Morgunblaðið - 20.02.1996, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 20.02.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 17 FRÉTTIR: EVRÓPA ERLENT ESB fjármagnar stærsta snjóhús í heimi FINNSKT ungbarn var skírt síð- astliðinn laugardag í kapellu stærsta snjóhúss í heimi, feikna- stórs snjókastala í Kemi í Norður- Finnlandi, rétt við heimskauts- baug. Kastalinn var að stórum hluta byggður með styrk frá Evr- ópusamhandinu, sem samþykkti að leggja fé í framkvæmdina til þess að útvega ungu, atvinnulausu fólki verkefni. Kastalinn hefur reynzt Kemi-búum mikil búbót. Unga fólkið fékk vinnu um stund- arsakir og ferðamenn hafa flykkzt til bæjarins. Kemi-búar vona að snjóhöllin komist í heimsmetabók Guinness. Israel væntir mik- ils af viðskipta- samningi við ESB Brussel. Reuter. ÍSRAEL væntir mikils af hinum nýja viðskipta- og samstarfssamningi við Evrópusambandið, sem tók gildi fyr- ir skömmu, að sögn Efraims Halevy, nýs sendiherra landsins í Brussel. „Samningurinn er okkur afar mik- ilvægur vegna þess að til viðbótar við hinn pólitíska þátt hans er kjarn- inn efnahagslegur," sagði Halevy á blaðamannafundi. „Hann mun gera okkur kleift að bæta mjög efnahags- lega velmegun í ísrael og efnahags- l_eg tengsl Evrópusambandsins og ísraels." Mjög hefur hallað á Israel í við- skiptum þess við ESB. Halevy sagði mikilvægt að auka útflutning til Evrópusambandsins og að samning- urinn myndi gera ísraelsmönnum það kleift. ESB virkara í friðarviðræðum Halevy sagðist ánægður með það að Evrópusambandið tæki nú virkari þátt í viðræðum um frið fyrir botni Miðjarðarhafs og vísaði til Miðjarðar- hafsráðstefnunnar, sem ESB stóð fyrir í Barcelona á Spáni á síðasta ári. Þar settu ESB og 12 Miðjarðar- hafsríki sér það markmið að koma á fríverzlunarsvæði á næstu fimmtán árum. Sendiherrann fagnaði einnig hug- myndum Sýrlendinga um að hefja viðræður við ESB um svipaðan samn- ing og þann, sem Israel hefur gert. Halevy sagði að allt, sem styrkti frið- arþróunina á svæðinu og greiddi fyr- ir viðræðum ísraelskra og sýrlenzkra stjórnvalda væri af hinu góða. Hann bætti því við að ein aðferðin til að beijast gegn öfgum og tryggja frið í Mið-Austurlöndum væri að bæta lífsskilyrði íbúanna. ESB gangi ekki of langt í viðræðum við Palestínumenn Halevy var hins vegar ómyrkur í máli er hann var spurður út í viðræð- ur Evrópusambandsins og heima- stjórnar Palestínumanna um aukin tengsl og gaf í skyn að ESB mætti ekki ganga of langt í því efni. Sendi- herrann sagði að ESB gæti ekki gert eða undirritað neinn samnings, sem svo mikið sem gæfi í skyn að sjálfstjórnarsvæði Palestínumanna væri sjálfstætt ríki að alþjóðalögum. Hann sagði að í maí myndu Israel og heimastjórn Palestínumanna hefja viðræður um nýja stjörnskipulega stöðu sjálfstjórnarsvæðisins og að fram að því yrði ESB að fara var- lega. „Enginn samningur getur gengið lengra en þegar hefur verið samið um á milli Israels og heima- stjórnar Palestínumanna," sagði Halevy. Prófkjörsbarátta repúblikana í Bandaríkjunum Alexander kemst á skrið á réttum tíma Washington. Reuter, The Daily Telegraph. LAMAR Alexander, fyrrverandi rík- isstjóra Tennessee, hefur nú loksins tekist að vekja á sér verulega at- hygli í prófkjörsbaráttu repúblikana fyrir forsetakosningarnar í nóvem- ber. Hann fékk góðan byr á besta tíma, náði þriðja sæti á kjörfundinum í Iowa á mánudag fyrir viku, og þykir nú líklegur til að velgja Bob Dole undir uggum. Alexander kveðst fullur bjartsýni fyrir prófkjörið mikil- væga, sem fram fer í dag, þriðjudag, í New hampshire og ekki að ástæðu- lausu því að samkvæmt skoðana- könnun sjónvarpsstöðvarinnar CNN, sem birtist um helgina, nýtur hann stuðnings 20% kjósenda í New Hampshire, aðeins fjórum prósentu- stigum á eftir Bob Dole og fimm prósentustigum á eftir Pat Buchan- an. Lamar Alexander fékk 18% at- kvæðanna í Iowa, en fyrir kjörfund- inn var hann á meðal þriggja eða fjögurra frambjóðenda sem voru ekki taldir eiga nokkra möguleika á að verða forsetaefni repúblikana, með 3-4% fylgi samkvæmt skoðanakönn- unum. Alexander klæðist oft köflóttum skyrtum eins og skógarhöggsmaður og þannig vill hann sýna á táknræn- an hátt að hann sé ólíkur hinum frambjóðendunum. Hann kynnir sig sem „utangarðsmann", sem haldi sér frá ráðandi öflum í Washington, og hann vill færa ýmsa málaflokka, eins og menntamál, frá alríkisstjórninni til ríkjanna. Frambjóðandinn minnist sjaldan á að hann var menntamálaráðherra í stjórn George Bush á árunum 1991-93. Andstæðingar hans segja og að hann hafi notfært sér pólitísk sambönd sín til að auðgast og eigi öfluga vini meðal áhrifamanna í Repúblikanaflokknum. Alexander leggur hins vegar áherslu á að hann sé ekki frá Wash- ington. „Ég var þar nógu lengi til að að verða bólusettur en smitast ekki.