Morgunblaðið - 20.02.1996, Qupperneq 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Fjölmennasta Bridshátíðin til þessa heppnaðist vel
Tvöfaldur ítalskur
sigur í tvímenningnum
BRIPS
Ilótel Loltleidir
BRIDSHÁTÍÐ 1996
Tvímenningskeppni Bridshátíðar
og Flugleiðamótið í sveitakeppni
dagana 16.-19. febrúar
ÍTALJRNIR Massimo Lanzarotti og
Andrea Buratti sönnuðu það á
Bridshátíð að fáir taka þeim fram
í tvímenningi, þegar þeim tókst að
kornast upp fyrir félaga sína
Lorenzo Lauria og Alfredo Versace
í næstsíðustu umferð tví-
menningskeppninnar. Sigurjón
Tryggvason og Friðjón Þórhallsson
náðu 3. sætinu.
Leiðin á verðlaunapallinn var
ekki þrautalaus fyrir ítölsku spil-
arana. Þeir Lanzarotti og Buratti
misstu af flugvél til íslands í Amst-
erdam á fimmtudag og héldu þá
áfram til Kaupmannahafnar í veg
fyrir kvöldvélina þaðan. En vegna
gangtruflana í flugvélinni varð sex
tíma seinkun á fluginu. ítalimir
komust loks til íslands um miðja
nótt - en farangurinn varð eftir
einhverstaðar í Evrópu.
Buratti og Lanzarotti virtust þó
býsna sprækir í upphafi tvímenn-
ingsins á föstudagskvöld því í fyrstu
umferðinni fengu þeir þijá nærri
hreina toppa, eða 92% skor! Þeir
leiddu mótið fyrstu tvær umferðim-
ar en svo tók þeim heldur að fat-
ast flugið og þegar komið var fram-
undir miðnætti vora farin að sjást
á þeim veraleg þreytumerki.
Þeir fengu þó eitt og eitt gott.
spil, þar á meðal þetta:
Norður ♦ K93 ¥ Á3 ♦ D
♦ K1098753
Vestur Austur
♦ -- ♦ ÁD108642
¥ K1086 ¥ G72
♦ AG10742 ♦ 85
♦ G42 Suður ♦G75 ¥D954 ♦ 6
♦K963 ♦ÁD
Lanzarotti opnaði á 2 laufum
í norður, austur stökk í 3 spaða,
Buratti doblaði til úttektar og
Lanzarotti lauk sögnum með 3
gröndum.
Hjartaútspil hefði sökkt þess-
um samningi en austur fann
næstbesta útspiliðý tíguláttu.
Lanzarotti lét lítið og nú var kom-
ið að vestri. Ef hann hefði farið
upp með tígulás og spilað hjarta-
kóng hefði Lanzarotti orðið að
leggja niður vopnin, því hjartaás-
inn var eina innkoman á laufalit-
inn. Þetta var þó ekki augljós
vörn og í raun gaf vestur fyrsta
slaginn. Lanzarotti fékk á drottn-
inguna, tók AD í laufi og fór
heim á hjartaás til að taka lauf-
slagina. En fyrir að vinna 3 grönd
slétt fékk hann megnið af stigun-
um.
í búðum
Á laugardagsmorguninn héldu
hremmingar ítalanna áfram.
Vegna misskilnings héldu þeir að
spilamennska hæfist ekki fyrr en
klukkan 13 og þegar allir aðrir
voru sestir við spilaborðin kl. 11
kom í ijós að Buratti og Versace
höfðu skroppið í búðir niður í bæ.
Hjálpsamir áhorfendur hlupu í
skarðið fyrstu tvær umferðirnar
þar til ítalirnir mættu.
Um tíma virtist ekkert geta
komið í veg fyrir sigur Lauria og
Versace sem höfðu lengst af yfir-
burða forustu. En í síðustu um-
ferðinum fór róðurion að þyngjast
og Buratti og Lanzarotti saumuðu
hægt og hægt að þeim og náðu
efsta sætinu í næstsíðustu um-
ferð.
Verðlaun voru veitt fyrir 12
efstu sætin og í þeim höfnuðu
eftirtalin pör:
Andrea Buratti - Massimo Lanzarotti 6262
LorenzoLauria-AIfredoVersace 6174
Friðjón Þórhalls. - Siguijón Tryggvas. 6049
Guðm. P. Amarson - Þorlákur Jónsson 5972
Boris Baran - Mark Molson 5917
Zia Mahmood - Lars Blakset 5888
Guðl. R. Jóhannsson - Örn Amþórsson 5864
Guðm. Sveinsson - Valur Siprðsson 5836
Aðalsteinn Jörgens. - Matthías Þorvalds. 5834
ÓttarÁrmannsson-JónasÓlafsson 5812
Erlendur Jónsson - Þröstur Ingimarsson 5788
Magnús Mapússon - Siprbjöm Haraldsson
5763
Dobl eða 5 tíglar
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra setti mótið og sagði
fyrstu sögnina fyrir Zia Mahmood
í skemmtilegu skiptingarspili. Þeir
Lars Blakset sátu AV en við Helgi
Jóhannsson NS:
Austur gefur, NS á hættu:
Vestur
♦ Á106
▼ K65
♦ 87652
+ G8
Norður
♦ 874
¥1098743
♦ D
♦ Á94
Austur
♦ K
¥ ÁG2
♦ ÁK10943
♦ 1063
Suður
♦ DG9532
¥ D
♦ G
♦ KD752
Halldór opnaði á 1 tígli fyrir
Zia á austurspilin, ég sagði 1
spaða, Blakset 1 grand, Helgi 2
spaða og Zia stökk í 3 grönd.
