Morgunblaðið - 20.02.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 21
LISTIR
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
„í HEILD voru þetta glæsilegir afmælistónleikar og auðheyrt að kórinn er í góðu formi,“ segir meðal annars í dómnum.
Glæsilegir
afmælistónleikar
MYNDSKREYTING í
tímaritinu.
Tímamót
ljóðatíma-
rits
BANDARÍSKA ljóðatímaritið
Visions International, 50. tölu-
blað, er nýkomið út. I ritstjórn-
argrein minnist ritstjórinn tíma-
móta sem verða í sögu tímarits-
ins með útkomu þessa heftis.
Hann bendir á fjölbreytni ritsins
og að það birti skáldskap frá
öllum heimshornum. Meðal
kunnra skálda sem eiga ljóð í
heftinu eru Pulitzer-verðlauna-
hafinn Louis Simpson.
Norræn ljóð hafa oft birst í
tímaritinu og skemmst er að
minnast sérstakts heftis með
norrænni ljóðlist. í nýja heftinu
eru ljóð eftir Svíann Göran
Sonnevi og Danann Henrik
Nordbrandt. Birt eru ljóð eftir
tvö íslensk skáld, Hannes Sig-
fússon og Jóhann Hjálmarsson.
Alan Boucher þýðir ljóð Hann-
esar, en Hallberg Hallmundsson
ljóð Jóhanns.
Ritstjóri og útgefandi Visions
lnternational er Bradley R.
Strahan og póstfang ritsins er
Black Buzzard Press 1110 Sea-
ton Lane Falls Church, VA
22046.
TONLIST
Iláskólabíó
SÖNGHÁTÍ Ð
Karlakór Reykjavíkur hélt upp á 70
ára starfsafmæli og Karlakórinn
Fóstbræður, Kvennakór Reykjavík-
ur, Drengjakór Laugameskirkju,
einsöngvaramir Sigrún Hjálmtýs-
dóttir, Sieglinde Kalimann, Signý
Sæmundsdóttii-, Björk Jónsdóttir,
Sigurður Bjömsson og Ásgeir Eiriks-
son samfögnuðu þeim. Undirleikarar
vom Anna Guðný Guðmundsdóttir
og Svana Víkingsdóttir en stjómend-
ur Margrét Pálmadóttir, Friðrik S.
Friðriksson og Ami Harðarson.
Laugardagurinn 17. febrúar, 1996.
KARLAKÓR Reykjavíkur á sér
merka sögu og á þeim tíma er Sig-
urður Þórðarson tónskáld stofnaði
kórinn, voru kórar nær einu tónlist-
arstofnanirnar hér á landi, sem sáu
um flutning á innlendri tónlist. Sig-
urður var afkastamikið tónskáld og
það var einmitt frumflutningur laga
hans, svo og annarra tónskálda ís-
lenskra, sem telja verður einn merk-
asta þáttinn í framlagi Karlakórs
Reykjavikur til íslenskrar tónmenn-
ingar. Auk Sigurðar hafa Páll ísólfs-
son, Jón S. Jónsson og Páll P. Páls-
son stjórnað kórnum en stjórnandi
hans nú er Friðrik S. Kristinsson.
Hátíðina setti Bjarni Reynarsson
formaður Karlakórs Reykjavíkur, en
ávörp fluttu Björn Bjarnason
menntamálaráðherra og Guðrún
Ágústsdóttir forseti borgarstjórnar,
en kynnir var Einar Örn Stefánsson.
Tónleikarnir hófust á ísland, ís-
land, ég vil syngja, eftir Sigurð Þórð-
arson, glæsilegu lagi, sem er eins
konar einkennislag kórsins. Karla-
kórstónlist frá Norðurlöndunum
naut mikilla vinsælda hér á landi
og var þessi gerð tónmenntar undir-
staða bræðralagstengsla á milli nor-
rænu karlakóranna og því fór vel
á, að annað lag tónleikanna var frá
Svíþjóð, Undir svörtu ioftum, og var
söngur Karlakórs Reykjavíkur í báð-
um lögunum merktur því besta sem
einnkennt hefur söng kórsins frá
upphafi.
