Morgunblaðið - 20.02.1996, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
t
FRETTIR
Tillögur tilsjónarmanns til stjórnar Sjúkrahúss Akraness lagðar fram
Takmarkið er að ná 30
milljóna spamaði á ári
TILLÖGUR tilsjónarmanns Sjúkrahússins á
Akranesi til stjórnar sjúkrahússins gera ráð
fyrir um 30 milljóna króna sparnaði á ársgrund-
velli árið 1996. Að sögn Sigurðar Ólafssonar,
framkvæmdastjóra sjúkrahússins, er verið að
vinna úr tillögunum og hefur öllum læknum
verið sagt upp störfum frá og með 1. febrúar.
Að sögn Ara Jóhannessonar yfirlæknis fylgdu
uppsögnunum skilaboð um að læknum yrði
fljótlega boðinn nýr samningur.
„Við læknar erum tilbúnir að taka þátt í
hagræðingaraðgerðum en við óttumst ákveðna
þjónustuskerðingu. í og með vegna þess að
þjónustan hefur aukist jafnt og þétt síðastliðin
ár, sem að einhveiju leyti skýrir þennan aukna
kostnað," sagði Ari. „Við ætlumst einnig til
þess að heilbrigðisyfirvöld verði tilbúin að fara
í viðræður við okkur um framtíðarþróun og
hlutverk sjúkrahússins."
Endurskipulagning
um og betra skipulag á ferliverkum við stofn-
unina.“
5 millj. sparnaður í launakostnaði lækna
Ari benti á að ekki væri verið að segja lækn-
um alfarið upp störfum heldur væru uppsagn-
imar hluti af endurskipulagningu innan stofn-
unarinnar. Meðal annars væri unnið að stytt-
ingu legutíma fyrir ákveðna sjúkdómaflokka
og að auka sértekjur sjúkrahússins. Þá væri
stefnt að því að taka upp markvissari rekstrar-
áætlanir fyrir einstakar deildir.
„Það á eftir að koma í ljós hvað nýi samn-
ingurinn við lækna felur í sér,“ sagði hann.
„Mér skilst að það verði einhveijar breytingar
á stöðuhlutföllum einhverra lækna. Þá teng-
ist þessu breytt vinnufyrirkomulag á spítalan-
Sigurður Ólafsson, framkvæmdastjóri
sjúkrahússins, sagði að stofnuninni væri gert
að spara um 30 millj. á ársgrundvelli. Þar af
væri gert ráð fyrir 5 millj. sparnaði í launakostn-
aði lækna. Þá gera tillögurnar ráð fyrir að 8,2
millj. sparnaður náist með því að fækka sjúkra:
liðum um þrjá og ræstingakonum um tvær. í
eldhúsi ætti að spara 5,2 millj., í almennum
innkaupum ætti að spara um 2,5 millj. og 600
þús. ætti að spara í lyfjakaupum. Sagði Sigurð-
ur að gert væri ráð fyrir 2% lækkun launa, sem
gæfi 7 millj. í sparnað og loks ætti að reyna
að auk^a sértekjur sjúkrahússins um 3,5 millj.
91%fallí
lagadeild
Háskólans
AF 133 stúdentum á fyrsta ári
í Iagadeild Háskólans, sem
þreyttu próf í almennri lögfræði
í janúar, féll 121 eða 91%.
Ails voru 167 manns skráðir
í prófið í almennri lögfræði, en
34 mættu ekki til prófs.
Fall hefur verið mikið í al-
mennri lögfræði undanfarin ár,
en mun þó ekki hafa komizt
yfir 90% áður.
Fall í greininni hefur yfirleitt
í för með sér að laganemar verða
að sitja á 1. ári á nýjan leik, en
þeim sem féllu nú gefst kostur
á að endurtaka prófíð að vori.
Tundurdufl
í trollið
TOGARINN Hoffell frá Fá-
skrúðsfírði fékk tundurdufl í
trollið út af svokölluðum Fæti
á Austflarðamiðum á sunnu-
dag. Á þeim slóðum mun vera
talsvert um tundurdufl.
Sprengjusérfræðingar Land-
helgisgæslunnar koma til Fá-
skrúðsfjarðar I dag til að granda
duflinu, en togarinn er væntan-
legur þangað um hádegi. Duflið
er opið í annan endann og þyk-
ir viðkvæmt, en þó er ekki mik-
il hætta talin á ferðum.
Morgunblaðið/Ásdis
Fundur um tilflutn-
ing grunnskólans
Formaður
KI mætti
ekki
EIRÍKUR Jónsson, formaður Kenn-
arasambandsins, mætti ekki á fund
verkefnisstjórnar um flutning
grunnskólans frá ríki til sveitarfé-
laga í gær. Eiríkur segir að með
þessu séu kennarafélögin að undir-
strika að þau séu hætt samstarfi
við stjómvöld um þetta mál. Búist
er við að ágreiningur kennara og
stjórnvalda um flutning grunnskól-
ans verði ræddur á ríkisstjórnar-
fundi í dag.
Kjararáð KÍ og hagsmunanefnd
HÍK komu saman til fundar í gær
til að fjalla um frumvarpsdrög fjár-
málaráðherra um réttindi og skyldur
starfsmanna ríkisins og drög að
frumvarpi um lífeyrissjóð opinberra
starfsmanna. Engar formlegar
ákvarðanir voru teknar á fundinum.
Ákveðið var hins vegar að skipa
sérstaka aðgerðarnefnd og hefja
þegar í stað undirbúning að kröfu-
gerð á hendur sveitarfélögunum um
gerð nýs kjarasamnings.
