Morgunblaðið - 04.02.1996, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1996 31
Engar formlegar viðræður milli Flug-
leiða og SL um sólarlandaferðir
„Málamynda-
beiðni fékk
málamyndasvaru
PÉTUR J. Eiríksson framkvæmda-
stjóri markaðssviðs Flugleiða segir
að ekki hafi farið fram formlega
viðræður á milli félagsins og Sam-
vinnuferða-Landsýnar um sólar-
landaflug. „Framkvæmdastjóri SL
sendi okkur málamyndabeiðni um
leiguflug og fékk við henni mála-
myndasvar," segir hann og vísar
því á bug að sambandsleysi ríki
innan Flugleiða, eins og fram-
kvæmdastjóri SL gaf í skyn í Morg-
unblaðinu á fimmtudag.
Pétur segir að undanfarin ár hafí
SL sent samsvarandi beiðnir til Flug-
leiða og hafí forsvarsmenn félagsins
lært í gegnum tíðina að lítil alvara
sé að baki þeim að jafnaði, enda
hafí þær aldrei leitt til umræðna.
Neikvæð skírskotun óþörf
„Seinast sendi framkvæmda-
stjóri SL beiðni um flugvélar með
------»-♦ ♦-------
■ PIZZA 67 Keflavík verður
tveggja ára þriðjudaginn 6. febrúar
nk. Af því tilefni verður efnt til af-
mælisveislu dagana 4., 5. og 6. febr-
úar þar sem mikið veður um að vera.
M.a. verður happdrætti með vinning-
um af ýmsu tagi s.s ávaxtakörfur,
ljósakort, myndbönd, pizzuvinningar
og aðalvinningurinn er utanlands-
ferð fyrir tvo með Flugleiðum. Einn-
ig verður sérstakur litaleikur fyrir
börnin. Ollum viðskiptavinum verður
boðinn 20% afsláttur af pizzum og
gildir afslátturinn bæði í veitingasal
og í heimsendingu. Lína Langsokkur
kemur á staðinn sunnudaginn 4.
febrúar milli kl. 15 og 16 þar sem
hún mun snara fram 32“ pizzu fýrir
svanga krakka á aldrinum 4 til 10
ára sem koma með litaspjöldin sín
í litaleikinn. 6. febrúar fær tíundi
hver viðskiptavinur óvæntan glaðn-
ing.
sætafjölda sem hann veit að er
ekki til hjá Flugleiðum. Ég kalla
þetta málamyndabeiðnir og við
þeim fær hann málamyndasvör. Þá
sendir hann beiðni inn á símbréfi
og fær svar á símbréfi með upplýs-
ingum um verð og báðir aðilar vita
að ekki stendur til að efna til við-
ræðna,“ segir Pétur.
Aðspurður um hversvegna menn
ómaki sig með þessum hætti, búi
engin alvara að baki, kveðst Pétur
telja að ferðaskrifstofan vilji geta
sagt í viðræðum við önnur flugfélög
að hún hafi leitað til Flugleiða,
enda sé góður siður að fá tilboð frá
fleiri en einum aðila í hendur.
„Framkvæmdastjóri SL gaf til
kynna að hann gæti boðið upp á
lægri fargjöld vegna þess að hann
væri ekki í viðskiptum við Flugleið-
ir, og þá varð að benda fólki á að
SL er með samsvarandi fargjöld hjá
Flugleiðum og þessi neikvæða skír-
skotun til okkar því óþörf.
Vilji framkvæmdastjórinn túlka
það sem slæma meðferð við stóran
viðskiptavin okkar, er það út af
fyrir sig allt í lagi. Við eigum að
hluta til í samkeppni og þá gustar
um, og að hluta til í mjög góðu
samstarfi og kappkostum að allt
gangi vel í því sambandi," segir
Pétur.
Hann hafnar því að það halli á
SL í samanburði við Úrval-Útsýn
sem Flugleiðir eiga meirihluta í, og
segir að þvert á móti hafi Flugleið-
ir leitað eftir meiri viðskiptum við
SL.
