Morgunblaðið - 11.04.1996, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
RÓBERT Melax og Ingi Guðjónsson lyfjafræðingar í hinni nýju
lyfjaverslun í Lágmúla.
Ný lyfjaverslun opnuð í dag
20% afsláttur af öllum
lyfjum í 2 vikur
Kirkjumálaráðherra um málefni biskups
Ekki er forsenda
fyrir frávikningu
Frumvarp Al-
þýðuflokksins
Landið
verði eitt
kjördæmi
ÞINGMENN Alþýðuflokksins hafa
lagt fram frumvarp á Alþingi um að
landið verði eitt kjördæmi í alþingis-
kosningum.
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins, er fyrsti
flutningsmaður frumvarpsins sem er
um breytingu á stjómarskránni.
í greinargerð segir að í núverandi
kjördæmaskipan felist mikið rang-
læti. Réttur þéttbýlisbúa, einkum í
Reykjavík og á Reykjanesi, sé fyrir
borð borinn og þetta réttindaleysi
komi verst niður á alþýðufólki og
þeim sem minnst mega sín.
Fram kemur að með flutningi
frumvarpsins árétti Alþýðuflokkur-
inn stuðning við það grundvallarsjón-
armið að kosningaréttur landsmanna
skuli vera jafn. Flokkurinn hafi raun-
ar þegar á fyrstu árum sínum mótað
þá stefnu að landið skyldi gert að
einu kjördæmi og rökin fyrir þessu
séu jafnsterk nú og fyrir 70 árum.
„Islendingar eru fámenn þjóð í
samfélagi þjóðanna. Á tímum auk-
innar alþjóðlegrar samvinnu og sam-
keppni er nauðsynlegt að þjóðin sigli
öll í sama báti. Heildarhagsmunir
skipta meira máli en hagsmunir ein-
stakra kjördæma. Vandamál fram-
tíðarinnar krefjast nýrra leikreglna
í íslenskum stjómmálum,“ segir í
greinargerðinni.
Miðað er við það í frumvarpinu
að við næstu kosningar liggi fyrir
samþykkt breyting á stjómarskrá og
kosningalögum svo unnt sé að kjósa
í einu kjördæmi ekki síðar en árið
2003. Ekki er gert ráð fyrir að þing-
mönnum fækki en kveða megi á um
fjölda þeirra í lögum.
NÝ LYFJAVERSLUN, Lyfja, opn-
ar í dag í Lágmúla 5 í Reykjavík.
Forsvarsmenn Lyfju, lyfjafræð-
ingarnir Róbert Melax og Ingi
Guðjónsson, segja að markmið
verslunarinnar sé að bjóða neyt-
endum til frambúðar lyf á lægra
verði en tíðkast hafi til þessa.
Fyrstu tvær vikurnar verður
20% kynningarafsláttur af öllum
lyfjum sem seld eru í Lyfju en að
þeim tima liðnum verður boðinn
mismunandi afsláttur af ýmsum
lyfjum.
„Viðhöfum ákveðið að háfa
opið frá klukkan 9 á morgnana til
tiu á kvöldin alla daga vikunnar
því við teljum það mikið hagræði
fyrir neytendur að ávallt sé opið
eitt apótek til tíu á kvöldin," sagði
Róbert Melax á fréttamannafundi
sem boðað var til í gær.
í Lyfju verða á boðstólum öll
þau lyf sem hefðbundin apótek
bjóða en auk þess verður í boði
úrval annars konar vara, s.s. nátt-
úruvörur, fæðubótarefni, gælu-
dýrafóður, sælgæti, gos, samlokur
og undirfatnaður.
Sjálfsafgreiðsla er á flestum
vörum og verður starfandi hjúkr-
unarfræðingur til ráðgjafar fyrir
viðskiptavini. Einnig verður lyfja-
fræðingur við afgreiðsluborðið og
veitir faglega ráðgjöf jafnframt
því sem hann tekur á móti lyfseðl-.
um.
