Morgunblaðið - 19.01.1996, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 19.01.1996, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR + Inga Ólöf Ingi- mundardóttir fæddist á Akureyri 31. október 1950. Hún lést á Borgar- spítalanum 12. jan- úar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru þau Guðmunda Jóna Krisljánsdótt- ir, f. 23.9. 1912, d. 17.5. 1992, vest- firskrar ættar, og Ingimundur Þor- steinsson fv. kenn- ari, f. 12.2. 1912, d. 22:11. 1975, frá Bakka í Oxnadal. Systkini Ingu Ólafar eru Björn Jóhann, f. 1931, Sigurbjörg Edda, f. 1935, LÁTIN er löngu fyrir aldur fram kær mágkona mín og vinkona. Inga Ólöf fæddist á Akureyri. Foreldrar hennar voru þá búsett á Dverga- steini, utan Akureyrar (í Krækl- ingahlíð). Faðir hennar var bóndi og barnakennari þar í sveit. Árið 1956 bregða þau hjónin búi og flytja tímabundið til Akureyrar. En haust- ið 1957 flyst fjölskyldan til Kópa- vogs. Þá þegar hafði Ingimundur faðir hennar fengið kennarastarf við nýstofnaðan Kársnesskóla í Kópavogi. í þeim skóla hefur Inga Ólöf sína skólagöngu. 'Æskan leið við leik, nám og störf. Á sumrin vann Inga Ólöf í skóla- görðunum, en faðir hennar veitti þeim forstöðu í mörg ár. Að loknu skyldunámi lá leiðin í Kvennaskól- ann í Reykjavík. Inga var góður nemandi, einnig var hún mjög hand- lagin. Frá Kvennaskólanum útskrif- aðist hún vorið 1967. Þá strax sama vor hefur hún störf í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu og starfaði þar allan sinn starfsaldur. Síðari árin sem fulltrúi. Þá tók hún einnig virkan þátt í félagsmálum starfs- manna ráðuneytisins. Var hún for- maður í tvö ár og varaformaður í þijú ár. Á þeim tíma lét starfs- mannafélagið byggja sumarhús í Flatey á Breiðafirði. Inga Ólöf haf- ið mikinn áhuga á þeim fram- kvæmdum. Var henni falið að sjá um að ljúka þeim að fullu. Átti hún eftir að eiga þar margar ánægju- stundir bæði með vinnufélögum og fjölskyldu sinni. Margs er að minnast frá liðlega tuttugu ára samfylgd. Ég sé í anda tvær stoltar mæður sem halda dætrum sínum undir skím í Kópa- vogskirkju á aðventu 1972. Dóttir Ingu Ólafar er Anna Jóna Baldurs- dóttir, fædd 5. nóvember 1972. Árviss viðburður var að fara með börnin á jólaböll, þegar þau voru yngri. En þegar börnin komust til nokkurs þroska var tekið til við að spila „púkk“ á þrettándanum, alltaf heima hjá Ingu. Inga Olöf bjó sér og dóttur sinni fallegt heimili í Lyngbrekku í Kópa- vogi. Þá íbúð lét hún lagfæra mikið og laga að sínum sérþörfum. Hún var haldin illvígum giktarsjúkdómi sem ágerðist með ámnum, svo að hún þurfti að vera í hjólastól. Hún hafði sterkan vilja og á það reyndi svo sannarlega í veikindum hennar. Uppgjöf var ekki til í hennar orðaforða. Lagði hún rækt við já- kvæðan hugsunarhátt og kærleika. Inga Ólöf bjó yfir miklum andlegum styrk og í þeim efnum var hún meira gefandi en þiggjandi. Inga Ólöf var trygglynd og ætt- rækin og hélt til haga ýmsum fróð- leik og gömlum munum. Það var henni afskaplega mikils virði að eiga þess kost að komast á ættar- mót sem haldið var í Bjarkarlundi sumaríð 1992. Inga kunni að gleðj- ast í góðra vina hópi og oft kom hún skemmtilega á óvart. Hún var nákvæm, stjómsöm og dugleg. Hin síðari ár hugsaði hún mikið um trú- mál 0g sótti bænasamkomur. » Elsku Anna Jóna, þú hefur sýnt mikið þrek og mikinn kærleika þar Sjöfn, f. 1937, Krist- ján Pétur, f. 1944, og Þorsteinn, f. 1946. Dóttir Ingu Ólafar er Anna Jóna Baldursdóttir, f. 5.11. 