Morgunblaðið - 19.01.1996, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 27
LISTIR
Vegurinn
er vonai-
grænn...
VEGURINN er vonargrænn
heitir dagskrá í Kaffileikhúsinu
með löguni og ljóðum grikkjans
Mikis Theodorakis. Vegurinn
er vonargrænn er ljóðhending
úr einu ljóða hans. Ljóðið heitir
Möndlutré í blóma og er óður
til bjartsýninnar. Því þótti við
hæfi að gefa dagskránni þetta
nafn. Dagskráin verður frum-
flutt laugardaginn 20. janúar
og hefst hún kl. 21. Fimmtudag-
inn 25. janúar verður önnur
sýning en síðan eru fyrirhugað-
ar fleiri sýningar.
í kynningu segir: „Tilgangur
okkar er að kynna íslendingum
tónlist og sögu Mikis Theod-
orakis en jafnframt að svipta
brott skammdegisdrunganum
með suðrænni birtu, ilmi og
fjöri. Hin rómaða stemmning
Kaffileikhússins mun þannig
renna saman við svala og seltu
Eyjahafsins á grískum kvöldum
og vonandi verða gestum okkar
til upplyftingar.“
LIST OG HÖNNUN
Ilcimilisiönaðar-
f c I a g i ö
ÁRSRIT 1995
Verð 750 krónur.
ÁRSRIT Heimilisiðnaðarfélags
íslands er að öllum jafnaði borið út
til áskrifenda rétt fyrir jól ár hvert,
og mun einnig hafa verið svo á sl. ári.
Rýninum hefur litist svo vel á
þetta framtak, að hann hefur tekið
ritið til umfjöllunar ár hvert og lagði
síðast höfuðáherslu á undirstöðuna,
sem er að sjálfsögðu verkmennt í
landinu og viðhorfið til hennar. Ein-
faldlega vegna þess, að án nokkurra
viðhorfsbreytinga mun útgáfan enn
um langt árabil koma til með að
standa í járnum.
Við eigum af ríkri arfleifð að ausa
hvað heimilisiðnað og handmenntir
snertir, en þessi atriði hafa mikið til
mætt afgangi við uppbyggingu
kennslukerfisins líkt og sjónmenntir,
og því er tómt mál að gera kröfur
til almennings þegar þekkinguna
skortir. Svona líkt og að ætla sér að
flagga á hún, ef engin er flaggstöngin.
Við eigum ekkert iistiðnaðarsafn,
sem fróðleiksfúsir geta leitað til, en
um þýðingu þeirra er nærtækast að
vísa til sýningar Kaffee Fassett í
Hafnarborg, en án Victoria og Al-
berts safnsins í London færi án vafa
lítið fyrir honum. Og myndlist-
armenn mega í raun vera þakklátir
fyrir dijúgan listáhuga landsmanna
í ljósi þess að íslenzk sjónmennta-
saga er ekki til í menntakerfinu,
ásamt því að Listasafn ísiands er
svo lítið, að útilokað er að hafa þar
jafnan til sýnis skilvirkt úrval ís-
lenskrar myndlistar.
Á síðasta ári var ritið sérstaklega
vel úr garði gert og einkum vakti
það athygli mína, að fjallað var um
nýtingu á íslenzku hráefni úr aðal-
atvinnugeiranum, en þar er margt
fleira en smáfiskadráp sem miður fer.
það eru þessi tengsl við atvinnu-
Morgunblaðið/Ásdís
Zorbahópurinn
Áður en dagskráin hefst
hvert kvöld verður boðið upp á
grískan niat og grísk vínföng.
Þær Kikka og Stína í eldhúsi
Kaffileikhússins munu bjóða
upp á þjóðarrétt Grikkja á
grískum kvöldum, Moussaka
ásamt grísku salati, grísku
brauði og grískri rúsínu í pylsu-
endanum.