„Fyrirtækið hefur hins vegar séð
sér hag í að fara aðrar leiðir. Tengsl
okkar við Úrval-Útsýn eru lausriðin
og við lítum á fyrirtækið sem hveija
aðra ferðaskrifstofu, og SL hefur
notið margvíslegra fargjalda sem
Úrval-Útsýn hafa ekki,“ segir Pét-
ur.
FRÉTTIR
Dagbók frá Kairó
MEÐAN heimilisfólkið bíður
eftir að fá mat sinn er sem
betur fer alltaf bein útsending
frá Jóhannesarborg; þar er
keppt um þátttökurétt á Ólymp-
íuleikunum. Áhugi á fótbolta er
mikill hér eins og um alla heims-
byggðina og þeir sem ekki eiga
sjónvarp fara í heimsóknir til
kunningja eða sitja á kaffihús-
um, þar sem má að vísu ekki
bera fram neinar góðgerðir. En
menn gleyma sér um stund og
lifa sig inn í leikinn.
Mér skilst að Nígeríumenn
hafí verið taldir hvað sigur-
stranglegastir eða mundu
a.m.k. vera til alls vísir. Svo
drógu þeir lið sitt út úr keppn-
inni á síðustu stundu. Alls konar
skýringar eru gefnar á því hér.
Ein er sú að Suður-Afríku-
menn hafí ekki getað sannfært
þá um að þeir gætu tryggt ör-
yggi þeirra almennilega. Hin
aðalskýringin, og sú trúlegri að
mínu viti, er þó sú gagnrýni sem
þeir hafa sætt hvort sem er hér
í álfunni eða annars staðar eftir
að þeir líflétu kunnan andófs-
mann og fleiri andstæðinga
stjórnarinnar. Nígeríska stjórn-
in er æf yfír þessari gagnrýni
og hefur svarað fullum hálsi
þessum gagnrýnisröddum.
En hvað sem er nú um það:
Egyptar segjast eiga besta liðið
í allri keppninni og virtust áður
en hún byijaði ganga út frá því
sem gefnu að þeir mundu fara
létt með andstæðingana sem í
þeirra riðli eru Kamerúnar, Suð-
ur-Afríkumenn og Angólar ef
ég man rétt. Þeim tókst að sigra
Angóla í fyrsta leiknum - en
ekki með almennilegum mun
þó og eru þegar farnir að hund-
skammast út í þjálfarann.
Áfallið mikla varð í leiknum
við Kamerún sem vann með
sannfærandi mun. Það hafði
ekki nokkur maður húmor fyrir
því þegar ég talaði af léttúð um
þennan leik. Þeir fullyrtu að
þetta væri allt þjálfaranum að
kenna. Ég horfði á þennan leik
Fót-
bolti
á föst-
unni
Fótboltakeppni Afr-
íkuríkja, sem stendur
yfír í Jóhannesarborg
þessar vikurnar, er
mikil himnasending á
föstunni núna, skrifar
Jóhanna Kristjóns-
dóttir, og styttir jafn-
vel henni stundirnar.
í sjónvarpinu af því egypskir
kunningjar mínir sögðu að þar
myndi ég sjá Egypta mala Kam-
erúna.
Ég sá ekki betur en ástæðan
fyrir tapinu væri sú að Egyptar
brenndu af, létu veija eða skutu
eitthvað allt annað en á markið
í mörgum góðum tækifærum.
Kamerúnar skutu vissulega
sjaldan en þeir voru gleggri að
sjá hvernig ætti að skora.
En við þessa fótboltakeppni
geta menn sem sagt dundað sér
fram að kvöldmat nú í föstu-
mánuðinum. Ýmsir fá sér auka-
bita undir svefninn, vakna
klukkan hálfsex um morguninn
og borða til að geta fastað til
sex um kvöldið.
Trúaðir taka þetta hátíðlega
og eru mjög stoltir af sínum
föstumánuði. Auðvitað skyldi
maður ekki gera lítið úr föst-
unni og allra síst hjá einlægum
múslimum. En óneitanlega
hvarflar að mér stundum að
reykingabannið yfir daginn sé
þeim erfiðast, enda eru arabísk-
ir karlmenn miklir reykinga-
menn.
