Morgunblaðið - 20.02.1996, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 20.02.1996, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 27 AÐSENDAR GREINAR Þjóðardoði STUNDUM er eins og íslenska þjóðin sé dofin fyrir ýmiss konar uppátækjum forsvars- manna sinna og þeir fái óáreittir að stefna þjóðarhag í tvísýnu. Dæmi um þetta er ginnungagapið Hval- fjarðargöngin. Mér hefur fundist þessi j arðgangahugmynd svo fráleit að ekki tæki því einu sinni að lesa greinar um efnið, því engum gæti í alvöru dottið í hug að farið yrði að framkvæma jafn tvísýnt verk. Nú heyrist að slíkt sé yfirvofandi. Rétt er að athuga örfáar stað- reyndir máls þessa. Um þetta efni Þetta er tvímælalaust glæfrafyrirtæki, segir Gunnlaugur Þórðar- son, og ekki einleikið. hafa m.a. birst tvær merkar grein- ar hér í blaði 19. og 23. des. sl. eftir Friðrik H. Guðmundsson verk- fræðing, þar sem varað var við glapræðinu. Fyrst má geta þess, að lítil sem engin reynsla er til í gerð neðan- sjávarganga í gegnum gosberg og basalt eins og er hjá okkur. Að vísu hafa Norðmenn gert ein slík göng en þar mun aðallega hafa verið um granít að ræða. Japanir hafa líka gert ein slík göng, en þar lentu menn í miklum vandræðum og göngin urðu miklu dýrari en áætlað hafði verið. Nú hafa tveir tugir Japana verið lokaðir inni í fleiri daga í jarðgöngum, sem hrundu þar saman. Lekavandræðin og andrúms- loftsgæðin eru vandamál, sem t.d. hefur reynst Dönum erfitt viðfangs og hefur leitt til verulega aukins kostnaðar við gerð Stórabeltis- ganganna. Enda er við Hvalfjarðar- göngin gert ráð fyrir margra millj- óna stöðugum kostnaði við dælingu vatns, sem leka mun ofan í göngin, og vegna loftræstingar. Gerð ganganna mun án efa kosta mannslíf og háskinn við að fara um þau er meiri í jarðskjálftalandi eins og okkar, en t.d. undir Ermar- sund. Slysahætta er líka meiri vegna brattans, sem verður án efa um 8%. Göngin verða nærri 6 km upp og niður, bein braut, brattari en bröttustu brekkur í Kömbum. Mér er ekki kunnugt um neinn íslenskan verkfræðing, tæknifræð- ing né arkitekt, en þeir verða að standa ábyrgir fyrir gerðum sínum, sem fæst til að taka ábyrgð á eða jafnvel mæla með jarðgöngunum. Hins vegar hafa jarðfræðingar, sem bera ekki sams konar ábyrgð og hinir fyrrtöldu, gefið vafasöm álit um ástand jarðvegsins, að sagt er. Gert er ráð fyrir að kostnaður við að reka göngin verði vegna gjaldtöku og eldvarna um 130 millj- ónir á ári eða meiri en rekstur eins Vorvörurnar streyma inn Dragtír, kjólar, blússur og pils. Ódýrnóttfatnaður Nýbylavegi 12, sími 554 4433 héraðssjúkrahúss. Þá er ekki reiknað með áðurtöldum dælu- kostnaði. Nýlega er búið að færa staðsetningu hinna fyrirhuguðu ganga utar í fjörðinn, þannig að við það styttist leiðin til Akra- ness, en leiðin norður verður lengri en í fyrstu var ráðgert. Enda er aðalkosturinn við göngin sá, að Akur- nesingar verða fljótari Gunnlaugur til Reykjavíkur, en það Þórðarson verður jafn dýrt fyrir þá og áður. Fjárhags- legt hagræði á þjóðarvísu er ekkert. Tengivegir að göngunum munu kosta allt að milljarð. Einfaldari og miklu öruggari leið væri að laga veginn um Dragháls og að stytta leiðina um Hvalfjörð, enda mælir Vegagerðin