Morgunblaðið - 19.01.1996, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 35
AÐSEIMDAR GREINAR
Hver á sínu sviði
ÞAÐ KOM að því,
að landið færi að rísa.
Eftir margra ára
samdráttarskeið hjá
þjóðinni virðist nú
sem aftur hylli undir
betri tíð í efnahags-
málum hennar. Lengi
var beðið ákvarðana
stóru álframleiðslu-
fyrirtækjanna um
hvort ráðist yrði í
framkvæmdir vegna
álframleiðslu á ís-
landi, annaðhvort
tengdar þeirri fram-
leiðslu sem fyrir er
eða reist yrði álver á
nýjum stað. Nú hefur
verið tekin ákvörðun og nú er unn-
ið hratt. íslenska álfélagið (ÍSAL),
dótturfyrirtæki svissneska fyrir-
tækisins Alusuisse-Lonza, reið á
vaðið og ákvað að stækka álver
sitt í Straumsvík. Ekki eru liðnir
margir mánuðir frá því ákvörðun
var tekin en samt sem áður eru
framkvæmdir við jarðvinnu hafnar
og fyrstu útboð vegna nýs ker-
skála hafa farið fram.
Jákvæð áhrif stórverkefnis á
borð við stækkun álversins á efna-
hagslífið eru merkjanleg nú þegar
og þjóðin fagnar og bindur vonir
við að þær tákni upphaf endaloka
samdráttar undanfarinna ára.
Sé hugað nánar að hvemig
undirbúningi framkvæmdanna
sem fyrirhugaðar eru í Straumsvík
er hagað vakna spurningar. Er það
virkilega að gerast að gleðin yfír
stóra álversvinningnum hafi blind-
að menn, nú sé farið hraðar yfir
en skynsamlegt sé og ekki unnið
á faglegan hátt? Þeirrar spurning-
ar höfum við sem sitjum í stjóm
Arkitektafélags íslands spurt okk-
ur að undanförnu, í ljósi þeirra
upplýsninga sem við höfum fengið
um hverning staðið hefur verið að
hönnun stækkunar álversins.
Nú liggja aðalteikningar stækk-
unar álversins fyrir byggingar-
nefnd Hafnarijarðar, nokkuð sem
ekki er í frásögur færandi, nema
vegna þess að arkiektar hafa ekki
komið nálægt gerð þeirra.
Ákvæði
byggingarreglugerðar
í gildandi byggingarreglugerð
er efitrfarandi grein að finna:
„3.5.1.
Rétt til að gera aðaluppdrætti
og séruppdrætti af húsum og
öðrum mannvirkjum og árita
þá hafa arkitektar, byggingar-
fræðingar, tæknifræðingar og
verkfræðingar, hver á sínu
sviði, svo og búfræðikandídatar
úr tæknideildum búnaðarhá-
skóla að því er landbúnaðar-
byggingar varðar, enda hafi
framangreindir aðilar
öðlast tveggja ára
viðurkennda starfs-
reynslu á sínu sviði þar
af a.m.k. eins árs
starfsreynslu hér á
landi. Þeir sem hlotið
höfðu þennan rétt áður
en byggingarlög nr.
54/1978 gengu í gildi
halda honum.“
Arkitektar hafa
lengi haft horn í síðu
þessa ákvæðis þar sem
ekki er kveðið skýrt á
um hlutverk arkitekta
annars vegar og tækni-
manna hins vegar í
hönnun á hinu mann-
gerða umhverfi, í því. Tækni-
menntaðir menn hafa því árum
saman unnið á sviði arkitekta í
skjóli þessa ákvæðis byggingar-
reglugerðar. Þó hefur sú jákvæða
þróun orðið á síðari árum að verk-
svið arkitekta hefur í reynd orðið
skýrara þrátt fyrir byggingar-
reglugerð. Arkitektar munu til
dæmis vera aðalhönnuðir lang-
flestra opinberra bygginga sem
byggðar hafa verið í seinni tíð og
skipulag þéttbýlis er einnig í lang-
flestum tilfellum unnið af arkitekt-
um. Skilningur opinberra aðila og
arkitekta á anda ofangreinds
ákvæðis íslensku byggingarreglu-
gerðarinnar hefur þannig verið sá
sami.
Nú virðist hins vegar sem sem
skilningur íslenska álfélagsins og
hins svissneska móðurfélags þess,
Alusuisse-Lonza, sé allur annar því
verkfræðingur skrifar uppá aðal-
teikningar stækkunar álversins í
Straumsvík.
Arkitekt er menntaður til að
vera sá aðili sem samhliða hönnun
sinni gætir þess að samræmi sé
milli allra þátta hönnunarferlisins,
jafnt umhverfisþátta, fagurfræði-
legra, og tæknilegi’a. Að þessu
ferli koma svo tæknimenntaðir
sérfræðingar, hver á sínu sviði og
þeim er aðeins ætlað að geta verið
aðalhönnuðir á hlutum sem snúa
eingögnu að þeirra afmarkaða sér-
sviði. Arkitektinn er því sá aðili
sem á að horfa á heildina.
