Morgunblaðið - 03.03.1996, Page 20
20 SUNNUDAGUR 3. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Halldór
STARFSFÓLK Barnaverndarstofu fyrir framan aðsetur stofnunarinnar í Suðurgötu 22. Á mynd-
inni eru talið frá vinstri: Elísabet Berta Bjamadóttir, María Erla Marelsdóttir, Anni Haugen, Guð-
rún Bóasdóttir, Guðjón Bjarnason, Hildur Sveinsdóttir og Bragi Guðbrandsson.
Á myndina vantar Ingþór Bjarnason.
Umræðan
oft hlaðin
tilfinningnm
Umtalsverðar breytingar hafa orðið á skipan bamavemdarmála á
íslandi í kjölfar þess að Bamavemdarstofa tók til starfa á síðast-
liðnu ári, en tilgangurinn með stofnun hennar var að samræma
stjóm bamavemdarmála í landinu. Nefnd Sameinuðu þjóðanna
um réttindi bamsins hefur fagnað stofnun hennar í athugasemdum
sínum um framkvæmd Bamasáttmálans á íslandi nýlega. Lokun
meðferðarheimilisins Tinda á Kjalamesi síðastliðið haust er meðal
aðgerða sem gripið hefur verið til, en Bragi Guðbrandsson,
forstjóri Bamavemdarstofu, segir í samtali við Hall Þorsteinsson
að nýting Tinda hafi verið mun minni en gert var ráð fyrir og
_______tilgangurinn með lokuninni hafí verið að nýta betur_
fjárveitingar til barnavemdar mála.
Barnavemdarstofa heyrir
undir félagsmálaráðu-
neytið og tók reglu-
gerð um hana gildi 1.
júní 1995 og hóf hún
þá starfsemi. Hjá stofnuninni sam-
einast annars vegar stjórnsýsluleg
verkefni varðandi bamaverndar-
mál og hins vegar rekstur meðferð-
arheimila fyrir börn og unglinga,
sem áður heyrðu að mestu leyti
undir Unglingaheimili ríkisins sem
lagt var niður fyrir Vh ári. Loks
eru á verksviði stofunnar ýmis
verkefni á sviði barnavemdar sem
lítt eða ekki hefur verið sinnt til
þessa.
Að sögn Braga felst stjómsýsla
bamavemdarmála í eftirliti með
starfsemi barnaverndarnefnda, en
snar þáttur í því er að heimta ár-
lega skýrslur frá þeim um störf
þeirra og að fjalla um ýmis kæru-
efni frá þeim sem eiga samskipti
við nefndirnar. „Hjá þeim nefndum
úti á landi sem hafa fagfólk á sín-
um snærum er oft um að ræða
fagmenn sem starfa einir og leggja
mikla áherslu á að eiga aðgang
að sérfræðingum sem geta þá lið-
sinnt þeim og stutt í sínum ákvörð-
unum, því þessi mál eru eins og
gefur að skilja svo flókin í vinnslu
og viðkvæm að það þarf að vanda
mjög vel til þeirra. Þetta leiðbein-
ingar- og ráðgjafarhlutverk Barna-
verndarstofu er því mjög mikil-
vægt og það reynir talsvert á það,“
segir Bragi.
Þá hefur Barnaverndarstofa
fræðsluhlutverki að gegna, en það
felst í því að veita þeim sem kosn-
ir eru í bamaverndarnefndir og
starfsliði nefndanna reglubundna
fræðslu á sviði barnavemdar. Ann-
ars vegar lýtur þessi fræðsla að
framkvæmd bamaverndarlaganna
og málsmeðferð og vinnslu barna-
verndarmála, og hins vegar að
nýjungum og rannsóknum á þessu
sviði sem mikilvægt er að nefndirn-
ar hafi vitneskju um.
Meðferðarheimili fyrir börn
óháð aldri þeirra
Almennt er verkaskipting milli
ríkis og sveitarfélaga með þeim
hætti að fyrir utan stjórnsýslulegt
hlutverk ríkisins þá einskorðast
verkefni þess á sviði barnaverndar-
mála við það að hafa tiltæk sér-
hæfð meðferðartilboð fyrir börn
og unglinga. Þetta verkefni var
áður að mestu á könnu Unglinga-
heimilis ríkisins sem rak meðferð-
arstofnanir fyrir unglinga 13-18
ára. Undir hatti Bamavemdar-
stofu era hins vegar öll meðferðar-
heimili, sem rekin eru á grandvelli
bamavemdarlaga, óháð því hvort
þau era ætluð börnum undir 13
ára aldri eða unglingum.
