Morgunblaðið - 11.04.1996, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 11.04.1996, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREIIMAR Misheppnaður úthafskarfa- samningur FYRIR nokkru var skýrt frá því að náðst hefði milliríkjasamningur um veiðistjómun á úthafskarfa á Reykjaneshrygg, sem Rússar og Pólveijar ætla að mótmæla. Sumir virðast halda að samkomulagið hafi verið sigur fyrir okkur. Það er rangt, því íslenska samninga- nefndin hefur greini- lega samið hrapallega illa af sér, þó ekki eins illa og þegar Jan May- en-samningurinn var gerður. Fyrir hagsmuni ís- lands væri hyggileg- ast, að íslensk stjórn- völd staðfestu ekki gerðir þessarar samn- inganefndar. Hinn sögnlegi réttur Það er athyglisvert, að þegar rætt er um rétt þjóða til nýtingar auðlinda úthafsins utan landhelgi að hinn „sögulegi réttur“ er þýðingarmikill. Hann var kjaminn í doktorsritgerð minni um rétt íslensku þjóðarinnar til víð- áttumikillar landhelgi og birtist nú sem strandríkisréttur, sem krafa um að sérstakt tillit sé tekið til í stað þess að binda úthlutun kvótans við hvert einstakt ríki, segir Gunnlaugur Þórðar- son, skal nú opnaður möguleiki fyrir brask með kvótann. þess hve afkoma þjóða er háð fisk- veiðum og sem veiðireynsla. Menn hafa látið sér koma til hugar að fyrst greinda atriðið samsvari 30% og hin síðari 70%. Hitt er annað mál, að seint mun nást samkomu- lag um skiptingu þeirra í hundraðs- hluta. Auðvitað er varðveisla fiski- stofna mál, sem snertir alla jarð- arbúa. Vakandi útgerðarmenn Sem betur fer hafa íslenskir útgerðarmenn í vaxandi mæli verið vakandi fyrir þeim möguleikum sem úthafsveiði gefur og sýnir það hve einkaframtakið er þýðingar- mikið á þessu sviði sem öðrum. íslensk stjórnvöld virðast til þessa ekki hafa áttað sig eins vel á mikil- vægi þeirra. Einn ráðherranna hef- ur meira að segja reynt að sporna við þeim svo sem afstaða hans til Smuguveiðanna sannar. Þá hefur sama ráðherra komið til hugar, að meina fleirum en 18 skipum veiðar á Flæmska hattinum. Tal um „stjórnlausar úthafsveiðar“ kemur og upp um undarlega sýn á þeim mikilvægu veiðum. Tillögur um kvótaskiptingu úthafskarfans Samkvæmt fyrrgreindri hlut- fallaskiptingu má meta rétt okkar sem 100%. Afstaða Grænlands og Færeyja saman má heita svipuð. Tillögur helstu veiðiþjóða um skiptingu úthafskarfans voru þess- ar: Tillögur íslands og Grænlands: ísland fái 53.421 tonn, Grænland og Færeyjar 58.991 tonn, Rúss- land 18.991 tonn, Noregur 4.367 tonn, ESB 6.796 tonn og aðrar þjóðir 7.364 tonn, samtals 150.000 tonn. Tillögur ESB: ísland 50.470 tonn, Grænland og Færeyjar 27.230 tonn, Rússland 40.697 tonn, Noregur 5.428 tonn, ESB 27.114 tonn og aðrir 4.061 tonn. Tillögur Rússa: ísland 35.200 tonn, Grænland og Færeyjar 20.700 tonn, Rússland 55.400 tonn, Noregur 9.600 tonn, ESB 11.000 tonn og aðrir 15.000 tonn. Til samanburðar skal hér tilfærð meðal- veiði síðustu 3ja ára samkv. skýrslu Al- þjóðahafrannsóknar- áðsins: ísland 36.200 tonn, Grænland 280 tonn, Færeyjar 3.900 tonn, Noregur 8.700 tonn, Rússland 27.000 tonn, ESB (árið 1995) 30.658 tonn og aðrir (árið 1995) 6.800 tonn. Alvarleg mistök Sakmv. samkomu- laginu varð kvóti Islands aðeins 45.000 tonn, en hefði miðað við fyrrgreind hlutföll með réttu átt að vera a.m.k. 61.000 tonn. Sérs- takta athygli vekur að ESB lagði til að