Morgunblaðið - 19.01.1996, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 49
1
I
I
(
i
<
<
<
<
<
(
<
(
I
I
I
I
I
I
(
(
I
BRÉF TIL BLAÐSINS
Áskorun til ríkis
sljórnar Islands
vegna aðildar Islands að grófum
mannréttindabrotum
FYRIR fimm árum, þann 16. janúar
1991, hófu herir Bandaríkjanna og
Bretlands kefisbundnar loftárásir á
borgaraleg skotmörk á írak. Loft-
árásirnar stóðu í 42 daga. Iraksher
var ekki megnugur að veija landa-
mæri eða lofthelgi landsins. Almenn-
ingur í írak var því útsettur fyrir
mestu loftárásum sem nokkur þjóð
hefur þurft að sæta frá því að síðari
heimsstyijöld lauk. Árásirnar beind-
ust fyrst og fremst gegn helstu und-
irstöðum borgaralegs lífs í írak:
Gegn orkuverum, símakerfinu, veg-
um, brúm, olíuvinnslustöðvum,
vatnsveitum, vatnshreinsunarstöðv-
um, matvælaskemmum, niðursuðu-
verksmiðjum, skólum, sjúkrahúsum,
farartækjum o.fl.
Þessi eyðilegging var þó ekki talin
nægileg ein og sér. Þótt íraksher
hafði dregið sig frá Kúvæt, lögmæt
stjórn tekið þar við að nýju og Iraks-
her gjörsigraður, var haldið áfram
að þjarma að almenningi í írak.
Iraska þjóðin hefur nú búið við al-
þjóðlega einangrun og viðskiptabann
á sjötta árið samfellt. Samkvæmt
skýrslum Barnahjálpar og Matvæla-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna eru
afleiðingar refsiaðgerðanna hrika-
legar.
Við undirritaðir mótmælum harð-
lega þeim villimannlegu aðgerðum
gegn írösku þjóðinni sem ganga und-
ir nafninu „viðskiptabann“ og hafa
þegar kostað líf hálfrar milljónar
saklausra manna, kvenna og barna
og dæma milljónir barna til van-
þroska.
Engin mannréttindabrot, sem ógn-
arstjóm í Baghdad er sökuð um að
hafa framið, jafnast á við þau mann-
réttindabrot sem orsakast af þessum
refsiaðgerðum. Þótt þær séu að und-
irlagi Oryggisráðs Sameinuðu þjóð-
anna, er framkvæmd refsiaðgerð-
anna í höndum einstakra ríkja, þ.m.t.
íslands.
íslensk lög og alþjóðasamningar
sem ísland hefur undirritað, þ.m.t.
Genfarsáttmálarnir frá 1949, banna
með öllu aðgerðir sem fyrirsjáanlega
leiða til dauða óbreyttra borgara.
Það er því krafa okkar að íslensk
stjórnvöld afturkalli hið fyrsta aðild
Íslands að þessum glæpum og jafn-
framt láti rannsaka með opnum og
opinberum hætti hvemig á því stend-
ur að íslenskir stjómarhættir geti
leitt til þess að slík óhæfuverk njóti
liðsinnis handhafa ákvörðunarvalds
í landinu.
Jafnframt skorum við á stjórnvöld
landsins að beita sér fyrir því á al-
þjóðavettvangi að öllum fórnarlömb-
um alþjóðlegra glæpa verði bættur
skaðinn, án tillits til þjóðernis og
búsetu.
Við hvetjum sem flesta landsmenn
að undirritað þessa áskorun til að
sýna að íslgndingar eigi ekki sökótt
við fólkið í írak og hafa engan áhuga
að baka sér óvild komandi kynslóða
þar.
AXEL ÁRNASON,
sóknarprestur,
Stóra-Núpsprestakalli,
CARLOS A. FERRER,
sóknarprestur,
1 Kolfreyjustaðarprestakalli,
ELÍAS DAVÍÐSSON,
tónskáld, Reykjavík,
ÓSKAR DÝRMUNDUR ÓLAFSSON,
sagnfræðingur, Reykjavík,
PÉTUR KNÚTSSON,
lektor, Seltjamarnesi.