Ásgeir Eiríksson, bassi, félagi í
kórnum, söng perluna Nótt eftir
Árna Thorsteinsson og Sigrún
Hjálmtýsdóttir söng, einnig með
kórnum, Draumlandið eftir Sigfús
Einarsson og Heyrið vella á heiðum
hveri eftir Björgvin Guðmundsson.
Árni er efnilegur söngvari og söng
„nóttina" vel og það þarf ekki að
fara mörgum orðum um söng Sig-
rúnar eða undirleik Önnu Guðnýjar
Guðmundsdóttur, sem var frábær,
sem og agaður og fallega mótaður
söngur kórsins, undir stjórn Friðriks
S. Kristinssonar.
Gestir þeir sem samfögnuðu
Karlakór Reykjavíkur, voru
Drengjakór Laugarneskirkju, er
söng tvö lög undir stjórn Friðriks,
og Karlakórinn Fóstbræður, undir
stjórn Árna Harðarsonar, er söng
af glæsibrag Ár var alda, íslenskt
þjóðlag í meistaraútsetningu Þórar-
ins Jónassonar. Saman sungu svo
karlakórarnir báðir Brennið þið vitar
eftir Pál ísólfsson og var það tignar-
legur flutningur, sem Friðrik S.
Kristinsson stjórnaði við undirleik
Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur.
Síðasti gestakórinn var Kvennakór
Reykjavíkur, undir stjórn Margrétar
Pálmadóttur, er flutti Afmælisdikt
Atla Heimis Sveinssonar og Kalliolle
Kukkulaile, finnskt lag, og söng
kórinn bæði iögin mjög vel og naut
til þess undirleiks Svönu Víkings-
dóttur.
Einsöngvarar, sem auk Sigrúnar
Hjálmtýsdóttur hafa starfað með
Karlakórnum, sungu næst og skal
þar fyrst nefna Sieglinde Kahmann,
er söng Wien, du Stadt meiner
Tráume. Næst komu fram Signý
Sæmundsdóttur og Sigurður Björns-
son er sungu dúettinn Schenkt man
sich Rosen in Tirol og lauk þessum
þætti, sem Páll P. Pálsson stjórnaði,
með tvísöng Signýjar og Bjarkar
Jónsdóttur, en þær fluttu Die
Schwestern eftir Brahms. Flutning-
ur þessara listamanna var í þeim
gæðaflokki er sæmir atvinnusöngv-
urum, en undirleikari var sem fyrr
Anna Guðný Guðmundsdóttir.
Lokaþáttur afmælishátíðarinnar
var samsöngur Karlakórs Reykjavík-
ur og eldri félaga. Páll P. Pálsson
stjórnaði ísland ögrum skorið og
Nú hnígur sói, en lokaverkið var Þér
landnemar eftir Sigurð Þórðarson
og þvj stjórnaði Friði;ik S. Kristins-
son. í heild voru þetta glæsilegir
afmælistónleikar og auðheyrt að
kórinn er í góðu formi og nýtur þar
til góðrar söngstjórnar, enda mun
ýmislegt vera í bígerð, bæði varð-
andi tónleika og hljóðritanir. Karla-
kór Reykjavíkur á inni hjá hlustend-
um sínum þakkir fyrir góðan söng
í 70 ár'og þar með fylgja árnaðarósk-
ir um glæsilega söngvaframtíð.
Jón Ásgeirsson
Skyld’ann hanga þurr?
LEIKLIST
S n ú ö u r o g S n œ 1 d a
VEÐRIÐ KLUKKAN
ÁTJÁN OG HÁTTATÍMI
Veðrið klukkan átján eftir Henning
Nielsen og Háttatimi eftir Philip
Johnson. Leikstjóm Sigrún Val-
bergsdóttir. Lýsing Kári Gíslason.
Leikmynd og búningar hópurinn.
Sýnt í Kisinu, Hverfisgötu 105. Laug-
ardagur 17. febrúar.
