Morgunblaðið - 04.02.1996, Síða 41

Morgunblaðið - 04.02.1996, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. FEBRUAR 1996 I DAG BRIPS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson AUSTUR missir af tæki- færi varnarinnar í þriðja slag, en vestur heldur sagn- hafa við efnið með snjöllum mótleik síðar. Austur gefur; enginn á hættu. Norður 4 D6 ¥ 743 ♦ Á107 4 96543 Suður ¥ ÁKDGIO ♦ G82 4 ÁKIO Vestur Norður Austur Suður - - 1 spaði Dobl Pass 2 lauf 2 spaðar 3 hjörtu Pass 4 hjörtu Allir pass Útspil; Spaðatvistur (þriðja hæsta). Austur tekur tvo slagi á ÁK í spaða og skiptir síðan yfír í laufgosa. Suður tekur slaginn fegins hendi með ás og spilar trompi þrisvar. Það kemur í ljós að austur á tvö hjörtu, en vestur þrjú. Nú hyggst sagnhafí fríspila tvö lauf til að sjá fyrir tíglunum heima — tekur ásinn (austur hendir spaða), og spilar tíunni. En vestur finnur þá snjöllu vöm að dúkka lauf- tíuna! Sem þýðir að sagn- hafi verður að spila tíglin- um. Hann má gefa einn slag, en ekki tvo. Hvemig er best að fara í litinn? Austur er upptalinn. Hann á sexlit í spaða, tvö hjörtu, eitt lauf og þar með ijórlit í tígli. Og vestur er þá með þrjá tígla. Þar með kemur tvennt til greina: 1) Spila litlum tígli á sjöu blinds í þeirri von að vestur sé með D9x eða K9x. 2) Spila tígli á tíuna, en þá verður austur að vera með níuna (K9xx eða D9xx). í síðara tilfellinu vinnst spilið með kastþröng í vestur í láglitunum. Austur getur ekki spilað tígli um hæl vegna níunnar, og spilar því spaða. Sagnhafi trompar, tekur síðasta trompið og neyðir vestur tii að fara niður á blankan tígulhónór. Vestur Norður 4 D6 ¥ 743 ♦ Á107 4 96543 Austur 4 942 4 ÁKG1075 ¥ 986 llllll y 52 ♦ D43 111111 ♦ K965 4 D872 4 G Suður 4 83 ¥ ÁKDGIO ♦ G82 4 ÁKIO Vandamál sagnhafa er að staðsetja tígulníuna. Samkvæmt líkindafræðinni er austur líklegri til að vera með hana, því hann á fjóra tígla, en vestur aðeins þrjá. Leið tvö er því betri. Arnað heilla STJÖRNUSPA Ijósm. Nýmynd Keflavík BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 15. júlí sl. í Innri- Njarðvíkurkirkju af sr. Baldri Rafni Sigurðssyni Margrét Linda Asgríms- dóttir og Rúnar Ágúst Jónsson. Heimili þeirra er í Hátúni 34, Keflavík. Ljósm. Nýmynd Keflavík BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 29. júlí sl. í Ytri- Njarðvíkurkirkju af sr. Baldri Rafni Sigurðssyni Helga Kristín Friðriks- dóttir og Ástþór Ingason. Heimili þeirra er á Gónhól 23, Njarðvík. Ljósm. Nýmynd Keflavík BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 29. júlí sl. af sr. Sig- fúsi Ingvasyni Hrafnhildur Árnadóttir og Hafliði Kristjánsson. Heimili þeirra er í Columbia, South Carolina, USA. Ljósmyndast. Sigríðar Bachmann. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 25. nóvember sl. í Fríkirkjunni í Hafnarfirði af séra Einari Eyjólfssyni Ágústa Hilmarsdóttir og Valur Helgason. Heimili þeirra er í Köldukinn 17, Hafnarfirði. HÖGNIHREKKVISI ORÐABOKIN Að brjóta odd af oflæti sínu Satt bezt að segja hefur mér aldrei dottið annað í hug en flestir kannist við þetta orðtak og merkingu þess. Halldór Halldórsson, fyrrv. pró- fessor, segir svo í ís- lenzku orðtakasafni, 354. bls.: „Brjóta odd af oflæti sínu „lítillækka sig“. Orðtakið er kunn- ugt úr fornmáli: llla hef- ir Guðrún, dóttir mín, brotit odd af oflæti sínu ok legit hjá þér. ÍF XII, 154. Líkingin er dregin af því, er vopn (bitjárn) er gert ónýtt með því að brjóta af því oddinn." Að sjálfsögðu eru dæmi um orðtak þetta í söfnum OH og í ofangreindri merkingu. Vel má hins vegar vera, að hin upp- runalega merking þess sé ekki lengur öllum ljós. Til þess virðist benda auglýsing, sem birtist nú fyrir jólin og bar fyrir sjónir mínar ekki alls fyrir löngu. Kom hún í litlu auglýsingablaði, sem kemur út á Norður- landi. Ef taka á auglýs- inguna alvarlega, verður ekki annað séð en orð- takið sé svo rækilega misskilið, að full ástæða er til að minnast á það [ í þessum pistli og benda I á frummerkingu þess, ef hún farið er að fyrnast yfir hana hjá einhveijum. I auglýsingunni segir m. a. þetta: „Einnig er ég I að bijóta odd af örlæti) mínu og er farinn að kynna nýju línuna fyrir ’96 vor....