Að dagskránni stendur
Zorbahópurinn, en hann skipa
Sif Ragnhildardóttir söngkona
sem mun syngja söngva Þeodor-
akis, Sigurður A. Magnússon
rithöfundur, sem mun kynna
tónskáldið og litríkan æviferil
þess, Eyrún Olafsdóttir kór-
sljóri Táknmálskórsins, en hún
mun túlka og „syngja" bæði
söng og texta á táknmáli, Jó-
hann Kristinsson píanóleikari
og Þórður Árnason sem mun
leika á gítar og bouzouki. Leik-
stjóri er Þórunn Sigurðardóttir.
Lögin verða flutt á grísku,
íslensku og á íslensku táknmáli,
en það síðastnefnda er nýlunda.
Kristján Árnason rithöfundur
hefur þýtt ljóðin á íslensku.
Hugur og hönd
ÞRÍR af fjórum höklum í Digraneskirkju, sem Guðrún
Vigfúsdóttir hefur ofið.
FINNSKA listakonan Sirkka
Könönen íklædd sjali sem hún
hefur sjálf vélpijónað.
vegina, þjóðlega geymd og landið,
ásamt listiðnaði og hönnun, sem
gera ritið svo verðmætt. Hér sýnist
mér aðstandendur þess rækta betur
sinn garð en samskonar rit á hinum
Norðurlöndunum, sem virðast leggja
mun meiri áherslu á hvers konar
heimilisföndur og handíðir tii dægra-
styttingar. Auðvitað telst það full-
gilt, en þetta gefur íslenzku útgáf-
unni aukna breidd og dýpt, jafnframt
meira þjóðhagslegt gildi.
Þýðing handíða og mjúku gild-
anna við uppbyggingu sjálfstæðrar
þjóðfélagsheildar er ótvíræð, og hér
hefur tímarit Heimilisiðnaðarfélags-
ins ómældu hlutverki að gegna.
Svo ijölþætt sem efni ritsins er
að þessu sinni, væri að bera í bakka-
fullan lækinn að fara nákvæmt í
saumana á því, en meðal þess veiga-
mesta má nefna grein Þóris Sigurðs-
sonar um textílverk Kristínar Scmit-
hauser, sem er búsett í Sviss, og
hann fjallár einnig um handgerða
föndúrhluti Ragnhildar Gunnlaugs-
dóttur. Það góða við ritið, er einmitt
hin ríka áhersla sem lögð er á að
vísa til þess að hráefnið er alls stað-
ar fyrir fótum okkar svo sem allt
ritið er til vitnis um. Hins vegar
kemst útfærslan iðulega ekki á
hærra stig en að vera hrein föndur-
gerð, sem þó alls ekki skal vanmet-
ið, en frá því og til pijónahönnunar
Sirkku Könonen, er langur vegur,
en um hana er fjallað í ritinu af
Guðrúnu Hannele Hentinen. Aðal-
grein ritsins verður þó að telja skrif
Sigríðar Haildórsdóttur um Guðrúnu
Vigfúsdóttur, sem nefnist „Vefarinn
mikli“ og las ég hana af óskiptri
athygli. Lífshlaup Guðrúnar og störf
hennar að vefnaði réttlæta fullkom-
lega nafngiftina, því hér er um
meistaratakta í hefðbundnum vefn-
aði að ræða. Hann úreldist aldrei
frekar en annað sígilt í listinni, þótt
annað og nútímalegra komi fram og
það er einmitt það sém fyrrnefnd
sýning Kaffee Fassett undirstrikar
svo rækilega. Sigríður fjallar svo
einnig um vefjarvísur frá 17 öld.
Vísað skal einnig sérstaklega til
hugrenninga Hólmfríðar Árnadóttur
um þátt skapandi hugsunar og frelsi
til verka, jafnframt greina Sæunnar
Þorsteinsdóttur um handverkshúsið
Listakot á Laugaveginum, en hand-
unnin söluvara er mjög í sókn á land-
inu, og Guðrúnar Jónasdóttur um
pappírsgerð.
