Morgunblaðið - 11.04.1996, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.04.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR Réttí tímínn tíl að forrækta grænmeti Morgunblaðið/Þorkell LÁRA Jónsdóttir garðyrkjufræðingur segir skipta miklu máli að birta sé næg og kjörið hitastig er 15-18 gráður Afengislaus bitter VÍNLAND ehf. hefur sett á markað áfengislausan bragðauka, Monin Bitter. Drykkurinn er ýmist drukk- inn einn sér, með klaka og kolsýrðu vatni, blandaður appelsínusafa eða notaður í óáfeng hanastél. Hann er framleiddur í fjölskyldu- fyrirtækinu Georges Monin SA, sem stofnað var árið 1912 en þar eru framleiddir yfir fjörutíu óáfengir drykkir úr ávaxalíkjörum. Monin Bitter mun fyrst um sinn eingöngu fást í verslunum Hag- kaups í Kringlunni og í Skeifunni og kostar 700 ml flaska tæpar sex hundruð krónur. ekki er með umfangsmikla ræktun að staksá, setja strax mold í að- skilda potta og pilla eitt til tvö fræ í hvern pott. „Þetta tekur örlítið lengri tíma en þegar er dreifsáð en fyrir vikið þarf ekki að um- planta og lengri ræktunartími fæst því vöxturinn stoppar aðeins þegar umplantað er.“ - Hvenær má síðan planta út í garð? „Það fer eftir því hvernig vorar. Búi lesendur það vel að vera með vermireiti með plasti eða gleri má setja plönturnar út um miðjan maí og jafnvel fyrr en séu þeir að planta í beð í garðinum eða borg- arlandi þá er rétti tíminn í lok maí eða byijun júní og þá er ráð MONIN ÞEIR sem hafa hug á að setja niður kartöflur og grænmeti ættu að fara að huga að því að setja kart- öflur upp til spírunar hvað úr hveiju en einnig er rétti tíminn núna til að for- rækta grænmeti. Þeir sem ekki hafa tök á að setja niður kartöflur og grænmeti við sumarbú- staði eða í bakgarðinum hjá sér eiga möguleika á að leigja hjá Garðyrkju- stjóra Reykjavíkurborgar skika til ræktunar. Á ýms- um bæjarskrifstofum er einnig hægt að sækja um svokallaða kartöflugarða, til að mynda er hægt að fá Ieigða garða hja Mos- fellsbæ, Kópavogsbæ og Hafnarfjarðarbæ. Ekki er óalgengt að 100 fermetrar séu leigðir á frá 800 krónum ogupp í 1.500 krónur eftir bæjarfélagi. Garðurinn er þá plægður en fólk á eftir að útvega sér áburð og plöntur. Góð birta og jafn raki Lára Jónsdóttir, garð- yrkjufræðingur hjá Blómavali, segir þennan árstíma einmitt henta til að byija forrækt- un á grænmeti. „Það sem þarf helst að for- rækta er blómkál, hvítkál, sperg- ilkál, salat, rósakál og gulrófur að hluta til. „Fyrsta uppskeran er alltaf dýrust og því er oft gott að forrækta gulrófur til að fá upp- skeruna snemma. Það má síðan sá gulrófunum beint út líka og fá þá uppskeru aðeins seinna.“ Lára segir að góð birta sé skilyrði fyrir árangursríkri forræktun og jafn raki líka. „Fólk þarf að passa upp á að plönturnar ofþorni ekki og æskilegur uppeldishiti er 15-18 gráður. Sé hitinn meiri þarf birtan að sama skapi að vera mikil.