Morgunblaðið - 19.01.1996, Side 44
44 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÁRNI
BÖÐ VARSSON
+ Árni Böðvarsson fæddist í
Nonnahúsi á Akureyri 5.
ág’úst 1914. Hann andaðist
hinn 23. desember síðastliðinn
á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri og fór útför hans
fram frá Akureyrarkirkju 5.
janúar síðastliðinn.
ELSKU afi
Það voru heldur erfiðar fréttir
sem mér bárust til Austurríkis í
hádeginu á aðfangadag. Pabbi
hringdi í mig og sagði mér að þú
hefðir dáið aðfaranótt Þorláks-
messu. Eftir símtalið settist ég
niður og allskonar myndir flugu í
gegnum huga minn. Þú varst bú-
inn að vera veikur undanfarin ár
og þó sérstaklega eftir heilabóð-
fallið sem þú fékkst veturinn 1993.
En samt léstu ekki deigan síga,
hélst áfram að vinna á tölvunni
þinni við að skrifa niður þínar eig-
in vísur og annarra svo ekki sé
minnst á ættfræðina sem var þér
svo hugleikinn. Það er ég viss um
að margir hefðu lagt árar í bát en
á þeim buxunum varst þú ekki.
Þinn tími var ekki kominn, eins
og þú sjálfur sagðir. Ég held með
tilliti til aldurs hafi bati þinn verið
mjög góður en amma stóð líka
alltaf við bakið á þér og var þér
ómetanleg stoð.
Fyrstu minningar mínar um þig
eru þær að þú varst alltaf með
bindi um hálsinn og aldrei fórstu
út úr húsi nema að setja upp hatt.
Þegar þú keyrðir bílinn varstu allt-
af með hattinn og stundum hlóg-
um við að því að það væri alltaf
hægt að sjá afa langt að og þá
var það hatturinn sem gerði út-
slagið.
Það hefur alltaf verið skemmti-
legt að heimsækja ykkur ömmu
því móttökumar hafa alltaf verið
svo hlýjar og alltaf var sagt við
mann hvað væri gaman að hitta
mann og sjá. Ófáar stundir höfum
við setið saman og rætt um heima
og geima og þá gjaman yfir ný-
bakaða brauðinu hennar ömmu.
Núna í haust þegar þú lást á
sjúkrahúsinu heimsótti ég þig eitt
kvöldið og þá kvöldstund mun ég
alltaf geyma í hjarta mínu. Þú
sagðir mér frá því þegar þú hittir
ömmu og þegar þið giftuð ykkur.
Og við ræddum um hversu miklar
breytingar hefðu átt sér stað í
þessum málum. Mikið var það
kvöld skemmtilegt. Einnig áttum
við góða stund saman í byijun
desember á Kristnesspítala þegar
við hlustuðum saman á jólatónlist
flutta af söngnemum. í lokalaginu
áttu allir að taka undir og þú lést
ekki þitt eftir liggja, söngst eins
og herforingi. Þá hugsaði ég með
mér að afi hefði greinilega engu
gleymt.
En svo fór að draga af þér og
daginn áður en ég fór heimsótti
ég þig. Ég furðaði mig á því hversu
fast þú hélst í hendina á mér,
miðað við hversu máttfarinn þú
varst orðinn. Eftir á að hyggja
held ég að þú hafir bara viljað
halda í mig meðan þú gætir því
þú sagðir við mig að líkelga yrð-
irðu ekki hér þegar ég kæmi til
baka og sú verður raunin. Þegar
ég kem heim í vor verður enginn
Ámi afi til að heimsækja í Skarðs-
hlíðina en amma tekur örugglega
á móti mér opnum örmum eins
og alltaf.
Elsku afi. Að lokum vil ég þakka
þér fyrir allt sem þú gafst mér
og kveð þig eins og þú kvaddir
mig: Við sjáumst aftur seinna.
Elsku amma mín og aðrir að-
standendur. Ykkur votta ég mína
dýpstu samúð.
Bergdís Ösp Bjarkadóttir,
Langenfeld, Austurríki.
Skilafrest-
ur vegna
minningar
greina
Eigi minningargrein að birtast
á útfarardegi (eða í sunnu-
dagsblaði ef útför er á mánu-
degi), er skilafrestur sem hér
segir: í sunnudags- og þriðju-
dagsblað þarf grein að berast
fyrir hádegi á föstudag. í mið-
vikudags-, fimmtudags-,
föstudags- og laugardagsblað
þarf greinin að berast fyrir
hádegi tveimur virkum dögum
fyrir birtingardag. Berist grein
eftir að skilafrestur er útrunn-
inn eða eftir að útför hefur
farið fram, er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi.
RAÐA UGL ÝSINGAR
Barnasmiðjan ehf.
óskar eftir starfsmanni vönum járnsmfða-
vinnu og/eða trésmfðavinnu.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í verslun-
inni á Gylfaflöt 7, Grafarvogi.
Upplýsingar ekki veittar í síma.
Grafarvogur
Við erum fjögurra manna fjölskylda og leitum
að leiguhúsnæði í um það bil 2 ár.
Upplýsingar veittar í símum:
Vs. 587 8700/587 8707 og hs. 565 8769.
Úlfar Þórðarson
auglæknir
Móttakan er flutt í Álfabakka 14, Mjódd.
Tímar: Mán. kl. 16-17, þri. kl. 10-12, fim.
10-12 og fös. kl. 10-12 s. 587 2165.
Einnig hjá Heilsugæslu Grundar mánudaga
klr 17-18 og fimmtud. kl. 16-18, s. 556 6222.
Lagasaf n 1995
Lagasafn 1995, sem hefur að geyma gild-
andi lög miðað við 1. október 1995, kemur
út 19. þ.m.
Dreifingu til bóksala og stofnana ríkis og
sveitarfélaga annast Ríkiskaup, Borgartúni 7.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
17. janúar 1996.
Stangaveiðimenn og konur
Flugukastkennsla hefst í Laugardalshöllinni
sunnudaginn 21. janúar kl. 10.20 árdegis.
Kennt verður 21. og 28. jan., 11., 18. og 25.
feb. Við leggjum til stangir. Óbreytt verð.
Skráning á staðnum.
K.K.R., S.V.F.R og S.V.F.H.
Námskeið
ftollskýrslugerð
Farið verður í uppbyggingu tollskrár og tollaf-
greiðslu. Kennd verður útfylling aðflutnings-
skýrslu með megináherslu á þau atriði, sem
mest á reynir við tollafgreiðslu og hvernig
skuli reikna út aðflutningsgjöld. Farið verður
yfir ýmis atríði fríverslunarsamninganna sem
varða innflutning, svo sem upprunavottorð,
ýmsar sérafgreiðslur og fleira.
Kennt verður dagana 29. janúar til 2. febrúar
kl. 8.15-11.45, samtals 20 kennslustundir.
Kennslan fer fram í Tollskóla ríkisins í Toll-
húsinu, Tryggvagötu 19, á 5. hæð (skatt-
stofumegin) í Reykjavík.
Skráning á námskeiðið og nánari upplýsingar
er að fá hjá ritara Ríkistollstjóraembættisins
í síma 560 0500 fram til 26. janúar nk.
Reykjavík, 17. janúar 1996.
Tollskóli ríkisins.
Verkamannafélagið DAGSBRÚN
Stjórnarkjör
Kosningar til stjórnar og annarra trúnaðar-
starfa í félaginu verða haldnar föstudaginn
19. janúar og laugardaginn 20. janúar 1996.
Kosið verður frá kl. 9 til 21 báða dagana.
Kjörstaður er á Lindargötu 9, 1. hæð.
í framboði er A-listi stjórnar og trúnaðarráðs
Dagsbrúnar og B-listi, borinn fram af Krist-
jáni Árnasyni, Friðriki Ragnarssyni o.fl.
Kjörstjórn ertil húsa á Lindargötu 9,2 hæð.
Kjörstjórn.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættislns á Hörðuvöllum 1, Sel-
fossi, þriðjudaginn 23. janúar 1996 kl. 10.00 á eftirfarandi eignum:
Borgarheiði 18, Hveragerði, þingl. eig. Hörður Ingólfsson, gerðar-
beiðandi Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins.
Eyrarbraut 16, Stokkseyri, þingl. eig. Auður Gisladóttir, gerðarbeið-
andi Glóbus hf.
