Morgunblaðið - 20.02.1996, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
„Á köldum klaka“ hlýtur lof í Belgíu
Guðdóinlegiir
gimsteinn
„Á KÖLDUM klaka“, kvikmynd
Friðriks Þórs Friðrikssonar, fær
hæstu einkun í belgíska vikublaðinu
Humo. Myndin fær þrjár stjörnur
af fjórum mögulegum hjá Alex
Stockman, sem skrifar að hér sé á
ferð „guðdómlegur gimsteinn“.
Mynd Friðriks Þórs er nú sýnd í
kvikmyndahúsum í Belgíu og að
sögn Stockmanns er hún byggð á
„langsóttum hugmyndum, en þær
virðast ganga fullkomlega upp“.
ísför
Stockman kallar Friðrik Þór Jim
Jarmusch íslands og aðalleikarann,
Nagase, James Dean Japana.
Gagnrýnandinn skrifar undir fyr-
irsögninni „ísför“: ,,„Á köldum
klaka“ er guðdómlegur gimsteinn,
steyptur í frábærum víddum, fullur
af geðslegu gamni og furðulegum
skáldskap. Stundum mætti halda að
andi rokkvíkinga [Finnans Aris]
Kaurismákis, „Leningrad Cowboys“
ráfaði um í henni. Og þótt þessi ís-
för muni ekki hleypa af stað bylt-
ingu í gerð mynda af vegamynda-
skólanum er ferðalagið fullkomlega
þess virði. Auk þess er útilokað að
mynd, sem vegsamar stórkostleg-
asta bíl allra bíla, Citroén DS, með
þessum hætti, geti verið vond
mynd.“
MÁLVERK eftír Guðjón Bjarnason.
Gamalt menntaskólagrín
KVIKMYNDIR
L a u g a r á s b í ó
SKÓLAFERÐALAG
„National Lampoon’s
School Trip“ ★
Leikstjóri: Kelly Maikin. Handrit:
Roger Kumble og I. Marlene King.
Aðalhlutverk: Matt Frewer, Valerie
Makaffey og Tommy Chong. New
Line Cinema. 1995.
BANDARÍSKU menntaskóla-
myndirnar hljóta að vera búnar
að syngja sitt síðasta með þessari
ófyndnu endaleysu sem heitir
Skólaferðalag. Hún segir frá hópi
vandræðaunglinga sem ferðast til
Washington að hitta sjálfan forset-
ann og er jafn furðulega heimsku-
leg og allar verstu myndirnar af
þessari sort. Kannski helsti gallinn
við myndina sé sá, fyrir utan vond-
an gamanleik, að ekki er til í henni
frumleg hugsun. Eins og venjulega
er keyrt á þungarokki allan tím-
ann, sem á að merkja einhverskon-
ar uppreisnaranda unga fólksins,
og samsetning hópsins er skelfi-
lega kunnugleg. Þarna er dóp-
hausinn sem veit hvorki í þennan
heim né annan, feitabollan sem
býr yfir óvenjulegum eyðilegging-
armætti, venjulegi strákurinn sem
lætur sér ekki allt fyrir brjósti
brenna og gáfnaljósið sem á í erf-
iðleikum með stelpur. Enginn af
þessum persónum getur verið
fyndin svo neinu nemur því allt
sem þessir strákar gera hefur ver-
ið gert hundrað sinnum áður bæði
í betri og verri myndum.
Gamanleikarinn Matt Frewer
leikur skólastjórann sem heldur
utan um hópinn og er allan tímann
eins og festur upp á þráð. Hann
sækir æstan leik sinn mjög til
breska háðfuglsins John Cleese,
er lék frábærlega stressaðan
skólastjóra í „Clockwise“. Þannig
er allt í þessari mynd fengið annar-
staðar að. Bandaríska mennta-
skólaskopið átti sitt blómaskeið
um það leyti sem John Belushi lék
í „National Lampoon’s Animal
House“ fyrir hartnær tveimur ára-
tugum. Skólaferðalagið er gerð í
sama stílnum. Ekkert á að hafa
breyst á öllum þessum tíma. Raun-
in er auðvitað allt önnur. Myndin
er aðeins dreggjarnar af löngu
liðnu gamni.