Lyfja er fyrsta lyfsöluverslunin
á höfuðborgarsvæðinu sem opnuð
er frá því að kaflar lyfjalaga sem
veita aukið frelsi varðandi lyfsölu
og Iyfjaverð, tóku gildi. „Við telj-
um að með tilkomu fleiri lyfja-
verslana skapist aðstæður þar sem
hægt verður að keppa meira í
verði og annarri þjónustu til hags-
bóta fyrir neytendur,“ segir Ró-
bert. /
ÞORSTEINN Pálsson, dóms- og
kirkjumálaráðherra, telur að eins
og mál liggi nú fyrir sé ekki for-
sendur fyrir hendi til að víkja herra
Ólafí Skúlasyni, biskupi íslands, úr
embætti þrátt fyrir að hann hafi
sent fjölmiðlum trúnaðarupplýs-
ingar. Ráðherra segir í bréfi til
Kristjáns Björnssonar, sóknarprests
á Hvammstanga, að um sé að ræða
verknað sem ekki réttiæti frávikn-
ingu.
Kristján sendi kirkjumálaráð-
herra bréf 22. mars sl. og óskaði
eftir að hann gerði viðeigandi ráð-
stafanir til að víkja biskupi frá
störfum. í bréfinu vitnar Kristján
til þess að biskup hafi gerst sekur
um alvarlegt trúnaðarbrot með því
að koma á framfæri við fjölmiðla
yfirlýsingu með trúnaðarupplýsing-
um. Með þessu hafi biskup gerst
sekur um brot á 32. grein laga um
réttindi og skyldur opinberra starfs-
manna, en þar segir að starfsmanni
sé skylt að gæta þagmælsku um
atriði er hann fær vitneskju um í
starfi sínu og leynt skuli fara sam-
kvæmt lögum, fyrirmælum yfirboð-
ara eða eðli máls.
I svarbréfí kirkjumálaráðherra,
sem Morgunblaðið fékk frá ráðu:
neytinu, segir: „Eins og mál þetta
liggur fyrir nú verður eigi talið að
hér sé um að ræða verknað sem
réttlætt geti frávikningu, eins og
þér hafið óskað eftir.“
Kristján Björnsson sagðist vera
ánægður með svör kirkjumálaráð-
herra þó að hann hafi ekki fallist
á ósk sína um að víkja biskupi úr
embætti. Með bréfínu væri staðfest
að kirkjumálaráðherra hefði vald
til að víkja biskupi frá störfum bryti
hann af sér.
„Ég er mjög sáttur við að ráð-
herra víkur sér ekki undan þeirri
ábyrgð sem hann hefur í málinu.
Hann víkur sér ekki undan vegna
þess.að það sé einhver formgalli á
erindi mínu eða að efni þess sé utan
valdsviðs hans. Ég held einnig að
það sé almenn skoðun lögfræðinga
að það sé hlutverk kirkjumálaráð-
herra að grípa inn í þegar verður
óheillaþróun í störfum háttsettra
embættismanna."
Kristján sagði að það væri hins
vegar greinilegt á svörum ráðherra
að ekki væri nægilegt að hann teldi
að Ólafur hafí framið alvarlegt
trúnaðarbrot. Það kynni að vera að
það hefði breytt einhverju um svör
ráðherra ef hann hefði áður fengið
í hendur úrskurð siðanefndar pre-
stafélagsins, en nefndin komst að
þeirri niðurstöðu að brot biskups
væri alvarlegt.
„Ég er eftir sem áður jafn sann- f
færður um að Ólafur hefur brotið I
þessa 32. grein laga um réttindi j
og skyldur starfsmanna ríkisins.
Ég tel að það sé staðfest með úr-
skurði siðanefndar prestafélags-
ins,“ sagði Kristján.
