Morgunblaðið - 04.02.1996, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 04.02.1996, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ Ljóðatónleikar Anna Sigríður Helgadóttir Gerrit Schuil ari og síðustu öld ANNA Sigríður Helgadóttir mezzó- sópran og Gerrit Schuil píanóleikari halda ljóðatónleika í sal Tónlistar- skólans á Sauðárkróki þriðjudaginn 6. febrúar kl. 21. Á efnisskránni eru sönglög frá þessari og síðustu öld. Flutt verða verk eftir B. Britt- en, Dvorák, Gunnar Reyni Sveins- son og bandaríska sönglagahöf- unda. Anna Sigríður stundaði söngnám við Tónskóla Sigursveins og Söng- skólann í Reykjavík. Árið 1989 hélt hún til Ítalíu þar sem hún var nem- andi Rinu Malatrasi í þrjú ár. Jafn- framt því að syngja með kórum og sönghópum hefur hún víða komið fram sem einsöngvari og flutt bæði sígilda tónlist og djass. Á næstunni heldur Anna Sigríður til Svíþjóðar þar sem hún tekur þátt í uppfærslu við óperuna í Gautaborg. Gerrit Schuil er hollenskur píanó- leikari, hljómsveitar- og óperustjóri sem búið hefur á íslandi undanfarin ár. Hefur hann tekið virkan þátt í íslensku tónlistarlífi og meðal ann- ars stjómað Sinfóníuhljómsveit ís- lands og Sinfóníuhljómsveit Norð- urlands, auk þess að taka þátt í leikhúsuppfærslum og koma fram með ýmsum íslenskum tónlistar- mönnum. Fjölbreytt- ar myndir BIRGIR Schiöth sýnir pastelmyndir og teikningar í anddyri verslunar ÁTVR í Kringlunni. Einnig eru fjórar myndir eftir hann til sýnis í versl- uninni Litir og föndur á Skólavörðu- stíg. Birgir hefur starfað lengi við mynd- listarkennslu, bæði á Siglufirði, þar sem hann er fæddur og í Garðabæ. Hann er hættur í kennslunni og sinnir nú eingöngu myndlistinni. Birgir hef- ur haldið um 14 sýningar á verkum sínum og síðast sýndi hann portrett- myndir af myndiistarmönnum í Mokkakaffi í október síðastliðnum. „Ég geri nokkuð fjölbreyttar myndir. í ÁTVR er hægt að sjá eins- konar þverskurð af því sem ég er að gera. Ég mála aðallega með pa- stellitum en einnig með vatnslitum. Mér fannst upplagt að sýna í Kringl- unni, enda er þetta fjölsóttur stað- Morgunblaðið/Ásdís FRÁ sýningu Birgis Schiöths I anddyri verslunar ÁTVR í Kringlunni. ur,“ sagði Birgir Schiöth. Sýningarn- ar standa um óákveðinn tíma. LISTIR Morgunblaðið/Þorkell GUÐMUNDUR Ándri Thorsson, Guðmundur Steingrímsson, Jón Karl Helgason og Sigríður Margrét Guðmundsdóttir. Listaklúbbur Leik- húskjallarans Verðlaunaleikrit frumflutt á Rás 1 Frásagnir og ljóð sem tengjast Reykjavík RÚSÍNUR, Heimilissýning í HöU- inni, Bjartur og borgarmyndin, Ráðhúsið hús skáldsins, Kort til Önnu, írlandsferðin, Simmasjoppa, Reykvíkingur hugsar á göngu, Nýársnótt í Reykjavík, Utjaðrar - tólf dagbókarbrot og Austurstræti - göngugata in memoríam eru stuttar frásagnir og ljóð sem tengj- ast Reykjavík á einn eða annan hátt og verða flutt í Listaklúbbnum á mánudagskvöldið. Dagskráin er tileinkuð nýjasta hefti Bjarts og frú Emilíu, tíma- ríti um bókmenntir og leikhús, en efni þess er að þessu sinni helgað Reykjavík. Lesið verður úr verkum rithöf- undanna Braga Ólafssonar, Ósk- ars Árna Óskarssonar, Þórarins Eldjárns, Jóns Halls Stefánssonar, Jóns Karls Helgasonar, Haralds Jónssonar, Steinunnar Sigurðar- dóttur, Lindu Vilhjálmsdóttur og Sjón. Undir lestrinum leikur tríóið Skárra en ekkert tónlist. „Dagskrá þessari er annars veg- ar ætlað að vekja athygli á tímarit- inu Bjartur og frú Emilía og hins vegar að njóta afraksturs af þeirri andagift sem höfuðborgin blæs skáldum sínum í bijóst,“ segir í kynningu frá Listaklúbbnum. Frátekna borð- ið í Lourdes ÚTVARPSLEIKHÚS- IÐ á Rás 1 frumflytur leikritið „Frátekna borðið í Lourdes“ eftir Anton Helga Jónsson í dag kl. 14. Verkið verður endurtekið á morgun kl. 21. Leikritið fékk fyrstu verðlaun í leikritasam- keppni útvarpsleik- hússins og Félags leik- skálda á íslandi síð- sumars 1995. Það fjall- ar um karlmann sem kominn er yfir miðjan aldur og tregðu hans við að skýra sínum nánustu frá baráttu sinni og hugarangri þegar draum- arnir koma ekki heim og saman við veruleikann. Anton Helgi sendi út boðsmiða á leikritið en það er tilraun til að beita nýjum aðferðum í kynningu á útvarpsefni. „Það er eins og margir kunni ekki að stilla á rás 1 en þó hef ég orðið var við að hlustun á unnið efni í