Morgunblaðið - 19.01.1996, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 47
Ný raðganga
Útivistar
í NÝRRI raðgöngu Útivistar
verður tekin fyrir sögn úr Land-
námu um eina fyrstu búferla-
flutninga á Suðvesturlandi þ.e.
bústaðaskipti Hrolleifs í Heiðabæ
og Eyvindar i Kvíguvágum er
síðar flutti að Bæjarskerjum.
Reynt verður að ráða í hvaða
gönguleið var farin á þessum
tíma frá Bæjarskerjum að
Heiðabæ um Kvíguvága og Vík.
Einnig verður siglt í víkingaskipi
inn undir Leirvág í einum
áfanga.
Fegurðar-
samkeppni
Reykjavíkur
BERGLIND Ólafsdóttir,
f egur ðardrottning
Reykjavíkur 1995.
Óskað eft-
ir ábend-
! ingum
I UNDIRBÚNINGUR fyrir
Fegurðarsamkeppni Reykja-
víkur er að hefjast, en keppnin
fer fram á Hótel íslandi í apríl
nk.
Nú þegar hafa nokkrar
stúlkur verið skráðar í keppn-
ina og verður fyrsta reynslu-
myndatakan á morgun, laug-
ardag. Enn um sinn verður
j tekið við ábendingum um
stúlkur í keppnina og er tekið
við ábendingum á skrifstofu
Hótel íslands.
Núverandi fegurðardrottn-
ing Reykiavíkur er Berglind
Ólafsdóttir.
Sljórnmálá
( laugardegi
i
(
(
(
(
(
HR. MICHAEL A. Hammer, stjórn-
málaráðgjafi í bandaríska sendiráð-
inu, heldur erindi og tekur þátt í
almennum umræðum um stjórn-
málakerfið í Bandaríkjunum laug-
ardaginn 20. janúar kl. 15 í setu-
stofu veitingahússins Skólabrúar.
Erindið, sem haidið er á vegum
Stjórnmála á laugardegi, mun m.a.
fjalla um harðvítug átök forseta
og þings undanfarið um fjármála-
hallann og væntanlegar forseta-
kosningar í nóvember.
Stjórnmál á laugardegi er félag
áhugamanna um erlend stjórnmál.
Fyrsta og þriðja laugardag hvers
mánaðar yfir vetrarmánuðina
gefst öllum kostur á að hlusta á
erindi og taka þátt í umræðum
ætluðum almenningi um áhuga-
verða stjórnmálaþróun erlendis og
fyrirkomulag í stjórnmálum er-
lendra ríkja á vegum félagsins á
fyrrgreindum stað og tíma.
FRÉTTIR
‘VífiísstaðÍT sT-.
Fyrsti áfanginn verður farinn
sunnudaginn 21. janúar. Farið
verður með rútu frá Umferðar-
miðstöðinni að vestanverðu kl.
10.30 og komið að Fræðasetrinu
í Sandgerði kl. 11.30. Þaðan
gengið um Sandgerðisbæ að Bæj-
arskerjum. Þar hefst raðgangan.
Gengið verður eftir fornleið yfir
Rosmhvalanesheiði hina fomu til
Keflavíkur.
Kristín Hafsteinsdóttir, for-
stöðukona Fræðasetursins tekur
á móti hópnum í Sandgerði og
áhugasamir heimamenn um sögu,
örnefni og fornleiðir sveitarfé-
lagsins verða fylgdarmenn yfir
lieiðina. í ferðinni verður reynt
að sjá fyrir sér hvernig umhorfs
var á Rosmhvalanesi um árið 900.
Ný útgáfa Lagasafns a
1.452 blaðsíðum
NY útgáfa af Lagasafni kemur út í
dag, föstudaginn 19. janúar. Laga-
safn 1995, sem hefur að geyma gild-
andi lög miðað við 1. október 1995.
Lagasafnið var seinast gefið út í bók
í janúar 1992 og hafði að geyma
gildandi lög miðað við 1. október
1990. Milli útgáfu Lagasafna hafa
áður liðið 7-10 ár.
Texti laganna er nú gefínn út í
einu bindi sem er 1.452 blaðsíður.
