Morgunblaðið - 04.02.1996, Blaðsíða 30
-30 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hæstiréttur um til-
raunir til að hindra
rekstur sumarskóla
HÍK greiði
800 þús.
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Hið
íslenska kennarafélag til að greiða
Ólafi Hauki Johnson 800 þúsund
krónur í bætur, auk dráttarvaxta
frá október 1993, vegna tilrauna
HÍK til að hindra starfsemi sumar-
skóla, sem Ólafur rak við annan
mann í húsnæði Fjölbrautaskólans
í Breiðholti sumarið 1993. Þá
dæmdi Hæstiréttur HÍK til að
greiða Ólafi 300 þúsund krónur í
málskostnað í héraði og fyrir
Hæstarétti.
Málavextir voru þeir, að Fjöl-
brautaskólinn í Breiðholti hóf
rekstur sumarskóla 1990 og var
hann starfræktur næstu tvö sum-
ur. Vegna niðurskurðar hafnaði
menntamálaráðuneytið rekstri
skólans sumarið 1993, en gerði
ekki athugasemdir við að skóla-
nefnd gerði samning við einkaað-
. ila um leigu á aðstöðu í skólanum
og að þar yrði áfram starfræktur
sumarskóli.
HÍK taldi sumarskólann brjóta
gegn kjarasamningum kennara og
lögum um framhaldsskóla. Félagið
lagði fram lögbannskröfu, sem var
hafnað og staðfesti héraðsdómur
þann úrskurð. Ólafur krafðist
þriggja milljóna króna skaðabóta
fyrir það tjón, sem HÍK hefði vald-
ið honum, m.a. með auglýsingu,
þar sem nemendur voru varaðir
við að sækja nám við sumarskól-
ann, en í héraði voru honum
dæmdar tæpar 750 þúsund krónur
og áfrýjaði HÍK þeim dómi.
HÍK væri skaðabóta-
ábyrgt á tjóni
Hæstiréttur féllst á það með
héraðsdómi að HÍK væri skaða-
bótaábyrgt á tjóni, sem ólafur
varð fyrir af aðgerðum, sem HIK
beitti í því skyni að hindra starf-
semi sumarskólans. Ólafur hafi
fært nægileg rök fyrir að hann
hafi skaðast fjárhagslega sökum
þess að nokkru færri nemendur
hafí sótt sumarskólann og greitt
-skólagjöld en ella hefði verið. Hins
vegar hafnaði Hæstiréttur kröfum
ólafs að hluta, sagði hann til dæm-
is ekki reikna með að útgjöld hefðu
sparast við minni aðsókn a.ð skól-
anum. Þá hafí aðgerðir HÍK vald-
ið Ólafí miska, segir Hæstiréttur
og er það í samræmi við dóm hér-
aðsdóms um að aðgerðimar hafí
verið til þess fallnar að valda Ólafí
mikilli óvissu og áhyggjum um
fjárhagslega stöðu sína.
Fjármálastjóri Ríkisútvarpsins um húsnæðismál stofnunarinnar
Sjónvarpið á að flytja
HÖRÐUR Vilhjálmsson, íjármála-
stjóri Ríkisútvarpsins, segir að það
hafí verið skilyrði fyrir byggingu
Útvarpshússins af hálfu sam-
starfsnefndar um opinberar fram-
kvæmdir árið 1978 að starfsemi
útvarps og sjónvarps yrði allri
komið fyrir í Efstaleiti 1. Þetta
hefði verið stefnan alla tíð síðan
og væri að hans áliti enn í gildi,
en beinn sparnaður af flutningnum
væri áætlaður 80-85 milljónir
króna á ári. Segist hann telja sjálf-
sagt að ræða við ráðamenn Stöðv-
ar 2 ef af sölu húnæðis sjónvarps-
ins á Laugavegi 176 til þeirra
gæti orðið.
„Undanfarið hefur hver nefndin
af annarri fjallað um húsnæðismál
Ríkisútvarpsins og núverandi
nefnd átti að skila af sér fyrir síð-
ustu áramót en er enn að störfum.
Þetta er dæmigert um mál sem
hefur lent í kerfisraunum,“ sagði
Hörður í samtali við Morgunblaðið.
Ríkisendurskoðun
mælir með flutningi
Hann sagði að í skýrslu Ríkis-
endurskoðunar um stjórnsýslu-
endurskoðun hjá Ríkisútvarpinu
sem birt var í haust væri eindreg-
ið mælt með flutningi sjónvarps í
húsnæðið í Efstaleiti. í þeirri um-
ræðu mætti hins vegar ekki blanda
saman frágangi húsnæðis þar,
sem kosta myndi um 400 milljónir
króna, og endurnýjun tækjabúnað-
ar sjónvarps, sem talið er að kosti
500 milljónir. Sú endumýjun væri
sífellt í gangi og hann teldi eðli-
legra að fjalla um hana til dæmis
í fimm ára áætlun.