Stjórn PÍ ritar biskupi bréf
Stjóm Prestafélags íslands hefur
ritað biskupi íslands bréf þar sem
vakin er athygli hans á úrskurði
siðanefndar prestafélagsins frá 27.
mars sl. í honum segir að nefndin
telji alvarlegt að biskup skyldi leita |
skriflegrar staðfestingar á því að
séra Flóki Kristinsson hafí átt fund
með Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur,
sem sakað hefur biskup um nauðg-
unartilraun. Efni bréfs stjórnarinnar
verður gert kunnugt á félagsfundi
í Prestafélagi íslands 15. apríl nk.
Félagsmálaráðherra kveðst tilbúinn til að breyta frumvarpi um breytingar á vinnulöggjöf
Ákvæði laga um
sáttasemjara
verði óbreytt
Forsætisráðherra hafnaði í gær kröfu fulltrúa verka-
lýðshreyfingarinnar um að frumvörpin um stéttarfélög
og vinnudeilur og réttindi og skyldur starfsmanna ríkis-
ins yrðu dregin til baka. Félagsmálaráðherra lýsti því
yfir á fundinum að hann væri tilbúinn til að breyta
frumvarpinu um stéttarfélög og vinnudeilur í þá veru
að ákvæði laga um hlutverk ríkissáttasemjara og miðl-
unartillögu yrðu óbreytt.
PÁLL Pétursson félagsmálaráðherra lýsti
því yfír á fundi með forystumönnum
verkalýðshreyfingarinnar að hann væri tilbú-
inn til að beita sér fyrir að texti gildandi
laga um hlutverk sáttasemjara yrði tekinn
orðréttur upp í frumvarpið um breytingar á
vinnulöggjöfínni. Formenn ASÍ og BSRB
lýstu vonbrigðum með fundinn og sögðu að
frumvarpið væri fallið til að valda erfíðleikum
við gerð nýrra kjarasamninga um næstu ára-
mót.
Fundurinn var haldinn að ósk forystu-
manna launþegahreyfingarinnar, formanna
ASÍ, BSRB, BHM, KÍ og SÍB. Þeir lögð fram
þá kröfu á fundinum að frumvörpin um breyt-
manna ríkisins og stéttarfélög og vinnudeilur
yrðu dregin til baka og reynt yrði að skapa
sátt um þau í sumar. Fulltrúar ríkisstjónar-
innar, forsætisráðherra, fjármálaráðherra og
félagsmálaráðherra, höfnuðu því.
„Það er vilji ríkisstjórnarinnar að afgreiða
þessi frumvörp, en við hvöttum hins vegar
til þess á fundinum að þessar sveitir verka-
lýðsfélaga, sem þama áttu fulltrúa, mundu
koma að efnislegum athugasemdum við með-
ferð málsins í þinginu, en ekki firra sig allri
ábyrgð. Við viljum auðvitað að lög eins og
þessi, sem em um leikreglur á vinnumark-
aði, verði sem best úr garði gerð. Ég vona
nú, og skildi það þannig, að þeir myndu koma
með efnislegar athugasemdir, sem við gætum
haft gagn að og mundu stuðla að því að lög-
in yrðu sem frambærilegust,“ sagði Davíð
Oddsson forsætisráðherra eftir fundinn.
„Við vitum að fulltrúar verkalýðshreyfíng-
arinnar gera athugasemdir við einstök at-
riði, en við getum ekki undanþegið löggjaf-
ann þeirri skyldu að setja leikreglur um þenn-
an mikilvæga þátt í þjóðlífinu sem vinnu-
markaðurinn er, þar sem oft ræðst hvort
efnahagsmálin ganga úr skorðum eða halda
áfram með sæmilega farsælum hætti.
Ég held að lögin muni skapa betri vinnu-
og verkstöðu á vinnumarkaði í þágu laun-
þega og vinnuveitenda. Það má ekki gleyma
því að megininntakið í frumvarpinu um
vinnudeilur er að auka rétt hins einstaka
félagsmanns, kannski að einhveiju leyti á
kostnað verkalýðsforystunnar."
Davíðs sagðist hafa áhyggjur af því ef
verkalýðshreyfíngin efndi til átaka við ríkis-
stjórnina vegna ágreinings um breytingar á
vinnulöggjöfinni. Hann sagðist hins vegar
ekki eiga von á að það gerðist.
