Morgunblaðið - 04.02.1996, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1996 43
FÓLK í FRÉTTUM
Þorrablót
Seltirninga
NOKKUR hundruð manns
skemmtu sér konunglega á þorra-
blóti sem haldið var í íþróttahúsinu
á Seltjarnarnesi síðastliðið laugar-
dagskvöld. I gegnum árin hafa hin
ýmsu félagasamtök í bænum haldið
hvert sitt blót, en aðsókn mun hafa
verið farin að minnka og í fyrra
var brugðið á það ráð, undir for-
ystu Brynjars veitingamanns í
Veislunni, að gera tilraun til að
halda eitt þorrablót sem félögin
komu öll að. Gafst það svo vel að
eins var staðið að málum nú.
Hátt í sex hundruð manns munu
hafa verið á blótinu að þessu sinni
og nálægt hundrað á biðlista, en
fengu ekki miða. Undir borðum
talaði Katrín Pálsdóttir fréttamaður
fyrir minni karla og Jón Hákon
Magnússon framkvæmdastjóri fyrir
minni kvenna. Hljómsveitin Papar
lék svo fyrir dansi fram á rauða
nótt.
Morgunblaðið/Halldór
PÉTUR Arnason, Helga ísaksdóttir og Guðný Einarsdóttir glöð
í bragði eftir að hafa gætt sér á þorramatnum í íþróttahúsinu
á Seltjarnarnesi.
ÁRNI Geir Sigurðsson, Soffía Arnarsdóttir og Unnur Steinsson
skemmtu sér vel á þorrablóti Seltirninga.
Johnson
einn á ferð
►DON Johnson, hetjan góða úr
þáttunum „Miami Vice“, á erfitt
með að leyna frægð sinni á al-
mannafæri. Jafnvel dökk sólgler-
augu halda ljósmyndurunum
ekki frá, en þessi mynd var tekin
í sólinni í Kaliforníu fyrir
skemmstu. Nú orðið er sjaldgæft
að sjá Don án kærustunnar, Alex-
öndru Kabi, en þau hittust á kvik-
myndahátiðinni í Cannes síðast-
liðið sumar.
Kappklædd
Welch
►RAQUEL
Welch, leik-
konan góð-
kunna, var
kappklædd í
kuldanum í
New York þeg-
ar þessi mynd
var tekin af
henni fyrir
skömmu. Þar
er hún að
vinna að kvik-
myndinni
„Central Park
West“, en stutt
er síðan sýningar á leikritinu
„The Millionairess" hættu, þar
sem hún var í aðalhlutverki.
FOLK
( venjulegu rúmi er fjöldi gorma tengdur saman og mynda gegnheila heild.
Aðeins Marshall rúmin eru með sjálfstæða gorma, þar sem hver stakur
gormur aðlagar sig líkamanum og veitir hámarksstuðning og hvíld. Þessi
frábæra hönnun, góður frágangur og fínasta damask áklæði veita Marshall
rúmum sérstöu á markaðinum. Hæð rúmanna er gerð fyrir þínar þarfir.
Fáanleg mjúk og millistíf. Marshallrúm handunnin frá 1899. Hágæða lúxusrúm
á 25-30% kynningarverði. Verð frá kr. 59.000 Queen stærð, 153x203 cm.
Bæklingur um svefn og val á rúmum liggur frammi í versluninni.
10% afsláttur af öllum fataskápum í janúar.
Fataskápar """“Of 1%
Mikið úrval - Þýsk glæsileg vara. U l | /U afsláttup
Nýborgr#
Ármúla 23,
sími 568 6911.
Opið kl. 14-17
sunnudag
Ekki missa af tækifærinu,
nú þegar eru 3 ferðir uppseldar
Costa
del Sol
slær í gegn
frá kr.
29.960
i sumar
Viðtökurnar hafa verið
hreint ótrúlegar við ferðum
okkar til Costa del Sol í sumar.
300 kynningarsætin okkar seldust upp og nú
bjóðum við 100 sæti til viðbótar á þessum hreint
ótrúlegu kjörum. Costa del Sol var kosin af
Evrópuráðinu hreinasta strönd Evrópu síðasta
sumar og hér eru frábærir gististaðir í boði.
Bókaðu strax til að tryggja bér besta verðið
og sæti á meðan enn er laust.
Verð kr. 29*960
Flug fram og til baka með sköttum.
Verð kr.
39.532
Verð pr. mann m.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, 20. júní,
2 vikur, La Nogalera, með 10.000 kr. afslætti.
Verð kr.
39.860
2 í íbúð í viku, 20. júní, La Nogalera,
með 10.000 kr. afslætti.
Innilalið í verði: Flug, gisting, íslensk fararstjórn,
ferðir til og frá flugvelli etiendis, skattar.
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð. Si'mi 562 4600.
i