Morgunblaðið - 20.02.1996, Síða 14
h
14 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Vélstjóranám í Stykkishólmi
Stykkishólmi - Farskóli Vestur-
lands, sem er hluti Fjölbrauta-
skóla Vesturlands, hefur staðið
fyrir námi til 2. stigs vélstjómar
í Stykkishólmi í vetur. í fyrra
var boðið upp á vélavarðarnám
og luku allmargir því námi. Kom
ósk frá hópnum um að fá áfram-
haldandi nám í þessum fræðum.
Hægt var að verða við því og er
verið að kenna í vetur námsefni
sem er að hluta til 2. stig vél-'
stjórnar.
Kennd er eðlisfræði, raf-
magnsfræði, rennismíði, kæli-
tækni og áframhaldandi vél-
gæsla og vélstjórn. Kennt er þrjú
kvöld í viku og á laugardögum.
Mikil ánægja er með þetta nám
og þá ekki síst að hægt er að
sækja það í heimabyggð. Þar
hafa Fjölbrautaskólinn, kennar-
ar, nemendur og nokkur fyrir-
tæki hjálpast að og komið nám-
inu á. Sérstaklega ber að þakka
fyrirtækjunum Skipavík og Rar-
ik í Stykkishólmi fyrir þeirra
framlag.
Aðalskipuleggjandi nám-
skeiðsins og yfirumsjónarmaður
er Ólafur Eiríksson. Ólafur gaf
út á dögunum ásamt Þráni Sig-
urðssyni handbókina íslensk
töflubók fyrir málmiðnað og aðr-
ar starfsgreinar. Þar er um að
ræða lofsvert framtak og iðnað-
armenn í þessum starfsgreinum
og vélstjórar taka fagnandi að
fá svona töflubók á íslensku.
Búnaðarbankinn í Stykkishólmi
gaf hverjum nemanda í vélstjóra-
náminu bókina og þökkuðu nem-
endur bankanum fyrir gjöfina
og þann hlýhug sem bankinn
sýndi þessu námi.
Morgunblaðið/Árni Helgason
KJARTAN Páll Einarsson afhendir nemendum og kennurum í 2. stigs námi í vélstjórn íslensku
töflubókina að gjöf frá Búnaðarbankanum í Stykkishólmi.
Sljarnan tekur til starfa
Reyðarfirði - Nýtt fyrirtæki, heild-
verslunin Stjarnan ehf., hóf starf-
semi á Reyðarfirði nú í byijun febrú-
ar. Fyrirtækið, sem keypti AM heild-
verslun og Heild- og umboðsversl-
unina G. Bjarnason, mun þjónusta
Austfírðinga allt frá Höfn í suðri
og norður til Vopnafjarðar.
Eigendur fyrirtækisins eru Ásta
Einarsdóttir, Guðmundur Bjarna-
son, Hrafnhildur Ólafsdóttir, Þor-
geir Sæberg og Austfragt hf.
Það var hugur í eigendunum þeg-
ar fréttaritari hitti þá að máli í
glæsilegu húsnæði fyrirtækisins þar
sem hillur voru hlaðnar óteljandi
vöruflokkum. Þeir sögðust vera með
tvo bíla í vörudreifingu og einnig
gerðu þeir ráð fyrir að kaupa þjón-
ustu af öðrum dreifingaraðilum.
Kaupmenn og neytendur þurfa því
ekki að kvíða vöruskorti á næstunni.
Morgunblaðið/Hilmar Sigurjónsson
EIGENDUR heildverslunarinnar f.v.: Þorgeir Sæberg, Hrafn-
hildur Grímsdóttir, Guðmundur Bjarnason og Ásta Einarsdóttir.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
STJÓRN Ræktunarsambandsins, Ólafur Einarsson, Guðmundur
Stefánsson, Ólafur Ben. Snorrason framkvæmdasljóri, Hörður
Sigurgrímsson formaður stjórnar, Gunnar Ólsen, Guðmundur
Sigurðsson og Guðmundur Lárusson.
Ræktunarsamband-
ið fagnar 50 árum
Selfossi - Ræktunarsamband Flóa
og Skeiða gerði sér dagamun á dög-
unum í tilefni 50 ára afmælis fyrir-
tækisins. Það var stofnað 22. janúar
1946 af búnaðarfélögunum í Flóa
og á Skeiðum í kjölfar tækni- og
atvinnubyltingarinnar sem hófst eft-
ir stríð, um það leyti sem þjóðin lagði
frá sér haka og skóflu. Fyrirtækið
var gert að hlutafélagi 1993, en eig-
endur þess eru sjö búnaðarfélög.
Hjá fyrirtækinu starfa 25 manns og
1995 var ársvelta fyrirtækisins 225
milljónir króna.
Fyrst unnið fyrir bændur
í tilefni afmælisins gaf fyrirtækið
út myndarlegt afmælisrit og þar
segir stjórnarformaður fyrirtækis-
ins, Hörður Sigurgrímsson: „Fyrstu
30 starfsárin var aðallega unnið fyr-
ir bændur, en síðan fór starfið að
þróast í þjónustu við Vegagerðina
og allskyns opinberar framkvæmdir
og nú síðasta áratuginn er Ræktun-
arsamband Flóa og Skeiða komið út
í fjölbreytta verktakastarfsemi. Vel-
gengni þess byggist fyrst og fremst
á góðum starfsmönnum undir ör-
uggri stjórn og með viðeigandi véla-
kost í höndunum. Ræktunarsam-
bandið hefur kynnt sig af því að
skila góðu verki."