ísland fengi 50.470 tonn. Afstaða íslensku samninga- nefndarinnar er furðuleg að ætla Færeyjum og Grænlandi 58.991 tonn eða 5.500 tonnum meira en íslandi. Vissulega er æskilegt að hafa gott samstarf við þessar grann- þjóðir okkar. Samkv. áðurnefndum hlutföllum hefði hlutur þeirra átt að vera 24.000 tonn, en 40.000 tonn var ofrausn og 59.000 tonn fjarstæða. Þetta sannar hve klaufalega ís- lenska samninganefndin hefur staðið sig. Óskiljanlegt hve Græn- lendingum er hampað á okkar kostnað. Spillt hugarfar Greinilegt er að spillt hugsun hefur gripið samningahópinn. í stað þess að binda úthlutun kvót- ans við hvert einstakt ríki, skal nú opnaður möguleiki fyrir brask með kvótann. Augljóst er að samninganefndin reynir að hugga íslenska útgerðar- menn með því að þeir geti tekið þátt í braskinu. (Sbr. Morgunblað- ið 22. f.m.) Auðvitað vita samningamenn ESB, Færeyja og Grænlands að á íslandi eru engir slíkir sjóðir til, sem keppt geta um kaup á kvóta við sjóði ESB. Þannig að þessi sið- lausa von um kaup á kvóta er aðeins til þess að kasta ryki í augu útvegsmanna. Þetta kvótabrask er greinilega hugsað í þágu Græn- lendinga. Samt eiga Grænlending- ar ekki skip til úthafskarfaveiða, en eru þeim mun sólgnari í að fá kvóta til þess að geta selt hann fyrir peninga. Mistökin má ekki endurtaka Rætt hefur verið um að gera þurfí milliríkjasamkomulag um rækjuveiði á Flæmska hattinum. Sem betur fer hefur ekki orðið úr því enn, því hætt er við að íslensk samninganefnd semji aftur af sér. í skjóli einkaframtaksins hafa íslenskir útgerðarmenn sýnt mikla framtakssemi með hinum auknu úthafsveiðum, sem er lofsvert. Þær munu skila margra milljarða meiri tekjum í þjóðarbúið og verða til bættrar samningsstöðu, þegar og ef til samninga kemur. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Gunnlaugur Þórðarson Ég er ekki mállaus! MIÐVIKUDAGINN 20. mars sl. birtist hér í Morgunblaðinu stutt frétt undir fyrirsögninni „Brotist inn til heyrnarlauss manns.“ Tilefni þessara skrifa minna eru þau að fréttin hófst á eftirfarandi hátt: „Heyrnarlaus og mállaus maður varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu aðfaranótt þriðjudagsins að vakna við það að innbrotsþjófur stóð yfir rúmi hans.“ Leiður misskilningur Það er ekki skemmtilegt að sjá stærsta blað landsins nota orðið mállaus um mann sem ekki heyrir. Frá mínum sjónarhóli bera orðin mállaus og málleysingi neikvæðan biæ, alveg eins og orðin heyrnleys- ingi og blindingi. Notkun orðsins mállaus er byggð á vanþekkingu, því að þó heyrnarlausir geti ekki talað á raddmáli hinna heyrandi eru þeir alls ekki mál-lausir. Þennan misskilning er nauðsynlegt að leið- rétta. Ekki eru öll mál talmál eða ritmál. Við sem erum heyrnarlaus eigum okkar eigið mál, sem er ís- lenska táknmálið. Sérstakt mál Þetta mál er fyllilega sambæri- legt við önnur tungumál, það hefur eigin orðaforða og sjálfstæða mál- fræði. Eini munurinn er sá að það er sjónrænt og talað með höndum, andliti og búk, þar sem hljóðrænt mál nýtist okkur ekki. Við sem erum fædd heyrnarlaus lítum svo á að íslenska táknmálið sé okkar móðurmál. íslenskt tal- og ritmál lítum við á sem fyrsta framandi mál okkar. Táknmálið er fjölbreytt og fallegt mál sem er jafn samofið menningu okkar heyrnarlausra og íslenskan er samþætt menningu þeirra sem eiga hana að móður- máli. Ekki