Morgunblaðið - 20.02.1996, Side 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF • FORSETAKJÖR
ÍDAG
Ég sting upp á
Páli Skúlasyni
Frá Kristjáni Kristjánssyni:
MÉR skilst að þindarlaus leit standi
nú yfir að verðugum arftaka þeirra
Kristjáns Eldjárns og Vigdísar
Finnbogadóttur á forsetastóli að
Bessastöðum, manni sem beri með
sér reisn Kristjáns og þokka Vigdís-
ar en hafi þó af slíkum sérkostum
að státa að hann verði meir en blá-
ber tvígengill annars hvors þeirra.
Um forsetann okkar má aldrei
verða ort: „Af bragðvísri hagfræði
blendingur var / og bókviti hugsun
hans hver.“ Köttur má ekki komast
í ból bjamar. Hinn eftirlýsti þarf
að vera mæltur á framandi tungur
og sjóaður í samskiptum við fjarrar
þjóðir. Hann þarf að vera samein-
ingartákn íslendinga inn á við,
glæstur fulltrúi þeirra út á við.
Umfram allt þarf hann að vera í
blóðtengslum við sögu þjóðarinnar,
náttúru hennar og tungu.
Ég játa að hafa ekki fyrr lagt
eyru við væntanlegu forsetakjöri
en að nafn eins manns kom mér í
hug, Páls Skúlasonar, heimspek-
ings og prófessors við Háskóla Is-
lands. Hann hefur þá kosti til að
bera sem tilgreindir voru hér að
framan en er laus við gallana. Hann
er sómamaður sem ég hef hvergi
heyrt orði á hallað þótt hann hafi
lengi verið áberandi í íslensku
menningar- og menntalífi. Slíkt er
einstakt í samfélagi persónuvíga.
Ég sting upp á Páli.
Páll hefur verið óþreytandi við
að koma málstað heimspekinnar á
framfæri á opinberum vettvangi.
Hann hefur ekki talað til fólks úr
fílabeinstumi fræðanna heldur
mælt röddu sem það skilur. Það er
á vettvangi hversdagsins, ekki síst
í baráttunni við náttúmöflin á sjó
og landi, sem menn verða „frábær-
ir umfram aðra“. Þetta veit Páll og
skilur. Þegar hann heldur opinbera
fyrirlestra á Akureyri fyllast salir
ekki af búralegum fræðingum held-
ur venjulegu fólki sem nemur speki
hans.
Það er íslenskur rótarkeimur af
heimspeki Páls Skúlasonar, líkt og
af kveðskap Stephans G. Stephans-
sonar. Ég hlustaði nýverið á Pál
flytja erindi um lífspeki hins síðar-
nefnda á ráðstefnu í Kanada. Hann
sló, sem oftar, í gegn. Ég heyrði
Vestur-íslendinga pískra um það á
göngum á eftir hvort hér væri ekki
komið tilvalið forsetaefni. Minn-
umst þess að frændur okkar þar
eru einatt enn þjóðræknari en við
hér heima, enn næmari fyrir hags-
munum „gamla landsins".
Einn vinur minn stakk því að
mér fýrir skömmu að Pál mætti
með réttu kalla þjóðspeking, ekki
síður en heimspeking: heimssýn
hans væri svo gegnsýrð af lensku
hans, rótum hans í íslenskri mold.
Lykilorðin í hugsun Páls nú um
stundir eru einmitt þessi: alþjóð-
rækni, þjóðrækni — náttúrusýn,
umhverfi(ng).
Er hægt að hugsa sér verðugri
íhugunarefni fyrir forseta?
Páll Skúlason hefur þegar í verk-
um sínum lagt drög að nýrri, þjóð-
legri og jarðbundinni heimspekihefð
á Islandi og auðgað þá bókmennta-
hefð sem svo lengi hefur verið stolt
okkar og sómi. Hann yrði sannur
íslendingur á forsetastóli.
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
dósent við Háskólann á Akureyri.