EF mér væri boðið að finna leik-
verk fyrir hóp þar sem meðalaldur
leikenda væri 75 ár mundi ég af-
þakka og segja að ég væri að fara
á fund í Áfengismálavarnarnefnd
Nesjayallafjarðar. En það gera ekki
allir. Á laugardaginn var frumsýndi
leikfélag eldri borgara, Snúður og
Snælda, tvo einþáttunga, Veðrið
klukkan átján og Háttatíma.
Veðrið klukkan átján, eftir Dan-
ann Henning Nielsen, var þýtt sér-
staklega fyrir Snúð og Snældu, af
Sigrúnu Valbergsdóttur. Á dönsku
heitir verkið Vejrmollen, eða Veðra-
myllan í beinni, þurri þýðingu, sem
það var; rifrildi um hvernig veðrið
var. Rifrildið var í raun bara milli
tveggja persóna, hinar fjórar voru
viljalausir taglhnýtingar .sem tóku
bara mark á „síðasta ræðumanni",
einsog oft vill verða.
Verkið er allegóría um leiðitaman
múg, skoðanamyndun og vanhugs-
aða uppreisn sem endar á sama stað
og hún hófst, hlutverkin voru það
eina sem höfðu breytzt.
Búningar og förðun voru mjög
svipaðir búningum og förðun
franskra látbragðsleikara, svört
jakkaföt og kúluhattur utan um
pappírshvít andlit. Allir voru eins,
aðeins skyrtur og hanzkar voru mis-
munandi litir. Ég verð að segja að
mér fannst handahreyfingar Fjólu-
blárrar aðeins of ýktar, þær drógu
athyglina frá orðræðu hennar. Var
það kannski tilgangurinn?
Háttatíminn var meira sérsniðinn
fyrir eldri leikarahóp; yngsta persón-
an var 49 ára bæld dótlir.
Hann var um konu sem
var við það að slökkva á
sínu daglega lífi og ætlaði
að leggjast ! rúmið, af þv!
hún var að verða sjötug.
Móðir hennar hafði gert
það, og amma, 'og til.að eltá
hefðina- þá varð hún sjálf
að gera það líka. Hún sagð-
ist heyra raddir: „tíminn líð-
ur/rúmið bíður“. Er hægt
að finna fáránlegri afsökun
til að hætta að lifa? Hvað
er langt síðan Parthenon,
Meyjarhofið í Aþenu, varð sjötugt?
Sá sem þýddi verkið hefur verið
svo heillaður af höfundi Njálu að
hann lét hvergi nafns síns getið.
Meira var lagt í leikmynd og bún-
inga þar en í Veðrinu, enda erfitt
að hafa hana einfaldari en þar; stóll,
fatahengi og sex regnhlífar.
Þetta voru hvort tveggja
skemmtileg verk og þau skildu líka
eitthvað eftir sig. Af tveim góðum
þótti mér Veðrið vera betra; það
býður upp á meiri „eftirþanka" þeg-
ar heim kemur.
Ljósmynd/ívar Þórhallson '
LEIKENDUR í Háttatíma.
Ég komst reyndar aldrei í „leik-
húsfílinginn" minn. Það var nefni-
lega ekkert skilti með myndavél með
rauðu striki yfir og þ.a.l. var ég
dreginn út úr heimi leikhússins af
flassljósi sem, með vissu millibili,
lýsti upp salinn. Það hlýtur að vera
hægt að finna annan tíma til mynda-
töku, en einmitt frumsýningu.
Annars skemmti ég mér vel og
tek ofan fyrir þessu sex ára gamla
leikfélagi, eða öllu heldur, tæki ég
ofan ef ég gengi með hatt.
Heimir Viðarsson
PARKETSLÍPUN
Sigurðar Ólafssonar
Við gerum gömlu
gólfin sem ný
Sími: 564 3500 - 852 5070
FERMINGARMYNDATÖKUR
SVIPMYNDIR
Hverfisgötu 18, sími 552 2690
Stretsbuxur kr. 2.900
Konubuxur kr. 1.490
Miki& úrval af
allskonar buxum
Opið ó laugardögum
• LOWARA
mmm
DÆLUR
Gæðavara,
mikið úrval,
hagstætt verð,
örugg þjónusta.
= HÉÐINN =
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260
ARGUS/SÍA