Arnaldur Indriðason
Guðjón
sýnir í
Haugesund
GUÐJÓN Bjarnason myndlistar-
maður sýnir um þessar mundir í
Haugesund Kunstforening í Nor-
egi. Þetta er þriðja sýning Guðjóns
á skömmum tíma í Noregi. Hann
sýndi í Stavanger Kunstforening
1993 og Drammen Kunstforening
1995. A sýningunni í Haugesund
eru rúmlega 20 málverk unnin á
sl. ári og ein höggmynd.
Við opnunina flutti Gystein
Loge listfræðingur og safnstjóri
Drammen Kunstforening ávarp
þar sem hann fjallaði um list Guð-
jóns. Síðar á árinu mun Guðjón
taka þátt í samsýningu norrænna
listamanna i Osló.
Sýningunni í Haugesund Kunst-
forening lýkur sunnudaginn 25.
febrúar.
Benjamín dúfa
sigurstrangleg
Berlín. Morgunblaðið.
TVÆR íslenskar kvikmyndir voru
frumsýndar á alþjóðlegu kvikmynda-
hátíðinni í Berlín um helgina. Benj-
amín dúfa keppir þar í barnamynda-
flokki en Agnes er sýnd í Panor-
ama, flokki úrvalsmynda.
Töluvert hefur verið fjallað um
myndirnar í þýskum fjölmiðlum en
það þykir mikil viðurkenning fyrir
íslenska kvikmyndagerð, að tvær
íslenskar myndir skyldu hafa verið
valdar til, sýninga á hátíðinni sem
er ein sú stærsta í heimi.
Á kvikmyndamarkaðinum þar sem
kaupendur og seljendur kvikmynda
hittast, verða að auki sex íslenskar
kvikmyndir teknar til sýninga.
Viðbrögð áhorfenda við Agnesi á
frumsýningu voru jákvæð og upp-
selt var á sýninguna í gær, mánu-
dag.,Myndin hefur þó hlotið misgóða
dóma í dagblöðum. í gagnrýni dag-
blaðsins Suddetsche Zeitung í gær
er myndin talin hafa komist í Panor-
ama flokk vegna hagsmunatengsla
þar sem hún er gerð í samvinnu við
þýska framleiðendur.
Það er ekki auðvelt að vera barn
er yfirskrift barnamyndakeppninnar
sem nú er haldin í fjórtánda sinn.
Þrettán myndir keppa en veitt verða
tvenn aðskiTin verðlaun fyrir bestu
barnamyndina, önnur af UNICEF
en hin af ellefu börnum á aldrinum
tíu til fjórtán ára.
í umfjöllun um barnamyndirnar í
berlínska tímaritinu „Zitty“ er Benj-
amín dúfa ásamt írsku myndinni
Vinur minn Jói og dönsku myndinni
Horfðu á mig fljúga, taldar hafa
alla burði til að bera sigur úr býtum.
Verðlaunin verða afhent þann 26.
febrúar.
Eftir frumsýningu gafst bíógest-
um kostur á að spyija léikstjóra
Benjamíns dúfu, Gísla Snæ Erlings-
son nánar um myndina sem var sýnd
með þýsku tali. Yngstu áhorfendurn-
ir létu ekki á sér standa og spurning-
unum rigndi yfir hann.
Vinirnir Klaus og Jörgen sem
báðir eru tólf ára, sögðu í samtali
við Morgunblaðið að þeim hafi þótt
myndin afskaplega góð en heldur
hefðu þeir kosið að Baldur, ein af
söguhetjum myndarinnar hefði ekki
dáið. Ekki voru þeir einir um þá
skoðun því þó mikið hafi verið klapp-
að í lokin, voru þó nokkrir sem pú-
uðu til að lýsa yfir óánægju sinni
með dauða Baldurs. Gísli Snær út-
skýrði að í raunveruleikanum geta
þeir dáið sem síst eiga það skilið.