“ Trúlega hafa viðskiptavinir skilið, við hvað var átt, en samt ber að vara við að fara svo frjálslega með gamalt | orðtak. - J.A.J. ÍUV'-G____________________ ,Eg get gert f>ad Qn þess> á&þö hveý/r/ný!" S VATNSBERI Afmælisbarn dagsins: Þú hefurgóða listræna hæfileika ogkemur vel fyrir þig orði. Hrútur (21. mars - 19. apríl) Breytingar, sem þú hefur í huga varðandi vinnuna, eru mjög til bóta. Þú ert á réttri leið. Vinafundur bíður þín í kvöld. Naut (20. apríl - 20. maí) Iffö Láttu ekki náskyldan ætt- ingja flækja þig inn í per- sónuleg vandamál sín. Þú hefur nóg á þinni könnu og ættir að hugsa um eigin hag. Tvíburar (21.maí-20.júní) 5» Þér berast loks fréttir af fjar- stöddum vini, sem þú hefur ekki heyrt frá iengi. í kvöld sækir þú mannfagnað með ástvini. Krabbi (21.júní - 22. júlf) Einhugur ríkir hjá fjölskyld- unni, og þér gengur vel að koma skoðunum þínum á framfæri. Stutt helgarferð gæti verið á dagskrá. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú þarft að vanda þig við lausn á heimaverkefni áður en þú nærð tilætluðum ár- angri. Þér verður boðið í sam- kvæmi í kvöld. Meyja (23. ágúst - 22. september) M Reyndu að gefa þér nægan tíma í dag til að hugsa um fjölskylduna. Svo átt þú góð- ar stundir með ástvini þegar kvöldar. Vog (23. sept. - 22. október) Þótt þú hafir ákveðnar skoð- anir ættir þú að varast óhóf- lega stjómsemi. Reyndu að hlusta á það sem aðrir hafa að segja. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Fjölskyldan vinnur vel saman í dag og kemur miklu í verk. Hugsaðu þig vel um áður en þú tekur tilboði um vafasöm viðskipti. Bogmaöur (22. nóv. - 21. desember) Taktu enga endanlega ákvörðun varðandi breyting- ar í vinnunni. Ræddu málið fyrst við þína nánustu. Hvíldu þig í kvöld. Steingeit (22. des. - 19.janúar) Þú áttar þig fljótt á náunga, sem reynir að blekkja þig í dag, og lætur ekki hafa þig að fífli. Sinntu fjölskyldunni í kvöld. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) dk Hæfiæleikar þínir og skyn- semi auðvelda þér lausn á viðkvæmu vandamáli innan fjölskyldunnar, sem stendur einhuga saman. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þú hittir einhvern, sem þú hefur ekki séð lengi, og sam- an takið þið mikilvæga ákvörðun. Mikið verður um að vera þegar kvöldar. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. ÚTLEIGA MEÐ Q C3 ÁN VEITINGA HRINGDU 0(3 FÁS U NÁNARI UPPLÝSINGAR O (3 VIÐ EEFU M ÞÉR tilbdð PLÝSINGAR í SÍMA 568 52,06 FAX: 555 4 5 B 4 VEISLUSALUIL FÓSTBRÆÐRA FÓSTBRÆÐRAHEIMIUNU, LANGHDLTSVEGI 109-1 1 1 NÁMSKEIÐ FYRIR BYRJENDUR í MlKAELSFrÆÐUM VILTU ÞEKKJA SJALFAN ÞIG ? Á þessu fróðlega og skemmtilega sjö vikna námskeiði ninar margvísli skoða þátttakendur ninar margvíslegú persónugerðir sem eru ÉG og ÞÚ og samferðafólk okkar. Þeir læra að persónuleikinn er settur saman úr mörgum hlutum eins og púsluspil og æfast í að þekkja hinn fjölbreytilega byggingarstíl mannsins. Enginn nefur efni á því að vita ekki hvernig personuleiki hans sjálfs er samsettur. Og ekki er síður mikilvægt að þekkja byggingarstíl maka síns, bama og annarra náinna samstarfsmanna. Mikael fræðslan er einföld og hagnýt þekking fyrir fólk sem vill ná auknum þroska og víðsýni og öolast meira umburðalyndi í sínu daglega nfi. Einnig svarar Mikael fræðslan mörgum áleitnum spurningum um lífið og tilgang þess. Kennt verður á þriðjudagskvöldum kl. 20:00 í kjallara Carpe Diem að Rauðarárstíg 18, Reykjavík. Námskeiðið byrjar 6. febrúar og því lýkur 19. mars. Leiðbeinandi verður SIGRUN BOUIUS. Nánari upplýsingar og skráning er hjá: KLASSÍKehf. • Stmi:5881710 • Bréfsími:5881730 •Netfang: sigrun@h>.is Framtalsaðstoð - skatttrygging Get bætt við einstaklingum með og án reksturs. Innifalin í gjaldtöku er svonefnd skatttrygging, en hún felst í því að framteljandi hefur með einu gjaldi í upphafi greitt fyrir: 1. Framtalsaðstoð. 2. Skattútreikning. 3. Svör við hvers konar fyrirspurnum frá skattyfirvöldum 4. Kærur til skattstjóra og æðri yfirvalda. 5. Munnlegar upplýsingar um skattamál viðkomandi allt áriö 1996 Upplýsingar, tímapantanir og frestbeiðnir veittar á skrifstofu minni kl. 09.00-17.00 alla virka daga. Notaðu tækifærið og tryggðu þér áratugareynslu undirritaðs meðan færi gefst. Sanngjarnt. verð. Skattaþ j ónustan sf. Bergur Guðnason hdl. - Lögskipti, Suðurlandsbraut 52, 108 Reykjavík, sími 568 2828 - fax 568 2808.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.