1972. Inga Ólöf útskrif- aðist úr Kvenna- skólanum í Reykja- vík árið 1967. Hóf hún eftir það störf hjá dóms- og kirkju- málaráðuneytinu og vann þar allan sinn starfsaldur. Útför Ingu Ólaf- ar fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. sem þú vékst ekki frá móður þinni síðustu vikurnar. Guð gefi þér styrk. Tíminn mildar og sefar sorg- ina. Við munum ætíð minnast Ingu Ólafar. Álfdís Gunnarsdóttir. Elsku frænka mín, Inga Ólöf Ingimundardóttir, er fallin frá. Mig langar með nokkrum orðum að minnast hennar eins og ég þekkti hana. Manstu Inga, þegar við keyrðum saman á ættarmótið í Bjarkarlundi? Þetta var löng leið, en ég hefði getað keyrt margfalt lengra án þess að verða þess vör. Við urðum svo nánar á þessu ferða- lagi. Fannstu það sem ég fann? Fannstu hvernig kynslóðabiiið hvarf? Fannstu hvemig við tengd- umst? Ég er svo þakklát fyrir það hvernig við kynntumst þá. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast hversu stórkostleg kona þú varst. Þú varst alltaf svo bjart- sýn á framtíðina og grínið og glens- ið var aldrei langt undan þegar þú varst nálæg. Ég gekk aldrei svo inn um þínar dyr að ég færi ekki þaðan full af innblæstri. Þú gafst mér oftar en einu sinni aukinn styrk. Styrk til að halda áfram, gefast aldrei upp. Þakka þér, elsku Inga, fyrir þann tíma sem við áttum saman. Söknuð- urin er og verður mikill, en ég veit að nú líður þér vel. Elsku Anna Jóna mín, megi guð gefa þér styrk í sorg þinni og fylgja þér alla tíð. Guðmunda Kirstjánsdóttir. Inga Ólöf ólst upp hjá foreldrum sínum, sem búsettir vom hér fyrir norðan. Ég kynntist þeim hjónum fyrst í Öxnadal þar sem Ingimund- ur var við kennslu á Þverá 0g síðar voru þau hjón í vinnu hjá okkur í Engimýri í eitt sumar. Þau fluttust síðar suður í Kópavog, þar sem faðir hennar stundaði kennslu við Kársnesskóla. Oft nutum við hjónin þess að dvelja hjá þeim á Kársnes- brautinni ef dvelja þurfti í Reykja- vík en þeir voru bræður Ingimundur og Rútur, maðurinn minn. Þá var Inga Ólöf í heimahúsum og þar kynntist ég henni töluvert. Allri fjöl- skyldunni á ég gott að gjalda og það var gott að hafa þar samastað. Inga Olöf var vel gefin stúlka og vel menntuð. Hún starfaði við kirkjumálaráðurieytið. Lengi vel gat Inga Ólöf sótt vinnu á meðan hún gat ekið bifreið sinni. Snemma dró ský fyrir sól Ingu Ólafar. Hún fékk slæman gigtarsjúkdóm, sem ágerð- ist með ánmum, þrátt fyrir þjálfun, lyfjameðferð og langdvalir á sjúkra- húsum. Síðast sá ég Ingu Ólöfu fyrir þremur árum, þá hafði hún verið í hjólastól í nokkur ár án þess að geta nokkra björg sér veitt, gat aðeins lyft hægri hendi lítilsháttar. Inga eignaðist eigin íbúð 0g þar bjó hún með dóttur sinni eins lengi og nokkur möguleiki var. Sjálfri sér vorkenndi hún aldrei og það mátti heldur enginn annar gera. Betra þótti henni að slá á létta strengi. Eitt sinn sagði hún við mig i síma. „Ég ætti að vera á þingi en ekki gömul kona í hjólastól." Svo hló hún. Hún var mikil hetja. Kjarkur- inn og hugsun öll ótrúlega sterk. Um velferð dóttur sinnar, Önnu Jónu, sem ólst upp hjá henni hugs- aði Inga Ólöf mjög mikið. Alla tíð var Anna Jóna mömmu sinni hjálp- leg og góð. Síðastliðið ár var hún við störf á Húsavík, en kom suður og var hjá