“ Of líkur Carter? Alexander hóf prófkjörsbaráttu sína fyrir tveimur árum og hefur m.a. lagt til að laun bandarískra þingmanna verði lækkuð og að þeir gegni þingmennsku í hlutastarfi. Sú hugmynd hefur þó ekki fengið mik- inn hljómgrunn meðal repúblikana, sem eru nú í meirihluta á Bandaríkja- þingi. Honum hefur gengið illa að vekja athygli fjölmiðia og kynna sjónarmið sín. Margir kjósendur segj- ast kunna vel við hann en telja sig lítið vita um stefnu hans. LAMAR Alexander leikur „America the Beautiful" í skóla í New Hampshire. Honum hefur einnig gengið illa að afla fjár til baráttunnar. Hann stefndi að því að safna 20 milljónum dala, 1,3 milljarði króna, í fyrra en náði aðeins 12 milljónum dala, 990 milljónum króna. Stór hluti þeirrar fjárhæðar fór í fjáröflunina og skipu- lagningu baráttunnar. Alexander þykir ekki gæddur rriiklum persónutöfrum og ekki mik- ill ræðumaður. Andstæðingar hans segja hann of silalegan frambjóðanda og alltof líkan Jimmy Carter, fyrrver- andi forseta, en stuðningsmenn hans telja hann álitlegan kost fyrir repú- blikana í stað Bobs Doles. Óhefðbundnar aðferðir Lamar Alexander fæddist í Tenn- essee 3. júlí 1940. Hann var kjörinn ríkisstjóri Tennessee árið 1978, þá 38 ára, og gegndi því embætti í átta ár. Andstæðingar hans í prófkjörinu saka hann um að hafa hækkað skatta og aukið útgjöld ríkisins. Sjálfur seg- ist hann hins vegar hafa eytt fjár- lagahaila ríkisins og skapað mikinn hagvöxt í ríkinu með því að laða þangað stór fyrirtæki í hátækniiðn- aði. Hann þykir fær píanóleikari og á það til að leika knæputónlist á próf- kjörsfundum ásamt gítarleikara frá Nashville. Hann hefur lagt mikla áherslu á að vekja á sér athygli í þeim ríkjum, sem hefja prófkjörið, og gekk til að mynda um 130 km leið frá Concord, höfuðstað New Hampshire, til Portsmouth. Sú ganga mun þó ekki hafa aukið vinsældir hans eins mikið og hann hafði vænst. Niðurstaða kjörfundarins í Iowa bendir til þess að Steve Forbes, sem hefur hingað til veitt Bob Dole mesta keppni, hafi komist á skrið of snemma og skriðþunginn sé nú að dvína. Lamar Alexander virðist hins vegar hafa fengið byr undir báða vængi á réttum tíma. Hann getur nú kynnt sig sem trúverðugan fram- bjóðanda og traustan kost fyrir repú- blikana; hvorki eins tengdan stjórn- kerfinu í Washington og Dole né eins skaðlegan flokknum og forsetafram- boð Forbes eða Pats Buchanans gæti reynst. Leigðu hjd sjdífum þérfyrir —————-—-— Zja herbergja Kaupverð 6.200.000 Undirritun samnings 300.000 Húsbréf 70% (í 25 ár) 4.340.000 Lán seljanda* 1.000.000 Við afhendingu 560.000 Meðal greiðslubyrði á mán.** 32.913 3ja herbergja Kaupverð 6.950.000 Undirritun samnings 300.000 Húsbréf 70% (í 25 ár) 4.865.000 Lán seljanda* 1.000.000 Við afhendingu 785.000 Medal greidslubyrdi á mán.** 36.013 *Veitt gegn traustu fasteignaveöi, vextir 7,4% til 20 ára. **Ekki tekiö tillit til vaxtabóta sem geta numiö allt aö 15.000 kr. á mánuöi 32.913, - kr. á mán. og eignastu íbúðina á 25 árum Erum að selja 2ja og 3ja herbergja íbúðir við Berjarima og Vallengi í Grafarvogi og Lækjasmára í Kópavogi. Skemmtileg staðsetning með góðu útsýni. íbúðirnar eru með sérinngangi og afhendast fullbúnar til inn- flutnings. Permaform hús eru steypt á staðnum, með veðrunarkápu og öll hin vönduðustu. Komdu við á skrifstofu okkar að Funahöfða 19 og kynntu þér málið. % Opið laugardag og sunnudag, frá kl. 13.00 til 15.00. Ármannsfell hf. Funahöfða 19 • sími 587 3599 http://nm.is/armfell STOFNAÐ 1965
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.