Morgunblaðið - 20.02.1996, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996 43
FRÉTTIR
Björn Egill Arnbjörg
Bjarnason Jónsson Sveinsdóttir
Alþingismenn heimsækja
Fljótsdalshérað
MENNTAMÁLARÁÐHERRA,
Björn Bjarnason, og alþingismenn-
irnir Egill Jónsson og Arnbjörg
Sveinsdóttir efna til fundar á Egils-
stöðum miðvikudaginn 21. febrúar
kl. 20.30.
Á fundinum, sem verður haldinn
í félagsheimilinu Valaskjálf, verður
einkum fjallað um menntamál. Á
fimmtudaginn verða skólar á Eg-
ilsstöðum og í nágrenni heimsóttir
eftir því sem tími leyfir.
Bókasöfn á
sjúkrahúsunum
BÓKAHRINGRÁS Máls og menn-
ingar hefst á öskudaginn og renn-
ur ágóðinn af henni allur til bóka-
safna Kvennadeildar Reykjavíkur-
deildar Rauða kross íslands að
þessu sinni. Öskudagurinn er hefð-
bundinn fjáröflunardagur deilda
Rauða kross íslands. Kvennadeild-
in verður þrítug á árinu en sjálf-
boðaliðar hennar hafa nánast frá
upphafi annast bókaútlán á
sjúkrahúsum í Reykjavík.
í fréttatilkynningu segir að
bókahringrásin felist í því að al-
menningur komi með notaðar
bækur í verslanir Máls og menn-
ingar og færir Kvennadeildinni að
gjöf. Bókagjöfin verður endurgold-
in með 10% afslætti af öllum vör-
um í verslunum Máls og menning-
ar. Móttaka bókar hefst þriðjudag-
inn 20. febrúar. Almenningur get-
ur komið með gamlar eða nýlegar
notaðar bækur, jafnt íslenskar
sem erlendar, fullorðins- og
barnabækur. Frá og með miðviku-
deginum 21. febrúar getur svo
hver sem er komið og keypt not-
uðu bækurnar og styrkt eigið
bókasafn um leið og hann leggur
bókasafnihu á sjúkrahúsunum lið.
Bækurnar verða seldar á 500
kr. kílóið og rennur ágóðinn að
frádregnum virðisaukaskatti til
bókakaupa Kvennadeildarinnar.
Kvennadeildin ráðstafar svo að
vild þeim bókum sem ekki hafa
selst þegar bókahringrásinni lýkur
að kvöldi mánudagsins 26. febr-
úar.
Gæðaátak á smurstöðvum
Sjö stöðvar fá viðurkenningn
SJÖ smurstöðvar fengu í fyrradag
viðurkenningar vegna gæðaá-
taks, sem Bílgreinasambandið,
Félag íslenskra bifreiðaeigenda,
Olís, Esso og Skeljungur standa
að. Vonir eru bundnar við að
framhald geti orðið á verkefninu
svo að fleiri stöðvar bætist í hóp-
inn, en í máli Hallgríms Gunnars-
sonar, formanns Bílgreinasam-
bandsins, kom fram að í nútíma
samkeppnisþjóðfélagi væru kröf-
ur fyrirtækja og viðskiptavina
þeirra stöðugt að aukast og breyt-
ast. Smurstöð, sem hlotið hefði
viðurkenningu fyrir gæðaátak,
hlyti að vera eftirsóttari til við-
skipta en aðrar.
Sífellt fleiri fyrirtæki eru að
taka upp gæðakerfi, sem byggð
eru á ýíhsum stöðlum til að auka
samkeppnishæfnina á því sviði
sem fyrirtækið starfar á. Bætt
samkeppnisaðstaða, hátt þjón-
ustustig, hæft starfsfólk og betri
afkoma væru afleiddir þættir af
hvers konar gæðakerfum, sem
fyrirtæki nota til að stýra öllum
þáttum starfsemi sinnar. Þetta
ætti jafnt við um smurstöðvar
eins og alla aðra þætti þjónustu
sem fer fram innan bílgreinarinn-
ar.