Starfsemi fyrirtækisins er mjög
fjölþætt, það er með stórar og litlar
vinnuvélar, bíla, jarðbor og tæki til
að klæða vegi með olíumöl. Helstu
verkefni síðustu tveggja ára eru
lagning þjóðbrauta í Vestmannaeyj-
um, gerð sorpurðunarsvæðis í Ölf-
usi, vegagerð í Þjórsárdai, á Land-
vegi, Gaulveijabæjarvegi, á Skál-
holtsvegi og á Ölkeiduhálsi, klæðn-
ingarlagning á Vesturlandi, gatna-
gerð í Þorlákshöfn, gatna- og
holræsagerð á Selfossi og rannsókn-
arboranir í öllum landsfjórðungum,
vatns- og jarðhitaleit.
Margvísleg verkefni í takinu
„Það eru mikil verkefni framund-
an í landinu. En það eru margir um
hituna og verðlag lágt en ég held að
í vor skýrist hvort verð fari eitthvað
upp og þar með hvort framtíð er í
þessu, en það eru of margir í grein-
inni,“ segir Ólafur Ben. Snor'rason
framkvæmdastjóri Ræktunarsam-
bandsins í viðtali í afmælisritinu.
„Við erum fjölhæfir og störfum á
mörgum sviðum, tökum að okkur
margvísleg verkefni, allt frá því að
helluleggja smá stétt upp í að leggja
vegi í kílómetratali." Ólafur segist
horfa til ýmissa verkefna næsta
sumar svo sem vegarins yfir Gils-
fjörð sem hann segir verk sem tveir
til þrír verktakar þyrftu að samein-
ast um. „Svo ætlar Landsvirkjun að
láta vinna í Kvíslarveitum fyrir hátt
í milljarð. En nú erum við með Skál-
holtsveg og eigum eftir að vinna þar
fyrir 30 milljónir. Ýmis samnings-
verk eru framundan en ekki stór.
Það er mikið leitað til okkar, bæði
með lokuð útboð og tímavinnuverk,
svo við höfum ýmsa möguleika.
Vonandi verður afmælisárið gott, en
það er þó aldrei hægt að segja það
fyrirfram," segir Ólafur Ben.
Snorrason framkvæmdastjóri Rækt-
unarsambands Flóa og Skeiða.
Blótað í
skólanum
Þórshöfn - Það eru fleiri en fullorðna
fólkið sem nýta Þorrann til skemmt-
anahalds en yngstu börnin í grunn-
skólanum hér á Þórshöfn héldu þar
sitt þorrablót fyrir skömmu.
Foreldrum var boðið til samkom-
unnar og höfðu börnin sinn þorramat
meðferðis, en hann gat verið allt frá
kartöfluflögum og kiwi upp í feitt
sauðahangiket með öllu meðlæti, eft-
ir smekk hvers og eins. Börnin sögðu
brandara og „tóku foreldra sína upp“
og skemmtu sér konunglega á þeirra
kostnað. Þorrablót barnanna var
hin besta skemmtun og er gott tillegg
í skólastarfið þar sem foreldrarnir
komast inn á vettvang barnanna.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
TVEIR góðir frá börnunum: „Hvað er það sem liggur á
eggjum og segir brandara?“ Svar: Fyndin hæna ..!
Hvað er rautt og brúnt og flýgur um loftið?
Svar: Jarðarber í brúnum nærbuxum.
Nýtt ómskoðunartæki
á sjúkrahúsinu
Neskaupstað - Nú á dögunum var
formlega tekið í notkun nýtt óm-
skoðunartæki á Fjórðungssjúkra-
húsinu í Neskaupstað. Kvenfélög á
Reyðarfirði, Breiðdalsvík, Egilsstöð-
um og í Neskaupstað ásamt Krabba-
meinsfélagi Austfjarða gáfu um 1 '/2
milljón til kaupa á tækinu sem kost-
aði á fjórðu milljón.
Guðmundur Arason kvensjúk-
dómalæknir lýsti tækinu og notkun
þess fyrir gefendum og öðrum gest-
um sem viðstaddir voru athöfnina.
Nýja ómskoðunatækið leysir af
hólmi 15 ára sónartæki sem fyrir
var á sjúkrahúsinu.
Morgunblaðið/Ágúst Biöndal
GUÐMUNDUR Arason lýsti
tækinu fyrir gestum.
wmmmmmmmmmmmmummm
Launamunur kynjanna náttúrulögmál - eða mannanna verk?
Opið málþing í Hlaðvarpanum í kvöld, 20. febrúar, kl. 20:30.
Friðrik Sophusson f,am,aiaraahErra „ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
kynna launastefnu ríkis og borgar til jafnréttis.
Þorgerður Einarsdóttir félagsfræðingur fiytur erindið „Hvað í veröldinni tefur jafnrétti kynjanna"?
Fundarstjóri Kristín Einarsdóttir framkvæmdastjóri. il'JSíJíJíUJ
í.ftiM , «'r I > " ‘ r ' > '■ 1 t' «, . 1 l> *\ >. -I, ' 1 , >..» 1 1 < ' \ ,\ ii« !i,i' ,t„ . ibtf'J'. \ ,W > >,tt\’\'i, í.'iVJJ