Morgunblaðið - 11.04.1996, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
AUSTURSTRÆTI 9
Einkar hefur mér fundist
hvimleiður sá ávani fólks
að ræða eingöngu aðra
veitingastaði á
veitingastöðum.
Kosturinn við þennan
vilmjúka stað var einkum
sá að hér talaði enginn
um aðra staði.
Einhvernveginn var það
svo. Að líkindum var það
maturinn sem gerði menn
orðlausa.
Morgunblaðið/Áki Guðmundsson
Hrakinn svanur leitar skjóls
Bakkafirði. Morgunblaðið.
Tómas Ingi Olrich
greiðir atkvæði gegn
óbreyttu stjórnar-
frumvarpi
Gengur
gegn
hagsmun-
um kvóta-
bata
EKKI eru allir stjórnarþingmenn á
eitt sáttir um ágæti stjórnarfrum-
varps um stjórnun veiða smábáta
sem byggt er á samkomulagi Þor-
steins Pálssonar sjávarútvegsráð-
herra við Landssamband smábáta-
eigenda.
Tómas Ingi Olrich, þingmaður
Norðurlandskjördæmis eystra, seg-
ist í samtali við Morgunbiaðið ætla
að greiða atkvæði gegn frumvarp-
inu verði það lagt óbreytt fyrir
þingið. „Ég tek afstöðu gegn þessu
frumvarpi, en mun reyna að vinna
að því að frumvarpinu verði
breytt,“ segir hann.
„Mér líst illa á frumvarpið. Ég
mótmælti því í þingflokknum og
tel það ganga gegn því fiskveiði-
kerfi sem hér hefur ríkt og menn
hafa treyst. Það gengur gegn hags-
munum kvótabáta.“
Fjárfest í kvóta á röngum
forsendum
Hann segir að kvótaskip af öllum
stærðum, allt frá smábátum til tog-
ara, hafi orðið að þola niðurskurð
á kvótanum, en menn hafi treyst
þeim yfirlýsingum stjórnvalda að
þegar aðstæður leyfðu yrði kvótinn
aukinn á ný og menn fengju því
bætta skerðinguna.
„í ljósi þessa hafa eigendur
kvótabáta varist niðurskurðinum
með því að kaupa sér kvóta, að
sjálfsögðu í góðri trú um að þegar
kvótinn yrði aukinn þá fengju þeir
fullan arð af fjárfestingu sinni,“
segir Tómas.
„Nú er hins vegar ljóst að ef
þetta mál gengur eftir og er sam-
þykkt óbreytt þá hafa þessir aðilar
verið að beijast í sinni varnarbar-
áttu á röngum forsendum. Það má
því segja að fjárfestingar í kvóta
sem gerðar voru í góðri trú reynist
nú hafa verið gerðar á röngum
forsendum.“
Trúnaðarbrestur
Tómas segir að menn hafi treyst
stjórnvöldum. Nú hafi orðið trún-
aðarbrestur milli stjórnvalda og
þeirra sem hafi átt kvótabáta og
stundað útgerð á grundvelli þeirra
reglna sem hér hafi verið í gildi.
„Það er alvarlegur hlutur að kippa
þannig grundvellinum undan þeirri
fjárfestingarstefnu sem hefur verið
í gildi í sambandi við sjávarútveg-
inn,“ segir hann.
„Sú stefna var byggð á stefnu
stjórnvalda og gildandi lögum um
stjórn fiskveiða. Nú blasir við
óvissa í málefnum þeirra útgerða
sem leikið hafa eftir settum reglum.
Þetta kemur til með að draga úr
tiltrú manna á íjárfestingu í ís-
lenskum sjávarútvegi og skaða
stórlega þá fjölmörgu aðila sem
hafa verið að fjárfesta í sjávarút-
vegi, en þar á meðal eru lífeyris-
sjóðir.“
ÁLFT sem virðist hafa hrakist
undan veðri og vindum leitaði sér
skjóls undir húsvegg á Kötlunes-
vegi 1 á Bakkafirði, fyrir nokkru.
SKIPURIT fyrir Fræðslumiðstöð
Reykjavikur gerir ráð fyrir þremur
meginsviðum, rekstrarsviði, þjón-
ustusviði og þróunarsviði. í yfirlýs-
ingu borgarstjóra sem lögð hefur
verið fram í borgarráði er tekið
fram að skilningur borgaryfirvalda
sé sá, að í tilkynningu um uppsagn-
ir starfsmanna á skólaskrifstofu
felist tilboð til allra starfsmanna
um ráðningu hjá fræðslumiðstöð-
inni. Gert er ráð fyrir að ráðið verði
án auglýsingar og gildir það sama
um starfsmenn á Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur.
Samkvæmt tillögu skólamálaráðs
um starfsemi fræðslumiðstöðvar,
sem lögð hefur verið fram í borgar-
ráði, er gert ráð fyrir að stöður
forstöðumanna verði auglýstar
lausar til umsóknar svo fljótt sem
„SKÍÐASVÆÐINU hefur nú ver-
ið lokað vegna snjóleysis og verð-
ur ekki opnað fyrr en næsta vet-
ur. Við þökkum fyrir veturinn
og vonum að næsti vetur verði
ívið betri.“ Þannig hljóðaði sím-
svarinn í Skálafelli á þriðjudag
enda voru starfsmenn önnum
kafnir við að ganga frá tólum
og tækjum.