Til þess að svara þessum kröf-
um var myndaður samstarfshópur
til að vinna að sameiginlegu
gæðaátaki á smurstöðvum. Útbú-
inn var sérstök átaksbók þar sem
skráðar eru upplýsingar um alla
þætti starfseminnar, svo sem um
húsnæði, vinnuaðstöðu, aðstöðu
fyrir viðskiptavini, búnað, tæki,
þjónustusvið, hæfni og þekkingu
starfsmanna, þjálfun starfs-
manna, þekkingu á efnum og
öðru sem notað er og selt ásamt
öðru sem tengist starfsemi og
þeirri þjónustu sem veitt er á
smurstöðvum. Þá eru einnig sett-
ar fram kröfur skráhingu um út-
lit, merkingar og umgengni sem
Morgunblaðið/Kristinn
FULLTRÚAR þeirra sjö smurstöðva, sem fengu viðurkenningu
fyrir gæðaátak. Frá vinstri: Magnús Jóhannsson frá Esso í
Hafnarfirði, Egill Egilsson frá Bæjardekki í Mosfellsbæ, Snjólf-
ur Fanndal Kristbergsson frá smurstöðinni Stórahjalla í Kópa-
vogi, Þorsteinn Bragason frá smurstöðinni Garðabæ, Jón C.
Sigurðsson frá Heklu, Þórður Ingimarsson frá smur- og hjól-
barðaþjónustu Björns og Þórðar í Keflavík og ívar Ásgeirsson
frá smurstöðinni Vogum við Knarrarvog i Reykjavík.
hver smurstöð verður að uppfylla
ásamt áætlunum um breytingar,
endurbætur og annað sem telst
til hagsbóta. Að uppfylltum kröf-
um hlýtur smurstöðin sérstaka
viðurkenningu þeirra aðila sem
að átaksverkefninu standa.
í átaksbókinni er sérstakur
kafli þar sem fjallað er um kvart-
anir og meðhöndlun þeirra. Þær
kvartanir, sem kunna að berast,
eru skráðar og síðan notaðar til
þjálfunar starfsmanna til að koma
í veg fyrir endurtekningu. Þá er
einnig starfandi sérstök nefnd
þeirra aðila sem að verkefninu
standa. Starfsvettvangur þessar-
ar nefndar er að fjalla um hvers
konar kvartanir, sem kunna að
berast frá viðskiptavinum, koma
á sáttum og skera úr um ágrein-
ingsmál, sem upp kunna að koma
á milli aðila.
VÁKORT
Eftirlýst lcort nr.:
Erlend kort:
4581 0981 2741 8138
4925 6550 0001 1408
AfgralOsluMlk.
vinumlsgaat takltt
ofangralnd kort úr umfortt og
■ondlttVISA (■landl Bundurkllppt.
VERÐ LAIN KR. 5000,-
fyrlr ott klófosta kort og viaa A vAgmt
Vaktþjónustn VISA er opln allan j
sólarlirinQlnn. Þangafi b«r aO (
tilkynna um gltttutt og atolln kort
SlMI: 567 1700
Alfakakka 18-109 Roykjavlk
ÞRÁTT fyrir ágæta færð var
tilmliskynnt um 36 umferðaró-
höpp til lögreglunnar um helgina.
Fólk slasaðist í tveimur tilvikum.
Á föstudag varð gangandi vegfar-
andi fyrir manni á reiðhjóli í
Kirkjustræti. Sá fyrrnefndi fékk
höfuðhögg og var fluttur á slysa-
deild með sjúkrabifreið. Þá þurfti
maður að leita á slysadeild vegna
áreksturs þriggja bifreiða á Miklu-
braut við Stakkahlíð á laugardag.
