Morgunblaðið - 19.01.1996, Side 24

Morgunblaðið - 19.01.1996, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ HERNAÐARAÐGERÐIR RÚSSA GEGN TSJETSJEIMUM Reuter SÆRÐUR gísl, sem slapp undan tsjetsjensku uppreisnarmönnunum í Pervomaí- skoje í gær, studdur inn á sjúkrahús í nágrannaþorpinu Aksaí. Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, tilkynnti í gær að hernaðaraðgerð- um Rússa gegn tsjetsjenskum uppreisnarmönnum í þorpinu Pervomaískoje í Dagestan væri lokið. „Við höfum tekið Dzhokhar Dúdajev [leiðtoga tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna] í kennslustund og við þurfum nú að ráðast á öll vígi hans sem eru án óbreyttra borgara til að losna við hryðjuverk á rússneskum landsvæðum," sagði Jeltsín. Forsetinn sagði rússneskum fréttamönnum að 82 gíslar hefðu lifað af og flestir uppreisnarmann- anna hefðu verið drepnir í hörðum stórskota- og flugskeytaárásum á Pervomaískoje. „Allir glæpamenn- irnir hafa verið upprættir, nema einhveijir þeirra séu í felum neðan- jarðar," sagði forsetinn. 26 rússneskir hermenn voru Reuter TVÆR aldraðar systur, sem bjuggu í Pervomaískoje, sitja á eigum sinum í ná- grenni þorpsins. Hús systranna eyðilögðust í stórskota- og flugskej'taárásum Rússa. ættismönnum að hópur uppreisnar- manna hefði ráðist út úr þorpinu í fyrrinótt og skotið á hermenn. Dúdajev sagður bera ábyrgðina Uppreisnarmennirnir söfnuðu um 2.000 gíslum saman á. sjúkra- húsi í bænum Kizljar í Dagestan 9. janúar eftir að hafa ráðist inn í bæinn. Daginn eftir lögðu þeir af stað með meira en 100 gísla áleiðis til Tsjetsjníju en rússneskar hersveitir stöðvuðu þá í Pervomaí- skoje og umkringdu. Jeltsín sagði að nauðsynlegt hefði verið að grípa til hemaðarað- gerðanna gegn uppreisnar- mönnunum þar sem samningavið- ræður hefðu ekki borið árangur. Hann kvað Dúdajev bera ábyrgð á mannfallinu meðal hermanna og óbreyttra borgara. Rússlandsforseti boðar árásir á vígi Tsjetsjena drepnir í bardögunum í Pervo- og sögðust hafa séð lík 30 upp- verið að uppræta síðustu víghreið- mískoje, að sögn Jeltsíns. Rúss- reisnarmanna innan um rústir ur Tsjetsjenanna í þorpinu. neskir blaðamenn fengu að fara húsa sem eyðilögðust í árásunum. ' Áður hafði fréttastofan Itar- að jaðri þorpsins í fylgd hermanna Þeir sögðu að hermennirnir hefðu Tass haft eftir rússneskum emb- Reuter Öryggisviðbúnaður í Moskvu ÖRYGGISGÆSLAN við opinberar byggingar í Moskvu hefur ver- ið hert vegna hugsanlegra hryðjuverka Tsjetsjena. Á myndinni kanna öryggisverðir, vopnaðir Kalashníkov-rifflum, skilríki og handtöskur manna sem eiga erindi í þinghúsið í Moskvu. Um 200 manns enn í haldi um borð í Avrasíu á Svartahafi Meinað að fara nm Hellusnnd Ankara, Sinop. Reuter. Ekki lík- legir til hiyðju- verka London. Reuter. LANDFLÓTTA Tsjetsjenar hafa veruleg áhrif í Miðaustur- löndum en ólíklegt þykir að þeir grípi til hryðjuverka til stuðnings aðskilnaðarsinnum í Tsjetsjníju þar sem þeir hafa of miklu að tapa, að sögn sér- fræðinga í gær. Um 100.000 Tsjetsjenar búa í Miðausturlöndum en samstaða þeirra er lítil og þeir hafa lítið aðhafst til að mótmæla hern- aðaraðgerðum Rússa. Mörgum þeirra hefur vegnað vel í við- skiptum og þeir vilja frekar sinna störfum sínum en að fylkja liði gegn Rússum. Richard Sakwa, við háskól- ann í Kent, sagði að það væri villandi að bera landflótta Tsjetsjena saman við hópa eins og Armena, sem hafa tekið höndum saman í þágu málstað- ar heimalandsins. „Tsjetsjen- arnir eru ekki eins og Armen- arnir þar sem þeir eru klofnir í marga