Morgunblaðið - 20.02.1996, Side 1
64 SÍÐUR B
42. TBL. 84. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Serbar hunsa enn
fund með NATO
Sarajevo. Reuter.
Franska þingið
Velferðar-
útgjöld
takmörkuð
París. Reuter.
BÁÐAR deildir franska þingsins
komu saman í Versölum í gær til
að samþykkja stjórnarskrárbreyt-
ingu sem veitir þinginu rétt til að
setja skorður við útgjöldum til vel-
ferðarmála.
Tillagan var samþykkt með 681
atkvæði gegn 188. Markmiðið með
breytingunni er m.a. að tryggja að
Frakkar nái að uppfylla skilyrði
Maastricht-samningsins um hámark
íjárlagahalla.
Sósíalistar og kommúnistar voru
á móti, þeir sögðu að verkföllin fyr-
ir áramótin hefðu sýnt andstöðu al-
mennings við að ákvarðanir um út-
gjöld til velferðarmála yrðu teknar
úr höndum aðila vinnumarkaðarins
og settar undir ríkisvaldið. Alain
Juppé forsætisráðherra sagði stjórn
sína staðráðna í að draga úr vax-
andi skuldasöfnun vegna útgjalda
til heilbrigðismála, eftirlauna og
ýmissa bótagreiðslna.
----» ♦ --».-.
„Lagskona
tímans“ á
geisladiski
JEANNE Calment, elsta mann-
eskja í heimi, kynnti í gær geisla-
disk, sem gefinn verður út á
morg'un, á 121. afmælisdegi henn-
ar. A diskinum, sem heitir „Lags-
kona timans", segir Calment frá
sjálfri sér en undirleikurinn er
rapptónlist. Ágóðann af sölunni á
að nota til að kaupa litla rútu eða
fólksflutningabifreið fyrir elli-
heimilið þar sem hún dvelst. Cal-
ment fæddist 10 árum eftir að
Abraham Lincoln, forseti Banda-
ríkjanna, var ráðinn af dögum og
hún man vel eftir hollenska list-
málaranum Vincent van Gogh,
sem hún hitti a.m.k. einu sinni.
Hún var gift kona í 54 ár, hefur
verið ekkja í 50 og fór á eftirlaun
1940, sama ár og herir Hitlers
réðust inn í Frakkland.
EMBÆTTISMENN Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) og yfirmenn
herja Bosníustjórnar og Bosníu-Kró-
ata komu saman um borð í banda-
ríska flugvélamóðurskipinu George
Washington á Adríahafi í gær.
Zravko Tolimir, undirhershöfðingi í
her Bosníu-Serba, átti að sitja fund-
inn en mætti ekki. Svíinn Carl Bildt,
sem stjórnar uppbyggingunni í
Bosniu, sagði óljóst hvað hefði vald-
ið fjarveru Tolimirs, hvort um væri
að ræða tímabundna erfiðleika eða
til langs tíma.
Forsetar Bosníu, Króatíu og Serb-
íu samþykktu í Róm um helgina að
viðræður múslima, Króata og Serba
í Bosníu skyldu hefjast að nýju.
Bosníu-Serbar höfðu hætt viðræð-
unum til að mótmæla framsali
tveggja serbneskra herforingja til
stríðsglæpadómstólsins í Haag.
„Hvernig geta einn eða tveir
menn stöðvað friðarþróunina? Þetta
er fyrir neðan allar hellur, það ætti
að draga þá til ábyrgðar," sagði
Leighton Smith flotaforingi, yfir-
maður friðargæsluliðs NATO í Bos-
níu. Hann sagðist þess fullviss að
pólitískir yfirmenn Tolimirs hefðu
viljað að hann mætti á fundinn.
Seint í gærkvöldi var síðan tilkynnt
að fulltrúi herliðs NATO myndi hitta
Tolimir í Pale, höfuðstað Bosníu-
Serba, fyrir hádegi í dag að ósk
Tolimirs.
Mostar sameinuð
Embættismenn NATO líta á Tol-
imir sem æðsta mann hers Bosníu-
Serba þar sem yfirmaður hans,
Ratko Mladic hershöfðingi, hefur
verið ákærður fyrir stríðsglæpi og
ætti að segja af sér samkvæmt frið-
arsarhningunum sem náðust í Dayt-
on í Bandaríkjunum.
Alija Izetbegovic, forseti Bosníu,
sagði í gær að í viðræðunum í Róm
hefði tekist að afstýra nýju stríði í
Mostar í suðurhluta landsins. Emb-
ættismenn múslima og Króata náðu
málamiðlunarsamkomulagi um
stjórn borgarinnar fyrir milligöngu
Evrópusambandsins á sérstökum
fundi í Róm. Mostar verður samein-
uð formlega í dag og íbúum hennar
tryggt fullt ferðafrelsi.