útvarpi hefur aukist. Fjölmiðlafrelsisbylgjan virðist vera yfirgengin og fólk er farið að velja sér efni til hlustunar," sagði Anton Helgi Jónsson. Hann sagði einnig að neysla manna á hlustunarefni, eins ogt.d. hljóðbókum og leikrit- um á spólum eða disk- um, væri að aukast. Hann sagðist notfæra sér þá möguleika sem útvarpið sem miðill býður og verkið hafi fengið viðurkenningu fyrir það. „Eyrað skiptir ennþá máli. Mér finnst möguleikar útvarpsins vera gífur- legir. Sem dæmi um það er drengur sem hringdi í útvarpið og kvartaði yfir því að það væru engir þættir um risaeðlur á dagskrá. Útvarpsmaðurinn hváði og undraðist kvörtunina, en þá sagði drengurinn að það væri svo fínt að fjalla um risaeðlur í útvarpinu því „...þá getur maður ímyndað sér hvað þær eru stórar og hvernig þetta allt var .. . og það er sá möguleiki sem útvarpið hefur. Við getum búið til okkar Júragarð og það þarf ekki að vera mjög dýrt.“ „Eg er ekki búinn að heyra allt verkið ennþá og ég bíð spenntur eftir frumflutningnum. Mér sýnist Ásdís Thoroddsen leikstjóri vera að gera einkar skemmtilega hluti,“ sagði Anton Helgi. AntonHelgi Jónsson rithöfundur. Drottningar í dreifbýlinu KVIKMYNDIR Háskólahíó TIL WONG FOO, MEÐ ÞÖKK FYRIR ALLT, JULIE NEWMAR „TOO WONG FOO, THANKS FOR EVER- YTHING JULIE NEWMAR" ★ ★ Leikstjóri: Beeban Kidron. Aðal- hlutverk: Patrick Swayze, Wesley Snipes, John Leguizamo. Universal. 1995. ÁSTRALSKA gamanmyndin um eyðimerkurdrottninguna Pricillu var grátbrosleg og frábærlega hnyttin úttekt á svokölluðum drag- drottningum, þ.e. karlmönnum sem klæðast kvenfatnaði og haga sér að öllu leyti eins og kvenfólk. Bandaríska dragdrottningagrínið með því langa nafni „Too Wong Foo, Thanks for Everything Julie Newrnar" eða Til Wong Foo, með þökk fyrir allt, Julie Newmar, siglir í kjölfarið og verður aúðvitað borin saman við hana enda margt líkt með skyldum. í báðum myndunum einkennast dragdrottningarnar af einhverri ótrúlegri og skrautlegri lífsgleði og ósigrandi einurð og báðar segja af dragdrottningum á ferðalagi um dreifbýlið þar sem þær snúa öllu á hvolf. En Pricilla var vegamynd þar sem hver bráðfyndin uppákoman fylgdi annarri og málfarið var klúrt og persónusköpunin unnin af tals- verðri dýpt. í „Julie Newmar" stoppa dragdrottningarnar í ger- samlega niðurníddum smábæ, eru aldrei dónalegar og reynast í sönn- um stíl amerískra Hollywoodmynda bæjarfélaginu einstök lyftistöng; þær lækna geðsjúka, bægja frá heimilisofbeldi og gera siðaða menn úr villuráfandi aumingjum. Frank Capra hefði getað gert þessa mynd. Ástralska myndin þurfti ekki á því að halda að grínast með karl- mennskuímynd leikaranna. í „Julie Newmar“ eru tveir hasarmynda- leikarar, Patrick Swayze og Wesley Snipes, settir í kjóla, skreyttir með hárkollum og málaðir í öllum regn- bogans litum og það látið vera part- ur af gríninu. Báðir standa þeir sig frábærlega vel-í hlutverkunum og einnig John Leguizamo sem þriðja dragdrottningin þótt maður kynnist þeim í raun aldrei nema utan frá. Þeir hafa hver sín einkenni og fara vel með þau: Swayze er n.k. yfir- stéttakona enda ættstór, Snipes er svona Cleopatra Jones, einstaklega stórkarlalegur bjargvættur, og Leguizamo er spænskættaða smá- mellan með stóra hjartað. Bæjarfé- lagið er við fyrstu sýn eins og klippt út úr ijallahéruðum „Deliverence" en reynist einstaklega móttækilegt fyrir breytingum og kvenþjóðin sér- staklega. Kannski er myndinni ætl- að að sýna hvað Bandaríkjamenn eru í raun fijálslynd þjóð fái hún tækifæri til að sanna það. Margt verður fyndið þegar hinir tveir ólíku heimar mætast, margt væmið og full margt fyrirsjáanlegt en það sveimar Ijúfur andi yfir vötnunum og grínið er skoplegt. Fyndnastur' allra er Chris Penn í aukahlutverki lögreglumanns á höttunum eftir öfuguggunum sem hann í naut- heimsku sinni telur helst að finnist í blómabúðum og balletttímum. Arnaldur Indriðason SÝNING á olíuverkum Guð- rúnar Einarsdóttur stendur nú yfir í Galleríi Sævars Karls í Bankastræti. A sýningunni eru ellefu verk unnin á síðastliðnu ári. Þetta er níunda einkasýn- ing Guðrúnar en hún hefur einnig tekið þátt í samsýning- um hér heima og erlendis. Sýningin stendur til 13. febr- úar næstkomandi og er opin á verslunartíma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.