mömmu sinni síðustu stundirnar í þessu lífi. Bræður Ingu og þeirra konur hafa líka hugsað vel um hana alla tíð. Nú þegar Inga Ólöf er látin vil ég þakka henni innilega fyrir allar góðu og glöðu stundirnar og hlýjar kveðjur fær hún úr Öxnadalnum sem henni var svo kær. Ég bið hennf guðs blessun- ar að lokum yfir í eilífðarlandið. Önnu Jónu og systkinum öllum og þeirra fjölskyldum sendi ég mínar hugheilustu samúðarkveðjur. Margrét H. Lúthersdóttir frá Engimýri. Margs er að minnast þegar Inga Ólöf frænka mín er farin í sína síð- ustu ferð hér á jörð. Hún hóf lífið sem yngsta barn í stórum systkina- hópi og ólst upp í faðmi foreldra sinna. Eftir skólagöngu fékk hún góða vinnu og naut velgengni í starfi, lífið blasti við henrii. Hún eignaðist einkadótturina Önnu Jónu sem varð sólargeisli hennar. Hún hófst handa af dugnaði við að kaupa íbúð og búa þeim mæðgum heimili. Þetta verk tókst henni einstaklega vel og naut heimilið listrænna hæfi- leika Ingu. Henni tókst ávallt að prýða umhverfi sitt fagurlega þótt ekki væri úr miklu að spila. En skjótt skipast veður í lofti. Inga fer að fá einkenni slæms giktarsjúk- dóms sem hún reyndi að sigrast á eins og öllu öðru. Sjúkdómurinn reyndist verri en hugað var í fyrstu, á örfáum árum varð hún að lúta í lægra haldi. Það varð henni þung raun þegar hún gat ekki lengur stundað vinnu sína. Síðustu árin var hún komin í hjólastól og þar með háð aðstoð annarra. Við þessa erfið- leika bugaðist ekki hennar sterka skapgerð og kjarkur, áræði og þor voru ávallt hennar aðalsmerki. Þeg- ar hún var spurð um hagi sína var svarið: „Ég hef það nú gott, það er allt i lagi með mig.“ Vera henn- ar á spítala er í árum talin en allt- af tókst henni að komast heim á milli. Á fagmáli hefur hún trúlega verið talin erfiður sjúklingur, svo sterkt barðist hún fyrir sjálfstæðu lífi utan veggja spítala. Veit ég að sjúklingshlutverkið var henni erfitt. Á milli spítaladvala stóð hún gjarn- an í stórræðum, t.d. lét hún taka alla íbúðina sína í gegn og útbúa hana við sitt hæfi. Þessum fram- kvæmdum stýrði hún sjálf, valdi hluti og liti þrátt fyrir að sjónin væri nær alveg farin. Hrein unun var að sjá hversu vel tókst til og áttum við frændfólk og vinir ánæg- justund með henni á íjörutíu og fimm ára afmælinu sl. haust. Þar sat stplt húsmóðir og fagnaði gest- um. Ákvæði í lögum um málefni fatlaðra um liðveislu gerði henni kleift að dvelja heima meðan heilsan leyfði og var það henni ómetanlega dýrmætt. Við ræddum oft saman um réttindi og réttleysi fatlaðra og er mér sérstaklega í minni símtal á liðnu vori. Hún var þá að vinna að enn einni heimferðinni eftir margra mánaða dvöl á spítala. Hún var tekin að þreytast á seinvirku kerfi og sagði við mig: „Sjana mín, ég vil ekki vera bara blöð í sjúkra- skrám.“ Með orðum þessum var hún ekki að deila á það fólk sem annað- ist hana, heldur að lýsa vanþóknun á hversu illa er gert ráð fyrir að fatlaðir geti dvalið heima hjá sér. Ég skildi hana vel því enginn kýs að eiga allt sitt undir öðrum. Ég vil kveðja Ingu Ólöfu og þakka fyrir allt sem ég lærði af henni 0g á eftir að nýtast mér í starfi. Eg minnist með gleði ein- stakrar ættrækni hennar. Síðast en ekki síst minnist ég með virðingu kjarks og sjálfstæðis frænku minnar. Elsku Önnu Jónu og öðrum ættingjum færi ég samúðarkveðjur frá mér og fjölskyldu minni. Kristjana. Nú