Morgunblaðið - 27.03.1996, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 27.03.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. MARZ 1996 21 LISTIR Islensk myndlist í Kaup- mannahöfn HAFDÍS Ölafsdóttir opnar sýningu á grafíkverkum í Kaupmannahöfn, fimmtudag- inn 28. mars. Sýningin er í galleríi Nor- rænu ráð- herranefnd- arinnar, Store Strandstræde 18, sem er rétt við Ný- höfnina. Á sýning- unni eru tré- ristur og einþrykk af kopar- plötum. Myndefnið er vatn, hafið og fjallavötnin. Litur og form vatnsins. Sýningin er í boði Norrænu ráðherranefndarinnar (Nor- disk Ministerrád) og stendur til 29. apríl. Hafdís Ólafsdóttir Björk Signý Jónsdóttir Sæmundsdóttir Tvísöng’ur í Vinaminni BJÖRK Jónsdóttir og Signý Sæmundsdóttir halda tví- söngstónleika í safnaðarheim- ilinu Vinaminni á Akranesi í kvöld kl. 20.30. Meðleikari á tónleikunum er Gerrit Schuil. Á efnisskránni eru dúettar og einsöngslög eftir Purcell, Haydn, Schumann, Brahms, Rossini, Dvorak og skoskir þjóðlagadúettar. Tvær sýn- ingar eftir á Leigj- andanum NÚ ERU tvær sýningar eftir á Smíðaverkstæði Þjóðleik- hússins á breska verðlauna- leikritinu Leigjandanum eftir Simon Burke. Verkið segir frá ungri konu með vafasama fortíð. Hún flyst til breskrar smáborgar í þeirri von að geta hafið nýtt líf. En fortíðin eltir hana uppi. Síðustu sýningar eru annað kvöld og sunnudagskvöld 31. mars. Blúsbarokk TONLIST S i g ii r j ó n s s a I' n GÍTARDÚÓ Verk eftir Ponce, Gunnar Reyni Sveinsson, Debussy, Sor o.fl. Icetone 4 2 (Símon H. ívarsson og Michael Hillenstedt, gítarar). Listasafni Siguijóns Olafssonar, laugardaginn 23. marz kl. 17. HÖGGMYNDASALUR Sigur- jónssafns úti við marbakka Laugar- ness kemur manni fyrir sem merki- lega hnitmiðuð umgjörð um tónlist 20. aldar; myndirnar gætu ýmist verið úr öllum etnískum hornum heims eða stílfærðar útleggingar á Ijöllyndi og framtíðarhyggju Vest- urlendinga. Og þó að Fernando Sor hafi verið undantekning frá því í tíma, þá hæfði dagskrá Icetone 4 2 dúósins að öðru leyti listavel umhverfinu, þar sem ýmist var boð- ið upp á tónlist frá Suður-Ameríku, meira eða minna undir frumbyggja- áhrifum, eða frá Evrópu. Nær allt var frá okkar öld og náði reyndar fram til dagsins í dag. Undirritaður - og e.t.v. fleiri - minnist þess ekki að hafa rekizt á nafn Michaels Hillenste'dts fyrr, og hefði verið gaman að fá einhveijar upplýsingar um gítarleikarann, en svo langt teygði metnaður tónleika- skrárinnar sig því miður ekki. Verk- efni þeirra tvímenninga að þessu sinni voru öil gítardúó, utan hvað hvor lék sitt einleiksverkið á seinni hluta tónleikanna. Fyrst voru flutt ijögur smáverk eftir mexíkóska tónskáldið Manuel M. Ponce (d. 1948), Scherzino Maya, Arrulladora Mexicana, Int- ermezzo og Scherzino Mexicano; hafi þau verið saman í svítu frá tónskáldsins hendi, þá var allavega ekki greint frá neinu heildarnafni. Eins og nöfnin benda til var tónlist- in af þjóðlegum toga og hin áheyri- legasta, að svo miklu leyti sem blóð- veigja norrænna flytjenda gat kom- ið suðrænum funa til skila, og bætti ekki úr skák, að þeir félagár hljóm- uðu víða framan af sem nýkomnir inn úr hryssingslegum norðangarr- anum með loppna fingur. Þó sat lokaþátturinn nokkuð vel, fallegur hacienda-vals með dæmigerðum hemíólum. Forvitnilegasta viðfangsefni tón- leikanna voru eðlilega nýsmíðarnar úr smiðju Gunnars Reynis Sveins- sonar, en þaðan hefur fremur litið heyrzt undanfarna mánuði. Ásamt innskoti inni á milli frá Debussy, La petite negre og GoIIiwogg’s cakewalk úr píanósvítunni „Chil- dren’s Corner", mynduðu nýju stykki Gunnars Reynis fyrir 2 gít- ara „þeldekkstu" deild tónleikanna; fyrst með tveim barokk-stílæfing- um, Invensjón og Tokkata, en síðan færðist harðsoðið nútímaþéttbýlið nær með fjórþættri nafnlausri svítu [?], Morgunsnerting, Búggíið blífur, II basso og Hringdans í nóttinni. Hvað verkum Gunnars viðvíkur, mun í öllum tilvikum hafa verið um frumflutning að ræða, þótt ekki kæmi það fram af