Morgunblaðið - 20.02.1996, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 20.02.1996, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ -J MIIMINIINGAR t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HÖRÐUR ÞÓRARINSSON múrarameistari, Hafnarfirði, lést í Borgarspítalanum aðfaranótt laugardagsins 17. febrúar. María Helgadóttir, Ásbjörn Harðarson, Svana Björk Karlsdóttir, Kristfn Harðardóttir, Tómas Tómasson, Helgi Harðarson, Kristbjörg Lilja Jónsdóttir, Jóhann Harðarson, Brynja Brynjarsdóttir og barnabörn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, UNNUR GUÐNÝ ELÍNBORG ALBERTSDÓTTIR, Selbrekku 40, Kópavogi, sem lést 10. febrúar sl., verður jarð- sungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, þriðjudaginn 20. febrúar, kl. 13.30. Hrönn Þórðardóttir, Jónas Karlsson, Gunnar Þórðarson, Rannvejg R. Viggósdóttir, Geir Þórðarson, Huldís Ásgeirsdóttir, Erlendur Þór Þórðarson, Guðrún Helga Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA SVANLAUGSDÓTTIR THORSTENSEN, vistheimilinu Seljahli'ð, lést í Landspítalanum að morgni 11. febrúar. Bálför hennar var gerð í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 11 -G á Landspítalanum og starfsfólks vistheimilisins Seljahlíðar. Sonja Thorstensen, Jón B. Skarphéðinsson, Sigurður I. Thorstensen, Guðriður V. Guðjónsdóttir, Tryggvi D. Thorstensen og aðrir aðstandendur. GÍSLIÁGÚST G UNNLA UGSSON + Gísli Ágúst Gunnlaugsson fæddist í Reykjavík 6. júní 1953. Hann lést á heimili sínu, Ölduslóð 43 í Hafnarfirði, 3. febrúar siðastliðinn og fór út- förin fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 12. febrúar. HÁSKÓLI íslands leigði húsnæði á Neshaga 16 fyrir fimm árum. Inn á ganginn á annarri hæð fluttu sjö lektorar í mismunandi greinum. Gísli Ágúst var einn af okkur í þessu litla útibúi, örlátur, glaðlynd- ur og elskaður. Við fylgdumst orð- vana með fyrstu einkennum sjúk- dóms hans og kvöddum hann með sorg þegar hann varð að flytja í aðra byggingu með hentugra að- gengi. Við vottum Berglindi og börnum hans innilegustu samúð okkar. Sömuleiðis foreldrum Gísla og Ólöfu. Hér við skiljumst og hittast munum á feginsdegi fira; drottinn minn gefi dauðum ró, en hinum líkn, er lifa. (Ör Sólarljóðum.) Við kveðjum frábæran fræði- mann og góðan vin. Asdís Egilsdóttir, Dagný Krisljánsdóttir, Oddný Sverrisdóttir, Helgi Þorláksson. Hann kenndi okkur öllum mönn- um betur að meta lífið sjálft, lífs- andann í brjósti okkar. Umbúðirn- ar voru orðnar lítilfjörlegar í aug- um þeirra sem ekki þekktu mann- inn, en okkur sem höfðum þekkt hann öll fullorðinsárin reyndist það auðvelt að skynja hann og skilja og gleðjast með honum af öllu því sem gladdi hann, vakti áhuga hans, lét hann gleyma líkamanum og t Systir okkar, ÁSTA GUÐJÓNSDÓTTIR, Njörvasundi 22, lést á vistheimilinu Kumbaravogi laugardaginn 17. febrúar. Systkini hinnar iátnu. Ástkær eiginkona mín og móðir, GUÐBJÖRG GÍSLADÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 18. febrúar. Sigurþór Þorsteinsson og börn. t Faðir okkar, tengdafaðir og afi, RAGNAR F. JÓNSSON frá Norður-Vík, Stigahlíð 2, Reykjavík, sem lést 16. febrúar sl., verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju fimmtudag- inn 22. febrúar kl. 10.30. Gunnlaugur Ragnarsson, Arnbjörg V. Ragnarsdóttir, Ragnhildur Ragnarsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Jón og Hildur Margrét. Lokað Lokað í dag frá kl. 12.00 vegna jarðarfarar BJARNA SVEINBJARNARSONAR. Verslunin Útilif, Glæsibæ. Islenskur efniviður íslenskar steintegundir henta margar afar vel í legsteina og hverskonar minnismerki. Eigum jafnan til fyrir- iiggjandi margskonar íslenskt efni: Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró. Áralöng reynsla. Leitiö upplýsinga. --I— i . Sf S. HELGASON HF STEINSMIÐJA SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 557 6677 + Elskulegur eiginmaður minn og bróðir, NIELS HÖBERG-PETERSEN, Vesturgötu 20, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 21. febrúar kl. 13.30. Ingebjörg Höberg-Petersen, Petra Mogensen. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, Heiðargerði 96, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 23. febrúar kl. 13.30. Jón Frímann Eiríksson, Steinunn Asta Björnsdóttir, Ester Eiríksdóttir, Örn Ingvarsson, Anna Maria Jónsdóttir, Anna Margrét Arnardóttir, Kristmundur Þórisson, Eiríkur Frímann Arnarson, Kristín Bjarnadóttir, Erna Arnardóttir og barnabarnabörn. + Hjartans þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns, föður okk- ar, afa og langafa, ÞÓRBJÖRNS A. JÓNSSONAR, Maríubakka 12, Reykjavík. Blessun Guðs veri með ykkur öllum. Guðmunda Árnadóttir, Birgir, Guðrún, Ásdis og fjölskyldur. fötluninni. Hann varð að finna lífið upp á nýtt síðustu árin og virkja alla í kringum sig til fylgis, máttfarinn á líkama komst hann með öflugu liðsinni þangað sem hann ætlaði sér. Hann gafst aldrei upp, lét aldrei vorkunnsemi ann- arra rugla sig í ríminu eða að hann leyfði sér að gráta örlög sín. Við köllum það viljastyrk í daglegu tali, en orðið er nánast lítilfjörlegt þegar lýsa á því afli sem Gísli Ágúst hafði í brjósti sér. Það var varla þessa heims. Ef einhver okk- ar sem heilbrigð erum, hefðum þetta afl í daglega lífinu, þá væru okkur allir vegir færir, við gætum breytt því í kringum okkur sem okkur sýndist, gert alla drauma að veruleika. En hafði Gísli Ágúst ekki alltaf gert drauminn að veruleika? Var ekki líf hans allt vígt nýjum leiðum að háleitum markmiðum? Lét hann nokkurn tíma aðstæður eða vana- hugsun stjórna sér? Verk hans verða ekki rakin hér, þeim gera aðrir gleggri skil, en metnaðurinn sem að baki þeim lá, leiðimar sem hann valdi gegnum torfærunar, voru stöðug þjálfun, sem var samof- in persónu hans og afstöðu til lífs- ins. Bjartsýnin, framkvæmdavilj- inn, þörfin að skapa úr tímanum eitthvað sem öðram gat gagnast, flutt gat mál fram, varpað ljósi á áður ókannaðar lendur vísindanna - virkur þátttakandi í samtímanum, og áhorfandi að liðnum atburðum úr fjarska tímans, allt í senn. Ég kynntist Gísla Ágúst þegar leiðir okkar Berglindar, eiginkonu hans, lágu saman í utanríkisþjón- ustunni fyrir tæpum tveim áratug- um. Þau urðu mér strax nákomin, eins og ég hefði þekkt þau alla ævi og myndi eiga þau að til eilífð- ar sem var langt í burtu því við gengum saman fyrstu spor fullorð- insáranna og eilífðin kom okkur ekki við. Aldrei kom ég af þeirra fundi öðru vísi en betri maður, lífs- glaðari, bjartsýnni, efld af þekk- ingu sem þau miðluðu, áhuga þeirra á öllum í kringum sig, góðlátlegu gríni yfir lífinu og til- verunni og einhveijum þeim verk- efnum sem þau höfðu hellt sér út í og sögðu frá. í epdurminningunni birtist mér Gísli Ágúst sem ímynd hreystinnar, hinnar heilbrigðu, já- kvæðu lífsafstöðu, lífsglaður og skemmtilegur; drengur góður. Þannig lifir hann hjá mér og vinum hans meðan við lifum og þannig lifir hann hjá börnunum sínum sem alltaf munu eiga föður sinn hjá sér í hugarfylgsnunum, þótt hann birt- ist þeim ekki lengur og geti ekki vakað yfir velferð þeirra, eða séð þau breytast úr börnum í fullorðið fólk. Það var ógleymanlegt að sjá Gísla með börnunum sínum, hann talaði við þau af virðingu og hlust- aði á þau af athygli. Við munum þá gleði, alúð og kærleika sem fylgdi honum hvert fótmál og við grátum örlög hans og okkar að hafa misst hann svo ungan. Lífs- gleðin, sem við nutum saman þá, víkur nú fyrir sorginni og hryggð- inni. Nú er hann okkur fyrirmynd í erfiðleikum, uppspretta afls, við eigum lífskraft hans og viljastyrk að fyrirmynd, við grátum hann genginn. Kærleikurinn er stærstur. Fyrst og fremst umvafði Gísli alla í kringum sig kærleika og ástríki. Þel hans til Berglindar, stuðningur við hana og aðdáun hans á kon- unni sinni geislaði af honum hvar sem þau fóru. Berglind var honum allt og auk þess var hún og börnin eldsneytið sem knúði hann áfram, og efldi til dáða. Við Kjartan kveðj- um vin okkar í djúpri þökk og vottum fjölskyldunni allri okkar innilegustu samúð. Sigríður Ásdís Snævarr. Erfidrykkjur Kiwanishúsið, Engjateigi 11 s. 5884460
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.