Morgunblaðið - 27.03.1996, Blaðsíða 17
mit&M
á É0&
msm
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1996 17
ERLENT
Svíar
skerða
þróunarfé
SVÍAR hafa ákveðið að draga
úr þróunaraðstoð sinni við
Mósambík vegna þess hvernig
farið hefur verið féð, sem
þangað hefur verið gefið. Ann
Stodberg, sem fer með þróun-
araðstoð í sænska sendiráðinu
í Maputo í Mósambík, segir,
að um 160 millj. ísl. kr., sem
voru neyðaraðstoð og áttu að
fara í kaup á útsæði og verk-
færum, hafi lent í höndunum
á einstaklingum og alls ekki
farið til þeirra, sem átti að
hjálpa.
Edmund
Muskie látinn
Heilahimnu-
bólgufaraldur
MEIRA en 40.000 manns hafa
sýkst af heilahimnubólgu í 17
Afríkuríkjum á þessu ári og
um 6.000 hafa látist. Kom
þetta fram hjá Alþjóðaheil-
brigðisstofnuninni, WHO, í
gær. Hafa flest dauðsföllin
orðið í Nígeríu en síðan í Burk-
ina Faso og Níger. Heila-
himnubólga veldur dauða í
helmingi tilfella ef ekkert er
að gert.
Vilja Hróa
hött útlægan
FÓGETINN í Nottingham
virðist nú loks eftir 800 ár
vera að ná undirtökunum í
stríðinu við Hróa hött og fé-
laga hans í Skírisskógi. Fóget-
inn er að vísu ekki lengur kon-
ungsskipaður, heldur fær einn
borgarfulltrúanna hverju sinni
að bera titilinn, en honum og
atvinnurekendum í borginni
finnst það gamaldags að
flagga með mann, sem stal frá
ríka fólkinu og gaf fátækling-
um. Þess vegna hefur fjórum
auglýsingastofum verið falið
að búa til nýtt merki fyrir
borgina, sem er ekki jafn
„fjandsamlegt" hugsanlegum
fjárfestum. Það vill þó gleym-
ast, að Hrói höttur er líklega
mesti atvinnurekandinn í Nott-
ingham því að hans vegna
koma þangað 1,5 millj. gesta
á ári hveiju.
EDMUND Muskie, fyrrver-
andi utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna og öldungadeildar-
þingmaður,
lést af völd-
um
hjartaáfalls
á sjúkra-
húsi í Was-
hington í
gær, 81 árs
að aldri.
Hann var
ríkisstjóri Maine á árunum
1955-59 og þingrriaður í öld-
ungadeildinni 1959-80.
Muskie var demókrati og árið
1968 var hann varaforsetaefni
Huberts Humphreys í forseta-
kosningunum en þeir töpuðu
fyrir Richard Nixon. Fjórum
árum síðar sóttist hann eftir
því að verða valinn frambjóð-
andi demókrata í forsetakosn-
ingum en dró sig í hlé. Hann
var utanríkisráðherra í stjóm
Jimmys Carters 1980-81.
Ur eldhafinu
FÓLKSFLUTNINGABIFREIÐ
lenti í árekstri í Jakarta í Indó-
nesíu um síðustu helgi og skipti
þá engum togum, að mikill eldur
gaus upp í henni. Lét 31 maður
lífið í bílnum en þessum manni,
sem myndin sýnir, tókst að kasta
sér út á síðustu stundu.
Fækkar í Eurovision
London. Daily Telegraph.
RÖDD Þjóðveija, ísraela, Ungveija,
Dana og Rúmena mun ekki heyrast
í hinum árlega glymjanda.sem nefn-
ist söngvakeppni sjónvarpsstöðva
Evrópu (Eurovision). í fyrsta sinn,
og þó fyrr hefði verið eins og sum-
ir myndu halda fram, hefur keppn-
isþjóðum verið fækkað með for-
keppni.
Þjóðveijar geta státað sig af
góðri frammistöðu í söngvakeppn-
inni en ísraelar hafa hins vegar
eiginlega aldrei náð sér eftir sigur
lagsins Ba-ni-bi árið 1978. Aðeins
sænska lagið Diggi-loo, Diggi-ley
frá árinu 1984 hefur þótt hljóma
jafn skringilega í eyrum.
Þijátíu lög voru flutt í forkeppn-
inni og völdu dómarar 22 sem flutt
verða ásamt norska keppnislaginu
í lokakeppninni, sem fram fer í
Ósló 18. maí nk.
Þjóðirnar sem mæta til leiks 18.
maí eru Bretland, Tyrkland, Spánn,
Portúgal, Kýpur, Malta, Króatía,
Austurríki, Sviss, Grikkland, Eist-
land, Noregur, Frakkland, Slóvenía,
Holland, Belgía, írland, Finnland,
Ísland, Pólland, Bosnía, Slóvakía
og Svíþjóð.
Breska lagið er að þessu sinni
flutt af stúlkunni Gina G en hún
er fædd í Ástralíu. Heitir það Just
A Little Bit eða Pínulítið og segir
hún sjálf að það sé dæmigert ,júró-
visjón-lag“ og bætir við: „Þetta er
lag eins og maður syngur þegar
maður kemur heim úr sumarfríi."
Nú bjóðum við verulegan afslótt ó fjölmörgum sjónvarpsfækjum, myndbandsfækjum,
hljómfækjum, örbylgjuofnum, þyoffpvélum, úfvarpsvekjaraklukkum
IWaBiX
i&skip
ka e0
\y--- ■■■-•
m
mJm
Opiö til kl. 20:00 alla virka daga ab
páskum og kl. 10:00 til 18:00 laugard.
/ Æ
tmm
■:vv ■•': ■■■ •- ■ m
' æ.
f ‘ «K'JÍ * *'