Forsetaefni
á heimsmælikvarða
Frá Víði Sigurðssyni:
í DAG er mikið Qallað um hver
skuli taka við af núverandi forseta,
ýmsir eru nefndir til sögunnar og
sitt sýnist hverjum, en nokkrir eig-
inleikar forsetaframbjóðenda er
mikill meirihluti þjóðarinnar sam-
mála um að eigi að vera til staðar
svo að reisn og sómi forsetaemb-
ættisins verði sem mestur.
Verðandi forseti þarf að þekkja
vel til lands og þjóðar, svo og ann-
arra þjóða, menningar þeirra og
sögu. Hann þarf einnig að hafa
mjög glæsilega framkomu, það
þarf að fylgja þeirri framkomu
þroski sem er laus við allt yfirlæti
en forsetinn þarf samt sem áður
að hafa mikið sjálfsöryggi og tign-
arleika.
Sá einstaklingur hér á landi sem
kemst hvað næst þessum skilyrð-
um er án efa Ólafur R. Grímsson.
Ólafur er fæddur 14. apríl árið
1943_og verður því 53 ára á þessii
ári. Ólafur er doktor í stjórnmála-
fræði frá University of Manchest-
er. Hann er landsþekktur fyrir
störf sín innanlands en erlendis
hefur hann unnið mjög mikið starf
á vegum alþjóðlegu þingmanna-
samtakanna þar sem hann gegndi
forsetastöðu, auk þess hefur hann
setið lengi þing Evrópuráðsins.
Ólafur hefur einnig hlotið fjölda
verðlauna fyrir störf sín í þágu
jöfnuðar og friðar. Þessi verðlaun
hafa gert Olaf Ragnar mjög þekkt-
an erlendis meðal ráðamanna enda
ekki á hvers manns færi að ná slík-
um árangri. Það myndi eflaust
styrkja hann í allri þeirri umfjöllun
sem fjölmiðlar skapa þegar hann
heimsækir ráðamenn annarra
þjóða. ísland getur með Ólaf sem
forseta haslað sér völl á alþjóða-
vettvangi sem þjóð friðar, jöfnuðar
og samstöðu í heiminum sem gæti
orðið mjög dýrmæt auglýsing og í
samræmi við kristilegt hugarfar.
Þegar ferill Ólafs Ragnars Gríms-
sonar er skoðaður í heild sést glögg-
lega að hér er á ferðinni maður mik-
ill skörungur, Ólafur á auðvelt með
að setja sig í spor fólks sem myndi
nýtast honum þegar hann þarf að
hvetja íslensku þjóðina til dáða. Þessi
eiginleiki getur verið góður þegar
forsetinn þarf að koma erlendum
ráðamönnum í skilning um að virða
mannréttindi, þar má því búast við
góðum árangri þar sem Ólafur mun
vefja þeim um fingur sér.
Ölafur hefur einnig beitt sér í
seinni tíð mjög fyrir því að afla
markaða í Asíu fyrir íslenskar fram-
leiðsluvörur bæði í sjávarútvegi og
hugbúnaðarframleiðslu sem eru
milljarða verðmæti fýrir íslenskan
útflutning þegar til lengri tíma er
litið. Verðmæti þessara viðskipta-
sambanda munu aukast til muna ef
Ólafur fengi stuðning þjóðarinnar
sem forseti vegna þeirrar miklu virð-
ingar sem embættinu fylgir á al-
þjóðavettvangi.
Eiginkona Ólafs heitir Guðrún
Þorbergsdóttir, hún er afskaplega
glæsileg og frambærileg kona með
góðan orðstír. Það eina sem raun-
verulega gæti komið í veg fyrir að
þjóðin hafnaði Ólafi er að hann á
pólitískan feril að baki, þannig er
það í höndum þjóðarinnar að fyrir-
gefa honum pólitíska fortíð hans þar
sem hann hefur þurft á stundum
að taka sársaukafullar ákvarðanir,
og þar með að hæfasti einstakling-
urinn geti sest að á Bessastöðum.
Ég hvet hér með Ólaf Ragnar
Grímsson til að gefa kost á sér til
embættis forseta, íslensku þjóðinni
til gæfu og farsældar hin komandi
ár.