„Menn verða að horfa fram á
veginn og setja sér markmið en
ekki ganga afturábak inn í fram-
tíðina. Beinn spamaður við flutn-
ing sjónvarpsins að Efstaleiti 1 er
áætlaður 80-85 milljónir króna á
ári, og sá sparnaður stendur undir
ærinni fjárfestingu. Það er því
augljóslega skynsamlegt að kosta
til flutnings sjónvarps og hafa
þennan ávinning á hveiju ári í
ófyrirsjáanlegri framtíð. Þarna er
um að ræða öll þau sameiginlegu
verkefni sem stillt er upp á tveim-
ur stöðum núna, t.d. tvö mötu-
neyti, tvöfalt símaborð, varsla nótt
og dag allan ársins hring á tveim-
ur stöðum, tvöfalt sendimanna-
kerfí, og Ijósleiðaratenging á milli
Útvarpshússins í Efstaleiti og
Laugavegar 176. í þessu felst
áðurnefndur sparnaður," sagði
Hörður.
Hann sagði að áskomn lægi
fyrir frá framkvæmdastjóra og
deildarstjórum tæknideildar og
deildarstjóra leikmyndadeildar um
að flutningi í Efstaleitið yrði hrað-
að sem mest.
Starfsemin rúmast ekki
á Laugaveginum
„Starfsemi sjónvarpsins á
Laugavegi 176 rúmast þar með
engu móti lengur. Þetta á ekki
eingöngu við um fréttastofuna
heldur um aðrar deildir einnig. Þar
að auki telja tæknimenn að fara
yrði í breytingar á húsinu sem
kosta myndu hundmð milljóna ef
mæta ætti kröfum nútímans um
aðstöðu. Allt sem viðvíkur sjón-
varpstækninni í húsinu í Efstaleiti
er langtum auðveldara viðfangs
og tæknin myndi komast í allt
aðra aðstöðu þar en á Laugavegin-
um. Mín skoðun er sú að starfsemi
sjónvarpsins rúmist í Efstaleiti 1
án þess að til stækkunar þurfí að
koma á því húsnæði, en ég legg
áherslu á að flutningurinn eigi að
vera með sem hagkvæmustum
hætti,“ sagði Hörður.
Fjárfestingarmöguleikar
þokkalega tryggðir
í samtali við Morgunblaðið sem
birtist s.l. föstudag sagði Gunn-
laugur S. Gunnlaugsson, formaður
útvarpsráðs og formaður nefndar
um húsnæðismál Ríkisútvarpsins,
að spurning væri hvernig stofnun-
in ætti að standa undir fjárfesting-
um við flutning þegar hún væri
rekin með halla og gæti ekki sinnt
dagskrárgerð svo fullnægjandi sé.
Hörður sagði að þarna væri Gunn-
laugur að blanda saman rekstrar-
sjóði og framkvæmdasjóði Ríkisút-
varpsins. Samkvæmt lögum rynnu
10% af veltu stofnunarinnar í
framkvæmdasjóð og fjárfestingar-
möguleikar stofnunarinnar til
bættrar aðstöðu væru mjög þokka-
lega tryggðir.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu á föstudagr er reiknað
með 100 milljóna króna tekju-
lækkun Ríkisútvarpsins í ár miðað
við 1995 og að sögn Harðar liggur
það að stærstum hluta í því að
afnotagjaldatekjur standa óbreytt-
ar en lækka að verðgildi. Síðan
væri reiknað með 25 milljóna
króna lækkun auglýsingatekna
sjónvarps frá fyrra ári sem þá
hefðu verið miklar. Þarna væri
viðhöfð varfærni í áætlanagerð
m.a. vegna fjölgunar sjónvarps-
stöðva á markaðnum sem ekki
væri vitað hvaða áhrif myndi hafa.
Morgunblaðið/Þorkell
Umferð í
Hinu
húsinu
UNGT fólk í samstarfi við Hitt
húsið og bifreiðatryggingafé-
lögin hóf um helgina kynningu
á umferðarmálum í þeim til-
gangi að fækka umferðarslys-
um meðal ungs fólks. Meðal
þess sem verður sýnt í Hinu
húsinu við Ingólfstorg eru
ýmsir hlutir sem tengjast um-
ferð og umferðarslysum. Þar
má m.a. sjá þennan hlut sem
einu sinni var bíll.
Fjögurra manna fjölskylda með eigin bll til Danmerkur 6. júní
og heim frá Noregi 25.júní.
2 fullorðnir og tvö börn yngri en 15 ára.
*Verð á mann. Bifrelð innifalin
ÞÉ PERÐ ÞÍNAR EIW UHÐIR
SJÁÐU HVERNIG
frá far. IU70Q,
Vikuferð til Færeyja með fjögurra manna fjöiskyldu
Frá kr.23.310.
NORRÆNA
FERÐASKRIFSTOFAN
Laugavegur 3, Slmi: 562 6362 g
AUSTFAR HF I
Seyðisfiröi, simi: 472 1111 £
Umboösmenn um allt land i