Morgunblaðið - 04.02.1996, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.02.1996, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Ásdís TORFI Leósson, skákmeistari Reykjavíkur (t.h.), að tafli gegn Bergsteini Einarssyni sem hafnaði í 3.-4. sæti með 8V2 vinning. Torfi Leósson, ný- krýndur skákmeistari Reykjavíkur Fyrsti sigur á skákmóti TORFI Leósson, 17 ára gamall nemandi á félagsfræðibraut í Menntaskólanum í Hamrahlíð, er nýkrýndur skákmeistari Reykjavík- ur. Torfí hlaut 9>/2 vinning af 11 mögulegum en í öðru sæti varð Sigurður Daði Sigfússon með 9 vinninga. Torfi segir að titillinn sé mikil hvatning fyrir sig því þetta sé í fyrsta sinn sem hann sigri á skák- móti og ekki dragi það úr ánægj- unni að það skyldi verá svo stórt mót. „Eg hef teflt kappskákir síðast- liðin sex ár en mannganginn lærði ég þegar ég var fimm ára. Þetta er hápunkturinn á ferli mínum fram að þessu og einkar skemmtilegt fyrir þær sakir að nú hef ég skráð nafn mitt í íslenska skáksögir. í raun stefndi ég ekki að sigri í mót- inu en ég fann mig vel. Það var ekki fyrr en í lokaumferðinni sem ég áttaði mig á því að ég átti mögu- leika á að sigra,“ sagði Torfi. Keppt var eftir Monrad kerfinu og voru þátttakendur 92 talsins. Torfi hafði ætlað sér að draga úr skákiðkun í desember sl. en var þá boðið að taka þátt í alþjóðlegu móti í Hafnarfirði. Þar gekk honum vel og segist hann þá hafa fundið aftur fyrir mikilli ánægju af því að tefla. Torfi hyggst nú taka þátt í Alþjóð- lega Reykjavíkurskákmótinu í marsmánuði. Skákstigum fjölgar hratt Torfí var með 2.165 Elo-stig fyr- ir Skákþing Reykjavíkur en ætla má að hann sé kominn upp undir 2.300 stig eftir sigurinn núna. Hann segist þó lítið hugsa um stigin því það geti verið truflandi. Torfi segist halda sérstaklega mikið upp á rúss- neska stórmeistarann Salov. „Þegar ég skoða skákimar hans á ég frek- ar gott með að skilja þær. Það gæti verið einhver sameiginlegur skilningsþráður í taflmennsku okk- ar,“ sagði Torfi. Cslf skipulag og regiulegur spsmaður i einum pakkn W Morgunblaðinu í dag fylgir 20 síðna blaðauki sem nefnist Fjármál fjölskyldunnar. Þar er fjallað um skattframtalið, neytendamál, lífeyrissparnað og fjölskyldufjármál auk ann- ars efnis. ______FRETTIR_____________ Guðrun Pétursdóttir í kjöri til forsetaembættis DR. GUÐRÚN Pétursdóttir, 45 ára háskólakennari og forstöðumaður Sjávarútvegsstofnunar Háskóla ís- lands, tilkynnti í gær ákvörðun sína um að bjóða sig fram til embættis forseta Islands í kosningum þeim sem fram fara í júní nk. „Þessi ákvörðun er tekin eftir vandlega yfírvegun og athugun á viðhorfí Qölda fólks víða um land, úr öllum stéttum og aldurshópum," sagði Guðrún þegar hún tilkynnti ákvörð- un sína á blaðamannafundi í Þing- vallaherbergi Hótels Borgar. „Ég býð mig fram til þessa starfs vegna þess að ég vona að ég geti þjónað bæði landi og þjóð í þessu embætti,“ sagði Guðrún. Hún kvaðst mikill föðurlandsvinur, hafa áhuga á fólki og vera þaulvön að koma fram í starfí sinu bæði heima og erlendis. „Ég tala mörg tungumál, ég hef ágæta menntun og ég tel að reynsla mín geti komið að góðu gagni í þessu starfí,“ sagði hún. Steypuvinna hafin í álverinu STEYPUVINNA hófst við nýjan