Tilkynntar líkamsmeiðingar
voru þtjár talsins. Þær voru í öllum
tilvikum minniháttar. Einn var
fluttur á slysadeild eftir slagsmál
á Lækjartorgi aðfaranótt laugar-
dags. Annar var handtekinn og
vistaður í fangageymslu. Þá var
ölvaður maður handtekinn í Aust-
urstræti um svipað leyti vegna
slagsmála. Hann þurfti einnig að
vista í fangageymslunum ásamt
42 öðrum sem lögreglan þurfti að
hafa afskipti af vegna ýmissa
mála um helgina.
14 grunaðir um
ölvunarakstur
Á tímabilinu voru 47 ökumenn
kærðir fyrir of hraðan akstur.
Tveir þeirra óku hraðar en 100
km/klst. innanbæjar. Auk þess eru
14 ökumenn, sem afskipti voru
höfð af, grunaðir um ölvunarakst-
ur. Þrír þeirra höfðu lent í umferð-
aróhöppum áður en til þeirra náð-
ist. í öllum tilvikum var um eignar-
tjón að ræða.
í einu tilvika helgarinnar var
bifreið ekið aftan á kyrrstæða
vörubifreið eftir að hafa neitað að
sinna stöðvunarmerkjum lögreglu.
Eftir óhappið hlupu ökumaður og
farþegi úr bifreiðinni. Farþeginn
náðist strax, en ökumaðurinn var
sóttur heim síðar. Báðir voru pilt-
Ur dagbók lögreglunnar í Reykjavík
Fíkniefni tekin á
nokkrum stöðum
arnir undir áhrifum áfengis. í ljós
kom að þeir höfðu tekið húslykl-
ana ófrjálsri hendi frá sofandi
kunningja sínum, farið heim til
hans, sótt bíllyklana og farið á
bifreiðinni með fyrrgreindum af-
leiðingum.
Fátt var i miðborginni aðfara-
nætur laugardags og sunnudags.
Engir unglingar undir 16 ára aldri
sáust þar á ferli. Þeir sáust ekki
heldur á ferli annars staðar í borg-
inni eftir að útivistartíma lauk.
Fyrri nóttina þurftu lögreglumenn
hins vegar að hafa afskipti af 6
ungmennum í sundlauginni á Sel-
tjarnarnesi, en þau höfðu farið
þangað inn í óleyfi. Það voru for-
eldrar í foreldraröltinu, sem veittu
veru þeirra athygli og létu vita.
Haft var samband við foreldra
ungmennanna og voru þau sótt.
Hálfur inni, liálfur úti
Sextán innbrot voru tilkynnt til
lögreglunnar um helgina. M.a. var
brotist inn í bifreiðar við Lauga-
veg, Árskóga, Arahóla, Mávahlíð,
Álfaland, Blöndukvísl, Framnes-
veg, Álfabakka, Ljósaland, Aust-
urberg og við Hátún. Þá var brot-
ist inn í geymslu húss við Mýrar-
götu, geymslu húss við Álfheima
16. til 19. febrúar
og þvottaaðstöðu húss við Snorra-
braut. Á sunnudagsmorgun var
komið að ungum manni, hálfum
inn um glugga húss við Víðihlíð.
Hann var fluttur á lögreglustöðina
ásamt verkfærum sem hann var
með.
Fíkniefni á mörg-úm stöðum
Aðfaranótt föstudags stöðvuðu
lögreglumenn bifreið í Vestur-
bergi. Við leit í henni fundust 5
grömm af amfetamíni falin undir
gúmmímottu. Fimm aðilar í bif-
reiðinni voru fluttir á lögreglustöð-
ina til yfirheyrslu. Um svipað leyti
handtóku lögreglumenn í eftirliti
ökumann á bifreið í vesturbænum
vegna gruns um fíkniefnamisferli.