B-listinn biðji
Dagsbrúnarmenn
afsökunar
Frá Guðlaugi Ásgeiri
Kristþórssyni:
I HITA kosningabaráttunnar í
Dagsbrún hafa svokallaðir B-lista-
menn talað mikið um að erfitt sé
að ná sambandi við starfsmenn og
forystumenn Dagsbrúnar, sagt þá
vera í fílabeinsturni og kallað þá
og þau sem skipa lista stjórnar og
trúnaðarráðs hinum verstu nöfnum.
Þetta, og að kalla félaga sína í
Dagsbrún sauðheimska hunda, sýn-
ir þó ekki annað en málefnafátækt
mótframboðsmanna á B-lista og
orðbragðið eykur sannarlega ekki
traust á þeim. Þá er það nú ekki
til að bæta það þegar þeir svo þræta
í ræðu og riti fyrir að fara offari í
orðavali sínu um andstæðinga sína.
Þeim væri víst skammar nær að
biðja alla Dagsbrúnarmenn afsök-
unar fyrir kjaftinn á sjálfum sér.
Ég held líka að formannsefni
B-listans ætti að leita að upptökum
rógburðar, sem hann segir vera í
gangi um sig og sitt framþoð, í eig-
in röðum og ég fullvissa hann um
að ef hann gerir það mun þann finna
maðkinn í eigin mysu, feitan og
pattaralegan og glottandi út í bæði.
Það er alrangt að halda því fram
að ekki sé hægt að hafa nein áhrif
í Dagsbrún, raunar hreint bull. Ég
hef átt mikil og góð samskipti við
stjórnina og skrifstofuna og alltaf
fengið þá aðstoð sem ég bað um,
bæði sem trúnaðarmaður og al-
mennur félagsmaður.
GUÐLAUGUR ÁSGEIR
KRISTÞÓRSSON,
starfsmaður Pósts og síma,
Jörfa, Jleykjavík.
Foroysk ræstkjotveitsla
Frá ELÍNU Svarrer Wang:
Foroysk ræstkjotveisla verður
leygarkvoldið tann 20. januar kl.
20. Veitslan verður í Dugguvogi
12. Undir borðhaldinu skemtar
Hilmar Jan Iiansen. Seinni verður
dansur við Papunum men eisini
verður farið upp á gólv. Kostnaður
er 2.000 og tilmelding er í dag
fríggjadagin 19. januar á tlf.
5680777.
Eins og sést hef ég skrifað þetta
á færeysku og væri gaman ef þið
gætuð birt þetta þannig. Ef þið
getið ekki birt þetta á færeysku
væri gott að fá yfirskriftina á fær-
eysku til að vekja athygli færeyskra
lesenda. Á færeysku er oftast notað
„o“ þótt „ö“ sé stundum notað.
Færeysk ræstkjotveisla verður
laugardagskvöldið 20. jgnúar nk.
kl. 20. Veislan verður að Duggu-
vogi 12. Hilmar Jan Hansen, sem
býr í Færeyjum, skemmtir gestum.
Eftir matinn spila Paparnir fyrir
dansi en einnig verður færeyskur
dans. Miðaverð í veisluna er 2.000
kr. og skráning í síma 5680777 í
dag, föstudaginn 19. janúar.
ELÍN SVARRER WANG,
fyrir hönd stjórnar Færey-
ingafélagsins í Reykjavík
D E N Z E L
’S’Jf. '
... , . t
; r* -
■v; . ’ 1:4-v’ t-
. ■;•' • -'.v.;-'. :',..
■ A V.'.
• <
Ægt
■.
■Mi.
.;*•■
, . *4£***%&'■ -
* w-i.* *■ •
’Ú/'- :■
■4W
RETTVISIN
HEFUR
EIGNAST
NÝJAN
ÓVIN
■• |
DENZEL WASHINGTON (CRIMSON TIDE)
ÞARFAÐ KLJÁST VIÐ SKÆÐASTA
FJÖLDAMORÐINGJA SÖGUNAR!
MAGNAOUR SPENNUTRYLLIR
IHÁSKÓLABÍÓI.