kerskála við álverið í Straumsvík í gær. Steypt var í brautir í sökkl- um kerskálans sem ÍSAL hafði fengið sérstakt leyfi til þess að steypa. Fyrirtækið hefur ekki enn fengið byggingarleyfi frá Hafnarfjarðarbæ. Frekari steypuvinna fer ekki í gang fyrr en leyfið hefur verið veitt. Að sögn Tryggva Harðarsonar, for- manns álviðræðunefndar Hafn- arfjarðarbæjar, verður fundur í byggingarnefnd næstkomandi mið vikudag og hugsanlegt að leyfið verði veitt þá. Eindregnar óskir víða að Guðrún sagði að hugmyndin um framboð hefði farið að glæðast snemma í haust þegar fólk sem til hennar þekkti hefði farið að koma að máli við hana. Sér hefðu borist eindregnar áskoranir víða að. End- anleg ákvörðun hefði verið tekin fyrir fáum dögum. Aðspurð um áætlaðan kostnað við þátttöku í forsetakosningunum og fjármögnun kosningabaráttunn- ar, sagði Guðrún Pétursdóttir: „Ég hef Iitla reynslu af kosningabaráttu af þessum toga en svona barátta er óframkvæmanleg nema menn hafí að baki sér góðan hóp manna, sem er tilbúinn að taka að sér að sjá um fjármálin. Það er eins í þessu framboði og í þeim sem á undan hafa farið.“ Guðrún var spurð hveijir hennar helstu samstarfsmenn væru: „Þar eru ekki fulltrúar ákveðinna afla Soðið í gat- ið á Vini ÍS VINUR ÍS, 257 tonna stálbátur frá ísafirði, kom til heimahafnar kl. 6 í gærmorgun. Leki kom að bátnum eftir að hon- um hafði verið siglt á ísspöng þar sem hann var að veiðum á Halamið- um á föstudagskvöld. Smárifa kom við sjólínu stjómborðsmegin að framan og leki kom að káetu skip- verja. Dælur höfðu vel undan og skemmdir urðu óverulegar í káetu. Rífa þurfti klæðningu úr káet- unni meðan soðið var í gatið og var stefnt að því að skipið héldi aftur til veiða í gærkvöldi. Góð veiði hef- ur verið á Halamiðum að undan- fömu. Vinur er á línu. þannig að það er erfítt að fara að telja þá upp. Það mun koma í ljós eftir því sem á baráttuna líður," sagði hún. Guðrún kvaðst telja sig lítt þekkta meðal þjóðarinnar og hún þyrfti að kynna sig, „þannig að fólkið í landinu viti til hvaða manneskju það er að taka afstöðu. Það verður okkar meginmarkmið í upphafí." Hún sagði að ákvörðun um opnun kosningaskrifstofu lægi ekki fyrir né hver yrði fyrir valinu sem kosn- ingastjóri framboðsins. Á blaðamannafundinum kom meðal annars fram að Guðrún kvaðst styðja frumvarp sem eigin- maður hennar, Ólafur Hannibals- son, hefði lagt fram á Alþingi um að skattfríðindi forseta íslands verði afnumin. Guðrún Pétursdóttir er dóttir Mörtu Thors og Péturs heitins Benediktssonar, fyrrum sendiherra, bankastjóra og alþingismanns. Um 20 starfsmenn ÚA til Seyð- isfjarðar Fyrirtækið SÚA hf., sem Út- gerðarfélag Akureyringa hf. og hlutafélagið Samleið stofnuðu í haust, er að hefja loðnufrystingu á Seyðisfírði. Þegar vinnslan verð- ur komin á fullt, munu um 30 starfsmenn vinna við frystinguna og fara 20 starfsmenn frá ÚA til vinnu á Seyðisfirði. Aðrir starfs- menn verða frá Seyðisfirði en ekki tókst að fá fleiri heimamenn til starfa. SÚA gerði samning við SR-mjöl um leigu á frystihúsi á Seyðisfírði. Húsið var áður í eigu Norðursíldar hf. og var endurbyggt í sumar. SR-mjöl Iætur SÚA fá flokkaðar loðnuafurðir sem síðan eru unnar í frystihúsinu. Samningurinn