Safninu fylgir sérstakt efnisyfirlit
sem er 84 blaðsíður. í þessari útgáfu
Lagasafnsins er efninu raðað með
öðrum hætti en í fyrri Lagasöfnun
og efnisflokkar eru fleiri. Skiptist
safnið í 47 kafla.
Bætt hefur verið í safnið texta
- Einnig í tölvu-
tækuformi
nokkurra alþjóðasamninga, einkum
varðandi mannréttindi, en hins vegar
hefur verið felldur út texti ýmissa
laga sem ekki eru virk eða hafa lok-
ið hlutverki sínu, án þess þó að hafa
verið felld úr gildi. Heitis þessara
laga er getið svo og hvar texta þeirra
er að finna í eldra Lagasafni.
Ritstjóri Lagasafnsins er Markús
Sigurbjörnsson hæstaréttardómari,
en í ritnefnd eru, auk ristjóra, Ólafur
W. Stefánsson, skrifstofustjóri, for-
maður, Friðrik Ólafsson, skrifstofu-
stjóri Alþingis, Jón Thors, skrifstofu-
stjóri og Sigurður Líndal, prófessor.
Varðveislu og viðhald texta Laga-
safnsins í tölvutæku formi hefur
skrifstofa Alþingis annast. Prent-
smiðjan Oddi hf. hefur annast prent-
un og bókband Lagasafns 1995.
Jafnframt því sem texti Lagasafns-
ins kemur nú út í bók kemur sami
texti þess í tölvutæku formi til dreif-
ingar næstu daga hjá Úrlausn -
Aðgengi ehf. sem dreift hefur textan-
um í tölvutæku formi undanfarin
misseri. Einnig mun þessi texti verða
aðgengilegur í gagnagrunni Skýrr hf.
á næstunni. Dreifíngu bókarinnar til
bóksala og stofnana ríkis og sveitarfé-
laga annast Ríkiskaup, Borgartúni
7, Reykjavík, frá og með 22. janúar .
ÞÓR Gunnarsson sparisjóðssljóri afhendir Pétri Sigurðssyni,
félagsforingja Hraunbúa, teppi og hnífa í tilefni afmælis skáta-
starfsins.
Hálf milljón, hnífar
og teppi í afmælisgjöf
■ EFTIRFARANDI ályktun var
samþykkt á þingflokksfundi Þjóð-
vaka 17. janúar sl.: „Þingflokkur
Þjóðvaka lýsir furðu sinni á ályktun
BSRB sem fram kemur í fréttatil-
kynningu frá samtökunum í vik-
unni. Þar er lýst ábyrgð á hendur
stjórn Sjúkrahúss Reykjavíkur
vegna fyrirhugaðra uppsagna fólks,
þar sem stjórnin hafi lofað að sam-
eining Borgarspítala og Landakots
myndi ekki hafa uppsagnir starfs-
fólks í för með sér. Hér er um mis-
skilning að ræða þar sem ábyrgð á
þessum vanda hvílir algjörlega á
herðum ríkisstjórnarinnar og heil-
brigðisráðherra. Rót vandans liggur
í stefnu ríkisstjórnarinnar sem birt-
ist í fjárlögum hennar fyrir yfir-
standandi ár. Þingflokkur Þjóðvaka
telur þessa aðför að fjárhag stóru
sjúkrahúsanna mjög alvarlega.
Þjónustu við sjúklinga og jafnvel
lífí þeirra er stefnt í hættu, álag og
aðbúnaður starfsfólks er óverjandi
vegna yfirvofandi fjöldauppsagna
og lokana. Þingflokkurinn telur að
grípa verði strax til aðgerða gegn
þessu ástandi í heilbrigðismálum
þjóðarinnar. Þjóðvaki mun taka upp
málið á Alþingi og leita eftir sam-
stöðu launþegahreyfingarinnar,
stjórnarandstöðu og ríkisstjórnar."
Skuggabarinn
opnar á ný
ÁKVEÐIÐ hefur verið að opna
Skuggabarinn á Hótel Borg föstu-
daginn 19. janúar kl. 23.
Leitast verður við að höfða til
sama kjama og gerði Skuggabarinn
að þeim skemmtistað sem hann var
fyrir ári, segir í fréttatilkynningu.
