Morgunblaðið - 04.02.1996, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 04.02.1996, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ PILLUBOXIÐ. Dæmi um erlenda uppfinning'u sem breytti miklu fyrir sjúklinga og starfsfólk sjúkrahúsa. SPAGETTÍMÆLIRINN. Framlag þrettán ára sænskrar stúlku í hönnunarsamkeppni. Allir þekkja hversu erfitt getur verið að áætla hversu mikið spagettí þarf að sjóða. Með mælinum er vandamálið úr sögunni. __ Hugvitsmenn Islands sameina krafta sína Landssamband hugvits- GRIPHÓLKALÁSINN. Hugmynd Garðars Ólafs- sonar og Valgerðar Eyjólfsdóttur. Þau framleiða lásana sjálf og áætluð velta á þessu ári er á annan tug milljóna króna. FÉLAGAR í Landssambandi hugvits- manna eru jafn ólíkir og þeir eru margir. Þar finnast til dæmis hús- mæður, hámenntaðir menn, ungt námsfólk og verkafólk. Hugmyndir þessa fólks eru því oft af ólíkum toga en í því liggur styrkur félagsskaparins. Fortíðarvandi úr sögunni Þegar Félag íslenskra hugvitsmanna var stofnað árið 1987 voru menn fullir bjart- sýni og geyst var farið af stað. En félagið reisti sér hurðarás um öxl fyrstu starfsárin og segir Pétur Th. Pétursson, einn af frum- kvöðlum félagsins, að ijárhagsvandi hafi háð félaginu liðin ár. Vandinn er nú svo að segja úr sögunni. Síðastliðin tvö ár hef- ur stjórn Félags íslenskra hugvitsmanna einbeitt sér að stuðningi við námskeiðahald ásamt því að skipuleggja starfsemi næstu ára. Stofnun landssambands bar þar hæst. Hver er hugvitsmaður? Hugvitsmenn hafa verið til allt frá upp- hafi mannkyns og oft má rekja til þeirra framsækni mannsins á jörðinni. Víst er að til eru fjölmargar skilgreiningar á því hver sé hugvitsmaður. Félagar í Landssambandi hugvitsmanna hafa lagt niður fyrir sér hveijir teljist til þeirra. Pétur telur orðið hugvit vera samheiti yfir þekkingu, reynslu og hæfíleikann til þess að vinna úr hvoru tveggja. Pétur segir að orðin hugmynda- smiður og frumkvöðull eigi oft betur við þegar rætt er um fólk sem vill tileinka sér boðskap Landssambands hugvitsmanna. Orðið hugvitsmaður er þannig samheiti yfir hugmyndasmið, uppfínningamann og þá sem virkja hugvit. Hugmynd á eigin forsendum Undanfarið hafa verið haldin námskeið fyrir þá sem vilja koma hugmyndum sínum á framfæri. Á þessum námskeiðum hefur fólk verið hvatt til þess að vinna að hug- myndum sínum á eigin forsendum. Pétur segir slæmt upplýsingastreymi á milli fólks stundum há því þegar það vinnur að hug- myndum sínum. Þannig sitja menn einir úti í horni með sína hugmynd, í stað þess að hjálpast að og ná meiri árangri í hugmynda- vinnslunni. Ennfremur leggur Pétur áherslu á að hagnýtar upplýsingar verði að vera aðgengilegar almenningi. Pétur hefur kynnst þessu á undanförnum tólf árum en á þeim tíma hefur hann þróað hugmynd tengdaföður síns um björgunar- netið Markús. Reynslu og þekkingu verður því að miðla til þess að hugmyndasmiðir fái notið sín í framtíðinni. Bakhjarl hugvitsmanna Allir þekkja þá upplifun að fá góða hug- mynd. Hún skýtur upp kollinum og virðist þá sú eina rétta sem beðið hefur verið eft- ir. Hugmyndin gleymist síðan gjarnan og verður aldrei að veruleika. Sumir kánnast svo við þá tilfmningu að sjá einhvern annan hagnast á sömu hugmynd ef til vill löngu seinna. Pétur segir að menn þurfí að hafa breytt hæfileikasvið til þess að fylgja hugmynd eftir og framkvæma. Enn nauðsynlegra getur verið fyrir hugvitsmenn að finna fyr- ir Stuðningi þegar lagt er út í að fram- kvæma. Oftar en ekki líður langur tími þar til stjórnvöld, stofnanir eða fyrirtæki taka eftir gagnsemi hugmyndar. Þegar svo ber við er hætt við því að hugvitsmaður missi manna var stofnað á laug- ardag og tekur við starf- semi Félags íslenskra hugvitsmanna sem hefur verið til í hartnær áratug. í samantekt Axels Axels- sonar kemur fram að framtíðarsýn hugvits- manna á íslandi er nú bjartari en oftast áður á liðnum árum. kjarkinn þegar hann vinnur að hugmynd sinni. Landssamband hugvitsmanna mun meðal annars hafa það að markmiði að telja kjark í hugvitsmenn landsins og vera þannig nokkurs konar bakhjarl þangað til verk er fullunnið. Landssambandið mun þó hvetja menn til að vera raunsæir í hugmyndavinnu sinni. Hugvitsmenn á framabraut Garðar Ólafsson og Valgerður Eyjólfs- dóttir fundu upp og þróuðu griphólkalásinn sem Hampiðjan notar nær eingöngu til að setja saman afar sterkt tóg í risatroll. Þau byijuðu heima í bílskúr að vinna að hug- myndinni og sendu hana svo inn í Snjall- ræði, hugmyndasamkeppni Iðntæknistofn- MARKMIÐ Landssambands hugvits- manna eiga að nást með því að: - safna saman og miðia upplýsing- um sem hafa hagnýtt gildi fyrir hug- vitsmenn, - standa að fundum, ráðstefnum og útgáfu fréttabréfs um efni er varðar viðfangsefni hugmyndasmiða, - vera samráðs- og samstarfsvett- vangur hugvitsmanna úr öllum starfs- stéttum, - koma fram opinberlega fyrir hönd fullgildra aðila landssambandsins, unnar. Hugmynd þeirra varð ekki meðal þeirra átta útvöldu. En Garðar og Valgerð- ur gáfust ekki upp og ákváðu að þróa grip- hólkalásinn sem nú er kominn í fram- leiðslu. Þau framleiða alla lásana sjálf og er áætluð velta á þessu ári á annan tug milljóna króna. Margur er knár... Það er misjafnt hvaða trú íslendingar hafa á sjálfum sér og sínu landi. Til eru þeir sem telja smæð þjóðarinnar standa í vegi fyrir þróun á ýmsum sviðum. Pétur leggur hins vegar ríka áherslu á að smæð geti oft verið af hinu góða. Hann nefnir til dæmis að líklega finnist hvergi í heiminum jafn mörg umboð, með alþjóðleg tengsl, á jafn litlu landssvæði og á höfuðborgarsvæð- inu. Þarna er að finna mikinn auð, segir - stuðla að sem hagkvæmastri þjón- ustu fyrir hugmyndasmiði, án þess að leggja mat á hugmyndir einstaklinga eða hefja samkeppni um sérhæfða þjón- ustu fyrir hugvitsmenn, - leggja til sáttanefnd þegar ágrein- ingur rís milli fullgildra aðila um eign- ar- og afnotarétt á hugmynd, sem skráð er hjá Einkaleyfastofu iðnaðarráðu- neytisins, - viðhalda virkum tengslum við systursamtök erlendis. Pétur. Fámenni þjóðarinnar leiðir ennfrem- ur af sér að maður þekkir mann en það auðveldar öll samskipti á þessu sviði sem öðrum. Góð enskukunnáttu íslendinga felur einn- ig í sér mikinn styrk að mati Péturs. Þessa kosti og fleiri mun Landssamband hugvits- manna standa vörð um og reyna að draga fram ágæti þeirra með tíð og tíma. Tengsl við erlenda hugvitsmenn Eitt af markmiðum Landssambands hug- vitsmanna er að viðhalda virkum tengslum við hliðstæð samtök erlendis. Félag ís- lenskra hugvitsmanna lagði grunninn að alþjóðlegum tengslum íslenskra hugvits- manna við starfsbræður sína erlendis með inngöngu í alþjóðasamtök hugvitsmanna, Intertational Inventor Assocciation (IFIA). Samtök hugvitsmanna er að finna í flestum löndum um allan heim og eiga þau flest aðild að alþjóðasamtökunum sem eiga höfu- stöðvar í Genf. Alþjóðsamtökin eiga áheyrn- arfulltrúa hjá stofnun Sameinuðu þjóðanna sem stendur vörð um hugverka- og höf- undarétt (WIPO). Áhrif hinna alþjóðlegu samtaka hugvitsmanna á heimsvísu eru þannig umtalsverð. Samvinna við ýmsa aðila í deiglunni Reykjavíkurborg styrkti Félag íslenskra hugvitsmanna árið 1993 með því að leggja því til húsnæði á Lindargötu 76. Ennfremur fær félagið nokkur hundruð þúsund króna rekstrarstyrk árlega frá iðnaðarráðuneyt- inu. Félagið hefur orðið að láta sér nægja þessa styrki í gegnum tíðina en landssam- bandið mun ef að líkum lætur njóta þeirra í framtíðinni. Nokkur sveitarfélög hafa lýst yfir áhuga á að nýta sér starfsemi Lands- sambandsins eins og til dæmis námskeiða- hald þess. Landssambandsmenn vonast þannig til þess að fjárhagurinn fari batn- andi með tíð og tíma enda brýn nauðsyn svo efla megi starfsemina. Óháð samtök Landssamband hugvitsmanna skulu vera óháð samtök eins og tekið er fram í lögum þess. Þannig eiga samtökin að vinna fyrir hvern þann hugvitsmann sem gengur til liðs við þau, óháð því hveijar stjórnmála- skoðanir hans eru eða hvaða trú hann að- hyllist. Pétur segir að með þessu hugarfari ætli landssamtökin að hasla sér völl um allt land. Þannig verður unnið að því að koma á stofn svæðisdeildum sem munu sinna markmiðum landssamtakanna. Pétur vonast til þess að innan svæðis- deildanna geti myndast eins konar leshring- ir þar sem fólk miðlar reynslu sinni og þekkingu — hugviti sínu. Framtíðarsýn Félagar í Landssambandi hugvitsmanna vonast til þess að innan tveggja ára verði til aðili í hveiju sveitarfélagi sem samhæfi öll samskipti þeirra sem koma að nýsköp- un. Pétur sér fyrir sér samstarf Landssam- bands hugvitsmanna við fulltrúa atvinnu- mála á hveijum stað ásamt samstarfi við grunn- og framhaldsskóla byggðarlaganna. Pétur Th. Pétursson telur samstarf við Iðn- tæknistofnun og upplýsingaþjónustu Há- skóla íslands ennfremur æskilegt. Með því móti verður íslensku hugviti tryggt brautar- gengi á innlendum sem erlendum vettvangi. Höfundur er nemi í hngnýtri fjölmiðlun við Háskóla íslands og dagskrárgerðnrmaður. Markmiðin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.