„Samhliða þessari breytingu var
mörkuð ný stefna í meðferðarmál-
um bama og unglinga í kjölfar yfír-
gripsmikillar úttektar á meðferðar-
kerfínu. Annars vegar var ákveðið
að setja upp eina ríkisrekna með-
ferðarstöð fyrir unglinga sem
gegndi fjölþættu hlutverki og kæmi
í stað meðferðarheimilanna í Efsta-
sundi 86 og Sólheimum 7 og Tinda.
Þama er um að ræða Meðferðar-
stöð ríkisins og er húsnæði fyrir
hana í byggingu í Grafarvogi og
verður það væntanlega tilbúið í
ágústmánuði næstkomandi. Hins
vegar var ákveðið að stefna að því
að langtímameðferð og endurapp-
eldi færi fram á einkareknum með-
ferðarheimilum þar sem leitast
væri við að skapa krökkunum heil-
brigt fjölskylduumhverfí. Við höf-
um trú á því að það sé bæði hag-
kvæmasta leiðin og sú árangursrík-
asta. í dag era einkarekin heimili
þar sem boðið er upp á langtíma-
meðferð rekin að Torfastöðum í
Biskupstungum, Árbót í Aðaldal,
Geldingalæk á Rangárvöllum og við
Sólheima í Reykjavík. Að auki er
eitt heimili, sem ekki er einkarekið
en býður upp á langtímameðferð,
að Bakkaflöt í Skagafírði og í
tengslum við það annað einkarekið
heimili í tilraunarekstrí að Lauga-
mýri,“ segir Bragi.
Meðferðarstöð ríkisins fyrir
unglinga er sjálfstæð ríkisstofnun
og að sögn Braga mun hún grein-
ast í þtjú meginsvið. í fyrsta lagi
er um að ræða greiningu og
skammtímameðferð, í öðru lagi
vímuefnameðferð, sem á að koma
í staðinn fyrir meðferðina sem var
á Tindum á Kjalarnesi, og í þriðja
lagi svokallaða neyðarvistun. Það
er lögregluvistun eða vistun á veg-
um barnaverndarnefnda, sem mið-
ar að því að taka úr umferð í mjög
stuttan tíma unglinga, sem stofna
sjálfum sér í voða með eigin hátt-
erni eða þá að ósakhæfír einstakl-
ingar era vistaðir á meðan verið
er að rannsaka sakamál. Þessu
hlutverki hefur verið sinnt í Efsta-
sundi 86 fram til þessa við ófull-
nægjandi aðstæður.
„Á Meðferðarstöð ríkisins mun-
um við í fyrsta skipti hafa mögu-
leika á lokaðri meðferð þar sem
við getum vistað unglinga og hald-
ið þeim gegn vilja sínum, en það
hefur verið gloppa í kerfínu hjá
okkur svo að við höfum ekki getað
þetta nema í mjög takmörkuðum
mæli. Þarna kemur svo aftur
möguleiki til sólarhringsmeðferðar
vegna vímuefnaneyslu eins og við
buðum upp á á Tindum á sínum
tíma.“
Heildaryfirsýn á einum stað
Bragi segir að tilgangurinn með
stofnun Meðferðarstöðvarinnar sé
sá að gera meðferðarkerfíð sveigj-
anlegra, en vitað sé að eftirspurnin
eftir meðferð sé mjög breytileg frá
einum tíma til annars.
„Með fjölþættu hlutverki Með-
ferðarstöðvarinnar undir einu þaki
vonumst við til að geta betur aðlag-
ast þeim kröfum sem til okkar era
gerðar um þjónustu en verið hefur
og jafnframt komist hjá að starf-
rækja dýrar stofnanir sem ekki
nýtast sem skyldi eins og var á
Tindum á sínum tíma. Við nýtum
því fjármagnið betur en áður var
gert og það gerir okkurt kleift að
fjölga langtímaúrræðum. Það höf-
um við nú þegar gert og munum
gera enn frekar eftir því sem þessi
rekstrarhagræðing skilar sér. Það
er því ekki rétt, sem haldið hefur
verið fram, að meðferðarrýmum
fyrir unglinga muni fækka með
tilkomu Meðferðarstöðvar ríkis-
ins.“
Allar ákvarðanir um innlagnir
unglinga á Meðferðarstöðina og
önnur meðferðarheimili verða
teknar af Barnaverndarstofu, í
samráði við meðferðaraðila. Und-
anskilin er þó neyðarvistunin þar
sem ákvarðanir um innlögn verða
teknar af lögreglu og barnavernd-
amefndum. Samkvæmt reglugerð
er starfandi á Barnaverndarstofu
svokallað fagteymi, sem í eru sér-
fræðingar frá Barnaverndarstofu,
forstöðumaður Meðferðarstöðvar-
innar og yfirlæknir barna- og ungl-
ingageðdeildar Landspítalans, en
það metur umsóknirnar og raðar
þeim í forgangsröð. í þessu felst
að sögn Braga það mikilvæga ný-
mæli að komið hefur verið á skipu-
legri samvinnu á milli þeirra aðila
sem veita börnum og unglingum
þjónustu á sviði meðferðar og ætti
það að tryggja markvissari vinnu-
brögð.