tónleikaskránni frekar en ýmislegt annað. Invensjónin var vel skrifuð og, eins og margt úr tónheimi Gunnars Reynis, lituð tveim eðlisþáttum sem fremur fáir tíðka að leiða saman hérlendis, þó að blandan sé alltaf jafn heillandi áheyrnar, þegar vel tekst til: komplementer-hrynjandi barokksins og synkópur jassins. Rifj- aðist upp fyrir manni nafn á stefnu, er reynt var að skapa kringum popp- lag Procols Harums, A Whiter Shade of Pale, þ.e. „Bach & Blues“, þegar örsmáu minni úr Veltempruðu Es- dúr fúgunni skaut upp, þó að stór- sveitarswing, bopp, svali og þriðji straumur séu ábyggilega fyrirferð- armeiri áhrifavaldar Gunnars úr hryngri tónlist. Tokkatan var í gígu- kenndum 6/8 takti og sömuleiðis ágætlega skrifuð, þó að flytjendur hefðu að ósekju mátt hlífa gervi- görnunum minna og leggja meiri kraft og sveiflu í spilamennskuna. í seinni þáttunum fjórum kom fram nútímalegri og abstraktari hlið á Gunnari Reyni. Ólíkar stemmningar skiptust á. Sumt minnti á raðtækni, annað á expressjónisma, enn annað á fijálsan jass, ýmist. í líðandi púls- leysi eða með mótorískum íytma eins og í passacaglíu-blendningnum „II basso“, þar sem undirritaður þóttist allt í einu heyra rafgítardraug frá ca 1961 í moll: la-do-fa-mí / sí- tí-famífamí / so-ta-fa-mí, o.s.frv. En - eins og Sixten Nordström mundi segja í tóndæmislok - sen försvann den... Gunnar er nógu samsettur komp- ónisti til að vera ekki leiðinlegur, og nógu músíkalskur til að samsetn- ingarnar gangi upp. Það ku víst kallað eklektismi. Kvað svo rammt að honum, að stundum grillti jafn- vel í silkistrengdan japanskan koto- slátt innan um afró-evrópsku stíl- brigðin, eins og sterkast kom fram í Hringdansinum. En öll stykkin verkuðu, a.m.k. við fyrstu heyrn, heilsteypt og í jafnvægi, að maður segi ekki innblásin, því þrátt fyrir að vantaði aðeins meiri glæsileika í flutningi, þá báru verkin vitni um nærri því unglingsspræka tjáning- argleði. Og ef það er einhver mæli- stika á gæði, þá mátti heyra vinnu- brögð, sem ekki, eins og svo oft í nútímatónlist, standa og falla með snilldarflutningi. Gítardúóið lék alls ekki illa, en hin lýta- og áhyggju- lausa yfirburðartækni, sem er for- senda sterkrar sannfærandi túlkun- ar, hefði mátt svífa oftar yfir vötn- um. Á hinn bóginn var styrkjafn- vægi þeirra félaga oftast með ágæt- um og samhljómur hljóðfæranna sömuleiðis. Eftir hlé lék Icetone 4 2 dúóið Fantasíu Op. 54 eftir einn aðalhöf- und gítartónmenntanna, hinn spænska Fernando Sor (1778- 1839), og samanstóð hún einkum af tilbrigðum við stef og líflegu valslagi, „Dans le genre Espagnol", með skvettu af flamenco í bláendi. Michael Hillenstedt lék einleik í Drei Tentos eftir Hans Werner Henze, nútímaframhaldi af fornri ricercare-spunatóngrein Spánverja fyrir víhuelu eða gítar. Símon kroppaði þarnæst hið kunna EI condor pasa í ágætri, þéttri útsetn- ingu eftir J. Morel, og komst hann nokkru betur frá sínu sólói en mót- leikarinn, enda Henze-verkið tölu- vert óárennilegra og meira leitandi í formi. Gítaristarnir voru nú orðnir sæmilega heitir og léku saman í Iokin brasílískan, argentínskan og kúbskan dans af þokka við ágætar undirtektir. Ríkarður Ö. Pálsson Hornsófi með innbyggðu rúml Verðkr. 159.600 Ekta leður d slitflötum og leðurlíki d grind. Litir: Vínrautt - brúnt - grœnt. Ferðageislaspilari með Starlite CD-105 Ferðageislaspilari m/útvarpi heyrnartólum, straumbreyti o.fl. og kassettutæki. Verð kr. 13.900 stgr. Verð kr. 14.989 stgr. BRÆÐURNIR ORMSSONHF Lágmúla 8, s. 553 8820 Midí Denver MC88 1 disks geislaspilari, útvarp og segulband. Verð Kr. 14.996 stgr. Lenco PPS 2024 1 disks geislaspilari, útvarp með 20 stöðva minni, segulband, fjarstýring með öllum aðgerðum, 200 W pmpo. Verð aðeins kr. 29.900 ONWA Mini 3248 Hljómtækjasamstæða með útvarpi, magnara. tvöföldu kassettutæki, geislaspiíara, stöðvaminni í útvarpi, fullkominni fjarstýringu og plötuspilara. Kr. 31.887 stgr.__________

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.