„Þetta merkir að allir vegatálmar
og eftirlitsstöðvar heyra sögunni
til,“ sagði Izetbegovic. Lögreglu-
sveit, skipuð múslimum og Króöt-
um, á að halda uppi lögum og reglu
í borginni með stuðningi lögreglu-
manna frá Króatíu og undir eftirliti
fjölþjóðlegrar sveitar.
Borgarstjóri hverfis múslima í
Mostar sagði af sér í gær í mót-
mælaskyni við niðurstöðuna í Róm,
sagði að of langt hefði verið gengið
til móts við kröfur Króata.
■ Hefjaaðnýju viðræður/18
Reuter
Hart barist
í New
Hampshire
ÓGERNINGUR er að spá um
úrslit forkosninganna, sem
haldnar verða um frambjóðend-
ur Repúblikanaflokksins til for-
setaframboðs í New Hampshire
í dag. Litlu munaði milli þriggja
frambjóðenda samkvæmt skoð-
anakönnun sjónvarpsstöðvarinn-
ar CNN. Samkvæmt könnuninni
hefur Pat Buchanan, dálkahöf-
undur og sjónvarpsfréttaskýr-
andi, 25%, Bob Dole, leiðtogi
meirihluta repúblikana í öld-
ungadeild Bandaríkjaþings, 24%
og Lamar Alexander, fyrrver-
andi ríkissljóri Tennessee, 20%.
Onnur könnun sýndi naumt for-
skot Doles á Buchanan.
Phil Gramm, sem hætti, lýsti
á sunnudag yfir stuðningi við
Doie, gaf þá ástæðu að hann vildi
koma í veg fyrir að Buchanan
færi með sigur af hólmi í New
Hampshire.
„Ef Dole væri kosinn með
stuðningsyfirlýsingum væri hann
nú þegar orðinn kóngur,“ voru
viðbrögð Buchanans.
Sigurvegarinn í prófkjöri New
Hampshire-manna þykir ávallt
sigurstranglegur. Forkosningar
þar hafa tvívegis bundið enda á
framboð Doles, 1980 og 1988.
Fyrir nokkrum vikum virtist
Dole, sem hér sést á vinnustaða-
fundi í New Hampshire í gær,
geta bókað sigur en nú virðist
allt geta gerst.
■ Alexander áskrið/17
Reuter
LEIGHTON Smith og Carl Bildt sýna spjald með myndum af 17 eftirlýstum stríðsglæpamönnum, þ.
á m. Radovan Karadzic og Ratko Mladic, í gær en alls er Iýst eftir 51 manni. Spjaldinu var dreift
meðal gæsluliðanna er eiga að handtaka mennina ef þeir rekast á þá.
Rcuter
Kohl segir lausn á deilu um stækkun NATO verða að bíða
Hrósar umbótum Jeltsíns
Moskvu. Reuter.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands,
sagði í gær að hann myndi ekki
víkja frá umbótastefnu sinni og
fagnaði Helmut Kohl, kanslari
Þýskalands, sem er í opinberri
heimsókn í Moskvu, orðum hans.
„Það er ekki hlutverk mitt að
fjalla um forsetakosningarnar í
Rússlandi, en sem kanslari Þýska-
lands fagna ég því að Borís Jelts-
ín skuli nú hafa tengt ósk sína
um að sitja annað kjörtímabil
umbótastefnunni," sagði Kohl.
Jeltsín og Kohl ræddust við í
gær og var framtíð Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) m.a. á dag-
skrá. Rússar hafa lýst sig andvíga
því að hleypa ríkjum Mið- og Aust-
ur-Evrópu inn í bandalagið.
„Við erum sammála um öll al-
þjóðleg mál, en við erum algerlega
andvígir stækkun NATO,“ sagði
Jeltsín á blaðamannafundi. „Rúss-
ar vita hvað NATO rnerkir." Kohl
andmælti Jeltsín ekki og lét nægja
að segja: „Eg er viss um að við
munum finna lausn, en það mun
örugglega ekki gerast nú.“
Kohl kanslari sagði að hægt
yrði að finna leiðir til að taka
tillit til öryggishagsmuna Rússa
og tryggja um leið réttindi ríkja,
sem vildu ganga í bandalagið.
Þýskir jafnaðarmenn (SPD)
hafa gagnrýnt Kohl fyrir að snið-
ganga andstæðinga Jeltsíns í ferð
sinni og segja hana jafnast á við
stuðningsyfirlýsingu við forset-
ann. Þýska stjórnin hefur verið
undir þrýstingi um að gagmýna
Jeltsín vegna átakanna í
Tsjetsjníju, sem hafa staðið yfir
með hléum í 14 mánuði. Klaus
Kinkel, utanríkisráðherra Þýska-
lands, vísaði gagnrýninni á bug í
gær og sagði Kohl myndu ræða
við „öll pólitísk öfl, sem máli
skipta“.