Þetta er mjög mikilvægt til að
tryggja að það sé einhvers staðar
á einum stað heildarsýn í kerfinu
yfír þörfina á meðferðarrýmum og
að tryggð sé eðlileg forgangsröðun
og þeir fái vistun sem mesta hafa
þörfina.“
Hvert og eitt langtímameð-
ferðarheimilanna er rekið með sínu
sniði enda er þeim ætlað að upp-
fylla ólíkar þarfir. Bragi segir að
oft sé þeim unglingum sem þurfa
á meðferð að halda slengt saman
undir einn og sama hattinn, en
staðreyndin sé auðvitað sú að um
sé að ræða einstaklinga með ólíkar
þarfir og því misjafnt hvað henti
hveijum og einum. Það er svo hlut-
verk fagteymisins og Barnavernd-
arstofu, sem tekur endanlegu
ákvörðunina, að velja það meðferð-
arúrræði sem hentar þörfum ungl-
ingsins best.
Aðstoð við val á
fósturforeldrum
Meðal nýrra verkefna sem
Barnaverndarstofa annast er að
veita barnaverndarnefndunum
þjónustu við öflun hæfra fósturfor-
eldra. Bragi segir barnaverndar-
nefndir oft hafa átt í mestu erfið-
leikum þegar upp hafi komið mál
þar sem barn er forsjárlaust eða
fóstra þarf barn til lengri tíma og
misjafnlega tekist til í þessum efn-
um.
„Oft hefur fólk gefið sig að
þessu verkefni án þess að hafa
undirbúið sig nægjanlega eða átt
kost á því að fá nauðsynlega
fræðslu og stuðning. Ein undan-
tekning á þessu er Reykjavíkur-
borg sem undanfarin ár hefur rek-
ið vistunar- og fóstursvið sem hef-
ur sérhæft sig í þessum rnálurn,"
segir Bragi.
Verkefni Barnaverndarstofu er
að afla hæfra fósturfjölskyldna og
veita þeim nauðsynlega fræðslu
og búa þær undir þessa miklu
ábyrgð sem þær axla. Þeir sem
hafa áhuga á því að gerast fóstur-
foreldri hafa því samband við
Barnaverndarstofu og síðan fer í
gang mat á aðstæðum viðkomandi
og honum gefst kostur á að sækja
námskeið. Fólk á því kost á góðum
undirbúningi og þegar barnavernd-
arnefnd leitar eftir fósturfjölskyldu
er metið hvaða fjölskylda henti
best viðkomandi barni. Þá er því
miðlað til barnaverndarnefndar-
innar og henni veitt ráðgjöf um
það hvernig best sé að standa að
fósturráðstöfuninni.
„Þetta er að mínu viti gríðarlega
mikilvægt viðfangsefni sem hefði
í reynd átt að vera búið að koma
á laggirnar fyrir löngu. Rannsókn-
ir sem hafa verið gerðar benda til
þess að fósturráðstafanir hafa því
oft miður misfarist og börn hafa
gjarnan áður fyrr lent í hrakningi
á milli fósturheimila og ekki náð
því að festa rætur hjá neinni einni
fjölskyldu. Þetta era þá gjarnan
böm sem á unglingsáranum lenda
inni á meðferðarstofnunum á veg-
um ríkisins. Það má því að nokkra
leyti segja að þarna sé um að ræða
ákveðið forvarnarstarf sem felst í
að auka líkurnar á því að fósturráð-
stafanir heppnist og börnunum
vegni vel hjá nýrri fjölskyldu, en
með þessu drögum við úr líkum á
því að það þurfi að koma til inn-
lagnar á seinni stigum í ævi barns-
ins,“ segir Bragi.