alþjóðlegt Margir halda að táknmálið sé alþjóðlegt, að heyrnarlausir alls staðar í heiminum tali sama málið. Svo er ekki. Maðurinn er félagsvera og hefur ríka þörf fyrir samskipti. Þegar tveir eða fleiri heyrnarlausir koma saman hljóta þeir því að þróa með sér táknmál til sam- skipta, eins og þegar tveir heyrandi koma saman þróast óhjá- kvæmilega talmál. Þetta gerist alls staðar í heiminum, sérstakt talmál og sérstakt táknmál hefur kviknað á hveijum stað og málið ber merki þess umhverfis og þess þjóðfélags sem það skapaðist í. Allir vita að heyrandi íslending- ar tala ekki sömu tungu og heyrandi Kínveijar og hví skyldu heyrnar- lausir íslendingar þá tala sama málið og heyrnarlausir Kínveijar? Hröð þróun Táknmálið þróast mjög hratt, því það hefur enga skriflega geymd og ekkert ritmál. Sem dæmi má taka Barn sem fæðist heyrnarlaust, segir Anna Jóna Lárusdótt- ir, hefur bestu mögu- leikana á eðlilegum málþroska ef táknmál er talað í umhverfi þess allt frá fyrstu tíð. að elsta kynslóð heyrnarlausra talar mál sem kallast fingramál og bygg- ist mikið á stöfun íslenskra orða með fingrunum. Yngra fólkið talar hins vegar táknmál, þar sem flest orð og hugtök sem notuð eru eiga sérstök tákn. Það er því ekki hægt að setja samasemmerki milli fingra- stafrófsins og táknmálsins, heldur er fingrastafrófið aðeins hluti af táknmálinu. Nýyrði og erlend orð eru þó oft stöfuð þar til ný tákn fyrir þau þróast. Tákn- málið á það sammerkt með öðrum tungumál- um að ekki er alltaf auðvelt að þýða það beint, frá orði til orðs. Eitt tákn á táknmáli getur þurft að þýða sem heila setningu á íslensku og öfugt. Túlkun Þýðing milli tákn- máls og íslensku er í höndum táknmáls- túlka. Margir þeir sem fæddir eru heyrnar- lausir eiga erfitt með að lesa af vörum og vill því oft verða misskilningur i samskiptum við heyrandi fólk. Heyrnarlausir eiga því skýlausan rétt á túlkun í samskiptum við opin- bera aðila, í heilbrigðisþjónustu og í skólakerfinu. Einnig eru til rittúlk- ar, sem slá inn í tölvu jafnóðum það sem fram fer á talmáli. Hinri heyrnarlausi les það af tölvuskján- um og getur þannig fylgst með. Rittúlkun nýtist þeim sem hafa misst heyrn á fullorðinsaldri og eiga islenskuna að móðurmáli. Þeir sem hvorki hafa heyrn né sjón eiga svo rétt á þjónustu daufblindratúlka, sem túlka með snertingu. Túlka- miðlun er í höndum Samskiptamið- stöðvar heyrnarlausra og heyrnar- skertra, sem heyrir undir mennta- málaráðuneytið. Þar fara líka fram rannsóknir á íslenska táknmálinu og námskeið i táknmáli. Táknmálskennsla á háskólastigi Nú hafa rúmlega 800 manns sótt táknmálsnámskeið hjá Sam- skiptamiðstöðinni, en auk þess að kenna almenningi táknmál hefur hún umsjón með kennslu í tákn- málsfræðum við Háskóla íslands. Nú er boðið upp á 60 eininga nám í táknmálsfræðum og auk þess 40 eininga viðbótarnám i táknmáls- túlkun. Þetta er nýjung hér á ís- landi, en alger nauðsyn fyrir okkur heyrnarlausa, því táknmálskennsla Anna Jóna Lárusdóttir ÞINGMENN Sjálf- stæðisflokksins eru einkennilegt fyrir- brigði. Þeir hafa engin sameiginleg markmið. Þeir standa aldrei sam- an um neina stefríu, og það er fjarri þeim að ræða heiðarlega um efnahagsmál eða stjórnmál. Þeir kunna einfaldlega ekki ára- lagið. Kristján Pálsson (S) þingmaður Reyk- nesinga sannar þetta vel í grein sinni í Mbl. 25. jan, og er