Morgunblaðið - 11.04.1996, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.04.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996 17 r ERLENT Metat- vinnuleysi í Þýskalandi FJÖLDI atvinnulausra hélt áfram að vaxa í Þýskalandi í mars, átt- unda mánuðinn í röð. Alls eru nú 3,998 milljónir Þjóðveija án at- vinnu og hafa ekki verið fleiri eftir stríð. Atvinnulausum fjölgaði um 26 þúsund milli mánaða en hafði mánuðinn þar áður fjölgað um 27 þúsund. Biður gyðinga fyrirgefningar LEIKARINN Marlon Brando hefur í símtali við yfirmann Simon Wies- enthal-stofnunarinnar harmað um- mæli er hann lét falla í beinni út- sendingu þáttar Larry King á sjónvarpsstöð- inni CNN sl. föstudag. Þar sagði Brando gyðinga ráða ríkjum í Holly- wood og væri hann reiður gyðingum í stétt kvikmyndagerðar- manna er sýndu ýmsa minnihluta- hópa aðra en gyðinga í neikvæðu Ijósi í myndum sínum. Yfirmaður stofnunarinnar sagði Brando hafa harmað þessi<ummæli en jafnframt tekið fram að gyðingahatur hafi ekki legið að baki. Aukakosn- ingar í Bretlandi TALIÐ er liklegt að íhaldsflokkur- inn tapi aukakosningum í kjördæm- inu Staffordshire í Mið-Englandi í dag. Þingmaður kjördæmisins, íhaldsmaðurinn David Lightbown, lést í lok síðasta árs. Benda skoð- anakannanir til að Verkamanna- flokkurinn vinni öruggan sigur í kosningunum. Verði sú raunin mun ríkisstjórn Johns Majors forsætis- ráðherra einungis hafa eins manns meirihluta á þingi. Ihaldsflokkurinn hefur ekki unnið sigur í aukakosn- ingum frá árinu 1989. Marlon Brando Alþjóðleg ráðstefna í Vín um Tsjernobyl-kjarnorkuslysið Flest fórnarlömb böm Vín. Reuter. ALÞJÓÐLEG ráðstefna um Tsjernobyl-slysið var sett í Vín á þriðjudag og hófst með einnar mín- útu þögn í minningu þeirra, sem látist hafa, og vegna þeirra, sem þjást nú og eiga hugsanlega eftir að þjást af völdum geislamengunar. Eru þátttakendur rúmlega 700 en ráðstefnan er hald- in á vegum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinn- ar, IAEA, Evrópusambandsins, ESB, og Heil- brigðismálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, WHO. Boutros Boutros-Ghali, framkvæmdastjóri SÞ, sagði í ávarpi sínu, að Tsjernobyl-slysið 26. apríl 1986 væri ekki einkamál fárra þjóða enda myndi langur timi líða áður en allar afleiðingar þess kæmu fram. Minnti hann á, að vegna slyssins hefðu hundruð þúsunda manna hrakist frá heim- ilum sínum, mörg hundruð börn hefðu greinst með krabbamein í skjaldkirtli, ófijósemi hefði aukist og einnig dánartíðnin. 25% útgjaldanna vegna Tsjernobyl Breskur vísindamaður sagði, að Tsjemóbýl- slysið hefði fyrst og fremst bitnað á bömum, þau væm fjölmennustu fórnarlömbin þar sem vitað væri um skjaldkirtilskrabba í 400 börnum í Hvíta- Rússlandi sem rekja mætti beint til slyssins. Skjaldkirtilskrabbamein í börnum hefur 100-faldast í Hvíta Rússlandi Fulltrúar þeirra þriggja landa, sem urðu mest fyrir barðinu á geislamenguninni, Hvíta Rúss- lands, Úkraínu og Rússlands, drógu upp ófagra mynd af afleiðingum slyssins og lögðu áherslu á, að þau þyrftu á fjárhags- og tæknilegri að- stoð að halda tii að lina þjáningar þúsunda manna á menguðum svæðum. Alexander Lúkashenko, forseti Hvíta Rúss- lands, sagði, að 25% af útgjöldum ríkisins færu eingöngu til að bæta fyrir afleiðingar „kjarn- orkufellibylsins" fyrir tíu árum. 1990 lýsti þáver- andi æðstaráð Hvíta Rússlands yfir, að landið væri allt eitt hamfarasvæði en sérfræðingar á ráðstefnunni sögðu, að 140.000 ferkm, svæði á stærð við Danmörk, Belgíu, Holland og Sviss samanlögð, væm mengaðir. Sem dæmi um afleiðingar geislamengunarinn- ar má nefna, að skjaldkirtilskrabbamein í börn- um er nú 100 sinnum algengara í Gomel-héraði í Hvíta Rússlandi en fyrir slysið og talið er, að hún eigi einnig sök á auknu hvítblæði. 