hefur hún Inga Ólöf frænka fengið hvíldina. Hún hafði í mörg ár barist hetjulegri baráttu við erfíð veikindi. Okkur systkinunum mun ávallt verða minnisstætt hversu lífs- glöð, skarpskyggn og jákvæð hún Inga Ólöf var allt fram í andlátið. Aldrei var neinn bilbug á henni að finna, þrátt fyrir að veikindi hennar ágerðust með árunum. Undir það síðasta var Inga Ólöf bundin við hjólastól en hún lagði ekki árar í bát þó að líkamlegu atgervi hennar hrakaði. Okkur er það minnisstætt hvað við urðum hissa þegar við fréttum það að Inga Ólöf hefði far- ið á tvenna tónleika með stuttu millibili í Laugardalshöll. Já, við vorum hissa að hún skyldi leggja þetta á sig, því við vissum að það kostaði hana ómældan sársauka að láta flytja sig fram og til baka í hjólastólnum. En þarna er Ingu Ólöfu vel lýst, viljastyrkur hennar var einstakur. Hún lét biturleika yfir örlögum sínum ekki draga úr sér kraft. Hún hafið sæst við Guð og menn og lagði sig alla fram um að njóta þess sem lífið hafði henni að bjóða. Hún hvatti gjarnan þá sem nærri henni stóðu til að vera lífs- glaða og hamingjusama. Með orð- um sínum vakti hún okkur systkin- in til umhugsunar um lífið og tilver- una, hamingjuna og það að njóta þess sem Guð hefur gefið okkur. Fyrir það viljum við þakka henni. Hún mun ávallt lifa í huga okkar. Elsku Anna Jóna, við vottum þér okkar dýpstu samúð. Systkinin Þórhildur, Hugrún, Lára Birna og Ingimundur. Okkur langar, með fáeinum orð- um, að minnast látinnar samstarfs- konu og félaga, Ingu Ólafar Ingi- mundardóttur, sem er látin. Við vorum svo lánsamar að kynnast Ingu Ólöfu þegar við störfuðum með henni í dóms- og kirkjumála- ráðuneytinu. Þeim sem kynntust henni er ógleymanlegur sá kraftur og dugnaður sem einkenndi hana alla tíð. Hún var sérstaklega ná- kvæm og skipulögð í starfí og hafði lag á að koma þekkingu sinni og kunnáttu til okkar á þægilegan en ákveðinn hátt. Uppúr 1980 fór að bera á sjúk- dómi þeim sem Inga Ólöf barðist hetjulegri baráttu við þar til yfir lauk. Aldrei kvartaði hún þó kvalin væri og sannaðist þá enn betur í þeirri ójöfnu glímu, hve sterkan persónuleika hún hafði að geyma. Nú hefur Inga Ólöf losnað úr þeim fjötrum sem sjúkdómurinn lagði á líkama hennar. Guð blessi minningu hennar. Dóttur hennar, Önnu Jónu, systkinum og ættingjum hinnar látnu vottum við okkar dýpstu sam- úð- Hafdís og Hrefna. Elsku Inga Ólöf. Mig langar með örfáum orðum að kveðja þig í hinsta sinn. Það er undarlegt til þess að hugsa að ég eigi ekki eftir að sjá þig oftar og heyra ekki frá þér í síma. Þó lát þitt hafi ekki átt að koma okkur á óvart sem til þín þekktu og vissu hversu illa þú varst farin af sjúk- dómi þínum, þá er eins og maður sé aldrei viðbúinn þeirri fregn. Árin frá því við hittumst fyrst eru orðin ansi mörg eða hartnær fjörutíu ár er þú fluttist með fjöl- skyldu þinni að norðan á Kársnes- braut 11. Við vorum samheldinn krakkahópur úr húsunum í kring og eigum við margar ánægjulegar minningar frá þeim tíma, sem við höfðum stundum gaman af að rifja upg og hlæja að. Ég get ekki sleppt að minnast á gífurlegan dugnað þinn og þraut- seigju öll sjúkdómsárin. Það var með ólíkindum hversu miklu þú komst í verk þótt vissulega hafi margir rétt þér hjálparhönd. En þú skipulagðir og gafst fyrirmæli og hversu snúin og erfið vandamálin voru gafstu aldrei upp. Við