Eiríkur sagði að kennarafélögin
litu svo á að kjarasamningar þeirra
yrðu lausir 1. ágúst nk. ef Alþingi
samþykkti þau frumvörp sem fjár-
málaráðherra hefur kynnt því að þar
með væri verið að bijóta samkomu-
lag sem gert var um flutning grunn-
skólaijs í tengslum við gerð kjara-
samninga í fyrra. Samkomulagið
gerir ráð fyrir að kennarar haldi
efnislega óbreyttum réttindum við
flutninginn. Félögin yrðu að búa sig
undir að þessi staða gæti komið upp.
Opinberir starfsmenn funda
Frumvarpsdrög um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins hafa
undanfarna daga verið kynnt fyrir
samtökum opinberra starfsmanna,
BSRB, BHMR og kennarafélögun-
um. Hugsanlegt er að forystumenn
félaganna haldi fund í dag þar sem
viðbrögð þeirra við drögunum verða
rædd.
og baunir
í DAG er sprengidagur og þá
seðja menn sig gjarnan á salt-
kjöti og baunum. Töluvert
amstur var í kjötbúðum í gær
og má segja að saltkjötið I
Nóatúnsversluninni í Austur-
veri hafi verið býsna lystugt.
Morgunblaðið/Kristinn
Undirstöður gáfu eftir
UNDIRSTÖÐUR undir teinum í
dráttarbraut Stálsmiðjunnar hf.
gáfu sig þegar verið var að draga
togarann Otto Wathne upp í
slippinn til viðgerðar, en til
stendur að selja skipið. Að sögn
Karls Lúðvíkssonar, verkfræð-
ings hjá Stálsmiðjunni, rann skip-
ið til hliðar á dráttarsleðanum.
Tjón á sleðanum er verulegt, en
ekki er vitað um skemmdir á
skipinu enn sem komið er. Stefnt
er að því að reyna að ná skipinu
út á flóði síðar í vikunni.
Menntamálaráðherra um flutning grunnskólans
Ekki er gengið á
réttindi kennaranna
MENNTAMALARAÐHERRA
segir rangt að gefa í skyn að flutn-
ingur grunnskólans til sveitarfé-
laganna 1. ágúst næstkomandi
tefjist vegna þeirra deilna við
kennara sem upp hafi komið. Ekki
sé með nokkru móti gengið á rétt-
indi kennara við flutning grunn-
skólans og deilurnar sem upp hafi
komið snúist um önnur mál.
Þetta kom fram við utandag-
skrárumræðu á Alþingi í gær um
flutning grunnskólans til sveitarfé-
laganna. Svanfríður Jónasdóttir,
Þjóðvaka, hóf umræðuna og sagði
að flutningur grunnskólans væri í
uppnámi eftir að kennarafélögin
hefðu lýst því yfir að þau tækju
ekki þátt í frekari vinnu vegna
yfirfærslu grunnskólans. Beindi
hún nokkrum spurningum til
menntamálaráðherra af þessu til-
efni og spurði hvort ríkisstjórnin
væri ekki áhugasamari um þetta
verkefni en svo að hún stofnaði
því í hættu með flutningi þriggja
frumvarpa sem breyttu réttindum
launafólks til hins verra, en þessi
þrjú frumvörp væru frumvarp um
réttindi og skyldur starfsmanna
ríkisins, frumvarp um Lífeyrissjóð
Flutningurinn í
uppnámi, segir
Svanfríður
Jónasdóttir
starfsmanna ríkisins og frumvarp
um samskiptareglur á vinnumark-
aði. Spurði hún hvort um vanmat
á stöðunni hefði verið að ræða af
hálfu ríkisstjórnarinnar í samskipt-
um við kennarana eða hvort þessi
mál yrðu keyrð í gegn hvað sem
það kostaði.
Ekki gengið á rétt kennara
Björn Bjarnason menntamála-
ráðherra sagði að fyrir þingmönn-
um lægi nú frumvarp til laga um
réttindi og skyidur kennara og
skólastjórnenda grunnskóla. Þar
væri tekið af skarið um hvernig
réttindum og skyldum þessara
hópa yrði- háttað við flutning
grunnskólans til sveitarfélaga og
um þetta frumvarp væri samstaða
allra sem að þessu máli kæmu.
Fyrrnefnd þijú frumvörp snertu
ekki flutning grunnskólans til
sveitarfélaga. Hins vegar kæmi
fram í athugasemdum við frum-
varp um réttindi og skyldur kenn-
ara og skólastjórnenda grunn-
skóla, sem hefðu verið kynntar
öllum sem að málinu komu, að lög-
in um réttindi og skyldur starfs-
manna ríkisins væru í endurskoðun
og ætlunin væri leggja fram frum-
varp á vorþingi nú. Það mál væri
nú til umræðu á tilskildum sam-
ráðsvettvangi og hann teldi að öll
von væri ekki úti um að þar yrði
komist að niðurstöðu sem kæmi
til æóts við sjónarmið kennara.
Ef litið væri á efnisatriði málsins
teldi hann með öllu rangt að halda
því fram að með nokkrum hætti
væri gengið á rétt kennara við
flutning grunnskólans. Þvert á
móti væri rétturinn mjög vel skil-
gi-eindur og tryggður með fyrir-
liggjandi frumvarpi. Samstarfið við
kennara hefði verið mjög gott til
þessa og hann vonaði að það héld-
ist. Deilur hefðu komið upp um
önnur málefni sem þyrfti að ræða
°g komast til botns í, en það væri
alrangt að gefa það til kynna að
það sem nú hefði gerst yrði til
þess að tefja fyrir flutningi grunn-
skolans til sveitarfélaganna.
p
I
I
I
(
I
I
I
I