Fleira er svo fjallað um pijóna-
skap og þannig ritar Birna Kristjáns-
dóttir spjall í tilefni af peysusam-
keppni Heimilisiðnaðarskólans, og
Gréta E. Pálsdóttir rekur sýning-
arframkvæmdir verzlunar Heimilis-
iðnaðarfélagsins, sem voru með
miklum blóma á árinu.
Ofanskráð gefur væntanlega
nokkra innsýn í efnið, og margskonar
annar og nytsamur fróðleikur er að
auki í ritinu, jafnframt því sem sagt
er frá Norræna heimilisiðnaðarþing-
inu 1995. Ritið er mjög vel úr garði
gert og prýðir það fjöldi litmynda...
Bragi Ásgeirsson
•LJÓÐIN voru eins og
áður í öndvegi á nýliðinni
nýárshátíð í Japan. Heið-
ursgestir voru Akihito Jap-
anskeisari og Michiko keis-
araynja sem hlýddu á hvert
ljóðið af öðru, en þau eru
jafnan söngluð að ævaforn-
um hætti. Þema ljóðahá-
tíðarinnar var að þessu
sinni græðlingar og samdi
keisarinn eftirfarandi Ijóð
af því tilefni:
Hugur minn er hjá
þeim sem mörgum árum eftir
að striðinu lauk
þar sem fjöllin voru jöfnuð við jörðu
gróðursettu græðlinga
Starfsmenn hallarinnar
sögðu keisarann hafa fjall-
að um heimsstyijöldina síð-
ari þar sem á nýliðnu ári
hefðu 50 ár verið liðin frá
lokum hennar. Mikil
áhersla hefur verið lögð á
það að meðlimir keisara-
fjölskyldunnar semji ljóð,
allt frá því að Heian-tíma-
bilinu lauk árið 1185.
•BANDARÍSKA ljóðskáld-
ið Mark Doty hlaut fyrir
skömmu aðalljóðaverðlaun
' Bretlands, sem kennd eru
við T.S. Eliot. Ekkja hans,
Valery Eliot, afhenti Doty
verðlaunin en þau hlaut
hann fyrir ljóð sem hann
samdi þegar ástmaður hans
greindist með HlV-veiruna.
•RITHÖFUNDURINN
Mario Vargas Llosa varð
nýverið fyrsti útlendingur-
inn sem tekur sæti í
spænsku akademíunni.
Hún var stofnuð á 18. öld
til að gæta að þróun
spænskrar tungu. Vargas
Llosa skrifar á spænsku en
hann er fæddur í Perú.
•BRESKIR listfræðingar
hafa vísað á bug fullyrðing-
um listaverkafalsarans
Eric Hebborns um að teikn-
ing Leonardo da Vinci, sem
hangir uppi í National Gall-
ery, hafi verið eftir hann.
Hebborn lést í síðustu viku
eftir að hafa fundist með-
vitundarlaus á götu.
Skömmu fyrir andlát sitt
lýsti Hebborn því yfir í við-
tali að hann hefði verið
beðinn um að gera eftirlík-
ingu af „Maríu mey og
Jesúbarninu ásamt heilagri
Önnuog heilögum Jóhann-
esi“. Ástæðan hefði verið
sú að myndin hefði
skemmst mikið vegna raka
árið 1958. Franskur list-
fræðingur hefur hins vegar
sagt að hann útiloki ekki
að Hebborn hafi sagt satt.
( Hugsaðu vel um húðina þína.
* Marja Entrich sér um sína.
! Gakktu við í Grænu línunni.
Græna línan,
Laugavegi 46.
Húdráðgjöf - bætiefnaráðgjöf
UTSALA - UTSALA
10-60% AFSLÁTTUR
Úlpur - íþróttaskór - íþróttagallar - skíðasamfestingar o.fl. o.fl. fyrir börn og fullorðna.
Mýtt kortatímabvl
»hummel^
SPORTBUÐ
N
IMÓATÚNI 17
simi 511 3555