Jörðin Brautartunga, Stokkseyri, þingl. eig. Hörður Jóelsson og
Saevar Jóelsson, gerðarbeiðendur Stofnlánadeild landbúnaðarins og
Stokkseyrarhreppur.
Jörðin Langholt I, Hraungerðishreppur, þingl. eig. Hreggviður Her-
mannsson, gerðarbeiðendur Stofnlánadeild landbúnaöarins og sýslu-
maðurinn á Selfossi.
Þelamörk 5, Hveragerði, þingl. eig. Helga Sveinsdóttir, gerðarbeið-
endur Lífeyrissj. Dagsbr. og Frams. og Vátryggingafélag Islands hf.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
18. janúar 1996.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins f Hafnarstræti 1,
3. hæð, þriðjudaginn 23. janúar 1996 kl. 14.00 á eftirf arandi eignum:
Aðalstraeti 32, n.h. a.e., Isafirði, þingl. eig. Pétur Ragnarsson og
Jóhannes Ragnarsson, gerðarbeiðandi Bæjarsjóður ísafjarðar.
Dalbraut 1B, 0201, (safirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd Isafjarðar,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Fjarðarstræti 2, 0201, Isafirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd (safjarðar,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður verkamanna.
Grundarstígur 7, Flateyri, þingl. eig. Sigríður Yngvadóttir, gerðarbeið-
andi Kreditkort hf.
Hafraholt 4, ísafirði, þingl. eig. Landsbanki Islands, Ingibjörg Hall-
grímsdóttir, Sigurður G. Karlsson og Rósa María Karlsdóttir, gerðar-
beiðandi Bæjarsjóður Isafjarðar.
Mb. Æsa (S-87, þingl. eig. Vestfirskur skelfiskur, gerðarbeiðandi
Lífeyrissjóður verslunarmanna.
Pólgata 10, (safirði, þingl. eig. Magnús Hauksson, gerðarbeiöandi
Mál og menning.
Sæból II, Mýrahreppi, V-ís., þingl. eig. Elísabet A. Pétursdóttir og
Ágúst G. Pétursson, gerðarbeiðendur Byggingarsjóður ríkisins og
Vátryggingafélag (slands hf.
Áhaldahús á hafnarkanti, Suðureyri, þingl. eig. Suðureyrarhreppur,
gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður Vestfirðinga og Þróunarsjóðursjávar-
útvegsins.
Sýslumaðurinn á isafirði,
18. janúar 1996.
'singar
I.O.O.F. 12=17701198'/2 = E.I.
I.O.O.F. 1 = 1771198’AsE.I.*
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
MÖRKiNNi 6 - SlMI 568-2533
Félagsfundur um Hveravelli
mlðvikudaginn 24. jan. kl. 20.30.
Stjórn Ferðafélags (slands boð-
ar félagsmenri sína til áríðandi
fundar um skipulagsmál Hvera-
valla miðvikudaginn 24. janúar (
félagsheimilinu í Mörkinni 6 kl.
20.30. Sýnið félagsskírteini.
Laugardagur 20. jan. kl. 20.00:
Þorraganga um Fossvogs-
dal, þorrablót i Perlunni
Mæting við Mörkina 6 og gengið
um Fossvogsdal upp í Oskjuhlíö
(yfir nýju göngubrúna). Áning
(hressing) í Skógræktinni. Um 1
klst. ganga. I Perlunni fræðir
Árni Björnsson um þorrann og
síðan verður boðið upp á þorra-
mat á 4. hæð Perlunnar.
Verð aðeins 1.800 kr.
Pantanir á skrifstofu Ferðafé-
lagsins, Mörkinni 6, s. 668 2533
og í Perlunni.
Allir velkomnir.
Ferðafélag (slands.
Frá Guðspeki-
félaginu
Ijigólfsstræti 22
Askriftarsími
Ganglera er
896-2070
I kvöld kl. 21 heldur Jón Arnalds
erindi um „mannþekkingu" (húsi
félagsins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag er opið hús frá
kl. 15 til 17 með fræðslu og
umræöum kl. 15.30 í umsjón
Sigríöar Einarsdóttur.
Áfimtudögumkl. 16-18 erbóka-
þjónusta félagsins opin almenn-
ingi með mikið úrval andlegra
bókmennta á góðu verði.
Starf félagsins er opið öllum,
sem áhuga hafa á andlegum
fræðum.