VÍÐIR SIGURÐSSON,
Auðbrekku 38, Kópavogi.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Hvítur leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp í viður-
eign tveggja stórmeistara á
alþjóðlegu móti í Bern í
Sviss, sem lauk á laugar-
daginn. Dmitri Gurevich
(2.535), Bandaríkjunum,
hafði hvítt og átti leik, en
Julian Hodgson (2.615),
Englandi, hafði svart.
16. Rxd5! - cxd5 17.
Dxd5+ - Kh8 18. Bd6
(Afleit staða svarta hróks-
ins á a7 gerir aðstöðu svarts
vonlausa.) 18. - b5 19.
Bxf8 - Dxf8 20. c6 -
ÉG veit að þetta er veiði-
kort síðan í fyrra, en ég
ætla bara að skjóta það
sem ég náði ekki að veiða
á síðasta ári.
Rxc6 21. Dxc6 (Hvíta stað-
an er auðunnin með skipta-
mun yfir.) 21. - Bxd4 22.
He6! - Bxf2+ 23. Khl -
Rf6 24. Hfl - Bc5 25.
Hfxf6 - gxf6 26. He8 og
svartur gaf skömmu síðar.
Fyrir þessa skák fékk
Gurevich fegurðarverðlaun-
in á mótinu.
Ungveijinn Almasi sigr-
aði í útsláttarkeppninni,
vann Markowski frá Pól-
landi í úrslitum. Röð næstu
manna: 3.-7. Sadler og Gal-
lagher, Englandi, Kortsnoj,
Sviss, Dmitri Gurevich og
Hickl, Þýskalandi, 3 '/2 v. af
5, 8.-11. Kharlov, Episín,
Zvjagíntsev og Lagunov,
allir Rússlandi, 3 v. 12.-21.
Margeir Pétursson, Hodg-
son, Englandi, Wojtkiewicz,
Póllandi, Kengis, Lettlandi,
Christiansen, Bandaríkjun-
um, Kindermann, Þýska-
landi, Brunner og Fejzull-
ahu, Sviss, Pia Cramling og
Lyrberg, Svíþjóð, 2 '/2 v.
o.s.frv.
Síðustu þijár umferðirn-
ar í A-flokki í skákkeppni
stofnana og fyrirtækja fara
fram í félagsheimili TR,
Faxafeni 12, í kvöld.
HVERNIG dettur þér í
hug að tala svona við
pabba þinn?
COSPER
ÞEGAR þú gefur hundinum hálsól, þarftu líka
að gefa mér eitthvað um hálsinn.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Tapað/fundið
Úr fannst
SVART tölvuúr fannst á
Hagaskólalóðinni fyrir
u.þ.b. viku. Upplýsingar
í síma 562-3358.
Göngnskíði
tapaðist
EITT gönguskíði tapaðist
sunnudaginn 11. febrúar
sl. af bíl á leiðinni frá
Rauðavatni. Ekin var
Breiðholtsbraut, Jaðarsel,
að Hæðarseli. Finnandi
vinsamlega hringi í síma
557-4997 eða 567-0647.
Klói er týndur
KLÓI fór að heiman frá
sér fyrir 2 vikum. Hafi
einhver orðið var við
hann er hann vinsamleg-
ast beðinn að hringja í
síma 553-8184.
Með morgunkaffinu
ÞESSI er á mjög góðu
verði, 12.750 krónur og
við getum sett 32 þúsund
kr. verðmiða á hann ef
þú vilt, áður en við pökk-
um honum inn.
JÆJA, hvernig gengur?
Víkveiji skrifar...
AÐ hefur áreiðanlega komið
mörgum á óvart, að svo mörg
dæmi séu um símahleranir hér á
landi, eins og fram kom í svari á
Alþingi við fyrirspum frá Svavari
Gestssyni. En jafnframt er ljóst, að
heimild til símahlerunar hefur ein-
ungis verið gefin í fíkniefnamálum.