ættflokka. Ættflokka- samfélagið er margklofið og miklu flóknara." Um 25.000 Tsjetsjenar búa í Tyrklandi, þar sem vopnaðir menn hafa haldið 200 manns í gíslingu í farþegaskipi til stuðn- ings tsjetsjensku uppreisnar- mönnunum í Dagestan. Margt bendir til þess að mennirnir séu ekki af tsjetsjensku bergi brotn- ir heldur tengdir georgíska héraðinu Abkhazíu og vilji hefna íhlutunar Rússa þar. Áhrifamiklir í Jórdaníu Tsjetsjenar eru ef til vill áhrifamestir í Jórdaníu. Þar búa um 10.000 Tsjetsjenar og þeirra á meðal eru menn sem hafa sterk tengsl við hirð Husseins Jórdaníukonungs. Yezid Sayigh, aðstoðarframkvæmdastjóri Ut- anrikismálamiðstöðvar Cam- bridge-háskóla, telur að Tsjetsj- enar muni beita þessum áhrif í friðsamlegri tilgangi. „Menn gætu greint meiri samúð með Tsjetsjenum í jórdönsku utanrík- isþjónustunni, en ég efast um að Tsjetsjenar í Jórdaníu grípi til hryðjuverka. Þeir eru auðug- ir og hafa komið sér vel fyrir.“ Um 100.000 Tsjetsjenar búa utan Tsjetsjniju í Rússlandi, einkum í stórum borgum eins og Moskvu og Pétursborg, þar sem þeir eru aðallega þekktir fyrir mjög ábatasama glæpa- starfsemi. Hryðjuverk í þessum borgum gætu leitt til lögreglu- herferðar gegn glæpahópunum og minni gróða og þykja því ólíkleg. INNANRIKISRAÐHERRA Tyrk- lands, Teoman Unusan, þvertók í gær fyrir það að feijan Avrasía, sem vopnaðir menn hliðhollir Tsjetsjenum hafa haft á valdi sínu frá því á þriðjudagskvöld, fengi að fara um Hellusund, þar sem sprengiefni væru um borð og slíkt væri brot á alþjóðalögum. Ekki er vitað hvort þetta hefur einhver áhrif á lausn málsins en tyrknesk yfirvöld segjast vongóð um að málið hljóti farsælan endi. Þau hafa hins vegar vísað á bug frétt- um um að samið hafi verið við mannræningjana um lausn fólks- ins um borð. Talið er að um 200 manns séu um borð í feijunni, 114 Rússar, 43 Tyrkir og fímmtíu manna áhöfn. Mennirnir, sem talið er að séu sex eða sjö, ruddust um borð í borginni Trabzon við Svartahaf. Þaðan hefur ferjunni verið siglt í átt til Istanbúl í hinu versta veðri, stórsjó og þoku. Til að komast til Istanbúl verður að fara um Hellu- sund, sem er fjölfarin siglingaleið. Vonir um friðsamlega lausn í gær stóð til að flytja lögreglu- mann frá borði en hann er sykur- sjúkur. Átti að hífa hann um borð í þyrlu skammt frá hafnarborginni Eregli. Hins vegar var ekki ljóst hvenær þetta átti að gerast. Er mennirnir ruddust um borð, kváðust þeir vera með sprengiefni bundið um sig og hótuðu í fyrstu að sprengja skipið í loft upp. Á miðvikudag og í gær virtust þeir famir að linast í afstöðu sinni og sögðu mögulegt að farþegarnir yrðu látnir lausir. Hefur mönnun- um verið heitið því að sjónvarpað verði frá blaðamannafundi þeirra þar sem þeir komi áróðri sínum gegn rússneskum stjórnvöldum á framfæri. Hafa tyrknesk yfirvöld sagst nokkuð viss um að málið fái friðsamlegan endi. Sagt var frá því á miðvikudag að leiðtogi hópsins, Muhammed Tokcan, hefði lofaði yfirmanni tyrknesku leyniþjónustunnar því að gíslarnir yrðu látnir lausir ef skipið fengi að sigla óáreitt til Ist- anbúl og að ekki yrði á þá ráðist við komuna þangað. í gær, sólar- hring síðar, voru þessar fregnir dregnar til baka og sagt að frétta- stofan hefði ruglað saman yfir- manni leyniþjónustunnar og for- seta Tyrknesk-kákasuska sam- bandsins, sem heitir svipuðu nafni. Engin skýring hefur verið gefin á því hvers vegna beðið var svo lengi með að leiðrétta misskilninginn. : I » I ► I \ i I í: \ \ \ \ I I í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.