Um daginn var ég að tala um
ýmis hljóð og stafi sem eru ekki
á arabísku en aftur yfirdrifð af
öðrum. Er ekki úr vegi að geta
O-hljóðsins aftur sem er ekki til
í málinu. Þar með mætti kannski
draga þá ályktun að maður sem
heitir Ömar heiti bara MAR og
tilviljun réði hvort hann héti
Emar, Imar, Umar eða Amar.
Eins og til dæmis Omar Shar-
if. En Omar er ekki skrifað með
0. Það er skrifað með stafnum
æin. Almennt útlit hans er £, .
í byijun orðs er hann svona í
laginu svipaður í miðju
orði. Ef orð endar á æin þá er
hann aftur á móti áþekkur upp-
runalegri lögun = £, . Þessi
stafur er mjög skrítin blanda
af æ-e-a og jafnvel vottar 'fyrir
veiku o-hljóði.
Það er altjent gott að þeir
Omar Sharif og nafnar hans
eiga sinn staf jafnvel þótt hann
heiti ÆIN og alls ekki 0 og
mér sé enn fyrirmunað að ná
þessu hljóði af nokkru viti. Og
ekki geta allir státað af því að
nafnið þeirra sé borið kórrétt
fram af næstum 1,5 milljörðum
manna.
Háskóli Islands Endurmenntunarstofnun
European Software Process Improvement Training Initiative
ESPITI er átak á vegum ES til að bæta hugbúnaðargerð í Evrópu. Námskeiðin eru niðurgreidd af ES.
r
Utflutningur hugbúnaðar - markaðir, aðferðir og reynsla
Námstefna
Útflutningur á tölvuvæddum fiskvinnslutækjum og hugbúnaði nemur nú hátt á ann
anmilljarð króna á ári. Stærstu útflytjendurnir halda fyrirlestra á námsstefnunni.'
Námstefnustjóri er Oddur Benediktsson, Háskóla íslands.
Dreifing og sala hugbúnaðar á netinu. Samningar, einkaleyfi, OEM-samningar.
Markaðsaðstæður eftir löndum. Gæðastjórnun, uppsetning og rekstur kerfa úr
fjarlægð. Þróun hugbúnaðar til útflutnings. Fjármögnun hugbúnaðar til útflutnings.
Hugbúnaður og upplýsingasamfélagið. Mismunandi form starfsemi erlendis.
(Upplýsingar á Vefsíðu: http://www.rhi.hi.is/-oddur/spi/espiti/export.html.)
Friðrik Skúlason; Jóhann P. Malmquist, Softís; Lárus Ásgeirsson, Marel; Snorri
Guðmundsson, EJS; Páll Hjaltason, Hugbúnaður; Pétur Blöndal, Fjarmiðlun; Risto
Nevalainen, Tieke og Vilhjálmur Þorsteinsson, íslensk forritaþróun.
Staður: Norræna skólasetrið á Hvalfjarðarströnd.
8.-9. feb. Rútuferð frá Tæknigarði 8. feb. kl. 8.15 og komið til baka 9. feb. kl. 17.00.
9.800 kr. (ferðir og upphald innifalið).
Bætt hugbúnaðargerð byggð á
sjálfsúttekt samkvæmt nýjum stöðlum
Námskeiðið er byggt á væntanlegum ISO stöðlum sem nú
er verið að ljúka við að semja. Þessir staðlar hafa verið
nefndir SPICE (Software Process Improvement and
Capability Etermination) staðlamir. Þeir eru samdir í þeim
tilgangi að smá hugbúnaðarfyrirtæki, eigi síður en stór,
geti nýtt þá til að bæta aðferðir í hugbúnaðargerð til þess
að framleiða betri hugbúnað með lægri tilkostnaði.
(Upplýsingar á Vefsíðu:
http://www.rhi.hi.is/-oddur/spi/espiti/spisprog.html).
Risto Nevalainon, Lic. Tech., forstjóri Information
Technology Development Center, Helsinki, og Oddur
Benediktsson, prófessor Háskóla íslands.
12.-13. feb. kl. 8.15-16.00. 9.000 kr.
Skráning og nánari upplýsingar í síma 525 4923. Fax: 525 4080. Tölvuóstur: endurm@rhi.hi.is