í TILEFNI af 70 ára skátastarfi
í Hafnarfirði, sem fagnað var
með 400 manna veislu, bárust
skátum í Hafnarfirði margar
höfðinglegar gjafir. Má þar helst
nefna mikið safn af skátaminjum
ýmiss konar, áttavita og vegvísa,
bækur og myndir, en gjöf Spari-
sjóðsins í Hafnarfirði vakti sér-
staka athygli.
Gaf Sparisjóðurinn skátafélag-
inu Hraunbúum 30 vönduð ullar-
teppi og 30 vasahnifa og fylgdi
með 1 krónatil að greiða fyrir
hnifana. Teppin koma sér sér-
staklega vel, enda mikið um úti-
legur og varðelda hjá skátunum
auk tveggja fjallaskála og far-
fuglaheimilis sem félagið rekur.
Verða hnífarnir notaðir í ýmsar
viðurkenningar fyrir gott skáta-
starf. Með gjöfinni fylgdi einnig
lítið umslag með ávísun upp á
500.000 kr. til stuðnings æsku-
lýðsstarfinu hjá hafnfirskum
skátum.
í GÓDU EGLU
BOKHALDI...
...STEMMI
STÆRÐINl
&
KA!
Hringdu í sölumenn okkar í síma
562 8501 eðs 562 8502 og þú færð
möppurnar sendar um hæl.
ROD OC RECLA
Múlalundur
Vinnustofa SÍBS
Sími: 562 8500
Símbréf: 552 8819
Þingflokk-
ur Kvenna- |
listans á |
faraldsfæti
(
ÞINGFLOKKUR Kvennalistans er
að hefja fundahöld víða um land.
Haldnir verða opnir fundir í öllum \
kjördæmum landsins og er öllum sem
áhuga hafa fijálst að mæta og taka j
þátt í fundunum. Stjórnmál dagsins i
verða til umræðu sem og starf
Kvennalistans næstu mánuði.
Fyrsti fundurinn verður haldinn í
Zontahúsinu á Akureyri í kvöld,
föstudagskvöldið 19. janúar. Mánu-
daginn 22. janúar verður fundur á
Kaffi Króki á Sauðárkróki, þriðju-
daginn 23. janúar í húsnæði samtak-
anna á Laugavegi 17 í Reykjavík og
miðvikudaginn 25. janúar funda þær
með konum í Reykjaneskjördæmi og
verður fundurinn haldinn í Gafl-inum
í Hafnarfirði. Sunnudaginn 28. jan-
úar verður fundur í Kvennalistahús-
inu í Borgarnesi og mánudaginn 5.
febrúar verður loks fundur í Kaffi
Krús á Selfossi. Fundur með konum
á Austurlandi hefur ekki verið tíma-
settur.
Allt eru þetta kvöldfundir sem
hefjast kl. 20.30 nema fundurinn í
Borgarnesi sem hefst kl. 15.
Flóamarkaður
FEF
NÚ ER að hefjast á ný Flóamarkað-
ur Félags einstæðra foreldra. Byijar
hann í Skeljahelli, Skeljanesi 6, 101
Reykjavík, laugardaginn 20. janúar
nk. frá kl. 14-17.
Seldur verður fatnaður á alla fjöl-
skylduna, skartgripir, svefnbekkir og
fleira. Flóamarkaður hefur verið
haldinn á vegum FEF um áraraðir
og er ásamt jólakortum félagsins ein
helsta fjáröflun félagsins.
Fyrirlestur um
snjóálag á þök
BJÖRGVIN Víglundsson heldur fyr-
irlestur í Háskóla lslands laugardag-
inn 20. janúar sem nefnist Beiting
líkindafræði við ákvörðun snjóálags
á þök.
Fyrirlesturinn er liður í meistara-
námi Björgvins við verkfræðideild
háskólans og verður haldinn í stofu
158 í húsi VR-II við Hjarðarhaga.
Hann hefst kl. 11 og er öllum opinn.
KÍN
-leikur að læral
Vinningstölur 18. jan. 1996
8 • 10 • 13 • 20 »22*27 • 28
Eldri úrslit á símsvara 568 1511