Þegar hann var lítill hafi hann misst
vin sinn og þá hafi hann orðið reiður
því enginn hafi útskýrt fyrir honum
dauðann.
Um Berlínarbjörninn keppa að
þessu sinni 29 myndir. Sigurstrang-
legust þykir enn sem komið er mynd
Emmu Thompson „Sense and Sensi-
bility". Heiðursbjörninn fá að þessu
sinni Jack Lemmon og Elia Kazan
fyrir framlög sín til kvikmynda.
Hátíðin stendur í tólf daga og lýkur
26. febrúar.
Skítt með’a
eftir Valgeir
Skagfjörð
LEIKFÉLAG Fjölbrautaskólans
í Garðabæ frumsýnir í dag,
þriðjudag, kl. 16 leikritið Skítt
með’a eftir Valgeir Skagfjörð
sem jafnframt samdi tónlistina.
Leikritið fjallar um vinahóp
unglinga og kemur inná þá erf-
iðleika sem krakkar þurfa að
horfast I augu við á þessum
árum, t.d. vímuefni, ástir, sam-
kynhneigð og foreldraeijur.
Leikstjóri er Gunnar Gunn-
steinsson. Verkið er sett upp í
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
(Hermóður og Háðvör). Sýning-
ar verða fjórar talsins.
Dansað við dauðann
ALNÆMI er efniviður nýs ball-
ets, sem konunglegi breski ball-
ettínn sýnir í London í febrúar
og mars. Ballettinn nefnist
„Dansað við dauðann", en er
kallaður „alnæmisballettínn“ i
daglegu tali.
Höfundur ballettsins er
Matthew Hart og fjallar hann
um þrjá menn, sem þjást af sjúk-
dómnum. En sjúkdómurinn er
ekki aðeins tekinn fyrir frá
þeirra sjónarhóli, heldur er
skyggnst í smásjánna og áhorf-
endum sýnt þegar hin banvæna
sýking á sér stað. Einn dansar-
anna er í hlutverki alnæmisveir-
unnar og um leið dauðans og á
móti honum dansa hvítu blóð-
kornin. Gagnrýnandi dagblaðs-
ins The Independent kallaði
þennan þátt „Stjörnustríð
ónæmiskerfisins“ og fannst
heldur kjánalegt.
Á myndinni sést Jonathan
Cope ásamt öðrum dönsurum i
„Dansað við dauðann“.
*
Islenskur
leikur í
Noregi
EINLEIKURINN „Þá mun eng-
inn skuggi vera til“ sem fjallar
um sifjaspell og afleiðingar
þess, hefur nú verið sýndur 75
sinnum víða um land, og hefur
aðstandendum leikþáttarins
verið boðið að sýna hann á ráð-
stefnu sem haldin verður dag-
ana 20.-21. feb. í bænum Förde
I Sogn og Fjordana I Noregi.
Ráðstefnan ber yfirskriftina
„Kynferðisleg misnotkun á
bömum" og að henni standa
Kommunal opplæring og lög-
fræðistofan Folkman. Þetta er
stór ráðstefna þar sem allar
stofnanir sem koma að þessum
málum eru með erindi, s.s.
barnavemdamefnd, lögreglan,
kvennaathvörf og miðstöðvar
fyrir þolendur kynferðislegrar
mistnotkunar, sálfræðingar,
læknar, dómarar og fleiri. Leik-
þátturinn verður fluttur á
sænsku, en norræna ráðherra-
nefndin styrkti þýðinguna si.
haust. Þá munu Islendingar I
Ósló eiga þess kost að sjá leik-
þáttinn mánudagskvöldið 26.
feb. Leikþátturinn stendur fé-
lagasamtökum, fyrirtækjum og
framhaldsskólum hér heima,
ennþá til boða. Upplýsingar fást
hjá Kolbrúnu Emu Pétursdótt-
ur leikkonu.
LEIKENDUR í Skítt
með’a sem frumsýnt
verður í dag.