Morgunblaðið - 24.03.1996, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
Þakkir til Vigdísar
Frá Sverri Ólafssyni:
NÚ ÞEGAR óðum styttist í að þjóð-
in gangi til forsetakjörs, verður mér
litið yfir þann tíma sem frú Vigdís
Finnbogadóttir hefur setið í emb-
ætti. Vigdís hefur ákveðið að gefa
ekki oftar kost á sér í þessa miklu
virðingar- og ábyrgðarstöðu, sem
hún hefur gegnt af svo stakri prýði.
Víst er að hennar mun sárt verða
saknað. Við íslendingar mættum
gjarna vera svolítið örlátari á þakk-
læti og viðurkenningu til þeirra sem
vel vinna verk sín, því að í því ligg-
ur hvatning til hinna að gera bet-
ur. Vigdís forseti er einmitt ein
þeirra Islendinga, sem bæði á þakk-
ir og virðingu þjóðarinnar ríflega
skilið.
Það er skoðun mín að engan ást-
sælli forseta hafi íslendingar átt
en Vigdísi og er þá ekki ætlan mín
að kasta rýrð á nokkurn forvera
hennar.
Vigdís, hefur einfaldlega markað
svo djúp spor í sögu og sál þjóðar-
innar, að seint mun verða til jafnað.
Ég hef átt þess kost, að ferðast
víða um heim í tengslum við störf
mín að menningarmálum. A þeim
ferðum hef ég orðið áþreifanlega
Umat-
hugasemd
landlæknis
Frá Þorbergi Kristjánssyni:
ÉG VIL eigi láta hjá líða að þakka
Ólafi Ólafssyni, landlækni, athuga-
semd þá, sem hann gerir í Mbl. 15.3.
1996, við grein mína, er birtist í
sama blaði 9. mars, þar sem m.a.
var vikið að krufningum.
Það er vissulega mikils virði, í
þessu samhengi, að hafa opinbera
yfirlýsingu landlæknis, þess efnis,
að embætti hans túlki lög um dán-
arvottorð þannig, „að alfarið skuli
tekið tillit til vilja hins látna og taka
skuli mið af vilja nánustu aðstand-
enda varðandi krufningar nema ef
um réttarkrufningu sé að ræða að
beiðni lögreglu“.
Ég tel mig hins vegar hafa ástæðu
til að ætla, að þannig túlki ekki allir
læknar téð lög og að ákvæðið um
réttarkrufningu sé stundum mjög
fijálslega notað. Víst er þá líka, að
syrgjendur í tilfínningalegu uppnámi
treysta sér ekki endilega til að reka
réttar síns, með því t.d. að leita fullt-
ingis landlæknis, enda ganga þessir
hlutir yfirleitt fljótt fyrir sig. Ég
minnist þess t.d. að fyrir nokkrum
árum, féllst vandamaður látins
manns, sem ég átti að jarðsyngja,
ekki á að krufning færi fram, þegar
eftir var leitað, en var þá einfaldlega
svarað því til, að beðið yrði um úr-
skurð dómara. Haft var samband við
dómsmálaráðuneytið, sem treysti sér
ekki til að taka á málinu og áður en
frekar varð aðhafst, hafði dómari
úrskurðað, að krufning skyldi gerð
og hún framkvæmd, án þess að nein-
um vörnum yrði við komið.
Með skírskotun til ofanritaðs, og
fleiri dæmi mætti auðveldlega nefna,
virðist því nauðsynlegt, að um þetta
séu skýr ákvæði í lögum, eins og
er t.d. í norskri löggjöf sbr. „LOV
av 9. februar 1973 nr. 6“ og í danskri
löggjöf sbr. „Lov 9. juni 1967 nr.
246 om udtagelse af menneskeligt
væv m.v.“
Þá skal að lokum minnst á frum-
varp til laga um breytingu á lögum
nr. 64/1962 um dánarvottorð, er
samþykkt var samhljóða á Kirkju-
þingi 1986 og aftur 1989. Mér er
ekki kunnugt um, hvort nokkurn
tíma var fjallað um þetta mál í Sam-
starfsnefnd Alþingis og Kirkjuþings,
en heiti nú á alþingismenn að taka
það upp, - e.t.v. í tengslum við frum-
varp til laga um réttindi sjúklinga,
sem væntanlega kemur til kasta
þingsins, áður en langar stundir liða.
