opna
aðgang að bílastæðum.
Viðræður um samtengingu og
nánara samstarf húsanna hafa
staðið yfir frá því haustið 1994,
en þær hófust að ósk Kringlunnar
4-6. Þetta félag er sem kunnugt
er í eigu Landsbankans, íslands-
banka,. Iðnlánasjóðs og Iðnþróun-
arsjóðs og er eigandi að 1. og 2.
hæð í Borgarkringlunni.
{ þeim drögum að samningi sem
nú liggur fyrir er gert ráð fyrir
að húsfélagið í Kringlunni muni
taka að sér að sjá um rekstur eign-
arhluta Kringlunnar 4-6 í Borgar-
kringlunni. Alls er um að ræða
4.400 fm eða um 66% af eigninni.
Um reksturinn munu gilda sömu
í september 1992 seldi danska
fyrirtækið hjólaskófluna og fylgi-
hluti til Vélakaups hf. Var hún send
til landsins með Helgafelli, skipi
Samskipa. Samkvæmt farmskír-
teini átti ekki að afhenda vöruna
nema gegn afhendingu á eintaki
þess, sem bæri rétta, óslitna fram-
salsröð. Danska fyrirtækið gaf
einnig út reikning vegna kaupanna,
að fjárhæð rúmar 10 millj. króna,
að frádregnum rúmum 600 þúsund
krónum, sem Vélakaup hafði greitt
við pöntun. Senda átti Vélakaupi
frumrit farmskírteinis þegar það
hefði greitt reikninginn í banka.
Skipafélagið afhenti hins vegar
vöruna fljótlega eftir að hún barst
til landsins, án þess að frumriti
væri framvísað eða krafan greidd.
Búnaðarbanki Islands hafði stimpl-
að á Ijósrit farmskírteinis „Má af-
greiða, 16. október 1992, Búnaðar-
banki íslands, erlend viðskipti" og
fylgdi áritun eins bankastarfs-
manns. Taldi skipafélagið sig hafa
afhent hjólaskófluna í trausti þessa.
Danska fyrirtækið taldi Samskip
og Búnaðarbankann bótaskylda
vegna þess tjóns, sem hlaust af því
að hjólaskóflan var afhent án
greiðslu. Hæstiréttur sagði að miða
yrði við að ábyrgð skipafélagsins á
því að afhenda skófluna aðeins
gegn farmskírteini hafi verið í fullu
gildi. Því bæri að staðfesta niður-
stöðu héraðsdóms að því leyti. Hins
vegar yrði bankinn sýknaður af
kröfum um bætur, þar sem ekki
væri nægjanlega í Ijós leitt hvert
traust skipafélagið mátti leggja í
stimpil bankans. Sök bankans
gagnvart danska fyrirtækinu væri
því ekki sönnuð. Stimpillinn hafi
ekki borið með sér að ábyrgð væri
tekin á afgreiðslunni og skipafélag-
ið af ásetningi tekið áhættu af af-
hendingunni.
Auk 9,5 milljón króna greiðslu
til danska fyrirtækisins var Sam-
skipum gert að greiða því 500 þús-
und krónur í málskostnað í héraði
og fyrir Hæstarétti.
reglur og gilda í Kringlunni þannig
að stjórn húsfélagsins mun ákveða
í framtíðinni hvers konar rekstur
verður á 1. og 2. hæð Borgar-
kringlunnar. Samsetning verslana
í báðum verslunarmiðstöðvunum
verður samræmd með það að
markmiði að styrkja Kringlusvæð-
ið sem verslunarsvæði.
Gert er ráð fyrir að nýtt hlutafé-
lag yfirtaki eignarhluta Kringlunn-
ar 4-6 hf. i Borgarkringlunni, Ís-
lenska fasteignafélagið hf. Hlutafé
félagsins verður 500 milljónir
króna og munu núverandi eigendur
eiga 85% hlutafjár, en Húsfélag
Kringlunnar leggur fram 15% f.h.
eigenda sinn.
Kringlan leggur til
aðgang að bílastæðum
Framlag eigenda Kringlunnar
4-6 hf. verður annars vegar eign-
arhluti þeirra í Borgarkringlunni
og hins vegar 107 milljónir í pen-
ingum til að breyta bílastæðum og
1. hæð Borgarkringlunnar. Eig-
TVEIR íslendingar, þeir Helgi
Rúnar Óskarsson, markaðstjóri
Fróða hf., og Sigurður Jakobsson,
fyrrum upptökustjóri hjá Stöð 2,
hafa ásamt eiginkonum sínum
fengið sérleyfíð fyrir bandarísku
samlokukeðjuna Subway í Dan-
mörku. Undirbúningur er kominn
vel á veg að opnun fyrsta veitinga-
staðarins og hafa þeir félagar nú
til athugunar að taka á leigu hús-
næði við Strikið í miðborg Kaup-
mannahafnar.
Sigurður sagði í samtali við
Morgunblaðið að hugmyndin að
því að sækja um sérleyfið hjá
Subway hefði fyrst kviknað árið
1993. „Helgi Rúnar var þá í mark-
aðsnámi í Kaliforníu og keypti sér
oft subway-samlokur. Ég og fjöl-
skylda mín fórum í heimsókn til
þeirra og þá var þetta ákveðið.