I Morgunblaðinu á laugardag
vara tveir lögmenn við því, að heim-
ildir til símahlerana verði rýmkað-
ar. Ragnar Aðalsteinsson, hrl., seg-
ir, að alls staðar þar sem slíkt hafi
verið leyft hafí það verið misnotað
og bendir á, að í Bandaríkjunum
hafi þetta farið úr böndum. Sigur-
mar K. Albertsson, varaformaður
Lögmannafélagsins bendir á, að ef
svonefnd herbergjahlustun yrði
leyfð væri hætta á að farið yrði að
hlera fleiri samtöl en þau, sem bein-
línis tengjast rannsókn máls.
Hér takast á tvö sjónarmið; ann-
ars vegar grundvallaratriðið um
friðhelgi einkalífs fólks, hins vegar
spumingin um það, hvernig hægt
sé að ná tökum á fíkniefnasmygli.
Það er áreiðanlega rétt hjá lög-
mönnunum tveimur að viss hætta
er á ferðum, að heimildir til hlerun-
ar verði misnotaðar. Þess vegna ber
að fara varlega í að veita slíkar
heimildir og, ekki síður mikilvægt;
nauðsynlegt er að haft sé strangt
eftirlit með framkvæmd þeirra.
RJÁTÍU flugmenn Atlanta
íhuga að flytja úr landi vegna
þess, sem þeir líta á, sem ofsóknir
skattayfirvalda á hendur þeim.
Efni málsins mun vera það, að
flugmennirnir eru starfsmenn er-
lendra fyrirtækja, sem reka
áhafnaleigu. Þeir hafa bersýnilega
fengið ákveðna heildarsummu
greidda sem laun en við framtal
til skatts hafa þeir reiknað sér
dagpeninga af þessari upphæð til
þess að standa undir kostnaði við
störf á erlendri grund. Yfirskatta-
nefnd hefur úrskurðað í máli eins
þeirra og gert honum að greiða
skatta af þeim greiðslum eins og
öðrum. Fram kemur í frétt Morg-
unblaðsins um þetta mál sl. laugar-
dag, að einn flugmannanna hefur
nú fengið sundurliðun á sínum
greiðslum frá viðkomandi áhafna-
leigu.
Nú er auðvitað ljóst, að skatta-
yfirvöld hér verða að vera tilbúin
til að mæta nýbreytni í fyrirtækja-
rekstri á borð við þá, að Atlanta
ráði flugmenn ekki beint til starfa
hjá sér heldur í gegnum erlendar
áhafnaleigur. En jafnframt má
spyrja; þegar álitamál af þessu
tagi koma upp, hvers vegna leita
flugmennirnir ekki í upphafi til
skattayfirvalda og óska eftir um-
sögn þeirra um skattalega meðferð
á umræddum greiðslum, þannig
að ekkert fari á milli mála að hveiju
þeir ganga?
xxx
IVIÐSKIPTABLAÐI Morgun-
blaðsins sl. fimmtudag var frá
því skýrt, að hörð samkeppni ríki
milli greiðslukortafyrirtækja um
viðskipti ungs fólks og að þau bjóði
nemendum í útskriftarárgöngum
framhaldsskóla m.a. að fella niður
stofngjald og árgjald og jafnvel
styrki'tíl utanferða til þess að fá þá
í viðskipti.
í DV í gær skýrir Gunnlaugur
Sigmpndsson alþingismaður frá
því, að hann hyggist flytja tillögu
á Álþingi um að banna bönkum og
greiðslukortafyrirtækjum að kreQ'-
ast ábyrgða vegna útgáfu kredit-
korta. Þingmaðurinn segir, að í
Bandaríkjunum séu ábyrgðir vegna
slíkra korta víðast hvar bannaðar.
Bankar og kortafyrirtæki ákveði
að veita kort eftir greiðslusögu við-
komandi og byggi ekki á ábyrgðum
ættingja.
Þingmaðurinn setur fram í viðtal-
inu við DV það athyglisverða sjón-
armið, að kortafyrirtækin byiji á
að gefa unglingum peninga ef þeir
samþykki þar með að „verða áskrif-
endur að því að byija að eyða“.