Auðveldar ekki gerð kjarasamninga
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, var
óánægður með þær viðtökur sem málflutn-
ingur verkalýðshreyfingarinnar fékk á fund-
inum. „Ég verð að segja að þessi fundur
veldur mér mjög miklum vonbrigðum og mér
sýnist ríkisstjórnin staðráðin í að grafa sig
enn dýpra niður í sínar skotgrafir. Maður
hlýtur að spyija sjálfan sig hvers vegna henni
liggur svona mikið á; hvort hún vilji reyna
að framkvæma þessar óvinsælu aðgerðir sem
fjærst þingkosningum. Það er mjög erfitt að
sjá af hveiju ríkisstjórnin vill ekki gefa sér
nokkra mánuði til að fara vandlega yfir þessa
hluti og kanna hvort unnt er að ná sátt um
þau markmið sem kunna að reynast sameig-
inleg.
Það er margt í þessum breytingum sem
ríkisstjómin er að beita sér fyrir, á vinnu-
markaði og innan ríkiskerfísins, sem krefst
þess að málin verði skoðuð heildstætt. Það
er t.d. talað um að samræma réttindi sem
opinberir starfsmenn búa við og aðrir á vinnu-
markaði. Þá hlýtur maður að spyija hvort
til standi að taka upp lögin um kjarasamning
opinberra starfsmanna. Ef það verður gert
þarf að hyggja að ýmsu í frumvarpinu um
stéttarfélög og vinnudeilur.“
Ögmundur sagði að viðbrögð við svörum
ríkisstjómarinnar yrðu rædd innan verkalýðs-
hreyfingarinnar á næstu dögum. Hann sagði
hættu á að þessi viðbrögð myndu gera gerð
næstu kjarasamninga erfiðari.
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, tók undir
þetta og sagði: „Ef þessi frumvörp fara í |
gegnum þingið og verða að lögum era allar
líkur á að þau spilli fyrir því sem hér þarf
að gerast um næstu áramót, þ.e.a.s. að koma '
á nýjum kjarasamningi. Hætt er við að vinn-
an fari meira í strögl um þessa aðferðar-
fræði og þessi lög en ekki í raunverulega
lausn á kjaradeilum. Lögin væru þá orðin
skaðvaldur í þessu starfsumhverfi,“ sagði
Benedikt.
Félagsmálaráðherra opinn fyrir
breytingum
Páll Pétursson félagsmálaráðherra ítrekaði j
á fundinum fyrri yfirlýsingar um að hann ,
væri tilbúinn til að gera breytingar á frum-. *
varpinu um stéttarfélög og vinnudeilur.
„Ég er tilbúinn til að beita mér fyrir því
að 9. grein laganna um sáttastörf í vinnudeil-
um verði tekin orðrétt upp í frumvarpið og
að menn búi við óbreytt ástand hvað varðar
hlutverk sáttasemjara. Sáttasemjari hefur
samkvæmt núgildandi lögum víðtækar heim-
ildir. Mér finnst hins vegar að menn hafi í l
umræðum um þetta mál gert allt of mikið S
úr vægi miðlunartillögu sáttasemjara. Miðl- >
unartillaga er í eðli sínu bara þrautarlending .
þegar samningar hafa ekki tekist með fijáls-
um hætti.“
Páll sagðist ennfremur vera tilbúinn til
að beita sér fyrir að ákvæði um atkvæða-
greiðslur og þátttöku í þeim yrðu endurskoð-
uð.
Forystumenn ASÍ áttu í gær fund með
þingflokkum Framsóknarflokks og Sjálfstæð-
isflokks. ASÍ fyrirhugar að eiga fund með
þingflokkum stjórnarandstöðunnar í dag eða
á morgun. Á morgun ætla forystumenn laon-
þegahreyfinganna að hittast og ræða hugsan- |
leg viðbrögð við svörum ríkisstjórnar og þing-
flokka.