með því. Nú hefur og spurst að binda eigi hendúr framkvæmdavaldsins þann- ig að vegurinn um Hvalfjörð fái lágmarksviðhald og ekki verði heimilað næstu 20 árin að stytta hann meira en um tvo kílómetra. Tilgangurinn er að þvinga fólk ofan í göngin. Fyrir erlenda ferðamenn yrði þetta óskiljanleg athafnasemi og til leiðinda, því fegurð Hvalfjarð- ar er mikil. Fjármögnun gapsgerðarinnar er sérstök að því leyti að erlendir aðil- ar eiga að fá 700 milljónir fyrir milligöngu um útvegun fjármagns erlendis. í fyrstu var miðað við að göngin kostuðu 2,8 milljarða, en nú er reiknað með a.m.k. 3,3 millj- örðum. Verst er þó að Alþingi skyldi láta hafa sig til að veita eins millj- arðs ríkisábyrgð, sem hætt er við að eigi eftir að margfaldast, þegar verkið verður korflið í óefni, því ekki munu hinir erlendu verktakar líða það að fá ekki að ljúka verk- inu. I þessu sambandi ber og að hafa í huga, að hinir erlendu verk- takar verða eftirlitslausir í göngun- um og geta alltaf komið með auka- kostnað, sem jafnvel væri ekki fót- ur fyrir. í endurminningum sínum „Plain Speaking" heldur Harry S. Tru- man, hinn merki Bandaríkjaforseti, því fram að allir menn séu falir, aðeins verðið sé mismunandi. Manni gæti dottið í hug að slíkt eigi við í þessu máli, því þetta er tvímæ'ialaust glæfrafyrirtæki og ekki einleikið. Ef það er rétt að íslenska þjóðin, sem er 260.000 manns, treysti sér út í svona ævintýri, sem stæði í milljónaþjóð, þá er það rannsóknar- efni út af fyrir sig. Doði fyrir svona athafnasemi má ekki heltaka þjóðina. Höíundur er lögmaður. CHARLIE MÖRKINNI 3 • SlMI 588 0640 Kosningar til formanns í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar Þitt er valið UNDANFARNA daga hafa Grétar Magnússon og Marías Sveinsson, tveir fram- bjóðendur til formanns í Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar og þeirra stuðningsmenn farið á vinnustaði og ritað í dagblöð. Mál- flutningur þeirra héfur fyrst og fremst ein- kennst af fagurgala um eigið ágæti og ótrúlegri málefnafátækt. Þá hafa þeir lýst fulltrúa- ráð og stjórn félagsins óhæf til forystu í félag- inu. Það er svo sem að vonum því 8 af 10 stjórnarmönnum hafa lýst yfir stuðningi við mig sem formann félagsins. Þeir félagar segjast vilja breyta félaginu. En hveiju og hvemig? Hef- ur einhver heyrt það? Þeir hafa ein- faldlega ekki getað bent á neitt sem tekur fram því skipulagi sem nú rík- ir. Allt tal þeirra um breytingar á félaginu ber vott um fákunnáttu um innviði félagsins og hlutverk þess. Gagnrýni er nauðsynleg en menn verða að vita um hvað þeir eru að tala. Það er nú einu sinni svo að ijöldi fólks vinnur mikið og gott starf á vettvangi félagsins og miðlar upplýs- ingum til sinna félaga. Það fólk á ekki skilið þá einkunn sem þeir félag- ar gefa því og störfum þess fyrir félagsmenn. Ekki má heldur gleyma þeirri lítilsvirðingu sem svona mál- flutningur er gagnvart starfsmönn- unum á skrifstofu félagsins. Hvar hafa þeir verið undanfarin ár, þeir Marías og Grét- ar? Hvernig hafa þeir rækt þessa skyldu sína? Báðir hafa þeir gegnt trúnaðarstörfum í fé- laginu en hvorugur þeirra komið með eina einustu tillögu varðandi innra starf þess. Grétar hefur þó setið í fulltrúa- ráði