Morgunblaðið - 04.02.1996, Page 48
48 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VALUR iónatansson
Valur hlaut
viðurkenn-
ingu SKÍ
SKÍÐASAMBAND íslands hefur
ákveðið að veita árlega einum
iþróttíifréttamanni viðurkenningu
fyrir góða umfjöllun um skíða-
íþróttina. A föstudagskvöldið var
kunngjört um val sambandsins
fyrir keppnistímabilið 1994-95 og
varð Valur Jónatansson íþróttaf-
réttamaður á Morgunblaðinu,
fyrstur til að hljóta þessa viður-
kenningu SKI. Að sögn Benedikts
Geirssonar, formanns Skíðasam-
bandsins, er viðurkenning þessi
hugsuð til að hvetja fjölmiðla til
að fjalla meira og betur um skíða-
íþróttina en gert hefur verið.
SÓKNAR-
NÝTING váP
Lottó-keppnin i Noregi
(SLAND V I RÚMENÍA
Mðrk Séknir % L Mörk Sóknir %
8 24 33 F.h 11 24 45
16 24 66 S.h 12 24 50
24 48 50 AÍIs 23 48 48
7 Langskot 12
8 Gegnumbrot 1
3 Hraðaupphlaup 5
5 Hom 0
0 Lfna 3
1 VKi 2
•Vegna mistaka vantaði kortið hér
að ofan í blaðið í gær með umfjöll-
un um leik íslands og Rúmeníu á
Lottó keppninni í handknattleik.
ÍÞRÓTTIR
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Pippen stal senunni í leiknum sem beðið hafði verið með eftirvæntingu
Fékk rými því allt snér-
ist um „Magic“ og Jordan
BEÐIÐ var með mikilli eftir-
væntingu eftir því að stjörnúrn-
ar Earvin „Magic“ Johnson og
Michael Jordan mættust í leik
Los Angeles Lakers og
Chicago Bulls í NBA-deildinni
ífyrrinótt. Það var hins vegar
Scottie Pippen sem stal sen-
unni í leiknum; skoraði 30 stig
í 18. sigurleik Chicago f röð,
99:84, og Dennis Rodman tók
23 fráköst sem er met hjá hon-
um í vetur.
etta var í fyrsta sinn sem Jord-
an og Johnson mætast í leik
síðan í úrslitum NBA-deildarinnar
1991. Johnson sýndi engin tilþrif,
gerði aðeins 15 stig í þær 32 mínút-
ur sem hann spilaði. Sama má segja
um Jordan, sem er stigahæsti leik-
maður NBA-deildarinnar — með 30
stig að meðaltali í leik; hann gerði
aðeins 17 stig.
„Þetta var frábært. Ég vissi að
leikurinn myndi snúast mest um
Michael og Magic og því fékk ég
meira rými,“ sagði Pippen. Chicago
hafði mikla yfirburði í leiknum og
náði mest 26 stiga forskoti þó svo
að liðið léki án Luc Longley og
Toni Kukoc. Þess má geta að Vlade
Divac gerði aðeins tvö stig í leiknum
fyrir Lakers.
Chris Mills gerði 23 stig og Danny
Ferry 22 fyrir Cleveland í auðveld-
um sigri á Phoenix, 107:85. Cleve-
land setti niður tíu þriggja stiga
körfur í fyrri hálfleik og jafnaði þar
NBA-metið. Charles Barkley og
Kevin Johnson gerðu 15 stig hvor
fyrir Phoenix. Danny Manning lék
fyrsta leik sinn fyrir Phoenix í næst-
SKIÐI
Seizinger vann
KATJA Seizinger frá Þýskalandi
sigraði í gærmorgun á heimsbikar-
móti í bruni í Val d’Isere í Frakk-
landi. Hún fór á 1 mínútu 41,70
sekúndum. Onnur varð Piccabo
Street, Bandaríkjunum á 1.42,19
og þriðja Isolde Kostner frá Ítalíu
á 1.42,24.
um ár eftir meiðsli. Hann gerði 10
stig í þær 26 mínútur sem hann lék.
Shaquille O’Neal skoraði 25 stig
er Orlando vann Atlanta 108:95 á
heimavelli. Liðið hefur ekki tapað
30 leikjum í röð í Orlando, eða síðan
14. mars á síðasta ári. Stacey
Augmon var stigahæstur í liði Atl-
anta með 21 stig.
David Robinson og félagar hans
í San Antonio sigruðu Minnesota
101:90. Robinson gerði 21 stig
Chuck Person setti niður tvær mik-
ilvægar þriggja stiga körfur á síð-
ustu þremur mínútunum. Isaiah
Rider var með 20 stig fyrir Minne-
sota.