ÞORBERGUR KRISTJÁNSSON,
fyrrv. sóknarprestur.
var við það risavaxna starf sem
Vigdís forseti hefur unnið þjóðinni
okkar til heilla og velfarnaðar. Á
þeim árum sem hún hefur setið í
embætti forseta hefur hún unnið
þrekvirki í því að kynna land okkar
og þjóð, menningu, listir og sögu.
Þá hefur hún unnið mikið starf í
því að ryðja íslenskum fyrirtækjum
veginn að alþjóðlegum heimi við-
skiptanna. Kjör Vigdísar í embætti
forseta var stórt lóð á vogarskálarn-
ar í jafnréttisbaráttu kvenna, ekki
aðeins hér heima, heldur út um all-
an heim. Hún hefur alla tíð síðan
unnið þessari baráttu allt það lið
sem hún hefur mátt, svo um hefur
munað. Hér heima fyrir hefur Vig-
dís ekki aðeins verið óumdeilanlegt
sameiningartákn þjóðarinnar, held-
ur beinlínis hvatning fólksins í land-
inu til dáða. Við, sem að menningar-
málum í Hafnarfirði höfum unnið
undanfarin ár, höfum svo sannar-
lega fengið að kynnast þessari
hvatningu, en Vigdís hefur ósjaldan
hleypt í okkur kjarki, þegar á bratt-
an hefur verið að sækja. Hygg ég
að önnur byggðarlög þessa lands
hafi svipaða sögu að segja. Vigdís
hefur einnig sýnt það og sannað,
að hún er sönn „landsmóðir" og
eins og allar góðar mæður hefur
hún á stundum verið ströng í upp-
eldi samlanda sinna. Mér þykir ekki
ólíklegt, að á stundum hafi farið
um ýmsa stjórnmálamenn okkar,
þegar henni hafa mislíkað gjörðir
þeirra, þó að sjaldan fari slík mál
hátt. Hún hefur tekið virkan þátt
í gleði og sorg landsmanna og ver-
ið styrk stoð þeirra sem um sárt
eiga að binda eftir skelfíleg áföll
sem yfir þjóðina hafa dunið, ekki
síst undanfarin misseri. Nú þegar
forsetaferli Vigdísar Finnbogadótt-
ur fer senn að ljúka, er ég viss um
að ég tala fyrír munn flestra sam-
landa minna þegar ég lýsi yfir þakk-
læti til hennar fýrir það fórnfúsa
starf sem hún hefur unnið, langt
umfram embættisskyldur sínar.
Forsetaembættið mun um ókomna
tíð bera þess merki, að þar hefur
skörungur setið. Eftirmaður hennar
verður því að vera afburðamaður
ef forsetaembættið á að halda þeirri
menningarlegu reisn og virðingu
sem fylgt hefur Vigdísi Finnboga-
dóttur; Þar dugar ekki nein meðal-
mennska.
SVERRIR ÓLAFSSON,
myndhöggvari.
Einbýli - Seltjarnarnes
Einbýlishús um það bil 200 fm ásamt góðum bílskúr á stórri
víðivaxinni lóð. Fimm svefnherbergi, tvö þeirra sér sem gefur ýmsa
möguleika. Góð eign á góðu verði. Verð 13,2 millj.
Brekkusmári 3-9 Kópavogi
Raðhús 207 fm á tveimur hæðum með innbyggðum
bílsk. Húsin afhendast fullbúin að utan með grófjafn-
aðri lóð. Að innan: A: fokheld. B: tilbúin til innréttinga.
Eignin skiptist: Efri hæð: Anddyri, hol, eldhús, bað-
herb., stofa, svefnherb., bílskúr. Neðri hæð: Sjónvarps-
hol, baðherb., 4 svefnherb., bvottaherb./geymsla.
Traustur byggingaraðili. Vandaður frágangur.
4-5 svefnherbergi. Glæsilegt útsýni.
Gott verð, kr. A: 8.900.000. B: 11.600.000.
if ÁSBYRGI if
Suóurlandsbraut 54
vió faxafen, 108 Raykjavik,
sími 508-2444, ffax: 508-2446.