í tvö ár. Marías afrekaði það að vera fyrstur örfárra strætis- vagnabílstjóra sem hlupu út úr félaginu þegar til stóð að einka- væða SVR. Hann var þá annar aðaltrúnaðar- maður sinnar deildar. Það var nú sóminn sem hann vildi sýna sínum félögum. Unnið er að ýmsum málum, segir Sjöfn Ingólfsdóttir, til að auðvelda upplýsinga- miðlun og samskipti félagsmanna. St.Rv. er margskipt félag og þeir sem veljast í fulltrúaráð og nefndir hafa það hlutverk að tengja foryst- una við hinn almenna félagsmann. Það er oft á tíðum mikið verk þar sem deildir eru dreifðar og skiptast á marga starfsstaði. Mánaðarlega eiga þeir sem skipa fulltrúaráðið, alls 136 fulltrúar úr öllum deildum félagsins, þess kost að hittast og deila með sér upplýsingum og reglu- lega eru formenn deildanna kallaðir til fundar með formanni félagsins. Hvernig hafa þeir Marías og Grétar kynnt þau málefni sem verið er að vinna að i félaginu? Hvað með starfsmenntamálin? Hvað með und- irbúning starfsmats? Hvað með und- irbúning næsta kjarasamnings? Hvað með B-deild félagsins? Hvað hafa þessir menn 'gert til að kynna sér þessi mál og mörg önnur sem verið er að vinna að í félaginu? Lít- ið sem ekkert og það kemur líka berlega í ljós þegar þeir eru spurðir. Á vettvangi félagsins er nú unnið að ýmsum málum til að auðvelda upplýsingamiðlun og samskipti fé- lagsmanna. Uppi eru hugmyndir um að ráða starfsmann til að hjálpa deildum félagsins að vinna sín störf, vinna markvisst að undirbúningi kja- rasamnings og fleira. .Einnig er í undirbúningi opin hugmyndasmiðja þar sem félagsmönnum, fulltrúaráði og stjórn er gefínn kostur á að hitt- ast á „nýjum“ vettvangi og leita nýstárlegra leiða til þess að bijóta á bak aftur láglaunastefnuna. Ágæti félagi. Ég hef í fimm ár verið formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Ég býð mig fram til þess starfs áfram ásamt þeirri þekkingu og reynslu sem ég hef aflað mér. Ég bið þig um að íhuga vandlega hvar þú setur kross- inn á kjördag. Með félagskveðju Höfundur er formaður Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar. Sjöfn Ingólfsdóttir Sssvstijw HÚTEL ÍSLAKIO KYNNIR EHMA BESTU TÚIÍIUSTAROAGSKRÁ ALLRA TÍMA: •a=n m / « 'GB KYIMSLÓBIIV CI/CMMTID criri rnmmtmrm M MMM mmMMmmmM BESTU LÚE ÁRATUEARIIXS í FRÁBÆRUM FLUTIXIIXEI SÖIXEVARA, BAIXSARA BE 1B MAIXIXA HLJBMSVEITAR EUIXIXARS PBRBARSBIXAR Söngvarar: Björgvin Halldórsson, Pálmi Gunnarsson, Ari Jónsson, Bjami Arason og Söngsystur. Hljómsveit: Gunnar Þórðarson, ásamt 10 manna hljómsveit og dönsurum. Kynnir: Þorgeir Ástvaldsson. Handrit, útlit og leikstjóm: Björn G. Bjömsson. JKaíseðifl ffoiWUui': fffinflcmeþjHmtþa *. (óulréUun: &Usteiktw% fanikaaoifw/ned q/jaSu Tjrœnmetíý pjmteiktu/ii /ur4cfm/» <hj mlhcrjtmm. yJtiM’Uur: fferxfijuk i hrauSöiJi/ /neé /citriharamel/mmu. Verð krðnur 4.800, Sýningarverð kr. 2.200,- HÓTEL glM) í Ásbyrgi er söngvarinn og hljómborðsleikarinn Gabriel Garcia San Salvador. tmh ... ■.. iSír - Næstu sýningan 24. febrúar inars: 2., 9., 23. og 30. apríl: 13., 20. og 27. Vinsamlegast hafið samband, sími: 568-7111. Enginn aðgangseyrir á dansleik. - Sértilboð á hótelgistingu, sími 568 8999
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.