Morgunblaðið - 20.02.1996, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl B69 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Mikill fíkniefnafundur á Keflavíkurflugvelli
Fjórir með hundruð
gramma af fíkniefnum
FÍKNIEFNAEFTIRLIT tollgæzl-
unnar á Keflavíkurflugvelli gerði á
sunnudag upptækt verulegt magn
af fíkniefnum og mun þessi fundur
vera eitt stærsta mál sinnar teg-
undar, sem upp hefur komið. Efn-
in fundust í fórum þriggja far-
þega, sem voru að koma til lands-
ins frá Amsterdam, og var fólkið
handtekið ásamt fjórða manni, sem
var að taka á móti einum farþegan-
um.
Að sögn tollgæzlunnar á Kefla-
víkurflugvelli er málið á mjög við-
kvæmu rannsóknastigi og efnin í
greiningu. Grunur leikur á að hér
sé um að ræða eitt stærsta fíkni-
efnasmyglmál í langan tíma og
staðfestist það þegar efnagrein-
ingu lýkur. Efnin eru mörg hundr-
uð grömm að þyngd, og eru þar á
meðal svokallaðar E-pillur, og
„hvítt efni“ sem enn er í efnagrein-
ingu.
Málið er í rannsókn en búizt er
við að línur skýrist í dag.
Morgunblaðið/RAX
Bankastjórar Búnaðarbankans fund-
uðu með viðskiptaráðherra í gær
Engin fyrirmæli
voru gefin um
vaxtalækkun
Þórhall-
ur fram-
seldur
ÞÓRHALLUR Ölver Gunnlaugs-
son, kenndur við Vatnsberann, var
í gær framseldur til íslands frá
Danmörku. Hann hefur setið í
gæsluvarðhaldi í Kaupmannahöfn
frá 26. janúar sl.
Handtökubeiðni var gefin út á
hendur Þórhalli í janúar sl. eftir
að hann mætti ekki til afplánunar
á 2 Vi árs fangelsisdómi sem hann
var dæmdur í af Hæstarétti í nóv-
ember sl. fyrir stórfelld skattalaga-
og fjársvikabrot.
Handtekinn af dönsku
lögreglunni
Strax kom upp grunur um að
hann hefði farið úr landi og var
Interpol þegar gert viðvart. Nokkr-
um dögum síðar var Þórhallur
handtekinn í Kaupmannahöfn og
úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Dómsmálaráðuneytið fór fram á
að hann yrði framseldur til íslands
og hefur dómsmálaráðuneytið ytra
haft þá beiðni til umfjöllunar í þijár
vikur. Þórhallur var fyrst úrskurð-
aður í viku gæsluvarðhald sem síð-
an var framlengt um tvær vikur.
Dómsmálaráðuneytið danska sam-
þykkti framsalið í gærmorgun og
kom Þórhallur til landsins í gær-
kvöldi. Hann var færður í Síðu-
múlafangelsi.
ÚTLIT er fyrir óvenju háa sjávar-
stöðu í Faxaflóa- og Reykjanes-
höfnum á morgunflóði í fyrramálið
og jafnvel einnig við norðanvert
Snæfellsnes, vegna mjög hvassrar
suðvestan- og vestanáttar.
Gæti endað með fárviðri
Um þessar mundir er óvenju stór-
streymt og þykir rík ástæða til
fyllstu aðgæslu vegna mikillar öldu-
hæðar og veðurhæðar í fyrramálið,
þó svo að loftþrýstingur sem mikil
áhrif hefur á sjávarhæð verði ekki
mjög lágur. Þetta er niðurstaða
fundar sem haldinn var í gærmorg-
un, en þá komu veðurfræðingar á
Veðurstofu íslands og sérfræðingar
frá Vita- og hafnamálastofnun og
Háskóla íslands saman til fundar
vegna yfirvofandi sjávarflóðahættu.
Sigurður Jónsson, veðurfræðing-
ur á Veðurstofu íslands, segir spár
Saltið eimað
ÍSLENSK sjóefni hf. á Reykja-
nesi framleiðir baðsalt fyrir
Bláa lónið, og var Þorsteinn
Einarsson önnum kafinn við að
eima baðsalt úr sjó sem tekinn
er úr lóninu þegar ljósmyndari
Morgunblaðsins átti leið hjá í
gær.
gera ráð fyrir 10-11 metra ölduhæð
og 9-10 vindstigum vestur af land-
inu. „Þetta gæti orðið fárviðri, en
núverandi spá getur bæði breyst til
betri og verri vegar. Við endurskoð-
um þá þætti sem hafa áhrif á flóða-
hæð fyrir hádegi á þriðjudag og þá
vitum við rneira," segir hann. Sig-
urður segir ástæður þessara veður-
horfa vera samspil á milli lægðar
sem kemur yfir Grænlandsjökul og
mjög sterkrar hæðar fyrir sunnan-
verðu landinu sem spyrnir á móti.
