Morgunblaðið - 20.02.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.02.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 39 Þegar vinur er kvaddur í hinsta sinn leita óhjákvæmilega á hugann ósamstæð minningarbrot honum tengd, eða myndir af augnablikum sem eru á einhvern hátt einkenn- andi fyrir skapgerð hans og eigin- leika. Þegar ég hugsa til baka um samskipti okkar Gísla Ágústs er margs að minnast, en efst í huga er stund sem við áttum saman með sameiginlegum vini á útiveitinga- stað í miðborg Óslóar á sólríkum ágústdegi fyrir rúmu ári. Það sem gerir málsverðinn minnisstæðan er ekki aðeins birta og hlýja náttúr- unnar þennan dag, heldur enn frekar sú bjartsýni og orka sem geislaði af Gísla á meðan við sátum og spjölluðum saman. Hann bar þá þegar augljós merki þess sjúk- dóms sem dró hann að lokum til dauða, en hann lét samt engan bilbug á sér finna. Þannig útlistaði hann fyrir okkur áætlanir sínar um rannsóknir næstu ára, og það var greinilegt að hann ætlaði ekki að leggja upp laupana þótt líkam- legur styrkur færi þverrandi. Gísla Ágústi entist ekki aldur til að ljúka öllum þeim verkum sem hann hafði ætlað sér, enda tekur starf fræðimannsins aldrei enda. Ótrúlegt má þó virðast þeim sem voru honum ekki kunnugir hve miklu hann kom í verk, ekki síst fyrir þá sök að allt hans handbragð var vandað hvar sem á það er lit- ið. Það sem gerði Gísla þó kannski enn eftirtektarverðari var að þrátt fyrir ótrúleg afköst í rannsóknum fór því flarri að hann helgaði líf sitt þeim eingöngu. Ég kynntist aðeins úr fjarlægð margháttuðum störfum hans fyrir Hafnarfjarð- arbæ, en varð hins vegar vitni að þeirri elju sem hann sýndi í starfí sínu við Háskóla íslands og fyrir Sögufélag. Hann var t.d. einn ást- sælasti kennari sagnfræðiskorar, leiðbeindi fjölda nemenda við samningu lokaverkefna, gegndi ýmsum trúnaðarstörfum bæði fyrir skor sína og deild, auk þess sem hann ritstýrði tímaritinu Saga um árabil. Innri styrkur manna birtist kannski aldrei betur en þegar þeir heyja baráttu sem þeir eiga enga von um að vinna. Flestir gefast upp og annaðhvort sætta sig við orðinn hlut eða formæla óréttlæti örlaganna; aðrir gera hvorugt, heldur tvíeflast og beita kröftum sínum til hins ítrasta þar til yfir lýkur. Gísli Ágúst tilheyrði sannar- lega síðari hópnum; hann hopaði hvergi, heldur óx við hveija raun. Ég hafði borið mikla virðingu fyrir honum allt frá þeim tíma er ég kynntist honum fyrst fyrir rúmum 15 árum, en sú virðing breyttist í aðdáun þegar ég varð vitni að þeirri ró og stillingu sem yfir hon- um hvíldi í veikindum hans. Á hveijum degi kom hann til vinnu og skilaði sínu verki betur en bú- ast mátti við af fullfrískum manni. Ég minnist þess til dæmis að sænskur nemandi sem hingað kom sem gistinemandi síðastliðið vor- misseri hafði orð á að aldrei hafi hann tekið betra námskeið á sínum ferli en það sem hann tók hjá Gísla. Þar að auki sótti Gísli virtar ráð- stefnur bæði í Ameríku og Evrópu, þar sem hann hélt fyrirlestra og skrifaði greinar sem birtust í viður- kenndum fræðiritum austan hafs og vestan. Honum var ljóst að ævin er oft styttri en við kjósum og hann vildi koma eins miklu í verk og hann gat áður en yfir lyki. í baráttu sinni naut hann óbilandi aðstoðar fjölskyldu sinnar, og að- stoðarmaður hans, Ólöf Garðars- dóttir sagnfræðingur, studdi hann dyggilega við vinnuna fram á síð- ustu stund. Ég sendi foreldrum og systkin- um Gísla, Berglindi og börnunum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guðmundur Hálfdanarson. 