11.500 staðir um allan heim
Keðjan hefur verið starfandi í
rúm þijátíu ár og innan hennar
eru nú 11.500 staðir um allan
heim. Um þessar mundir er verið
að opna slíka staði í Evrópu og
fyrsti staðurinn af fimmtíu í Bret-
landi var opnaður í síðustu viku.
Þar hefur Subway gert samning
við Texaco-olíufélagið um sérleyf-
ið. Þá var fyrsti staðurinn opnaður
í Sviss núna í desember og í Aust-
urríki í október.“
Aðspurður um hvers vegna Sub-
way hefði ákveðið að ganga til
samstarfs við íslendinga en ekki
Dani sagði Sigurður að þeir félag-
ar hefðu undirbúið umsókn sína
mjög vel. „Þeir aðilar sem sækja
um starf þróunarstjóra í einstök-
um löndum þurfa að flytja sitt
mál fyrir sérstakri nefnd. Danskt
fyrirtæki reyndi einnig að fá sér-
leyfið og ákvörðun var ekki tekin
fyrr en báðir aðilar höfðu flutt
sitt mál. Þeir völdu okkur á endan-
um. Subway veðjar reyndar oft á
endur Kringlunnar leggja fram
aðgang að bílastæðum Kringlunn-
ar og fá í staðinn hlutafé í nýja
félaginu að nafnvirði 75 milljónir.
Fyrirhugað er að ráðast í breyt-
ingar á bílakjöllurum Borgar-
kringlunnar og tengja þá við bíla-
stæði Kringlunnar. Gerður verður
nýr inngangur á Borgarkringluna
og ráðist í breytingar á húsnæði
og fyrirkomulagi reksturs á 1.
hæð. Þannig er gert ráð fyrir að
stórverslun verði sett upp í suður-
enda sem hafi aðdráttarafl fyrir
Borgarkringluna og allt svæðið.
I síðari áföngum breytinganna
er gert ráð fyrir að ráðast í fram-
kvæmdir á 2. hæð Borgarkringl-
unnar og að það svæði verði að
mestu nýtt fyrir skemmtiiðnað,
þ. á m. bíósali.
Boðað hefur verið til félagsfund-
ar í Húsfélagi Kringlunnar á
þriðjudag, þar sem stjórn þess mun
óska eftir umboði allra eigenda í
húsinu til að undirrita fyrirliggj-
andi samninga.
einstaklinga, fremur en fyrirtæki,
og telur þá líklegri til að ná ár-
angri.“
Kauptilboð hafa borist
frá dönskum aðilum
Sigurður hefur þegar lokið nám-
skeiði hjá Subway í Bandaríkjun-
um og Helgi Rúnar er á förum
þangað til að setjast á skólabekk
hjá fyrirtækinu. Þá er von á svæð-
isstjóra Subways í Evrópu til
Kaupmannahafnar nú um helgina
til að skoða það húsnæði sem
stendur til boða.
Nokkrir danskir aðilar hafa lýst
yfir áhuga á að kaupa sérleyfi af
þeim Helga Rúnari og Sigurði.
Hins vegar verða þeir að reka
fyrsta staðinn í hálft ár sjálfír
áður en af því getur komið.
-----♦ ♦--------
FTSEIOO
slær öll
fyrri met
London. Rcutcr.
VERÐ á hlutabréfum í Bretlandi
sló öll fyrri met í gær vegna 25
punkta vaxtalækkunar Englands-
banka og vísbendinga um frekari
hækkanir síðar að sögn verðbré-
fasala og sérfræðinga.
„Markaðurinn er sannfærður um
að þetta sé ekki síðasta lækkunin,“
sagði einn verðbréfasalinn. „Líkur
eru á að minnsta kosti tveimur
hækkunum í sumar.“
FTSE 100 vísitalan hækkaði við
lokun um 44,5 punkta í 3748,7, en
fyrra metið var 3728,6 frá 9. jan-
úar. FTSE 350 vísitalan hækkaði
um 19,5 í 1857,4 og það var einnig
met. Fyrra metið var frá 8. janúar,
1848,5.
VKS
VERK- OG KERFISFRÆÐISTOFAN
Fyrsta tslenska
hugbúnaðarfyrirtækið með
vottað gxðakerfi.
Fyrirtæki sem hafa byggt upp vottuð
gæðakerfi með aðstoð Ráðgarðs hf.
Lýsi hf. • Bakkavör hf. • Borgarplast hf.
Osta- og smjörsalan sf. • (slenskar sjávarafurðir hf.
össur hf. • Umbúðamiðstöðin hf.
Verk- og kerfisfræðistofan hf.
RÁÐGARÐUR hf
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁEXJJÖF
FURUGERÐI 5 108 REYKJAVÍK SÍMI633-1S00
netfang: radgard@itn.ls
Samskip greiði 9,5 milljónir fyrir hjólaskóflu
Frumrit farm-
skírteinis vantaði
íslendingar fá
sérleyfi fyrir Sub
way í Danmörku