70% mengunarinnar í Hvíta Rússlandi Geislamengunar frá Tsjernobyl varð vart um alla Evrópu en Hvíta Rússland með sína 10 milljón íbúa varð langverst úti. Tsjernobyl-verið er í Úkraínu, rétt við landamærin að Hvíta Rúss- landi, en vegna vindáttarinnar þegar slysið varð bámst 70% geisiamengunarinnar yfir Hvíta Rússland. Að sögn talsmanna WHO var geislun- in 200 sinnum meiri en þegar kjarnorkusprengj- um var varpað á japönsku borgirnar Hiroshima og Nagasaki í síðustu heimsstyijöld. Forseti ráðstefnunnar, Angela Merkel, um- hverfisráðherra Þýskalands, sagði, að tilgangur hennar væri að draga saman þær rannsóknir, sem gerðar hefðu verið á Tsjernobyl-slysinu og afleiðingum þess. Rætt um öryggismál Meðal annars verður rætt um öryggi stein- steypuhvelfingarinnar, sem gerð var utan um kjarnakljúfinn í Tsjernobyl eftir slysið, og þá hættu, sem stafar af öðrum sams konar kljúfum en þeir em 15 talsins í Austur-Evrópu og Sovét- ríkjunum fyrrverandi. Reuter Leikfimisalurinn í Dunblane rifinn HAFIST var handa við að rífa leikfimisalinn í bænum Dun- blane á Skotlandi þar sem Thomas Hamilton skaut sextán börn og kennara þeirra til bana 13. mars og framdi síðan sjálfs- morð. Ákveðið var að rífa hús- ið að beiðni foreldra barnanna, sem létu lífið, og verður gerður blómareitur á grunni þess. í kjölfar morðanna hafa vaknað kröfur um herta skot- vopnalöggjöf. Verið er að rann- saka hvernig á því stóð að Hamilton, sem hafði orð á sér fyrir undariega hegðun, hafði leyfi til að eiga nokkur skot- vopn. Rostenkowski fékk 17 mánuði Washington. Reuter. DAN Rostenkowski, sem eitt sinn var einn valdamesti demó- kratinn í fulltrúdeild Bandaríkjaþings og var formaður útgjalda- nefndar hennar, var á þriðjudag dæmdur í sautján mánaða fang- elsi fyrir að misnota aðstöðu sína á þingi. Rostenkowski, sem settist á þing 1959 og sat þar til hann var felldur í kosningum 1994, játaði að hafa vitað að starfsmenn hans á þingi hefðu gert persónuleg og pólitísk viðvik í trássi við reglur þingsins og að opinberir sjóðir hefðu verið notaðir til að kaupa vinagjafir í ritfangaverslun fulltrúadeildarinnar. „Brást trausti“ Norma Holloway Johnson, dóm- ari alríkisréttarins í Washington, sagði að Rostenkowski hefði „brugðist trausti“ og fordæmdi hann fyrir „ámælis- verða“ hegðun. „Þú misnotaðir stöðu þína kinnroða- laust," sagði dómarinn og skipaði honum að gefa sig fram við fang- elsisyfirvöld innan 30 daga. Saksóknari féllst á að falla frá öðrum kærum gegn játningu Rostenkowskis og verður hann því ekki dreginn fyrir dóm fyrir spillingu. Ákæruvaldið kvaðst geta sannað á Rostenkowski að hann hefði á 20 árum dregið sér rúmlega 600 þúsund dollara (um 40 milljón- ir króna) úr opinberum sjóðum, sett fólk á launaskrá án þess að það ynni og svikið fé úr pósthúsi þings- ins með því að ljúga til um frí- merkjakaup. Dan Rostenkowski Rétti tíminn til að gera góð kaup! Canon Tulip Vision Line Pentium 100 8 MB minni - 850 MB diskur 4 hraða geislaspiiari SoundBlaster 16 hljóðkort 15W hátalafar - Windows 95 MS Home heimapakkinn MS Works (ritvlnnsla, tðflureiknir, gagnagrunnurl MS Encarta - alfræðiorðabók MS Money - heimllisbókhald MS Scenes - undersea collection Megapak 3 <12 geisladiskar stútfullir af leikjum) The Lemmlngs Chronicles TFX • Tactical Fighter Experiment The VORTEX - Quantum Cate II Cyclones - Jammit - Dragon's Lair Novastorm - Reunlon - Megarace The Journeyman Project Turbo nikmmi m/14" lítaskiá kr. 179.900 m/15 ” litaskiá Opið laugardaga 10-14 CwdDAAW 3 Th* BoM in Gr»phic$ Canon BJC-70 Litableksprautuprentari fyrir heimiliö 2ja hylkja kerfi 720 dpi upplausn 30 blaða arkamatari - 3 bls/mín kr. 22.950 Litableksprautuprentari 4ra hylkja kerfi 720 dpi - 3 bls/mín 100 blaða arkamatari CorelDraw hönnunarpakkinn f^kíuloolS NYHERJA SKAFTAHLIÐ 24 SÍMI 569 7800 OLL VERÐ ERU STCR VERD M/VSK lit!p://www.nylierii.is/vorur/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.