Álverið og umhverfið
Af ofansögðu verður ekki dregin
önnur ályktun en sú að eigendur
álversins leggi áherslu á aðeins
einn þátt í mannvirkjum sínum,
þann tæknilega. Álverið er eins og
það er í dag með stærstu mann-
virkjum á Islandi og stendur á
mjög áberandi stað, við „bæjardyr"
höfuðborgarsvæðisins. Stærðar
sinnar vegna er álverið því stórt
umhverfísmál fyrir alla sem á
svæðinu búa og um það fara, en
þeir eru hreint ekki svo fáir þar
sem flestir erlendra ferðamanna
sem til landsins koma aka nánast
undir húsvegg álversins. Hingað
til hafa mannvirki ÍSAL í Straums-
vík ekki þótt neitt augnayndi. Það
hlýtur því að vera krafa allra að
ekki verði kastað til höndunum við
hönnun stækkunar álversins og
tækifærið, sem vissulega gefst nú
til að fegra ásjónu þess að ein-
hveiju leyti, verði ekki látið fara
forgörðum. ■
Fyrir um ári síðan var kynnt
skýrsla með niðurstöðu starfshóps
á vegum fjármálaráðuneytisins,
Framkvæmdásýslu ríkisins, Arki-
tektafélags íslands og Félags ráð-
gjafarverkfræðinga með yfirskrift-
inni: „Kaup á ráðgjöf — Val á ráð-
gjafa.“ Annar kafli skýrslunnar
fjallar um menningarstefnu ríkis-
Arkitektar hafa ekki,
segir Helgi Már Hall-
dórsson, komið nálægt
gerð aðalteikninga
stækkaðs álvers í
Straumsvík.
ins í mannvirkjagerð ,en þar segir
m.a.:
„Þegar grunnur er lagður að
vel gerðum mannvirkjum er
rétt að hafa þessa þætti í huga:
Þau hafa mikla þýðingu fyrir
hið manngerða umhverfi -og
hafa áhrif á uppvaxtarskilyrði
okkar og lífsgæði.
í þeim endurspeglast tíðarandi
og lífsviðhorf samfélagsins á
hveijum tíma og þau bera því
menningarstigi þjóðarinnar
glöggt vitni.“
Með of angreinda tilvitnun í huga
spyr ég því: Hafa eigendur álvers-
ins í Straumsvík ekki þann metnað
til að bera að unnið verði faglega
að hönnuninni á allan hátt? Gera
bæjaryfírvöld í Hafnarfirði ekki
heldur þær kröfur til hönnunar
mannvirkja sem erfast munu til
komandi kynslóða, að faglega sé
að henni staðið?
Nú eru fleiri mögulegar álvers-
byggingar í umræðunni. Þeim
verkefnum sem og öðrum verður
að mæta með virðingu fyrir um-
hverfinu. Gegn hvers konar meng-
un verður að vinna á öllum sviðum,
einnig sjónmengun. Það verður
best gert með því að allir hönnuð-
ir, arkitektar og tæknimenn sam-
einist um að vinna verk sín af
kostgæfni í anda gildandi reglu-
gerðar, hver á sínu sviði.
Höfundur er varaformaður Arki-
tektafélags Islands.
Helgi Már
Halldórsson
HtTEH
1 KÖrWb°S>0Ór
G6AB'
JST'
ad\das
conM£RSE
Útivistarfatnaður
íþróttagallar
Sundfatnaður
Leikfimifatnaður
íþróttaskór í úrvall
po,mJí9 vandaðar !
Á* f,eecepeVsurl
8.090
®8í4!lmm
10LTAMAÐURINN fi
kÁUtAV'ie! 11 * itMl -ilt 1111 te|
Eru afurðir býkúpunnar fullkomnustu bæti- og É
næringarefni, sem maðurinn hefur aðgang að? p
Náttúruvísindin gegnum árhundruði staðfesta ■
það. Drottningarhunang er orkugjafi sem eykur
orku og viðheldur heilbrigði.
H/GH DESERT drottningarhunang er óunnið
lifrænt undursamlegt náttúruefni. 1
Hallgr/murÞ. Magnússon læknir heldur
fyrirlestur og svarar spurningum um hreint B
óunnið drottningarhunang, áhrif þess á
likamann og Candida sveppasýkingu, við h;
GRÆNA-VAGNiNN í Borgarkringlunni, 2. hæð, É
/augardaginn 20. þ.m. kl. 14.00-15.00. jj
Áhugafólk hjartanlega velkomið.
Borgarkringlunni, 2 hæð,
Sendum í póstkröfu um land allt. símar 85 42 117 & 566 8593
14. - 21. janúar
Gestakokkurinn Philippe Girardon sér um matseldina
og hefur sett saman glæsilegan 5 rétta matseðil
að hætti frakka
Fordrykkur
heims-
meistarans
ó tilb.ver&i
550 kr.
Sértilbob
ó vinum fró
Rhone
fjTrétta matseðill
Andalifra„Terrine"
með fersku salati
Grilluð hörpuskel
á hvítu sveppakremi
Laxasneið með_
kamp avínssósu
Lambahryggsvöðvi
með rósmarínsósu
Chartreux „mousse“
með dökku súkkulaði
Verð 3.840 kr.
BORÐAPANTANIR
í SÍMA: 562 0200