gildir til hausts árið 2000. Siguróli Kristjánsson, verkstjóri hjá UA, er farinn til starfa á Seyðis- fírði og hann sagði í samtali við Morgunblaðið, að unnið væri að uppsetningu á nýrri pökkunarlínu og frystitækjum og prufukeyrsla væri að fara í gang. „Við förum róléga af stað en gerum ráð fyrir að afkastagetan á sólarhring verði 50-60 tonn þegar allt verður komið á fullt og þá verður unnið á vöktum,“ sagði Siguróli. burðarliðnum ►Finnur Ingólfsson er búinn að vera iðnaðar- ogyiðskiptaráðherra frá því í apríl sl. Á upphafsdegi ráðherradóms sagði hann að sín stærstu verkefni yrðu að fjölga störfum, að fylgja eftir stækkun álversins í Straumsvík og breyta ríkisbönkunum í hlutafélög. Nú er meðgöngutfminn liðinn. /10 Aukin harka í Peking ►Stjómvöld í Kína hafa á síðustu vikum lagt áherslu á hreinræktaða sósíalíska hugmyndafræði og sýnt aukna hörku í samskiptum við umheiminn. Hefur þessi stefnu- breyting mælst illa fyrir meðal erlendra fjárfesta. /12 Huliðsheimur sjóbirt- ingsins að opnast ► Sjóbirtingur, eða sjógenginn urriði, er einkennisfiskur stóráa á austanverðu Suðurlandi. Þrátt fyr- ' ir það hefur ósköp lítið verið vitað um lífshætti hans en nú eru hafn- ar viðamikiar rannsóknir á sjóbirt- ingi. /18 Sólarupprás ►í Viðskiptum og atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Pál Kr. Páls- son í Sól hf. /22 B ► 1-28 Fúsi íSalem ►Varla kemur svo skip í ísafjarð- arhöfn að Sigfús B. Valdimarsson komi þar ekki um borð færandi hendi með kristilegt lesmál og efni ætlað sjómönnum. /1-4 Aftansól á glugga ►Á Vísnatorgi að þessu sinni er fyallað um vísur sem sprottið hafa í návígi íslendinga við hafið. /5 Ójarðneskurgróður ►Björk Guðmundsdóttir hélt fyrir rúmri viku stærstu tónleika sína til þessa, þegar hún lék í Wembley Arena, 12.000 manna höll og Unun hitaði upp. /14 c FERÐALOG ► 1-4 Kampavín og kleinu- hringir í morgunmat ►Sagt frá skútulífi og „snorki" við Aruba í Karíbahafmu. /2 Keisarans gjöf kom Austurríki á blað ►Rifuð upp sagan af því þegar Otto III keisari gaf biskupnum í Freising landið í kringum Neuho- fen við ána Ybbs fyrir þúsund árum, og hvað það hafði í för með sér. /3 D BÍLAR ► 1-4 Tæknilegar hindranir gegn amerískum bílum ► Bandarískirbílar2,4% af heild- arbílasölunni hérlendis árið 1995 /2 Reynsluakstur ►Baleno með aldrifi á hagstæðu verði. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak tdag 40 Leiðari 26 Fólk I fréttum 42 Helgispjall 26 Bió/dans 44 Reykjavíkurbréf 26 íþróttir 48 Minningar 32 Útvarp/sjónvarp 49 Myndasögur 38 Dagbók/veðu'r 51 Bréftil blaðsins 38 Gárur 6b Brids 40 Mannlífsstr. 6b Stjörnuspá 40 Dægurtónlist lOb Skák 40 Kvikmyndir 12b INNLENDAR FRÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6 Morgunblaðið/Ámi Sæberg Dr. Guðrún Pétursdóttur á blaðamannafundi á Hótel Borg I gær þar sem tilkynnt var um forseta- framboð hennar. Við hlið hennar situr Ólafur Hannibalsson, eiginmaður hennar, og að baki þeim stuðningsmennirnir, frá vinstri, Áslaug Ragnars, Þóra Arnórsdóttir, Jón Bragi Bjarnason, Kristín Bjarnadóttir og Hilmar Foss. STEYPUVINNA hófst Morgunblaðið/Árni Sæberg í nýjum kerskála álversins í Straumsvík í gærmorgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.