Karl Malone fór á kostum í liði
Utah sem vann LA Clippers
122:113. Hann gerði 27 stig, tók
15 fráköst og átti 10 stoðsending-
ar. John Stockton lék einnig vel,
gerði 31 stig og átti 11 stoðsending-
ar. Terry Dehere var með 31 stig
fyrir Clippers, sem hefur tapað fjór-
um síðustu leikjum og átta af síð-
ustu níu.
Washington Bullets vann Port-
land 113:97 og var þetta þriðji sigur
liðsins í röð. Juwan Howard var
stigahæstur með 26 stig og tók átta
fráköst. Rod Strickland var með 20
og Clifford Robinson 19 stig fyrir
Portland sem tapaði þriðja leiknum
í röð.
Rik Smits var með 31 stig og
Reggie Miller 21 er Indiana vann
Boston 116:108. Todd Day gerði
22 stig og Dana Barros 19 fyrir
Boston,
Golden State vann Toronto
114:111 þar sem Joe Smith gerði
28 stig. Damon Stoudamire var at-
kvæðamestur gestanna með 25 stig.
NBA-deildin
Leikir aðfararnótt laugardags:
Indiana - Boston........116:108
Oriando - Atlanta........108:95
Washington - Portland....113:97
Cleveland - Phoenix......107:85
San Antonio - Minnestoa ....101:90
Utah - LA Clippers......122:113
Vancouver - New Jersey....84:93
Golden State - Toronto..114:111
LA Lakers - Chicago.......84:99
Reuter
EARVIN „Magic“ Johnson í baráttunni undir körfu Chicago
í fyrrinótt. Michael Jordan er fyrir aftan hann en þetta var
í fyrsta skipti sem þeir mættust í NBA-leik síðan vorið 1991.
BORÐTENNIS
Kjartan Brierm hefur leikið vel í dönsku úrvalsdeildinni í vetur
Hefur sigrað í þremur
af síðustu Qórum leikjum
KJARTAN Briem, margfaldur
íslandsmeistari í borðtennis, leik-
ur með liðinu Bronshoj í dönsku
úrvalsdeildinni. Með góðri
frammistöðu undanfarið hefur
hann náð að tryggja sér fast sæti
í liðinu.
Kjartan er búinn að spila með
Bronshoj í rúm þrjú ár. Honum
var ekki stillt upp í aðalliðið í
byijun yfirstandandi keppnis-
tímabils, en stóð sig þokkalega í
leikjum með varaliðinu.
Hann fékk svo tækifæri til að
spreyta sig í aðalliðinu í leik gegn
Bronderslev, einu sterkasta liði
deildarinnar, í sjöundu umferð.
Bronshoj tapaði 8-2, en Kjartan
stóð vel fyrir sínu og vann annan
leikinn.
Bronshoj endaði í neðri hluta
úrvalsdeildarinnar og verður því
að keppa við þrjú önnur lið um
að halda sæti sínu í deildinni.
Staða þessara fjögurra liða er
þannig að Esbjerg hefur 4 stig
eftir 2 leiki, VRI 2 stig eftir 1
leik, Olstykke 1 stig eftir 2 leiki
og Bronshoj rekur lestina með 0
stig eftir 1 leik.
Leikur Bronshoj sem tapaðist
var á móti Esjberg og hélt Kjart-
an sæti sínu í byijunarliðinu.
Hann sigraði í báðum sínum leikj-
um og var nálægt því að tryggja
Bronshoj jafntefli í tvíliðaleik. Þá
vannst fyrsta lotan, 21-8, en þrátt
vfyrir yfirburðastöðu í annarri
lotu, 16-11, tapaðist leikurinn.
Þurfum þrjú stig úr tveimur
næstu leikjum
„Vonir okkar um að halda okk-
ur í deildinni felast í að ná jafn-
tefli gegn VRI og sigra Olstykke
í næstu leikjum," segir Kjartan.
„Ef það gengur eftir spilum við
líklega á móti því liði sem hafnar
í öðru sæti af þessum íj'órum lið-
um um sæti í deildinni að ári.“
Leikur Bronshoj og Olstykke
fer fram í dag, en í gær átti
Bronshaj að leika gegn VRI. Að
lokum segist Kjartan vera í fínu
formi og æfa mjög vel. Ef svo
fer fram sem horfir má búast við
spennandi keppni á Islandsmót-
inu, sem haldið verður 23. til 24.
mars, en þá ætlar Kjartan að
spila með.
KJARTAN Briem er búinn
að tryggja sér fast sæti í
úrvalsdeildarliði Bronshoj.