hin, sem INGA OLOFINGI- MUNDARDÓTTIR eftir lifum, höfum margt gagnlegt af þér lært. Líkt og rótföst angan er ímynd þín í hjarta mér minning þína þar ég geymi. Þinni mynd úr huga mér aldrei gleyrni, öðrum gleymi - ekki þér. (Þýð. Ingvi Jóhannesson.) Ég og fjölskylda mín sendum Önnu Jónu og ástvinum Ingu Ólaf- ar okkar dýpstu samúð. Vertu sæl elsku Inga Ólöf. Þín vinkona, Jóruim. Hin langa þraut er liðin nú loksins hlauztu friðinn og allt er orðið rótt. Nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem.) Andlát vinkonu minnar, Ingu Ólafar, gat ekki komið mér á óvart því hún var búin að beijast lengi fyrir lífi sínu með lífsviljann, sem hún aldrei missti, að vopni. Samt er það þannig að þó dauðinn sé eðlilegur hluti tilverunnar þá er maður einhvem veginn aldrei viðbú- inn honum. Fyrir um 15 árum fór Inga að finna fyrir einkennum mjög svæs- innar liðagigtar sem átti eftir að draga úr henni allan mátt og nú er hún látin aðeins 4þ ára að aldri. Starfsferill Ingu Ólafar var hjá dómsmálaráðuneytinu þar sem hún starfaði frá 16 ára aldri og þar til heilsu hennar hrakaði svo að hún þurfti að hætta störfum. Ég kynntist Ingu árið 1970 þeg- ar hún tók sér frí í dómsmálaráðu- neytinu í nokkra mánuði og vann á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn. Ég á margar góðar minningar frá þess- um tíma og árunum næstu á eftir. Ég minnist þess þegar við fórum í sumarfrí á nýja bílnum hennar Ingu norður í land og ég minnist þess þegar við fómm þijár, ég, Inga og Halldóra, í sumarfrí til Spánar og skemmtum okkur konunglega. Já, það er margt sem kemur upp í hugann á þessari stundu, til dæmis það hvað Inga var alltaf skynsöm, hún flanaði aldrei að hlutunum heldur velti þeim fyrir sér frá öllum hliðum þannig að mér fannst nú stundum nóg um. Annað sem ein- kenndi Ingu var kjarkurinn og dugnaðurinn, það var fátt sem óx henni í augum. Árið 1972 eignaðist Inga Ólöf dóttur, hana Önnu Jónu, sem hún bar mikla umhyggju fyrir. Fyrst eftir fæðingu dótturinnar bjuggu þær mæðgur hjá foreldrum -Ingu, en fljótlega fór Inga að huga að ibúðarkaupum. Hún vildi vera sjálf- stæð og ekki öðrum háð. í gegnum öll hennar veikindi voru þessir eiginleikar Ingu, kjark- urinn, dugnaðurinn og ekki síst sjálfstæðið, áberandi því þegar Inga var orðin svo veikburða að margur hefði verið fyrir löngu búinn að gefast upp þá barðist Inga fyrir því að fá að búa í sinni eigin íbúð. Hún var enn að breyta og bæta alveg til hins síðasta því hún lagði metn- að sinn í að hafa snyrtilegt í kring- um sig. Hún naut góðrar aðstoðar heimahjúkrunar og heimilishjálpar í Kópavogi. Inga Olöf var alveg frá því ég kynntist henni mjög hugsandi um andleg málefni og minnist ég þess þegar hún dró mig með sér á skyggnilýsingafund þegar við vor- um um tvítugt og þessi mál mér ákaflega framandi. Hún átti síðan eftir að lesa sér mikið til um þessi mál meðan hún hélt sjóninni en hún var einnig frá henni tekin sem reyndist henni afar þungbært því þá gat hún ekki lengur stytt sér stundir við lestur eða horft á sjón- varp. Núna síðustu ár leitaði hún fyrir sér í trúnni og virtist vera búin að finna sig þar og sótti eftir því sem heilsan leyfði samkomur hjá Veginum. Rúmlega tveimur mánuðum fyrir andlátið bauð Inga til veislu í til- efni 45 ára afmælis síns og verður

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.