INGILEIFUR EINARSSON, löggiltur fasteignasali
blabib
-kjarni málsins!
SUNNUDAGUR 24. MARZ 1996 41
Óðinstorg
verslunarhúsnæði
Höfum fengið mjög bjart og gott 190 fm verslunarhúsn.
í miðbænum í sölu, nánar tiltekið við Óðinsgötu. Stórir
gluggar, ný gólfefni (parket, granítflísar), nýtt loft, góð
aðstaða fyrir starfsfólk og gott lagerpláss innaf. Gott
aðgengi.
EIGNAHOLLIN
FASTEIGNASALA
552-4111
Krlv H
Kjartan Kagnart hrl.
tögglltur ffóktei«n4Wli.
Kríitjon Kri»tjín»íon
Agl* i Bjármtlottif itMum
SUÐURLANDSBRAUT 14. 3. HÆÐ (HUS B&L)
•S 5 888 222 FAX 5 888 221
GOÐHEIMAR
Vorum að fá í sölu fallega sérhæð ca 127 fm
á 1. hæð. 3 svefnherb. Parket og flísar á
gólfum. Eldhús og bað endurnýjað. Góður
garður. Þvottahús og geymsla í kjallara.
Áhvílandi ca 4 millj. Verð 9,8 millj.
FASTEIGN ER FRAMTID
FASTEIGNAÍÍ)
SvmiR mSUMSSON loooiljur FASJEIONASALI^^P^
SUÐURLANDSBRAUT12,108REYKJAVÍK, FAX588 7072
MIÐLUN
SÍMI568 7768
Opið hús
Flyðrugrandi 18 - laus
Góð 2ja herb. 65 fm íbúð á jarðhæð í fjölbýli. íbúðin
er stofa með sérsuðurgarði útaf, flísalagt bað, parket,
gufubað. Áhvflandi 3,8 millj. húsbréf og veðdeild.
Verð 6,4 millj. Ólafur og Herdís taka á móti ykkur milli
kl. 14 og 17 í dag.
hrAunhamar
FASTEIGNA & SKIPASALA
BÆJARHRAUNI 22, HAFNARFIRÐI, SÍMI 565 4511
Álftanes - ný raðhús
V. 7,4 millj. tilb. u. trév.
Höfum til sölu mjög falleg 3ja og 4ra herb. raðhús
(með bílskúr) á góðum stað við Vesturtún 8 og 14 og
1-5. Verð frá 7,4 millj. miðað við tilb. u. trév. Lóð
frágengin og hellulögð. Bflastæði malbikuð. Teikning-
ar og nánari uppiýsingar á skrifstofu. Byggingaraðili:
Eðvarð Haligrímsson.
Ofanleiti - 3ja - Rvík
Sérlega falleg ca 85 fm íb. á 1. hæð í litlu fjölb. Vandað-
ar innr. Nýl. parket. Sérinng. og sérgarður. Áhv. byggsj.
Verð 8,3 millj. 29076.
Miðleiti - 4ra - Rvík
Glæsileg lúxus 125 fm endaíb. á 1. hæð í vönduðu
fjölb. Góðar innr. Parket. Svalir. Sérþvottaherb. Ath.
aðeins ein íb. á hverri hæð í 4ra-íb. stigagangi. Bfl-
skýli. Verð 11,8 millj.
Hörgsholt - Hf. - 2ja
Gullfalleg nýleg ca 60 fm íb. á 3. hæð (efstu) í góðu
fjölb. Útsýni. Parket. Suðursv. Áhv. húsbr. ca 3,8 millj.
Verð 5,8 millj.
Gott þjónustufyrirtæki til sölu
Höfum verið beðnir að selja eitt af eldri starfandi
fyrirtækjum landsins í þjónustu með tvær afgreiðsl-
ur á höfuðborgarsvæðinu. Frábært tækifæri fyrir
samhentar 1-2 fjölskyldur. Vel staðsett fyrirtæki í
góðu leiguhúsnæði. Nýlegar innr. og tæki. Um er
að ræða eitt af betri fyrirtækjum á sínu sviði. Uppl.
eingöngu á skrifstofu, ekki í síma.