Hann segir ástæðu til að benda
mönnum á að festa allar fleytur
tryggilega í höfnum og sýna að-
gæslu að öðru leyti. „Við gerum ráð
fyrir þeim möguleika að veður og
flóð valdi skemmdum og ættu menn
að hafa þetta í huga. Við næsta
endurmat vitum við hvort þetta
verði ennþá verra eða hvort úr veðr-
inu dragi," segir hann.
BANKASTJÓRAR Búnaðarbank-
ans áttu í gær fund með Finni Ing-
ólfssyni viðskiptaráðherra til að
skýra hækkanir á vöxtum bankans
að undanförnu. Hins vegar hafa
stjórnendur Landsbankans ekki
fengið boð um slíkan fund.
„Við gerðum grein fyrir okkar
sjónarmiðum og rökstuddum þær
hækkanir sem ákveðnar hafa verið
hjá bankanum," sagði Jón Adolf
Guðjónsson bankastjóri í samtali
við Morgunblaðið. „Það voru engar
yfirlýsingar eða fyrirmæli gefin um
að lækka vexti. Við gerðum ráð-
herranum grein fyrir því að staða
bankanna væri ekki sú sama. Bún-
aðarbankinn tekur mið af sinni eig-
in stöðu og við tökum ákvarðanir
í samræmi við það.
Umræðan um vexti óverð-
tryggðra og verðtryggðra skuld-
bindinga hefur verið ákaflega mikið
á reiki. Hækkanir á verðtryggðum
vöxtum hjá okkur hafa eingöngu
verið þær að við breyttum til þess
horfs sem var í nóvember þegar
bankinn lækkaði vextina. Aðrir
bankar fylgdu þá ekki á eftir.
Hvað óverðtryggða liði varðar
lögðum við til grundvallar áætlanir
Seðlabankans og annarra um verð-
bólgu. Þar er reiknað með aukinni
verðbólgu og að hún verði nálægt
1% hærri en var á síðasta ári. Við
leggjum áherslu á að vetja hag
sparifjáreigenda sem geyma inn-
stæður sínar í óverðtryggðum inn-
lánum.“
Sverrir Hermannsson, banka-
stjóri Landsbankans, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að ekkert boð
hefði borist til bankans um fund
með viðskiptaráðherra.
■ Vaxtahækkun/15
Handtek-
inn fyrir
tilraun til
manndráps
ÍSLENDINGUR, sem búsettur er
í Vanlöse í Danmörku, hefur verið
ákærður fyrir tilraun til mann-
dráps, en hann hellti sjóðandi
ávaxtasafa yfir konu, fótbraut
hana og ógnaði henni með hnífi
og hótaði að skera hana á háls.
Dagblaðið Jyllands-Posten
skýrir frá þessu í gær. Atburður-
inn á að hafa gerzt á laugardag
heima hjá konunni, sem er 35 ára
og hafði boðið Islendingnum, sem
er 33 ára, gistingu í ibúðinni.
Samkvæmt frásögn konunnar
hellti maðurinn sjóðandi ávaxta-
safa yfir hana, síðan sté hann á
fót hennar og braut hann, ógnaði
henni með hnífi og bar upp að
hálsi hennar. íslendingurinn neit-
ar sakargiftum og er hafður í
haldi.
Brit-verdlaunin
Björk
vann aftur
London. Morgunblaðið.
BJÖRK Guðmundsdóttir
vann í gærkvöldi bresku
Brit-verðlaunin en hún var
tilnefnd í hópi bestu alþjóð-
legu einsöngvara úr röðum
kvenna.
Auk Bjarkar, sem fyrir-
fram var spáð sigri, voru
tilnefndar þær Mariah Car-
ey, Celine Dion, kd lang og
Alanis Morissette. Björk
hlaut þessi verðlaun fyrir
tveim árum.
Nellee Hooper, sem stýrði
upptöku á plötu Bjarkar,
var tilnefndur í hópi upp-
t ökustjóra en hlaut ekki
verðlaun.
Spá 11 m ölduhæð og 10 vindstigum
Astæða til aðgæslu