Þótt við værum á hættu gegn
utan fannst mér heldur klént að
passa með suðurspilin og sagði
því 4 spaða, sem ég taldi Iíklegt
að færu ekki meira en 1 niður.
En Blakset sagði 5 tígla sem Zia
vann slétt og niðurstaðan var
rúmur miðlungur til okkar.
„Hvað hefðir þú gert ef 4 spað-
ar hefðu komið til þín?“ spurði
Halldór Zia. „Ég hefði doblað,"
svaraði Zia. „Ég hefði sagt 5
tígla,“ sagði Halldór, og raunar
hefði það gefist betur því að með
vandvirkni fást-9 slagir í 4 spöð-
um.
Ekki í textavarpinu
Alls tóku 120 pör þátt í mót-
inu. Nýtt keppnisform var notað
í tvímenningnum, svonefndur
monradbarómeter, en þá spila
alltaf saman pörin með hæstu
Morgunblaðið/Amór
ÍTALIRNIR ræða málin milli umferða. Frá vinstri eru Lorenzo
Lauria, Massimo Lanzarotti, Alfredo Versace og Andrea Buratti.
FJÖLMARGIR áhorfendur fylgdust með á Hótel Loftleiðum
um helgina. Hér eigast við Boris Baran og Jón Baldursson.
skor, hafi þau ekki spilað saman
áður. Það er töluvert flókið að
skipuleggja og stjórna svona
móti, sérstaklega þar sem spilað
var í mörgum sölum. Og raunar
höfðu einhverjir á orði að Islend-
ingar væru þeir einu í heiminum
nógu bijálaðir til að detta í hug
að nota þetta fyrirkomulag í
móti af þessari stærð. En mótið
tókst ótrúlega vel undir stjórn
Sveins R. Eiríkssonar, Jakobs
Kristinssonar og Elínar Bjarna-
dóttur, skiptingar voru fumlitlar
og styrkleiki paranna flokkaðist
vel.
Staðan í mótinu birtist alltaf
jafnóðum í textavarpi Ríkissjón-
varpsins. Vafalaust hafa margir
verið óánægðir með árangur sinn
og sinna nánustu. Þannig var því
að minnsta kosti farið með einn
lítinn mann, sem beið eftir pabba
sínum utan við spilasalinn að
mótinu loknu og sagði ásakandi:
„Þú komst ekki einu sinni í texta-
varpinu!"
Ekkert gengur
hjá Zia
Flugleiðamótið í sveitakeppni
hófst á sunnudag og því lauk í
gærkvöldi. 100 sveitir tóku þátt.
Eftir fyrrihlutann leiddi sveit VÍB
með 128 stigum, en hún vann
m.a. sveit Zia Mahmood 25-5. í
öðru sæti voru ítalirnir með 128
stig, sveit Metró og sveit Hjálm-
ars S. Pálssonar höfðu 119 stig,
sveitTVB16 hafði 118, sveit Sam-
vinnuferða 116, sveit HP köku-
gerðar 115 og sveitir Búlka og
Kanada 114 stig.
Guðm. Sv. Hermannsson
WtAOAUGL YSINGAR
„Au pair“
„Au pair“ vantar á heimili í Þýskalandi um
mánaðamótin maí/júní.
Umsækjendur sendi nafn og símanúmer til
Guðnýjar Hermannsdóttur, lllugagötu 46,
900 Vestmannaeyjum.
Verður þagað lengi enn?
Margrét Frímannsdóttir hefur á Alþingi spurt
dómsmálaráðherra um störf dómara fyrir
ráðuneyti og að stjórnsýslu, (mál 290). Hver
verða svörin um leyndarbréf Hæstaréttar og
„stjórnsýslu Hæstaréttar", sem bókin
Skýrsla um samfélag upplýsir um? Útg.
H NORDIC SCREEN
Færiband árg. ’95
Lítið notað, en þarfnast lagfæringar.
Lengdábandi: 16 m
Breidd á bandi: 1m
Lyftihæð: 6 m
Riffluð reim, mótor: 3 X 380 V, 7,5 kW.
Skútuvogi 12A, s. 581-2530.
□ EDDA 59960222019 III 2
□ FJÖLNIR 5996022019 I 1
FRL
□ HAMAR 5996022019 I Frl.
□ HL(N 5996022019 Vl° 2
I.O.O.F. Ob. 1 = 17702208:30 =
NK
1.0.0.F. Rb. 4= 1452208 - 8'h.
0.
FERÐAFÉLAG
® ÍSIANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Miðvikudagur 21. febrúar
Fræðslukvöld
Ferðabúnaður til fjalla
Annað fraeðslukvöld vetrarins í
samvinnu við Landsbjörgu í
félagsheimilinu í Mörkinni 6 og
hefst það kl. 20.30.
Fyrirlestur um klæðnað og ferða-
útbúnað til fjallaferða.
Ferðafélag islands.
AD KFUK,
Holtavegi
Fundur í kvöld kl. 20.30.
Fundarefni: Kristniboö.
Allar konur velkomnar.
Skíðagöngunámskeið
íaugardaginn 24. febrúar
kl. 10.30. Nánar auglýst fimmtu-
daginn 22. febrúar.
Dagsferð sunnud. 25. feb.
Kl. 10.30 Bessastaðanes.
Bessastaðir-Skansinn-Seilan.
Hringferð á Álftanesi, létt ganga.
Helgarferðir 23.-25. feb.
1. Góuferð i Bása.
Góð skemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna. Boðið upp á lengri og
skemmri göngu- og skíðaferðir
í stórbrotnu umhverfi.
2. Tindfjallajökull.
Gengið á skíðum upp i Tindfjalla-
sel og gist þar. Farið á helstu
tinda í nágrenninu. isaxir og
broddar .nauðsynlegir.
Útivist.