0 Fleiri minningargreinar um Gísla Ágúst Gunnlaugsson bíða birtingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, MARINÓ ÓLAFSSON, Grenigrund 6, Kópavogi, andaðist á heimili sínu 17. febrúar sl. Sigrún Gestsdóttir, Líney Marinósdóttir, Karl Magnússon, Bent Marinósson, Birgitta Bóasdóttir. Þökkum innilega öllum þeim, sem auð- sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför eiginkonu minnar og móður, KATRÍNAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Birkihvammi 2, Kópavogi. Bjarni Jósefsson, Ragnheiður Bjarnadóttir. + Innilegar þakkir til þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, INGIMUNDAR JÓNSSONAR, Faxabraut 4, Keflavík. Steinunn Snjólfsdóttir, Jórunn E. Ingimundardóttir, Pétur H. Hartmannsson, Egill S. Ingimundarson, Ragnheiður E. Brigisdóttir, Valur S. Ingimundarson, Guðný S. Friðriksdöttir, Oddný Ingimundardóttir, Hermann Guðmundsson, Sigurður Þ. Ingimundarson, Halldís Jónsdóttir, Kristinn Ingimundarson, Friðrika J. Sigurgeirsdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför eiginkonu minnar, dóttur, móður, tengdamóður og ömmu, EYGLÓAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Skriðuseli 1, Reykjavík. Grétar Vilhelmsson, Guðmunda Ingvarsdóttir, Kristján Vilhelm Grétarsson, Emma Geirsdóttir, Jón Halldór Grétarsson, Katrin Lilja Ævarsdóttir, Arnþór Ólafur Grétarsson, Guðrún Ósk Sigurðardóttir, barnabörn og aðrir aðstandendur. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, BRYNDÍSAR EINARSDÓTTUR, Þykkvabæ 16, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks kraþba- meinsdeildar Landspítalans og heima- hlynningar Karitas. Stefán Pétursson, Einar Stefánsson, Bryndís Þórðardóttir, Pétur Stefánsson, Gyða Jónsdóttir, Þórunn Stefánsdóttir, Þormar Ingimarsson og barnabörn. + Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför konu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, VALBORGAR BJÖRGVINSDÓTTUR, Kaupvangi, Fáskrúðsfirði, Baldur Björnsson, Björgvin Baldursson, Anna Þóra Pétursdóttir, Birna Baldursdóttir, Bæring Bjarnar Jónsson, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Lokað eftir hádegi í dag vegna útfarar BJARNA SVEINBJARNARSONAR, framkvæmdastjóra. Borgarhella ehf., Smiðjuvegi 9, Kópavogi. + Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, SAMÚELS JÓNS SAMÚELSSONAR, Espigerði 20, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á gjörgæslu og deild A-4 á Borgar- spítala. Guðrún Halldórsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Pétur Björnsson, Guðrún Ösp Pétursdóttir, Jón Helgi Pétursson. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu mér samúð ög hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, JÓHANNSKRÚGER vélvirkja. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á deild A-3 Sjúkrahúss Reykjavíkur fyrir hlýhug og umhyggju. Hansína Lovisa Jónsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HALLGRÍMS ANTONSSONAR, Bárugötu 13, Dalvík. Eyvör Stefánsdóttir, Sólveig Hallgrímsdóttir, Anna Þórey Hallgrfmsdóttir, Stefán Hallgrímsson, Sigríður Gunnarsdóttir, Ragnhildur Hallgrimsdóttir, Þorkell Jóhannsson, Vilhelm A. Hallgrfmsson, Lilja Björk Reynisdóttir, Arnheiður Hallgrímsdóttir, Gunnar Þór Þórisson og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu vináttu og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamoður og ömmu, SOFFÍU I. JÓHANNSDÓTTUR, Hamraborg 18, Kópavogi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk deildar A-7 á Borgarspítalanum fyrir auðsýnda umhyggju og alúð. Hrafn Þórhallsson, Jóna Guðlaugsdóttir, Ingibjörg Þórhallsdóttir, Rúnar Karlsson, Jóhann Þórhaltsson, Joni Gray og barnabörn. Lokað Verslunarmiðstöðin Glæsibær verður lokuð í dag, þriðjudag, frá kl. 13-15 vegna útfarar BJARNA SVEINBJARNARSONAR. Verslunarmiðstöðin Glæsibær. Lokað verður í dag, þriðjudag, frá kl. 12 á hádegi vegna jarðarfarar BJARNA SVEINBJARNARSONAR. Sportmenn ehf. Adidas-umboðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.