ástæða til að yfirfara þetta, sem honum þykir svo skemmtilegt í íslenzku efnahagslífi: KP þykir sjálfsagt, að íslenzkt fiskverkunarfólk flytji til Danmerk- ur, því þar fær það þrefalt hærri laun. Jafnsjálfsagt finnst honum, að erlent fiskverkunarfólk fái fijáls- an aðgang að slíkri vinnu hér, og „má þá allt eins búast við því að verkafólk á íslandi verði fljótlega flest af erlendu bergi brotið". „Það er þó erfítt að kyngja því, að ís- lenzkt verkafólk treystir sér ekki til að lifa á þeim launum, sem boð- in eru hér.“ Þegar nýkrónan tók gildi 1981 (þrem árum fyrir upp- töku kvótakerfisins) kostaði dönsk króna um þijár íslenzkar krónur. Nú kostar hún tæpar 12 krónur. Verðmæti íslenzku krónunnar er þannig nú rúmlega fjórðungur þess sem þá var. Meginástæða þessa er óstjórn í fjármálalífi landsins undir stjórn Seðlabankans og offjárfesting í djúp- veiði- og vinnsluskip- um, sem teflt hefír ver- ið fram gegn landróðr- arbátum og vinnslu í landi, hinum hefð- bundnu atvinnuvegum landsins. Allt hefir þetta byggzt á kvóta- kerfi framsóknar- manna, sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa stutt af miklum óvitaskap og ábyrgðar- leysi. Framsókn hlær að þessum óvitum. KG lýsir ástandinu nú svona: „Að frum- kvæði sjávarútvegsfyrirtækja víða um landið hefír orðið mikill samruni fyrirtækja, sem hefir gjörbreytt af- komu þeirra til hins betra.“ Þetta er algjörlega órökstutt. Þjóðhags- stofnun telur afkomu vinnsluskipa nú vera um 1%, þ.e. þau beijast í bökkum við að standa undir ofur- þunga offjárfestingarinnar, þrátt fyrir að upp hafi verið gefið að 20 stærstu útgerðarfyrirtækin hafi nú um helming allra þorskkvóta í fiski- lögsögunni að árlegu verðmæti um 7,6 milljarðar króna. Þijár stærstu útgerðirnar eiga 26 djúpveiði- og vinnsluskip, sem notuð eru innan fiskilögsögunnar við að drepa niður atvinnuvegi byggðanna. Allar jafn- ræðisreglur eru brotnar af fiski- ráðuneytinu og Fiskistofu með því að vinnsluskip fá kvóta en fiskverk- anir í landi verða að kaupa kvóta Þingmenn Sjálfstæðis- flokksins eru einkenni- legt fyrirbrigði, segir ___ — Onundur Asgeirsson, sem heldur því fram, að afnám kvótakerfís leiði til bættra lífskjara. dýru leiguverði eða fara á uppboðs- markaði. KP þakkar frumkvæði stórútgerðarinnar þetta „góða“ ástand, og að ella „væri staða þeirra mjög bágborin og jafnvel eins og staða landvinnslunnar er í dag“. Hann gerir þó engar tillögur um bætta afkomu landvinnslunnar, því að hann er talsmaður stórútgerðar- innar, hinna fáu og stóru. Kjörorð- ið: „Gjör rétt, þol ei órétt“, er að- eins í gildi fyrir kosningar. Erlent fjármagn og lág laun KP hvetur með stórum orðum til erlendrar fjárfestingar í íslenzkum sjávarútvegi, „allt að 49%“. Hann hefir ekki fyrir því að segja hvort það eigi að reiknast af allri fjárfest- ingu í sjávarútvegi, eða t.d. aðeins af kvótunum í fiskilögsögunni. „Að- ild útlendinga á frekar að vera fagn- aðarefni en áhyggjuefni," segir hann. Hann segir heldur ekki til hvers eigi að nota þetta erlenda fjármagn. Svona framsetning máls er rökleýsa, öðru nafni vitleysa. Það væri gott að hann setti mál sitt fram á ný, þannig að hægt væri að vita, hvað hann á við. Það er ekki hægt að ræða mál án þess að forsendurnar liggi fyrir. Alþingis- Lífróðurinn Önundur Ásgeirsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.