„Lækirnir eru byrjaðir að
koma upp úr og snjórinn á hröðu
undanhaldi. Það er örlítill snjór
í giljunum en alls ekki nóg til
að hafa opið,“ segir Grétar Þóris-
son upplýsingafulltrúi í Skála-
Álftin þáði veitingar úr lófa hús-
bóndans á heimilinu, Njáls Hall-
dórssonar, þegar hún lenti og
drakk mikið vatn. Einnig reyndi
Stöður forstöðu-
manna auglýstar
kostur er og að forstöðumanni mið-
stöðvarinnar verði falið að ráða í
stöðurnar í samráði við skólamála-
ráð. Þá er gert ráð fyrir að forstöðu-
manni í samráði við starfsmanna-
hald verði falið að bjóða starfs-
mönnum skólaskrifstofu önnur
störf hjá fræðslumiðstöðinni án þess
að skylt sé að auglýsa þau.
Jafnframt verður heimilað í fam-
haldi að ráða starfsmenn Fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkur án þess að
skylt sé að auglýsa aðrar stöður
en stjórnunarstöður. Þær stöður
sem ekki verður ráðið í verða aug-
lýstar lausar til umsóknar.
felli. Jafnframt er búið að loka
í Oddsskarði að hans sögn.
Skíðasvæðið er venjulega opið
til 1. maí og því verið að loka
þremur vikum fyrir tímann að
sögn Grétars. „Við höfum reynt
að hafa opið fram í maí en það
hefur ekki gengið vegna lélegrar
aðsóknar,“segir hann. Grétar
segir veturinn hafa verið „mjög
lélegan" það sem af er og ekki
bæti tíðarfar páskanna úr skák.
„Við fáum ekki að klára vertíðina
og erum ekki búin að ná nema
fjórðungi af áætluðum íekjum,"
segir Grétar og vill ekki tilgreina
hver sú upphæð er.
Lokað árið 1990 og opið
í átta daga árið 1991
Reykjavíkurborg tók við
rekstri svæðisins fyrir sex árum
og segir Grétar að lyfturnar í
Skálafelli hafi ekki verið
opnaðar veturinn 1990 vegna
snjóleysis. „Þannig að við höfum
svo sem séð annað eins. Næsta
vetur á eftir var opið í átta daga,
fuglinn að sníkja mat af gangandi
vegfarendum. Álftin er enn á
Bakkafirði og unir sér þar vel og
virðist ekkert fararsnið á henni.
Tilboð til allra
í yfirlýsingu borgarstjóra í tilefni
uppsagna starfsmanna á skólaskrif-
stofunni kemur fram að skilningur
borgaryfirvalda hafi verið sá að í
uppsagnabréfi til starfsmanna felist
tilboð til allra um ráðningu. Tilboð-
ið miðist við að starfsmenn haldi
þeim launakjörum sem þeir búi við.
Hins vegar sé ekki unnt að gefa
fyrirheit um tiltekin störf fyrr en
að loknum viðræðum sem nýráðinn
forstöðumaður og starfsmannahald
borgarinnar muni eiga við starfs-
menn í apríl.
Fyrir lok apríl og upphaf þriggja
mánaða uppsagnarfrests yrði unnt
að gera starfsmönnum endanleg
tilboð um skilgreind störf í þágu
fræðslumiðstöðvar.
held ég. Ég myndi segja að fyrsta
árið hafi snjóað álíka mikið og í
vetur en við erum búnir að slétta
landið mikið og sefja upp
girðingar til að fanga snjó sem
breytir talsverðu," segir hann en
ársúrkoma á Skálafellssvæðinu
er talsvert minni en í BláfjöIIum
að sögn Grétars. Einnig snýr
svæðið á móti suðri og því gætir
sólbráðar fyrr þar.
Aðspurður hvort borgi sig að
reka skíðasvæðið segir Grétar
að spyrja verði hvað eigi að miða
við langt tímabil. „Síðustu sex
ár hafa auðvitað ekki verið góð
en skíðasvæði eru rekin með tapi
alls staðar á landinu. En það er
gerð ákveðin kostnaðaráætlun
sem við höfum ekki getað
uppfyllt nema fjórðung af. I
fyrra höfðum við hins vegar
meiri tekjur og vorum nálægt
spánni árið þar áður. Þá var
nægur snjór en of hvasst. Ef við
tökum mið af síðustu þremur
árum hefur þetta verið allt í
lagp,“ segir hann að lokum.
íbúð nálægt miðbænum
Vantar strax nýja eða nýlega fallega 3ja-4ra herb. íbúð
með bílskúr eða bílgeymslu á svæði 101 í Reykjavík.
Fjársterkur kaupandi.
Fasteignasalan Sef,
sími 588 0150.
3 nieginsviö í Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur
Mjög lélegri skíðavertíð
í Skálafelli er lokið