“ Eftir fjórðu til fimmtu viku má fara að viðra plönturnar sem þá eru líklega um fimm sentimetra háar. „Ef birtan hefur verið léleg og hitinn of mikill, verða plönturn- ar lengri og tuskulegri en ef birtan er góð og loftræsting í lagi. Dreifsá eða staksá Lára segir um tvær aðferðir sé að ræða við sáningu. „Það er hægt að dreifsá í bakka og eftir að kímblöðin eru komin í ljós er mál til komið að dreifplanta í litla potta. Lára ráðleggur fólki sem að breiða akrýl yfir beðin. Úrkoma kemst í gegn og það hitnar ekki of mikið. Gulrætur þarf ekki endilega að forrækta - Er ekki æskilegt að forrækta gulrætur? „Það er ekki nauðsynlegt og hægt að sá þeim snemma út í garð, jafnvel um þessar mundir. Gulrætur eru lengi að spíra og eru ekki við- kvæmar gagnvart kulda,“ segir Lára. Hún segir að þegar jarðvegur hlýni séu þær tilbúnar. Ef gulræturn- ar eru forræktaðar er best að hafa þær í djúpum ílátum og það má aldrei raska rót- inni og ekki umplanta þeim. Grýttur jarðvegur er slæm- ur fyrir gulrætur. Lára segir að salati megi sá beint út í byijun júní án forræktunar, radísum má sá beint út líka, næpum, rófum og spínati. Kryddjurtir borgar sig að forrækta Kryddjurtir er á hinn bóg- inn æskilegt að forrækta, þær eru lengi að spíra og um að gera að sá þeim strax í litla potta og jafnvel tíu til tuttugu fræjum í litla blómapotta. Stein- selju er auðvelt að rækta úti eftir að búið er að forrækta hana. Þá segist Lára gjarnan vilja benda á að um miðjan maí sé hægt að kaupa tilbúnar grænmetisplöntur og hún hvetur líka lesendur til að prófa að rækta nýjar tegundir, rautt blaðsalat, kínakál, iceberg og rauðrófur. Lífrænn áburður í moldina - Hvernig býr fólk beð undir ræktun? „Það er mjög gott að setja líf- rænan áburð í alla mold, hún verð- ur lifandi og grænmetið bragð- betra en ella. Það má nota þurrk- aðan hænsnaskít, hrossatað er gott að leggja nú þegar í beðin og láta liggja í moldinni. Sama á við um kúaskít. Það er gott að láta hann snemma í beðin og skol- ast niður í jarðveginn. Einnig má nota þörungamjöl og það þarf að- eins meira af því en öðrum áburði. Tilbúinn áburður er einnig notaður með, því í honum eru köfnunar- efni sem ekki er mikið af í hús- dýraáburði. Hinsvegar þarf að fylgja ráðlögðum skömmtum með hann.“ A næstu grösum Tælensk mat- reiðsla hjá gestakokki mánaðarins í KVÖLD, fimmtudagskvöld, verður Örn Karlsson gesta- kokkur mánaðarins á veit- ingastaðnum Á næstu grös- um. Hann er nýkominn frá Tælandi og kom við á mark- aði í Bankok til að kaupa krydd og annað sem hentar í tælenskra matargerð. Mun hann matreiða með hráefni úr leiðangri sínum ýmsa grænmetis- og bauna- rétti fyrir gesti staðarins. FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996 15 OPIÐ í DAG FRÁ KL. 12.00 TIL 18.30. Lambasteik, 129g 58 Grísanaggar 300g + Uncle Bens súrsæt sósa 339 Danskar pylsur, 10 stk. með pylsubrauði og sósu 399 Kjötfars, pr. kg 197 BC/NUS smópizzur 97 Ýsuflök, pr. kg 219 Hvítlaukur, þrír í kippu 29 Hvítkál, pr. kg 39 BÍ NUS Smyrill 69 KJARNA appelsínumarmelaði 99 Gul epli, pr. kg 69 GEVALIA kaffi rauður, 500g T97 KUCKEN Master kökur 119 JACOBS club kex, 7 stk. 99 Hafrabrauð frá Austurveri 97 B4>NUS sóda, kolsýrt vatn, lítri 59 Fjórar eldhúsrúllur 99 ORGANICS sjampó 199 Palmolive, 6 sápur 149 Tvö hundruð mynda albúm 369 Ódýrasta framköllun mynda á landinu! - 24 myndir aðeins 495 Afgreiðslutími á laugardag er 10.00 til 16.00 til 17.00 í Holtagörðum. Á sunnudag er opið í Holtagörðum frá 13.00 til 17.00 Opið á morgun, föstudag frá 12.00 til 19.30 LANDUST
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.