Á laugardagsmorgun lögðu lög-
reglumenn hald á 35 grömm af
hassi og tæki til neyslu í húsi við
Bárugötu. Síðdegis á laugardag
var maður handtekinn í Hátúni
eftir að þýfi fannst í bifreið, sem
hann á. I framhaldi af því fundust
og tæki til fíkniefnaneyslu. Öku-
maðurinn var eftirlýstur af lög-
reglunni vegna gruns um nokkur
óupplýst innbrot á Vesturlandi. Á
sunnudag fundust efnaleifar og
tæki til fíkniefnaneyslu í geymslu
húss í Breiðholti. Við leit í einni
íbúðinni fundust einnig efni og
tæki.
57 handteknir, 52 sleppt
Snemma á sunnudagsmorgun
fóru lögreglumenn í hús við Tang-
arhöfða og höfðu þar afskipti af
57 manns vegna gruns um fíkni-
efnaneyslu. í flestum tilvikum var
um að ræða ungmenni um og í
kringum tvítugt. Við leit fundust
á þremur þeirra nokkrir skammtar
af amfetamíni, hassi og E-töflur.
Þeir, ásamt tveimur húsráðendum,
voru fluttir á lögreglustöðina til
frekari yfirheyrslna. Síðan í jan-
úar, eða frá því að lögreglan hóf
aðgerðir sínar gegn þeim sem
hafa fíkniefni í sínum fórum, hef-
ur hún haft afskipti af á þriðja
hundrað manns. Þar af hafa fíkni-
efni fundist á tæplega 60 einstakl-
ingum. Aðgerðum þessum mun
verða haldið áfram með það að
markmiði að stemma stigu við
meðferð fikniefna eftir því sem
kostur er. Foreldrar sem og aðrir
eru beðnir um að vera mjög á
varðbergi gagnvart þessum mál-
um og gefa upplýsingar eða til-
kynna grunsemdir þar að lútandi
til lögreglu, annaðhvort beint eða
í símsvara 569 9090.
Beraði á sér kynfærin
Á föstudag kom upp eldur í
bifreið við Álakvísl. Slökkviliðs-
menn slökktu eldinn. Þá var mað-
ur fluttur á slysadeild eftir að
hafa slasast á hendi í vél fyrirtæk-
isins við Viðarhöfða. Hann var. að
vinna þar við fótstiginn skurð-
arhníf fyrir trélista þegar hann
skarst á tveimur fingrum. Síðdeg-
is var tilkynnt um ungan mann
um tvítugt sem hafði berað á sér
kynfærin fyrir framan tvær stúlk-
ur í Skipasundi. Leit að manninum
bar ekki árangur. Honum er lýst
sem dökkhærðum og burstaklippt-
um, í svörtum, þröngum gallabux-
um og ljósri strikóttri peysu.
Á laugardagsmorgun var til-
kynnt um reykjarlykt frá íbúð við
Gyðufell. Kviknað hafði í rúmföt-
um út frá vindlingi. Sá sem í rúm-
inu var náði að slökkva eldinn
sjálfur en var fluttur með sjúkra-
bifreið á Slysadeild vegna gruns
um reykeitrun.
Tólf ára krakkar
heimsækja lögreglu
í febrúar og mars er öllum tólf
ára bekkjum í Reykjavík, á Sel-
tjarnarnesi og í Mosfellsbæ boðið
í heimsókn á aðalstöð lögreglunn-
ar. Lögreglan kynnir fyrir þeim
starfsemi sína, m.a. eru rifjaðar
upp reglur um hjólreiðar og al-
mennt um umferð gangandi veg-
farenda. Þá eru þeim kynntar regl-
ur um útivist, sakhæfi og afleið-
ingar helstu afbrota, s.s. við
hnupli, þjófnuðum, skemmdar-
verkum o.s.frv. Áætlað er að u.þ.b.
1.200 börn verði þessa aðnjótandi.